Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGÚNBLÁÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÁNÚAR 1993 EFNI Ættartala á klettum í Jökulsárgljúfri Taka beiðni um þrif afar ólíklega Morgunblaðið/Árni Sæberg Göturnar ruddar Snjómokstur í Reykjavík hefur gengið vel í vetur, að sðgn Sigurðar Skarphéðinssonar gatnamálastjóra, en hans fólk á fyrir höndum margra vikna starf í viðbót til að borgarbúar komist milli húsa dag frá degi. Sigurður segir að á síðasta ári hafí hálkueyðing og snjómokstur í höfuðborginni kostað 90 milljónir króna, þar af hafí 15 farið í að minnka hálku á stígum og stéttum og 75 í að ryðja sköflum af götum. Náttúruverndarráð hefur sent hollensku listamönnunum Reinout van der Bergh og Gerhard Lentink bréf, þar sem farið er fram að að þeir greiði kostnað við hreinsun kletta- veggs í Jökulsárgljúfrum, en þeir máluðu ættartré Völs- unga á veggiim. Þeir tóku þessari málaleitan afar ólíklega. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu í október máluðu Hollending- amir ættartréð í Jökulsárgljúfrum, skammt frá Upptyppingum, sumarið 1987. Þeir ljósmynduðu verkið og lýstu tilurð þess á bók. í viðtali við Morgunblaðið sögðust þeir hafa búist við að merkið myndi mást af á skömmum tíma, enda hefðu þeir notað venjulega innanhússmálningu. Amþór Garðarsson, formaður Náttúruvemdarráðs, sagði að Nátt- úruvemdarráð hefði sent listamönn- unum bréf og farið fram á að þeir sæju til þess að verkið yrði hreinsað af klettaveggnum og greiddu þann kostnað sem af því hlytist. „Við feng- um svarbréf frá þeim í vikunni, en Eldfjallastöðin setur upp sjálfvirkt vöktunartæki í NORRÆNU eldfjallastöðinni í Reykjavík má á fjórskiptum tölvuskjá sjá hvemig ástandið er á fjórum eldfjallasvæðum í einu. Skráðar mælmgar á staðnum birtast þar jafnóðum í beinni útsendingu. Á undanfömum ámm hefur í eldfjalla- stöðinni verið unnið að þróun vöktunarkerfa og sjálfvirkn- in hefur nú náð þvi marki að mælitæki suður á Azoreyjum getur komið boðum til visindamanns, sem situr að kvöld- verði með fjölskyldu sinni í Reykjavík eða Lissabon á innan við 5 mínútum frá því mælitæki nema hugsanlegan forboða eldgoss. Nú síðast hefur verið í prófun og orðið tiltækt boðtæki frá tölvunni, sem vísindamaður getur borið á sér. hnöttum, upp í fjórum í einu, og er þar kominn til starfa sérfræðing- ur í þeim mælingum. Þetta tæki hefur ekki fyrr verið til hér á landi, en slíkar mælingar verið gerðar í samvinnu við erlenda vísindamenn. Þetta sjálfvirka kerfí er Norræna eldfjallastöðin með á fjórum stöð- um, í Kröflu, í Vestmannaeyjum, úti á Azoreyjum og í evrópskri rann- sóknastöð í Lúxemborg. Norræna eldfjallastöðin hefur nýlega eignast þrjú svonefnd GPS- landmælingatæki til mælinga á jarðskorpuhreyfíngum úr gervi- Starfsemin verði aukin Á Norrænu eldíjallastöðinni í Reykjavík, sem rekin hefur verið í 20 ár af Norðurlöndunum sameigin- lega, eru 17 ‘/2 stöðugildi og ávallt fleiri gestir og vísindamenn að störfum. Allir 12 fastráðnu starfs- mennirnir eru íslendingar. Eld- íjallastöðin hefur nýlega gengið í gegn um mat norrænnar nefndar og komið mjög vel út. Var lagt til að rekstrinum yrði fram haldið og hann aukinn. Auk þess hefur alþjóð- lega tímaritið Nature gert úttekt á rannsóknasviði norræns samstarfs með þeirri niðurstöðu að aðeins tvær stofnanir af þessu tagi séu þekktar utan Norðurlanda, Nor- ræna