Morgunblaðið - 10.01.1993, Page 32
32
*á±_
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993
AUKIN ÖKURÉTTINDI
(meirapróf)
Námskeið til aukinna ökuréttinda verða haldin í Reykjavík
og annarsstaðar á landinu, þar sem næg þátttaka fæst.
Innritun er hafin í námskeið sem hefst þann 14. janúar nk.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 683841 frá
kl. 13-16 alla virka daga.
Ökuskóli íslands hf„ Dugguvogi 2, Reykjavík.
Námskeið iyrir foreldra um unglings-
árin og samskipti kynsiððanna
- Hvernig á að greina á
milli eðlilegra þroska-
breytinga og vandamála?
- Hvað á að gefa ungling-
um mikið frelsi?
- Hvaða reglur eru skyn-
samlegar varðandi útivist
og vasapeninga?
- Þurfa unglingar aga og
reglur?
- Hvernig á að tala við
unglinga?
21. janúar nk. hefst fjögra kvölda námskeið fyrir for-
eldra þar sem m.a. verður fjallað um þroskabreytingar
unglingsáranna, félagslegar aðstæður unglinga, helstu
vandamál unglinga, uppalandahlutverkið og samskipti
kynslóðanna. - Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum,
verkefnavinnu og umræðum.
Tilgangur námskeiðsins er að gefa foreldrum heilsteypta
og jákvæða mynd af þessu afdrifaríka þroskaskeiði og
efla sjálfstraust þeirra í hlutverkum sínum sem uppalendur.
Leiðbeinandi verður Einar Gylffi Jónsson, sálfræðingur.
Skráning á námskeiðin verður í síma 68 92 70 dagana
11.-15. janúar kl. 16.30-18.00.
SONGSMIÐJAN AUGLÝSIR:
sooenttiTisKEin
FMRIR FÖLK
Ó ÖLLUm OLDRI
ÍSLENSK OG ERLEND, LIFANDI
OG SKEMMTILEG TÓNLIST!
NU GETA ALLIR LÆRT AÐ SYNGJA.
Námskeið fyrir unga sem aldna, laglausa sem
lagvísa. Söngkennsla í hóp, tónfræði og
ýmislegt fleira sem hjálpar þér að ná tökum á
söngröddinni þinni.
NÚ GETA ALLIR HALDIÐ
ÁFRAM AÐ SYNGJA.
Námskeið fyrir fyrri nemendur Söngsmiðj-
unnar og aðra sem vilja bæta söngkunnáttu sína.
EINSÖNGSNÁM.
Einkatímar í söng, vinna með undirleikara,
tónfræði, túlkun og ýmislegt fleira.
Kennarar:
Esther Helga Guðmundsdóttir, söngur.
Guðbjörg Sigurjónsdóttir, undirleikur.
OOIllflH
SOIIGLEIKIR
Hópnámskeið fyrir ungt fólk sem
hefur áhuga á að læra að tjá
sig í söng, leik og dansi. Stefnt að
nemendauppsetningu á útdrætti úr
söngleiknum CATS.
Öll námskeiðin miðast við að auka söng-
og tjáningargetu og að efla sjálfstraust.
KENNSLA HEFST 18. JANÚAR.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 654744
ALLA VIRKA DAGA FRÁ K L. 10 - 13.
ætti eftir að breyta svo mjög verald-
arsögunni.
Á þessum árum átti Kristján flest
ef ekki öll íslandsmet í kastgreinum
og eru þeir margir verðlaunapening-
amir og bikaramir sem hann hefur
unnið.
Árið 1939 hóf hann störf hjá Lög-
regluliði Reykjavíkur og starfaði
hann þar til ársins 1963 þegar hann
lét af störfum vegna heilsubrests.
Hann var því lögreglumaður á stríðs-
ámnum undir stjóm Agnars Kofoed
Hansen og var einn af svonefndum
Laugarvatnsfömm, en þar var æft
af kappi fyrir væntanleg átök stríðs-
áranna. Þetta var víkingasveit þess-
ara ára og unnu þessir menn oft
hetjudáðir á þessum ámm. Má minn-
ast Laugavegsslagsins og björgunar-
afreksins i Hafnarstræti, en þar
lögðu þeir Kristján og Ólafur Guð-
mundsson sig í lífsháska við að
bjarga fólki úr brennandi húsi. Þeir
vom sæmdir æðsta heiðursmerki lög-
reglunnar fyrir þetta afrek.
Kristján hafði unun af að róa til
fiskjar, enda átti hann bát í fjölda
ár. Hann hafði gaman af útiveru og
fór þá á ijúpu á vetmm og renndi
fyrir fisk á sumri. Margar em þær
sögumar sem hann hefur sagt frá
um baráttuna við þann stóra.
Árið 1938 gekk Kristján að eiga
eftirlifandi eiginkonu sína, Lovísu
Helgadóttur, og eignuðust þau 7
börn og em 5 þeirra á lífi. Ég votta
svo fjölskyldu hans að síðustu mína
dýpstu samúð og bið guð að styrkja
Lovísu og böm þeirra í sorgum sín-
um.
