Morgunblaðið - 10.01.1993, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993
25
kádilják eins og aðrir vinir hans í
mafíunni.
Leynilögregla kommúnista réð
hann í sína þjónustu og serbnesk
og króatísk blöð hafa sakað hann
um að hafa verið leigumorðingi
hennar. Á árunum eftir 1980 var
hann bendlaður við tilræði við
nokkra króatíska útlaga í öðrum
Evrópulöndum. Hann hefur hvorki
viljað neita þessum sakargiftum né
staðfesta þær. Hann segir miklar
frægðarsögur af sjálfum sér og „lít-
ur sig sömu augum og James
Bond,“ að sögn kunningja hans,
sem vita sjaldnast hvenær hann
segir satt.
Blöðin hafa einnig bendlað Arkan
við eiturlyíjasmygl og vopnasölu,
þótt hann segi hlutverk sitt að
stöðva framrás fasisma — fyrst og
fremst króatísks. Alþjóðalögreglan
Interpol kannast við hann undir
nokkrum nöfnum. Staðhæft er að
hann hafí sloppið úr króatísku fang-
elsi vegna stuðnings frá æðstu stöð-
um áður en hann kom víkingasveit
sinni á fót þegar borgarastyijöldin
hófst sumarið 1991.
Arkan varð æðsti skæruliðaleið-
togi Serba í Austur-Króatíu í ein-
hveijum óþverralegustu bardögum
Króatíu-stríðsins. „Tígrisdýr" hans
urðu kunn fyrir strangan aga og
fengu orð fyrir að vera hæfustu og
grimmustu sveitir serbneskra
skæruliða. Haft var fyrir satt að
nafn hans vekti hroll hjá hörðustu
stríðsmönnum Króata.
Frelsun tígrisdýranna
Þegar bardagarnir í Króatíu fjör-
uðu út var Arkan að því spurður
hvað hann hygðist fyrir að stríði
loknu. Hann kvaðst ætla að selja
sex skriðdreka, sem hann hefði tek-
ið herfangi, hengja búning sinn upp
á snaga og hefja aftur sölu á ijóma-
ís í Belgrad. í þess stað létu 1.000
„tígrisdýr" Arkans til skarar skríða
í Bosníu, enda meira upp úr því að
hafa.
Skæruliðasveitir Arkans stóðu
fyrir illræmdri árás á bæinn Bijelj-
ina í fyrstu meiriháttar orrustu
stríðsins í Bosníu í apríl. Menn hans
náðu einnig bænum Zvomik af
Bosníumönnum, enda betur vopn-
aðir, þjálfaðir og skipulagðir.
Mannréttindasamtök telja að
rúmlega 1.000 múhameðstrúar-
menn hafí fallið í árásinni á Bijelj-
ina, þar af margir saklausir borgar-
ar. Leiðtogar Bosníu-Serba hylltu
Arkan hins vegar fyrir ættjarðarást
og hann og menn hans hafa verið
gerðir að hetjum um gervalla Serb-
íu, í sjónvarpi, teiknimyndabókum,
dægurlagatextum og á myndsnæld-
um.
Árásarsveitir Arkans hafa hrakið
múhameðstrúarmenn og Króata
burt úr hlutum Bosníu-Herzegóvínu
á sama hátt og þær höfðu áður
„frelsað" svæði í Króatíu. Aðgerðir
þeirra og annarra serbneskra
skæruliðasveita hafa verið sam-
ræmdar og þær hafa farið eftir
skipunum frá stjórnmálaleiðtogum
í Serbíu og Bosníu.
Nú hefur Arkan notað vinsældir
sínar, samtök og ránsfeng til þess
að komast á þing í Kosovo — hvort
sem það eru pólitísk áhrif eða þing-
helgi, sem hann sækist eftir. Það
reyndist honum auðvelt vegna vel-
vildar og stuðnings JMilosevics for-
seta og ofsóknarkenndar, illkvittni
og píslarvættishugmynda margra
Serba, sem hann hefur alið á. Auk-
inn þrýstingur vestrænna ríkja,
hertar refsiaðgerðir og jafnvel hót-
anir um hemaðaríhlutun hjálpuðu
upp á sakimar.