eldfjallastöðin í Reykjavík og Nordita kjarnorkueðlisfræðistofn- unin í Kaupmannahöfn. Sjá nánar gfrein og viðtöl í B-blaði á bls. 1, 2 og 4. þeir tóku þessari málaleitan afar ólík- lega. Við ætlum að ítreka þetta við þá, áður en við könnum til hvaða ráða við getum gripið, neiti þeir að lagfæra þessi umhverfísspjöll." Amþór sagði að vatnsmálningin, sem Hollendingamir notuðu, væri þeirrar náttúm, að hún gengi betur inn í blautan náttúmlegan stein en til dæmis olíumálning og því hefði ættartréð ekki enn horfið. --------» ♦ »--------- Innbrot í Garðabæ 4 mennyf- irheyrðu’ Rannsóknarlögreglan hóf í gær- morgun yfírheyrslur yfír fjómm mönnum sem allir em gmnaðir um að tengjast innbroti í íbúðarhús í Flatahverfí í Garðabæ á föstudags- morguninn og fyrir að hafa haft á brott með sér mikið af verðmætum. Mennimir vom handteknir á föstu- dagskvöld og aðfaranótt laugar- dags. Bílveltur og útafakstur vegna hálku MIKIL hálka er víða á vegum lands- ins og fóru alls sjö bflar útaf Reykja- nesbrautinni í hálku á föstudag. Einn bíll valt á toppinn og er mikið skemmdur en bflstjóri og far- þegar sluppu ómeiddir. Þá valt jeppabifreið skammt fyrir austan Hveragerði í gærmorgun vegna hálku en engin slys urðu á fólki. Islendingur stjórnar flugrekstri SÞ í írak Bjartsýnn á að flug verði leyft fljótlega ÞÓRÐUR Jónsson, framkvæmda- stjóri flugrekstrar Sameinuðu þjóð- anna í írak, var bjartsýnn á að eftir tvo sólarhringa eða svo myndu Irak- ar leyfa flug að nýju í landinu, þegar Morgunblaðið ræddi við hann sím- leiðis í gær, laugardag. Þórður, sem hefur aðsetur í Bagdad, hefur yfír níu flugvélum að ráða. Þær taka þátt í flutningum Sameinuðu þjóðanna í þessum heimshluta, era semsagt ekki eingöngu á flugi innan íraks. Flogið er með sendinefndir Sam- einuðu þjóðanna eins og vopnaeftirlitsmenn sem löngum hafa verið þymir í augum íraka og með birgðir og varahluti fyrir lið Samein- uðu þjóðanna í landinu. Aðspurður um flug- bannið sem írakar settu á föstudag segir Þórð- ur: „Þetta hefur nú átt sér nokkum aðdrag- anda. Ég varð fyrst var við að eitthvað væri á seyði þegar ég var kallaður niður í utannkis- ráðuneyti 4. janúar. Þeir fóra þá að fetta fíng- ur út í flugleiðina sem ég notaði til Umm Qasr [landamærastöðvar Sameinuðu þjóðanna í Kúveit] og ráku mig til að vera fyrir vestan Efrat-fljótið. Síðan þegar þeir þvinguðu mig til að fljúga eftir 32. breiddargráðu yfír Saudi- Arabíu vissi ég að eitthvað var í aðsigi. Síðan kom í ljós að Irakar vora búnir að setja upp eldflaugapalla sunnan 32. breiddargráðu. í gær [föstudag] afturkölluðu þeir síðan allar þær flugheimildir sem við höfðum," segir Þórð- ur. „Opinbera skýringin sem írakarnir gáfu var að þeim þætti það óþolandi að Sameinuðu þjóðimar væra að fljúga þegar þeir mættu það ekki sjálfir. Þetta er náttúrlega tómt kjaft- æði. Þeir vilja t.d. að við notum þeirra flugvél- ar en ekki okkar eigin. Svo er þetta auðvitað bara pólitík eins og hún gerist verst.“ Þórður segir að það hafi_ verið hepgilegt að engin vélanna níu var í írak þegar írakamir bönn- uðu flugið. Þær geta því haldið áfram flugi með því að krækja fyrir írak. „T.d. er ég núna með Antonov-vél á Larnaka á Kýpur sem ég ætla að koma til Kúveit með því að fljúga yfír Saudi-Arabíu.