Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993 33 AS bjó á Vattamesi sín fyrstu bemskuár, en flutti ungur til Eski- fjarðar og síðar til Reykjavíkur. Hann var stór og myndarlegur mað- ur, með hávaxnari mönnum. Afí stundaði ftjálsar íþróttir með KR og vann til margra verðlauna. Hann keppti í spjótkasti á Ólympíuleikun- um í Berlín árið 1936 og var fána- beri íslenska liðsins. Honum þótti vænt um íslenska fánann og bar virð- ingu fyrir honum. Afi hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík árið 1939 og starfaði þar til ársins 1963 og sérstaklega vom honum stríðsárin minnisstæð. Hann vann þar ýmis frækileg björgunar- störf. Afí hætti í lögreglunni vegna heilsubrests. Alltaf átti sjórinn ríkan þátt í huga afa og margar átti hann trillumar í gegnum tíðina, síðast átta tonna dekkjabát. Útivera átti hug hans einnig og munum við margar veiði- ferðimar í Vola og Gíslholt þar sem margir silungar og laxar komu á land og þá var afí í essinu sínu. Eins hafði hann mikla ánægju af ijúpna- og gæsaveiðum. Afí eignaðist yndislega eiginkonu 29. október 1938, Lovísu Helgaóttur úr Reykjavík, sem lifír nú sinn ást- kæra eiginmann. Þau eignuðust sjö böm, fímm em á lífí, en tveir synir þeirra létust af slysfömm; Helgi árið 1959 aðeins 16 ára gamall, og Jón árið 1982, 37 ára frá eiginkonu og ungum syni þeirra. Afí og amma bjuggu sér og böm- um sínum traust og fallegt heimili, fyrst í Reykjavík og síðan í Kópa- vogi. Þar munum við fyrst eftir okk- ur elstu barnabörnin og tilkomumikið þótti okkur þegar afí gekk á höndum um tún og tröppur. Þegar við komum í heimsókn tók afí okkur alltaf opnum örmum, faðmaði og kyssti og spurði ávallt um líðan okkar og fjölskyldu og alltaf sagði hann eitthvað fallegt við hvert okkar. Hann hafði frá mörgu skemmtilegu að segja og hafði gaman af sögum frá því í gamla daga. Frásagnarhæfileiki hans var mikill og alltaf gaman að hlusta á hann. Um tíma buggu afí og amma í Hveragerði og vann afí þá hjá Raf- veitunni, en síðustu 18 árin bjuggu þau á Hjallavegi 9 í Reykjavík. Síð- ast vann hann sem vaktmaður hjá Sambandinu. Afí var æðrulaus og sá sem gott var að leita styrks hjá, vildi að allir hefðu það sem best. Bamahópurinn í kringum hann var talsverður, 16 barnabörn og tíu bamabarnaböm, sem nú sakna hans öll og syrgja af öllu hjarta hvert á sinn máta. Við sem þetta ritum gætum skrif- að heila bók um afa, en hér látum við staðar numið. Elsku afí, far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt og blessi þig elsku amma og styrki í sorg þinni. ísland er land þitt, og ávallt þú geymir ísland í huga þér, hvar sem þú ferö. ísland er landið, sem ungan þig dreymir, ísland í vonanna birtu þú sérð. ísland í sumarsins algræna skrúði, ísland með blikandi norðljósatraf ísland, er feðranna afrekum hlúði. ísland er foldin, sem lífið þér gaf. íslenzk er þjóðin, sem arfinn þinn geymir. íslenzk er tunga þín skír eins og gull. íslenzk sú lind, sem um æðar þér streymir. íslenzk er vonin af bjartsýni fiill. íslenzk er vornóttin albjört sem dagur. íslenzk er lundin með karlmennskuþor. íslenzk er vísan, hinn íslenzki brapr. Íslenzk er trúin á frelsisins vor. ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma. íslandi helgar þú krafta og starf. íslenzka þjóð, þér er ætlað að geyma íslenzka tungu, hinn dýrasta arf. ísland sé blessað um aldanna raðir, íslenzka moldin, er lífið þér gaf. ísland sé falið þér, eilífi faðir. ísland sé fijálst meðan sól gyllir haf. (Margrét Jónsdóttir) Barnabörn, Helga, Kristján og Hafþór og fjölskyldur þeirra. ÚTSALAN ER HAFIN Peysur, prjónavesti, pils, blússur og kjólar. Glugginn, Laugavegi40. Nám er skemmtilegt ef maður hefur vald á því. En til þess þarf grunn. Góðir byggingamenn byrja alltaf á því að leggja traustan grunn og það gera þeir nemendur lika sem vilja ná varanlegum árangri í námi. Þeir sem ekki hafa góðan grunn eiga sífellt í erfiðleikum með seinna nám. • Athuganir sýna að margir nemendur sem eru fyrir neðan 6 á samræmdu prófunum eiga í erfiðleikum með framhaldsnámið. • Það er enn þá tækifæri til að styrkja stöðu sína áður en farið er í próf. • Við bjóðum námsaðstoð við nemendur grunn,- framhalds.- og háskóla. Undirbyggið nám ykkar í tíma. Geymið þaðekki þartil þaðerorðiðof seint. Fékkstufyrir neðan 6 ájótaprófxnu? NÁMSAÐSTOÐ er þá eittfivað fyrir fiq. FYRIR HVERJA? Námsa&stoð er t.d. fyrir: • þá sem þurfa að ná sér á strik í skólanámi • þá sem hafa skipt um skóla og þurfa að ná upp yfirferð í nýja skólanum • þá sem vilja rifja upp námsefni fyrir frekari skólagöngu eða til nota í daglega lífinu 10. bekkingar athugið! Undirbúningi^r fyrir samræmd próf í ÍSLENSKU STÆRÐFRÆÐI, ENSKU og DÖNSKU! • Stutt námskeið - misserisnámskeið • Litlir hópar - einstaklingskennsla • Reyndir kennarar með kennsluréttindi • Mikið ítarefni - mikil áhersla lögð á námstækni • Fullorðinsfræðsla • Námsráðgjöf Upplýsingarog innritun kl. 14.30-18.30 virka daga í síma 79233 og í símsvara allan sólarhringinn. Fax: 79458 Nemendaþjónustan sf. Þangbakka 10, Mjódd. Háskólabíó fimmtudaginn 14. janúar kl. 20.00 laugardaginn 16. janúar kl. 17.00 Á tón- V PV jpJ w leikunum verða flutt verk m.a. eftir Strauss, Stolz og Offenbach. Efnisskráin er full af Vínarstemmningu undir stjórn Páls P. Pálssonar. Einsöngvari er Austurríkisstúlkan Milena Rudiferia. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Háskólabíói viö Hagatorg. Sími 622255, Miöasala daglega kl. 9 -17 og viö innganginn viö upphaf tónleika ÍSLAN DSBAN Kl - / takt viö nýja tíma! Sparileiðir íslandsbanka fœra þérgóða ávöxtun á bundnum og óbundnum reikningum Sparíleib 3 gaf 5, 3 /O raunávöxtun á árinu 1992 sem var hœsta raunávöxtun mebal óbundinna reikninga í bönkum og sparisjóöum. Sparileib 4 er bundinn reikningur sem gaf 6,3% raunávöxtun áriö 1992. Ávaxtabu sparifé þitt á árangursríkan hátt. íslandsbanki býöur fjórar mismunandi Sparileiöir sem taka miö af þörfum hvers og eins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.