Serbneski draumurinn
Arkan og lífverðir hans mættu á
flórum torfæmbílum og vopnaðir
vélbyssum á kosningafundi í
Kosovo, sem var kjami miðaldastór-
veldis Serba áður en Tyrkir lögðu
það að velli þar 1389. Fundimir
voru Ijölsóttir og góður rómur var
gerður að máli hans — einkum í
serbneska námabænum Obilic ná-
lægt höfuðstaðnum Pristina, sem
má muna sinn fífíl fegri. Boðskapur
hans var einfaldur; erfíðir tímar
kreíjast harðra ráðstafana og
manna sem láta verkin tala.
Hann sagði að kúga yrði þjóðar-
brot í Serbíu til hlýðni og fullkomna
drauminn um Stór-Serbíu. Þörf
væri á ströngum ráðstöfunum gegn
albönskum hópum, sem berðust
fyrir sjálfstæði frá Serbíu. „Alban-
ar, sem hlýða ekki lögum Serbíu,
eiga heima í Albaníu og geta farið
þangað," sagði hann. „Þeir þurfa
aldrei að koma aftur. Þeir sem taka
þátt í árásum á serbnesku íbúana
verða útskúfaðir frá serbneskum
svæðum."
Arkan skoraði á serbneskar kon-
ur að eignast fleiri börn og kvað
„tígrisdýr" sín við öllu búin ef til
styijaldar kæmi. „Ég hef sép myrta
Serba — konur og börn. Ég mun
aldrei láta slíkt viðgangast hér. Við
erum ein þjóð,“ sagði hann og átti
við Serba í Króatíu, Bosníu, Kosovo
og Svartfjallalandi auk Serbíu.
„Bandaríkjamenn eiga sér amerísk-
an draum. Við eigum rétt á að eiga
serbneskan draum — Bandaríki
Serbíu."
Börn, mæður og fyrrverandi her-
menn hlustuðu andaktug á Arkan
þegar hann vegsamaði kirkjuna,
fjölskylduna og vamir „hins heilaga
lands", Serbíu. Að sögn fréttaritara
Daily Telegraph ætlaði allt um koll
að keyra þegar hann hrópaði eins
og hann væri að skipa skæruliðum
sínum að ráðast til atlögu: „Ég lofaa
ykkur engu! Ég lofa ykkur ekki
nýjum símalínum; ég lofa ykkur
ekki nýjum vegum. En ég heiti
ykkur því að ég mun veija ykkur
af sama ofstæki og ég hef beitt til
þess að bjarga Serbum í Bosníu og
Króatíu."
Breiðist stríðið út?
Skeggjaðir skæmliðar, nýkomnir
af stríðssvæðinu, ráku upp fagnað-
aróp og stöppuðu fótunum í gólfíð.
Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að
linna og mannfjöldinn hrópaði:
„Guð blessi Serbíu! Lengi lifí Ark-
an!“
Serbar í Kosovo dá Arkan sem
stríðsmann. Þeir telja hann hafa
sannað hugrekki sitt á vígvellinum
og farið að skipta sér af stjórnmál-
um í þeim óeigingjarna tilgangi að
bjarga þjóð sinni frá útrýmingu.
Vestrænar ásakanir um að hann
hafi framið stríðsglæpi virðast of-
vaxnar skilningi fólks, sem telur sig
í útrýmingarhættu.
Orð Arkans virðast ekki lofa
góðu fyrir framtíð Albana í Kosovo.
Hann nýtur sérstakrar velvildar
Milosevics forseta, sem serbneskir
Kosovobúar studdu til valda á sín-
um tíma, og vegna uggs um harðn-
andi þjóðernisátök í Kosovo er í
ráði að SÞ sendi gæzluliða þangað.
Óttazt er að ef upp úr sjóði í hérað-
inu taki við algert Balkanstríð, jafn-
vel trúarbragðastyijöld, sem ná-
grannalönd kunni að flækjast í —
þar á meðal Tyrkland og jafnvel
ríki lengra í austri.
Harmonikukennsla
Einkatímar
Vorönn hefst 18. janúar.
Innritun í síma 40988.
Metsölublad á hveijum degi!
3 í raðhúsi
2 í raðhúsi
41.805 kr.
46.850 kr.
43.100kr.
48.300 kr.
14ÍÚRVALÚTSÝN
* Vcrð miðast við staðgreiðslu. Föst aukaRjöld, alls 3.450 kr., eru ekki innifalin í verði.