Morgunblaðið - 10.01.1993, Síða 8
'8
MORGUNBLÁÐIÐ ÐAGBÓIClu\^uMtl5li.-lfeíMlÚAR 1993
IT\ \ /^ersunnudagurl0.janúarl993semerlö.
VJT dagur ársins 1993 og 1. sunnudagur eftir
þrettánda. Árdegisflóð í Reykjavík er kl. 07.34 og síðdegis-
flóð kl. 19.58. Fjarakl. 01.19 ogkl. 13.52. Sólarupprás er
íhöfuðstaðnumkl. 11.05 ogsólarlagkl. 16.06. Sólinerí
hádegisstað í Reykjavík kl. 13.35 og tunglið í suðri kl. 03.02.
(Almanak Háskóla íslands.)
Vaknið, þér ofdrykkjumenn, og grátið! Kveinið allir
þér, sem vín drekkið, yfir því að vínberjaleginum er
kippt burt frá munni yðar. (Jóel 1, 5.-6.)
ára afmæli. í dag, 10.
janúar, er áttræð
Jónína Davíðsdóttir, Kópa-
vogsbraut lb, Kópavogi.
Eiginmaður hennar var
Guðni Bjarnason, verk-
stjóri, sem nú er látinn. Jón-
ína tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar og
tengdasonar á Sunnubraut 6,
Kópavogi, milli kl. 15—18 á
afmælisdaginn.
ára afmæli. Á morgun,
mánudag, er sjötug
Gunnhildur Ingibjörg Ge-
orgsdóttir, Hraunbrún 3,
Hafnarfírði. Eiginmaður
hennar er Júlíus Pálsson.
Þau verða að heiman á af-
mælisdaginn.
ORÐABÓKIN
Síga
Þess hefur gætt nokkuð
í seinni tíð, að fjölmiðla-
menn ýmsir og vafalítið
einhveijir aðrir til viðbót-
ar þeim eru heldur betur
famir að ruglast í merk-
ingu ofangreindra sagn-
orða. Ekki hef ég lagt á
minnið öll þau dæmi, sem
ég hef heyrt um þennan
rugling. Hins vegar á ég
ekki von á öðm en þeir
séu fleiri en ég, sem hafa
hnotið um þetta í ræðu
og riti. Tvö dæmi nefni
ég til skýringar. í fréttum
á Stöð tvö 28. nóv. sl.
mátti heyra þetta, þar
sem verið var að segja frá
pramma, sem hafði sokkið
hér á Skeijafirði og hafði
verið náð aftur upp:
„Pramminn seig upp á
yfirborð sjávar." Hitt
dæmið var úr viðtali við
íþróttamann í Ríkisút-
— stíga
varpinu 19. des. sl. Hann
komst svo að orði: „Við
emm að síga hægt og síg-
andi upp töfluna (þ.e.
stigatöfluna). Ljóst er af
þessum dæmum, að hér
er á ferðinni alger um-
snúningur á merkingu so.
að síga, sem vissulega er
ástæða til að vara við.
Aðalmerking hennar er
að sjálfsögðu að lækka,
hníga, fara hægt niður.
Þess vegna er aldrei hægt
að tala um að síga upp á
við í merkingunni að stíga
upp eða hækka. Hér hefði
því átt að segja: Pramm-
inn steig (eða lyftist)
hægt upp á yfírborð sjáv-
ar. Eins hefði íþróttamað-
urinn getað sagt sem svo:
Við stígum (eða færumst)
hægt og bítandi, ekki síg-
andi, upp töfluna.
- J.A.J.
KIRKJUSTARF
ÁSKIRKJA: Fundur í æsku-
lýðsfélaginu í kvöld kl. 20.
BÚSTAÐAKIRKJA: Fundur
10—12 ára bama í dag kl.
17. Fundur í æskulýðsfélag-
inu í kvöld kl. 20.
HALLGRÍMSKIRKJA:
Fundur í æskulýðsfélaginu
Örk í kvöld kl. 20.
HÁTEIGSKIRKJA: Æsku-
lýðsstarf fyrir 10—12 ára í
dag kl. 17. Æskulýðsstarf
fyrir 13 ára og eldri í kvöld
kl. 20. Biblíulestur mánu-
dagskvöld kl. 21.
