Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 19
MORGUNULAÐIÐ SUNNUDAGjJR ,10. JANÚAR 1993 ) ) ) I I » raungreinum. I Gakushuin háskól- anum lagði hann stund á miðalda- sögu. Árið 1983 fór Naruhito til náms í sagnfræði og hagfræði við Merton College í Oxford og varð þar með fyrstur ríkisarfa Japana til að menntast utanlands. Hann er sérfróður um sögu sjóferða og sjóflutninga Japana og Breta á miðöldum. Prinsinn sneri aftur heim 1985 og tók þá við opinberum skyldum sem felast einkum í því að vera fulltrúi hirðarinnar við ýmsar athafnir. Naruhito varð krónprins og erf- ingi keisaradæmisins við andlát afa síns, Hirohitos keisara, 7. janúar 1989. Þá varð Akihito, faðir Naru- hitos, keisari og settist í krysant- emu-hásætið. Naruhito var ekki fyrr snúinn frá námi í Bretlandi en Japanir tóku að velta vöngum yfir hjúskaparáætlunum krónprinsins. Hann lét hafa eftir sér á blaða- mannafundi að hver sem brúðurinn yrði biði hennar erfitt hlutverk. „Ég held að hver og ein hugsi sig tvisv- ar um. Það er erfitt að búa í höll- inni, þvf lífíð þar er að ýmsu leyti enn að hætti gamla tímans." Þegar prinsinn var spurður um hvemig brúði hann óskaði sér helst svaraði hann: „Ég kýs einhveija sem bruðl- ar ekki um of, er ekki eyðsluseggur sem kaupir þetta og hitt hjá Tiffany’s í New York ... konu sem er hófsöm en getur svarað fyrir sig þegar þess gerist þörf.“ Krónprinsinn talar góða ensku og hefur lagt leið sína til meira en 20 landa. Hann hefur gaman af fjallgöngum, skíðaiðkun, tennis og útreiðum, þá leikur hann einnig á víólu. Krónprinsessan tilvonandi Masako Owada fómar framavon- um sínum innan japönsku utanríkis- þjónustunnar fyrir hásætið. Ein- hvern tíma hefði það ekki þótt mik- Naruhito krónprins. fljótlega baki við lögfræðinni til að gangast undir strembið inntökupróf fyrir starfsmenn í japönsku utanrík- isþjónustunni. Masako stóðst prófíð og var send á vegum ráðuneytisins til tveggja ára framhaldsnáms í al- þjóðalögum við Oxford háskóla. Hún talar ensku, frönsku og þýsku reiprennandi og hefur verið túlkur japanskra ráðherra, meðal annars í viðræðum Michio Wanatabes utan- ríkisráðherra Japans við James Baker utanríkisráðherra Bandaríkj- anna í nóvember 1991. Masako starfar í Norður-Ameríkudeild ut- anríkisþjónustunnar og hefur unnið il fóm, en fyrir metnaðarfulla og hámenntaða nútímakonu kann svo að vera. Keisaraembættið er ríg- bundið af fomum erfðavenjum og staða keisaraynjunnar mótast mikið af þeim. Hún stendur ævinlega í skugga keisarans og lífíð innan hallarmúranna gefur Masako fá tækifæri til að iðka þau fræði sem hún hefur menntast í. Masako Owada fæddist 9. des- ember 1963 og er því á þrítugasta aldursári. Hún hefur búið 14 ár utan Japans, en faðir hennar, His- ashi Owada, var diplómat í Moskvu og New York. Hann er nú aðstoðar- utanríkisráðherra og æðsti embætt- ismaður japanska utanríkisráðu- neytisins. Þykir það vegsauki að hann er að langfeðgatali kominn af samurai-hermönnum. Þegar Masako var sjö ára gömul fór hún í mikilsmetinn og strangan kaþólsk- an skóla í Tókýó. Fjölskyldan flutti til Bandaríkjanna þegar Masako var á fyrsta ári í framhaldsskóla, en þá gerðist faðir hennar fyrirlesari við Harvard háskólann. Masako settist síðar sjálf á skólabekk í Harvard og lauk þaðan prófí í hag- fræði árið 1985. Þá fór hún til náms í lagadeild Tókýó háskóla en sneri Masako Owada, verðandi krónprinsessa. 