Morgunblaðið - 10.01.1993, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993
KVWIFANG
KRÓNPRINSINS
Samantekt: Guðni Einarsson
Væntanleg krónprinsessa Japana, Masako Owada, hefur þegar
unnið hugi og hjörtu samlanda sinna. Naruhito krónprins hefur
biðlað til Masako undanfarna mánuði og hringt í þeim erindum
til hennar nótt sem nýtan dag. Hann hafði erindi sem erfiði og
nú hlakka Japanir til keisaralegs brúðkaups á vori komanda.
Krónprinsessan væntan-
lega geislaði af ham-
ingju þegar hún stillti
sér upp frammi fyrir
. hundruðum fréttaljós-
myndara á föstudag. Michio Wat-
anabe utanríkisráðherra tilkynnti
fréttamönnum um trúlofunina og
ságði að brúðkaup þeirra Naruhitos
krónprins yrði haldið svo fljótt sem
auðið yrði. Af orðum hans mátti
ráða að giftingin færi fram í maí
eða júní, því rætt er nú um að fresta
fyrirhugaðri ferð keisarahjónanna
til Evrópu í júní næstkomandi. Ut-
anríkisráðherrann lýsti hinni verð-
andi brúði sem miklum kvenkosti,
nútímalegri konu sem sómi yrði að
í keisarahöllinni.
Leit Naruhitos krónprins að
kvonfangi hefur legið í þagnargildi
hjá japönskum fjölmiðlum undan-
farið ár. Var það að beiðni keisara-
embættisins sem taldi fjölmiðlaum-
fjöllun spilla fyrir ástarmálum krón-
prinsins. Fyrir rúmum tveimur
árum kvæntist jmgri bróðir hans,
Akishino, konu úr alþýðustétt.
Naruhito krónprins er orðinn 32 ára
gamall og voru ýmsir famir að ör-
vænta um að hann gengi nokkm
sinni út. Fjölmiðlar urðu við tilmæl-
um hirðarinnar og sátu á fréttum
um brúðarleit prinsins. Bandaríska
stórblaðið Washington Post greindi
svo frá því á miðvikudaginn var að
krónprinsinn hefði nú fest ráð sitt
og fengu japanskir fjölmiðlar þá
ekki lengur orða bundist. Sem von
er hefur fátt verið meira rætt þar
í landi síðustu daga og prýða mynd-
ir af keisarahjónum framtíðarinnar
jafnt forsíður tímarita, dagblaða og
sjónvarpsskjái. Dagblöð hafa birt
ítarlegar greinar um áhugamál
parsins, feril og fyrri störf. Eitt
dagblað birti ættartölu hinnar verð-
andi keisaraynju.
I æðum hennar
rennur ómengað
japanskt blóð, hún
notar ekki gler-
augu og er siðsem-
in holdi klædd
Krónprins á biðilsbuxum
Hjónin tilvonandi hittust fyrst
haustið 1986, Masako Owata gaf
þá berlega í skyn að hugur hennar
stæði frekar til frama í utanríkis-
þjónustunni en náinna kynna við
krónprinsinn. Narahito var ekki á
því að gefast upp og í ágúst í fyrra
skipulagði milligöngumaður fyrsta
stefnumót þeirra með mikilli leynd.
Aftur hittust þau í október og bar
prinsinn þá upp bónorðið, sem Mas-
ako hafnaði eftir nokkra umhugsun.
Prinsinn var ekki á því að gefast
upp og hringdi hvað eftir annað í
ungfrúna. Hún gafst loks upp fyrir
þrábeiðni Narahitos á fjórða stefnu-
móti þeirra 29. desember síðastlið-
inn og játaðist krónprinsinum. Með
því lauk langri og á stundum ör-
væntingarfullri leit keisaralegra
embættismanna að framtíðar keis-
araynju. Vora margar kallaðar, en
stóðust ýmist ekki kröfur „brúðarv-
alsnefndar", eða krónprinsins sem
vildi einhveiju ráða um lífsföranaut
sinn. Ungrú Osawa þykir í flestu
uppfylla þær kröfur sem gerðar era
til væntanlegrar keisaraynju. Það
þykir helsti ókostur hennar að hún
er ívið hærri en krónprinsinn, sem
mælist 163 sentimetra hár í skóm.
Dagblöðunum er mikið í mun að fá
leyfi hirðarinnar til fréttaflutnings
frá brúðkaupinu, þegar þar að kem-
ur. Þeim er góðfúslega bent á að
grafla ekki mikið í því hvað Masako
sýslaði á námsáram sínum í Banda-
ríkjunum, ella gæti orðið erfitt að
fá boð í brúðkaupið.
Náms- og starfsferill Masako
þykir til fyrirmyndar í keisarahöll-
inni, þar sem menntun er í hávegum
höfð en léttúð litin hornauga. Sögur
herma að embættismenn keisarans
hafi haft efasemdir um hvort Ma-
sako Owata væri heppilegur kven-
kostur. Móðurafi hennar var stjóm-
arformaður fyrirtækis sem bert
varð að því að losa kvikasilfurs-
mengaðan iðnaðarúrgang í Mina-
mataflóa á 7. áratugnum. Þúsundir
íbúa á svæðinu biðu heilsutjón af.
Enn er beðið opinberrar yfirlýs-
ingar um trúlofunina frá keisara-
höllinni og er hennar vænst þann
19. janúar þegar Miyazawa forsæt-
isráðherra er snúinn heim út utan-
landsferð. Þá verður haldinn keis-
aralegur hirðfundur þar sem Aki-
hito keisari, Miyazawa forsætisráð-
herra, yfirmenn hirðarinnar, deild-
arforsetar þingsins og hæstaréttar-
dómarar koma saman. Yfirlýsing
um ráðahaginn verður gefin út í lok
fundarins. Samkvæmt siðvenjum
hefjast þá ýmsar athafnir sem fara
á undan sjálfu brúðkaupinu. Að lok-
inni trúlofunarathöfn tilkynnir sér-
legur sendiboði keisarans foreldrum
brúðarinnar formlega um brúð-
kaupsdaginn. Hann færir þeim gjaf-
ir, silki, fisk og sake-vín. Masako
Owada verður önnur konan úr al-
þýðustétt sem sest í hásætið og sú
fyrsta sem á starfsferil að baki. Sú
fyrri úr alþýðustétt er verðandi
tengdamóðir hennar, Michiko
Shoda. Þykir þetta benda til þess
að nútíminn haldi innreið sína í
keisarahöllina.
Krónprinsinn
Naruhito krónprins er 32 ára
gamall, elsti sonur Akihitos keisara
og Michiko keisaraynju. Hann þyk-
ir á margan hátt táknrænn fyrir
Japan nútímans. Narahito, eða Hiro
eins og hann var kallaður í æsku,
ólst upp í foreldrahúsum, ólíkt föður
hans og afa sem ólust upp hjá barn-
fóstrum hirðarinnar. Hann stundaði
nám við Gakushuin skólann, sem
er mikils metinn, og þótti standa
sig vel í samfélagsfræðum og jap-
önsku, en síður í stærðfræði og
I
í
I
I
I