Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLADIÐ 1^993 Tölvunarfræðingur/ kerfisfræðingur Opinber stofnun óskar að ráða tölvunar- fræðing/kerfisfræðing eða aðila með sam- bærilega mennun til starfa í tölvudeild. Starfið: Þjónusta við notendur, uppsetning forrita, netumsjón og forritun. í boði er áhugavert starf og fjölbreytt verk- efni. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon í síma 679595 frá kl. 9-12. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs fyrir 16. janúar nk. RÁÐGARÐURHE STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88 Söluturn - atvinnutækifæri Söluturn á besta stað í Reykjavík til sölu af sérstökum ástæðum. Góð velta og mjög góð afkoma. Nætursöluleyfi. Ein- stakt tækifæri fyrir hjón eða aðra til að skapa sér sjálfstæða atvinnu og mjög góða afkomu. Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl., merkt: „T - 1311“. Embætti skattrann- sóknarstjóra ríkisins Embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins er laust til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lög- fræði, hagfræði eða viðskiptafræði, eða vera löggiltir endurskoðendur. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðu- neytinu, merktar: „Staða - 250“, fyrir 16. janúar 1993. Fjármálaráðuneytið, 23. desember 1992. Staða forstöðu- manns Listasafns á Akureyri Starf forstöðumanns við Listasafnið á Akur- eyri er laust til umsóknar. Um er að ræða stofnun, sem tekur til starfa á næsta ári. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi stað- góða þekkingu á listgreinum og/eða hlið- stæðum fræðum. Æskilegt er að umsækj- andi hafi reynslu af stjórnun og þjálfun í mannlegum samskiptum. Ráðning í starfið er til 4 ára. Laun samkvæmt kjarasamningi Akureyrar- bæjar og STAK. Meirihluti þeirra, sem sinna stjórnun og öðr- um áhrifastörfum hjá Akureyrarbæ, eru karl- menn. í samræmi við landslög og jafnréttis- áætlun bæjarins vill Akureyrarbær stefna að því, að hlutur kynjanna í áhrifastöðum verði sem jafnastur og hvetur því konur jafnt sem karla til að sækja um starfið. Upplýsingar um starfið gefa menningarfull- trúi Akureyrarbæjar í síma 96-27245 og starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í síma 96-21000. Umsóknarfrestur er til 25. janúar 1993. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæjar í Geislagötu 9, Akureyri. Starfsmannastjóri. ÁRBÆJARSAFN j Árbæjarsafn - safnkennari Árbæjarsafn óskar eftir að ráða safnkennara í 25% starf sem fyrst. Um er að ræða kennslu og móttöku skóla- barna á safninu. Umsækjandi skal hafa kennsluréttindi eða menntun á sviði þjóðháttafræði eða sagn- fræði. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Upplýsingar um starfið eru veittar á skrif- stofu safnsins í síma 814412. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar, Ráðhúsinu við Tjörnina, á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 25. janúar 1993. BORGARSPÍTALINN Sjúkraliðar Öldrunardeildir Borgarspítalans auglýsa eftir sjúkraliðum á útideildir, Hvítaband og Heilsu- verndarstöð: Deild E-63, Heilsuverndarstöð, vantar sjúkra- liða nú þegar. Helstu sjúklingahópar eru ein- staklingar, sem búa við margvíslega fötlun af völdum sjúkdóma og slysa og þarfnast langtíma hjúkrunar og hvíldarinnlagna. Hvítaband, öldrunardeild fyrir alzheimer sjúklinga, vantar sjúkraliða nú þegar í 60% stöðu. Borgarspítalinn er skemmtilegur vinnustað- ur. Þar gefst starfsfólki kostur á heilsurækt undir leiðsögn sjúkraþjálfara og afnot af sundlaug. Borgarspftalinn býður ykkur velkomin til starfa. Nánari upplýsingar veitir Erna Einarsdóttir, húkrunarframkvæmdastjóri starfsmannna- þjónustu, í síma 696366. Sölumaður Við hjá Kaupþingi hf. leitum eftir sölumanni til starfa hjá verðbréfadeild fyrirtækisins. Starfið er aðallega fólgið í sölu verðbréfa, einstaklingsráðgjöf og uppgjöri sölu í lok hvers dags. Við leitum að viðskiptafræðingi eða einhverj- um með sambærilega menntun. Æskilegt er að viðkomandi hafi starfsreynslu á þessu sviði, hafi til að bera frumkvæði og hressilegt og jákvætt hugarfar. Skrifleg umsókn, þar sem fram koma upplýs- ingar um aldur, menntun og fyrri störf, sendist til starfsmannastjóra Kaupþings hf., Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Umsóknir skulu berast fyrir 14. janúar 1993. KAUPÞING HF Löggilt verdbréfafyrirtæki, Kringlunni 5, 103 Reykjavík, sími 91-689080 Dansáhugafólk Óskum eftir að ráða danskennaranema og aðstoðarkennara strax. Allar upplýsingar eru gefnar í síma 39600 eða 686893 mánud. 11. janúar frá kl. 13-19. DANSS AUÐAR HARAÍ.DÍ Málarameistari Tek að mér almennt málningarviðhald og viðgerðir fyrir fyrirtæki og stofnanir. Reglusemi og góð umgengni er örugg. (Ath. reykjum ekki). Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 20. janúar merkt: „Meistari - 10460“. Fóstrur Lausar stöður við leikskóla Leikskólinn Fagrabrekka við Fögrubrekku, sími 42560: Verið er að taka í notkun viðbótarhúsnæði við leikskólann og bæta við börnum og starfsfólki. Komið eða hringið og kynnið ykkur starfið, sem miðast við sérstakt fyrirkomulag hús- næðis. Einnig óskast fóstrur í leikskólana Marbakka við Marbakkabraut, sími 641112 og Kópa- stein við Hábraut, sími 641565. Til greina kemur að ráða fólk með aðra upp- eldismenntun í stöðurnar. Upplýsingar gefa leikskólastjórar viðkomandi leikskóla og leikskólafulltrúi í síma 45700. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást í Fannborg 4, Kópavogi og í leikskólun- um. Starfsmannastjóri. Laus störf • Sölu- og markaðsstjóri óskast til starfa hjá litlu en framsæknu fyrirtæki á sviði auglýsinga- og markaðsmála. Haldgóð menntun á sviði markaðsmála nauðsyn- leg. • Sölumaður óskast til starfa hjá innflutn- ings- og smásölufyrirtæki er selur tölvur og skrifstofubúnað. Haldgóð reynsla af sölumennsku, tölvukunnátta og þekking á skrifstofubúnaði æskileg. • Fjármálastjóri óskast hjá þjónustufyrir- tæki í Reykjavík. Viðskiptafræðimenntun og reynsla af fjármálastjórnun æskileg. • Sölumaður óskast í símasölu hjá fyrir- tæki er flytur inn og selur heilsuvörur. Reynsla af símasölu nauðsynleg. • Bifvélavirki óskast til verkstjórastarfa hjá bifvélaverkstæði á landsbyggðinni. Meistararéttindi og alhliða reynsla af bif- vélavirkjun nauðsynleg. Vinsamlegast sækið um á eyðublöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okkar. I abendi RÁÐGJÖF 0G RÁÐNINGAR IAUGAVEGI 178 • 105 REYKJAVIK • SIMI: 689099 • FAX: 689096

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.