LANGHOLTSKIRKJA:
Sameiginlegur fundur kven-
og bræðrafélags Langholts-
sóknar, kvenfélags Laugar-
nessóknar og safnaðarfélags
Áskirkju verður haldinn á
Holiday Inn nk. miðvikudag
kl. 20.30.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Fundur í æskulýðs-
félaginu í kvöld kl. 20.30.
■ NESKIRKJA: Æskulýðs-
fundur fyrir 13 ára og eldri
verður haldinn í safnaðar-
heimili kirkjunnar á morgun,
mánudag, kl. 20.
ÁRBÆJARKIRKJA: Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.
Opið hús fyrir eldri borgara
mánudaga kl. 13—15.30 og
miðvikudaga kl. 13.30—16.30
og fótsnyrting mánudaga kl.
14—17. Foreldramorgnar
þriðjudaga og fímmtudaga kl.
10-12.
FELLA- og Hólakirkja:
Æskulýðsfundur mánudags-
kvöld kl. 20.30. Upplestur hjá
félagsstarfí aldraðra í Fella-
og Hólabrekkusóknum í
Gerðubergi mánudag kl.
14.30. Lesnir verða Davíðs-
sálmar og Orðskviðir Salóm-
ons konungs.
SELJAKIRKJA: Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20—22.
Allir unglingar hjartanlega
velkomnir. Mömmumorgunn,
opið hús, þriðjudag kl.
10-12.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
KVENFÉLAGIÐ Fjallkon-
urnar verða með sameigin-
legan fund með Kvenfélagi
Seljasóknar og Kvenfélagi
Breiðholts, sem haldinn verð-
ur nk. þriðjudag kl. 20.30 í
safnaðarheimili Fella- og
Hólakirkju. Skemmtidagskrá.
SILFURLÍNAN, s: 616262.
Síma- og viðvikaþjónusta fyr-
ir eldri borgara alla virka
daga frá kl. 16—18.
VOPNFIRÐINGAFÉLAG-
IÐ í Reykjavík byijar 25.
starfsár sitt með því að halda
árvisst þorrablót 23. janúar
nk. kl. 19.30 í Skipholti 70,
2. hæð.
BRIDSDEILD Sjálfsbjarg-
ar í Reykjavík og nágrenni.
Aðalsveitakeppni vetrarins
hefst á morgun, mánudag,
kl. 19. Spilað er í félagsheim-
ili Sjálfsbjargar, Hátúni 12.
SKAGFIRÐIN G AFÉL AG-
IÐ í Reykjavík verður með
fjölskyldubingó í Drangey,
Stakkahlíð 17, í dag kl. 14.
ÁRBÆJARSÓKN. Starf
aldraðra á mánudag kl.
13-15.30.
KVENFÉLAG Grindavíkur
heldur aðalfund sinn í Verka-
lýðshúsinu á morgun, mánu-
dag, kl. 20.30.
KVENFÉLAG Bústaða-
sóknar heldur fund á morg-
un, mánudag, kl. 20 í safnað-
arheimili Bústaðakirkju. Spil-
uð félagsvist.
FÉLAG eldri borgara í
Reykjavík. Opið hús í dag,
sunnudag. Brids kl. 13. Fé-
lagsvistkl. 14. Fjögurradaga
keppni hefst. Góð spilaverð-
laun. Ferð til Benidorm í jan-
úar. Uppl. í síma 28812 (Stef-
anía) og 34923 (Margrét). Á
morgun, mánudag, er opið
hús í Risinu kl. 13—17. Lög-
fræðingur félagsins er við á
þriðjudag. Panta þarf tíma.
KVENFÉLAG Grensás-
sóknar heldur fund í safnað-
arheimilinu á morgun, mánu-
dag, kl. 20.30. Spiluð verður
félagsvist. Kaffíveitingar.
STARFSMANNAFÉLAG-
IÐ Sókn og Verkakvennafé-
lagið Framsókn. Spilakvöld
nk. miðvikudag 13. janúar kl.