19 að gerð viðskiptasamninga við Bandaríkin. Hún hefur gaman af skíðaiðkun, leikur tennis og þykir afbragðs kokkur. Vinir hennar lýsa henni sem opinskárri og þróttmik- illi persónu, ýtir það enn frekar undir vangaveltur um hversu vel krónprinsessunni væntanlegu mun líka strangt hirðlífíð í keisarahöll- inni. Brúðkaupið bætir allra hag Fjölmiðlar eru þegar teknir að fyalla um hið keisaralega brúðkaup og hirðmenn keisarans eru í óðaönn að breyta fyrri tímaáætlunum og undirbúa að brúðkaupsdagurinn verði gerður að almennum frídegi, þótt hirðin hafí ekki enn viðurkennt opinberlega að neitt standi til. Sagt er að brúðkaupið verði þvílík hátíð að fáu verði til jafnað, nema þá helst giftingu keisarahjónanna 1959 sem þótti ævintýraleg í meira lagi. Menn eru einnig teknir að spá í félagsleg og þjóðhagsleg áhrif brúð- kaupsins. Því hefur verið spáð að brúðkaupið hvetji til neyslu sem nemur um 1.560 milljörðum ís- lenskra króna og auki þjóðarfram- leiðslu Japana um 1%. Álitið er að flöldi giftinga fylgi í kjölfarið, einkaneysla aukist, fjör færist í fasteignaviðskipti og gengi hluta- bréfa hækki. Minjagripaframleið- endur hafa þegar brett upp ermarn- ar og gullsalar eiga von á útgáfu sérstakrar gullmyntar, sem gæti hleypt lífí í gullviðskipti. Framleið- endur háskerpusjónvarpa búast við mikilli sölu slíkra tækja og telja að fólk vilji fylgjast með brúðkaupinu á skörpum breiðskjám. Spáð er al- mennri sakaruppgjöf brotamanna, líkt og gert var við keisarabrúð- kaupið 1959. Þá veitti keisarinn 48.000 sakamönnum uppreisn æru og sakaruppgjöf. Þaðerleikur að borða Cheerios! Safnaðu flipum og fáðubol! í tilefni þess að Cheerios hefur verið 50 ár á borðum íslendinga hefur General Mills ákveðið að bregða á leik með nýju íslensku pakkana. Cheerios leikurinn gengur þannig fyrir sig að þú klippir flipa af 6 Cheerios, Honey Nut eða Cocoa Puffs pökkum, fyllir út þátttökuseðilinn og sendir til okkar, ásamt flipunum, fyrir 28. febrúar 1993. Þú getur einnig komið með flipana í Vatnagarða 20 (Nathan & Olsen) og náð þér í bol. Þátttökuseðla í Cheerios leikinn er einnig að finna í verslunum víða um land. Njóttu vel og góða skemmtun! Ceneral Milts X tu 03 E 3 C 3 Q. <o (D E <o ‘•5 c 03 O) O) O '<ö Q) U) c <0 c c 03 JQ. '3 <o (0 Z O) C »- CO <D Tö E — o 1 £ ® £ 110) c c '<o V> o ■Q co co 52 '03 C O «3 V c oo k. I CD 03 ro — v_ SCU = ö) co CJ) a> (ö k_ n & 00 CM V. 0 k_ D ö) (ö T3 k_ (D ö) C T5 C 0 0 c c £ > (0 2* > a> fiC (M <o oi JS (/) E 3 '«3 'C U> '«3 C «3 'LU ■** (/) ■ö c (0 3 >•(0 k '8 o in m _ .2 5 ® 3 © tn JZ vo O a o CM 1 I ' E I I I I 1 I s i s £ « s tn c © o

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.