“ Þórður segir að það hefði getað skapað vandkvæði ef flugvélarnar hefðu verið kyrrsettar í írak því að Sameinuðu þjóð- imar hefðu ekki þann mannafla að unnt hefði verið að gæta vélanna á flugvöllum þar í landi. Öngþveiti í Bagdad Þórður segir að ekki fari hjá því að spenn- unnar í samskiptum íraka við bandamenn verði nú vart í höfuðborginni Bagdad. „Fólkið hefur lært af biturri reynslu að stríð er raun- hæfur möguleiki. Fólk var hrætt hér í gær. Það var öngþveiti á götum úti, fólk var að hamstra bensín og eldsneyti því flest hús era Þórður Jónsson framkvæmdastjóri flug- rekstrar SÞ í írak. hituð með olíu. Flestar olíustöðvar eru lokaðar í dag vegna þess að allt er búið. Fólk hefur sankað að sér mat og býst við hinu versta. En spennan hefur minnkað heldur í dag, því ekkert gerðist þegar fresturinn, sem írökum var gefinn, rann út.“ Þórður er ekki eini íslendingurinn sem starf- ar fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Írak. Þar er einnig Sigurður Sigurbjömsson rafeindavirki, sem er í forsvari fyrir öllu viðhaldi og nám- skeiðum varðandi fjarskiptabúnað SÞ. Þórður sagði að rætt hefði verið um að eiginkona Sigurðar, Auðbjörg Jakobsdóttir, færi til Amman í Jórdaníu á meðan spennuástandið stæði, en ekkert hefði verið ákveðið í því efni enn. Útsala, útsala ►Blaðamaður Morgunblaðsins brá sér á útsölur í vikunni en vetr- arútsölur hefjast nú fyrr en áður og kaupendur og kaupmenn eru sammála um að vöruúrval hafi batnað og verðið lækkað./lO Afdrifaríkt gáleysi ►Landlæknirtelur að um 13-15% þeirra kvartana sem berast emb- ættinu vegna læknamistaka, séu á rökum reistar og að sjúklingur hafi í þeim tiivikum hlotið af nokk- um eða verulegan skaða./14 Kvonfang krónprins- ins ►Masako Owada gaf nýverið jap- anska krónprinsinum Naruhito já- yrði sitt en margir Japanir voru famir að óttast um að hann fyndi sér ekki kvonfangvið hæfi./18 Ég gefst ekki upp ►Ásdís Jenna Ástráðsdóttir er fjölfötluð stúlka sem lauk stúd- entsprófi fyrir jólin og er nú við nám í Danmörku./20 Síðasti stórmeistar- inn fallinn ►Trompetleikarinn heimsfrægi Dizzy Gillespie lést í vikunni./22 Ný Niirnberg-réttar- höld ►Eagleburger utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur sakað serbn- eska leiðtoga um stríðsglæpi í Bosníu./24 B ► l-28 Á eldfjallavakt ►Norræna eldfjallastöðin hefur verið rekin í 20 ár með aðsetri á íslandi, en þó vita landsmenn allt of lítið um þau verkefni sem þar em unnin. I þessari grein er kynnt starfsemi stöðvarinnar./l Buster Keaton ►Kvikmyndaleikarinn Buster Keaton var sá þöglasti í þöglu myndunum./8 íslenskar konur eru feimnar ►Edda Rósa Sverrisdóttir versl- unarkona á Laugaveginum hefur reynt ýmislegt um dagana. Hún hefur verið sjóari og kálræktandi, hippi, puttaferðalangur, kvik- myndagerðarmaður, eiginkona, móðirogamma./lO Liprarí og léttari ►Sigrún Edda Bjömsdóttir leik- kona er í sviðsljósinu fyrir góða frammistöðu sína í Ronju ræn- ingjadóttur./14 sögunnar ►Abraham Ruef var meistari bak- tjaldamakksins, kom m.a. hand- bendi sínum í stól borgarstjóra San Fransiskó um síðustu aldamót./lG FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Leiðari 26 Helgispjall 26 Reykjavíkurbréf 26 Minningar 28 Iþróttir 46 Útvarp/sjónvarp 48 Gárur 51 Mannlifsstr. 6b Kvikmyndir 12b Dægurtónlist Fólkífréttum Myndasögur Brids Stjömuspá Skák Bió/dans Bréftil blaðsins 24b Velvakandi 24b Samsafnið 26b 13b 18b 20b 20b 20b 20b 21b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.