Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 14
eftir Guörúnu Guðlaugsdóttur ÞAÐ ER mannlegt að gera mistök, en þau eru misjafnlega afdrifa- rík. Öðru hvoru berast fréttir af málaferlum sem verða vegna afleið- inga mistaka sem Iæknar gera. Nú skömmu fyrir jól var kveðinn upp dómur í Hæstarétti þar sem Fjórðungssjúkrahús Akureyrar var dæmt til að greiða háar skaðabætur vegna mistaka sem sýnt þótti að orðið hefðu við fæðingu drengs sem nú er sex ára gamall og ollu honum óbætanlegum skaða. Öll slík mál sem upp koma hér á landi koma í upphafi til kasta landlæknisembættisins. ■■■■■■■■IHBBMBBBBII^^^H^HBBHI í samtali við blaðamann Fjallad um gáleysi eða mis- Morgunbiaðsins sagði tök heÍlbrígöÍSStarfsmanna Ólafur Ólafsson landlækn- ir að þessi mál kæmu til embættisins af því að í lögum væri ákvæði um að embættið ætti að • sinna kvörtunum og kærum sem upp kæmu vegna heilbrigðisstarfs- manna. „Málarekstur í þessum málum er að nokkru leyti frábrugð- inn málarekstri í mörgum nágrannaríkjum. Fleiri mál fara til dóm- stóla þar, en hér verða oft sættir milli tveggja lögfræðinga. Greidd- ar hafa verið allt að 10 milljónir króna í slíkum tilfellum, en í öðrum tilfellum lægri upphæðir. Bætur eru mun hærri hér á landi en á öðrum Norðurlöndum,“ Sagði Ólafur. „Fyrir 1980 komu til landlækn- isembættisins árlega að meðaltali um 20 slík mál. Eftir 1980 hefur þeim farið fjölgandi. Árið 1990 komu til embættisins alls 380 mál. Af þeim voru á fimmta tug af alvarlegu tagi. Eftir athugun var niðurstaða sú að í 25 tilvikum væri álitið að ekki væri um mistök að ræða. 121 tilviki var álitið að um mistök væri að ræða. Mistök voru þannig álitin hafa orðið í tæpum helmingi alvarlegra mála sem embættinu bárust. Hér á landi kemur árlega hlutfallslega upp svipað- ur fjöldi tilvika þar sem sjúklingur hefur hlotið verulegan eða nokk- urn skaða af læknismeðferð og á hinum Norðurlöndunum. Það eru um það bil 13 til 15 prósent af þeim kvörtunum og kærum sem berast. Ekki hefur þó orðið veruleg aukning síðustu þrjú árin. BÆTURNAR TRYGGJA KALLA FJÁRHAGSLEGT ÖRYGGI KALLI er hann kallaður, litli drengurinn sem fæddist á Akureyri laust fyrir jólin 1986 og hlaut þau raunalegu örlög að skaddast óbætan- lega í fæðingunni. „Ég var orðin 37 ára gömul og við hjónin áttum einn fimmtán ára son þeg- ar ég varð ófrísk. Eins og gefur að skilja var eftirvæntingin mikil í þessari litlu fjölskyldu þegar leið að fæðingunni," segir Ingibjörg Auð- unsdóttir þegar hún rifjar upp þessa atburði, sem alþjóð eru nú lauslega kunnugir eftir að Hæstiréttur dæmdi Karli litla Guðmundssyni 8 milljónir króna í skaðabætur fyrir skömmu. Það var Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri sem gert var að reiða fram þetta fé, enda þótti sannað að drengurinn hefði skaddast í fæðingu vegna vítaverðs gáleysis starfsfólks þar. sem Hæstiréttur Meðgangan gekk vel,“ heldur Ingibjörg áfram frásögn sinni. „Auk hinna hefð* bundnu mæðraskoðana fór ég tvisvar í óm- skoðun og til Reykjavíkur í legvatnsástungu. Ekkert óeðlilegt kom fram í meðgöngunni þar til ég kom í síðustu mæðraskoðunina hér heima á Akureyri 15. desember, þá hafði ég lést um 500 g og var gengin með framyfír skráðan fæðingartíma sem var áætlaður 10. desember. Þá var innlögn á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri ákveðin. Þá hafði ég þegar skoðað fæðingardeiidina þar og var þá sér- staklega sýndur siriti og rafskaut sem notað er til innri síritunar. Ég hafði einnig fullviss- að mig um það hjá Jónasi Franklín fæðingar- lækni að það yrði örugglega læknir viðstadd- ur þegar ég fæddi. í mfnu minni er sú ákvörð- un að koma af stað fæðingu hjá mér tekin af Jónasi Franklín í síðustu mæðraskoðun- inni. Hann neitaði að hafa tekið þá ákvörðun seinna, í málaferlunum sem urðu, og einnig aðrir fæðingarlæknar sjúkrahússins. Samkvæmt hjúkrunarskýrslum var gerð tilraun tii að framkalla fæðingu um miðjan dag 16. desember en sú tilraun var árangurs- laus og seint um kvöldið var ákveðið að hvíla mig til morguns. Daginn eftir hafði ég óreglu- lega verki og á ný var ákveðið að reyna að setja fæðinguna í gang. í tólf klukkustundir stóðu þær tilraunir. Ekkert er skráð í hjúkr- unarskýrslur um gang mála, frá klukkan tæplega tíu um morguninn og fram til klukk- an sextán. En klukkan hálfsex um kvöldið var settur á mlg síriti en hann var aðeins hafður í gangi í eina klukkustund og sýndi aðeins 45 mínútna langt rit, sem Jónas Franklín skoðaði og dæmdi eðlilegt. Síritinn var ekkert notaður í þær tæpu þijár klukku-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.