20.30 í Sóknarsalnum, Skip-
holti 50A. Spilaverðlaun og
kaffiveitingar.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Gerðubergi. Á morgun,
mánudag árdegis, er hár-
greiðsla og fótsnyrting. Kl.
12 er hádegishressing. Spila-
salur og handavinnustofur
opnaðar kl. 12.30. Kóræfíng
kl. 13. 13.30-15.30 banka-
þjónusta. Kaffítími kl. 15.
Dans kl. 15.30.
AUSTFIRÐINGAFÉLAG
Suðurnesja heldur þorrablót
sitt í Stapa, Ytri-Njarðvík,
laugardaginn 16. jan. nk.
Borðhald hefst kl. 19. Heið-
ursgestur að þessu sinni er
Sigurður Magnússon frkv.stj.
ÍSI. Aðgöngumiða má panta
hjá Jóhönnu i s.: 92-12605.
BRIDSDEILD Sjálfsbjarg-
ar í Reykjavík og nágrenni.
Bridskennsla hefst nk.
fimmtudag 14. janúar kl. 20.
Uppl. í síma: 38132. Kennt
verður í félagsheimili Sjálfs-
bjargar, Hátúni 12.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN: í
dag er olíuskipið Mimi vænt-
anlegt til losunar.
H AFN ARF J ARÐ ARHÖFN:
í dag kemur grænlenski tog-
arinn Tasarmiut og Lagar-
foss er væntanlegt til hafnar
f kvöld.
LÁRÉTT: — 1 hugaða, 5
talan, 8 ávöxturinn, 9 skelfa,
11 skyldmenni, 14 tók, 15
eyddur, 16 hinn, 17 elska, 19
mætur, 21 flanað, 22 málmin-
um, 25 askur, 26 tóm, 27
stúlka.
LÓÐRÉTT: — 2 magur, 3
skap, 4 dýranna, 5 deilan, 6
þjóta, 7 vesæl, 9 döpur, 10
spéfugls, 12 tunglinu, 13
ákveður, 18 kvenmanns-
nafns, 20 komast, 21 flan,
23 guð, 24 greinir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 króks, 5 skæla, 8 ækinu, 98 digna, 11
aldan, 14 pár, 15 fjáða, 16 aular, 17 Rán, 19 alur, 21 Óðni,
22 gálunni, 25 iða, 26 æra, 27 rót.
LÓÐRÉTT: - 2 rói, 3 kæn, 4 skapar, 5 snaran, 6 kul,
7 lúa, 9 duflaði, 10 gráðuga, 12 dalaðir, 13 næðist, 18 áð-
ur, 20 rá, 21 ón, 23 læ, 24 Na.
MINNINGARSPJÖLP
MINNINGARKORT Flug-
björgunarsveitarinnar fást
hjá eftirtöldum: Flugmála-
stjórn s. 69100, Bókabúðinni
Borg s. 15597, Bókabúðinni
Grímu s. 656020, Amatör-
versl. s. 12630, Bókabúðinni
Ásfell s. 666620, og hjá þeim
Ástu s. 32068, Maríu s.
82056, Sigurði s. 34527,
Stefáni s. 37392 og Magnúsi
s. 37407.
MINNINGARKORT Hjálp-
arsveitar skáta, Kópavogi,
fást á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Landssambands
Hjálparsveita skáta, Snorra-
braut 60, Reykjavík. Bóka-
búðinni Vedu, Hamraborg,
Kópavogi, Sigurði Konráðs-
syni, Hlíðarvegi 34, Kópa-
vogi, sími 45031.
MINNIN G ARKORT MS-
félagsins fást á eftirtöldum
stöðumj Á skrifstofu félags-
ins að Álandi 13. í apótekum:
Kópavogsapótek, Hafnar-
fjarðarapótek, Lyfjabúð
Breiðholts, Árbæjarapótek,
Garðsapótek, Háaleitisapó-
tek, Holtsapótek, Lyfíabúðin
Iðunn, Laugavegsapótek,
Reykjavíkurapótek, Vestur-
bæjarapótek, Apótek Kefla-
víkur, Akraness Apótek og
Apótek Grindavíkur. í Bóka-
búðum: Bókabúð Máls og
menningar, Bókabúð Foss-
vogs í Grímsbæ.