Far þú í friði,
friður Guðs þig biessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Sigurbjörn Ingólfsson.
31. desember sl. lést í Borgarspít-
alanum vinur minn og svili, Kristján
Vattnes, eftir erfíð veikindi sem hann
barðist við af hetjulund þar til yfír
lauk.
Kristján fæddist á Vattamesi við
Fáskrúðsfjörð 2. september 1916,
einn af fjómm bömum Magneu
Torfadóttur og Jóns Eiríkssonar
bátasmiðs. Á Vattamesi átti hann
sín bemskuár og heillaði sjórinn hann
æ síðan. Fjölskylda hans fluttist til
Reykjavíkur 1929. í þá daga þurftu
allir að hjálpast að við að sjá heimil-
inu farborða.
TILBOÐ
ÓSKAST
í Nissan P/U 4x4, árgerð '91 (ekinn 12 þús.
mílur), Toyota 4-Runner, árgerð '89 og aðrar
bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi 9,
þriðjudaginn 12. janúar kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Sérkennsla í líkamsrækt
Innifaliö:
♦ Leiðbeiningar um rétta beitingu í líkams- og
vaxtarrækt.
♦ Matarprógram.
♦ Æfingaprógram.
♦ Persónuleg ráðgjöf.
♦ Fyrirlestur um æfingar og mataræði.
Tilvalið 8 vikna grunnnámskeið fyrir alla, byrjenclur og þá,
sem stunda almenna tækjaleikfimi (líkamsrækt) og
vaxtarrækt. Leiðbeinandi: ívar Hauksson.
Innritun og upplýsingar
Síðan heilluðu íþróttimar hann og
varð hann einn af bestu fþróttamönn-
um okkar. Hann átti Islandsmet í
spjóstkasti, kúluvarpi, kringlukasti,
fimmtarþraut og tugþraut. Auk þess
var hann góður sundmaður. Það var
sama hvað hann tók sér fyrir hend-
ur, alls staðar skaraði hann fram úr.
Kristján var einn af þátttakendum á
Ólympíuleikunum í Berlín 1936.
Hann var valinn fánaberi og voru
allir stoltir yfír að hafa svo glæsileg-
an fulltrúa.
Kristján hóf störf hjá lögreglunni
í Reykjavík 1939 og bar öllum saman
um að þar væri réttur rriaður á rétt-
um stað. Hef ég eftir einum utan-
garðsmanni: „Hann kom fram við
okkur eins og félaga og vini, en ekki
eins og sá sem valdið hefur.“ Meðan
hann var í lögreglunni voru honum
veittar viðurkenningar fyrir vel unnin
störf, þar á meðal björgun manns-
lífa. Stjáni, eins og við félagar hans
kölluðum hann, var hamhleypa til
allra verka, enda tók það sinn toll.
Honum var margt til lista lagt, hafði
fallega rithönd, frásagnargáfu góða
og áhuga á tónlist. Hann var náttúru-
barn.
Ég held hann hafí stigið sitt mesta
gæfuspor þegar hann gekk að eiga
eftirlifandi konu sína, Lovísu Helga-
dóttur, 29. október 1938. Þeim varð
sjö bama auðið: Magnea, Bryngeir,
Helgi (d. 1959), Jón (d. 1982), Guð-
ríður, Eyþóra og Sólveig. Það skipt-
ust á skin og skúrir í lífi þeirra, en
þau áttu alltaf til blik í auga fyrir
hvort annað. Þau hjónin bjuggu
lengst af í Kópavogi, við sjóinn. Þar
fékk hann aðstöðu til að sinna sínu
áhugamáli, sem var sjósókn. Faðir
hans smíðaði mjög vandaðan bát og
dró hann björg í bú á þeim báti um
árabil. Það hafa sagt mér menn sem
fóru með honum á sjó að hann hafí
gert sér far um að kynna sér lifnaðar-
hætti físka og fugla. Stundum sagði
hann upp úr þurru: „Hér rennum
við.“ Og það brást ekki að þar var
fískur. Það var gaman að vera gest-
ur á heimili þeirra hjóna þegar Stjáni
var að koma að landi með sjávarselt-
una í hárinu, hlaðinn fugli og físki.
Þá var alltaf sól.
Þessar línur eiga að vera þakklæt-
isvottur fyrir að hafa kynnst svo
góðum dreng. Ef hann hefði mátt
mæia nú væri hans heitasta nýársósk
til þjóðarinnar að við mættum lifa í
sátt og samlyndi og auka og efla
kærleika til náungans. Um leið og
ég kveð góðan vin vil ég fyrir hönd
fjölskyldu minnar þakka samfylgd-
ina.
Sveinn Ingvarsson.
Elsku afí okkar lést á Borgarspít-
alanum að kvöldi gamlársdags, eftir
rúmlega fjögurra mánaða erfíða
legu. Oft hafði hann náð sér eftir
erfíð veikindi, en nú var baráttuþrek-
ið uppurið. Afí er nú hjá Guði og
ættingjum sem á undan eru famir.
Án efa hafa foreldrar, bróðir og tveir
synir hans, sem létust langt um ald-
ur fram, tekið honum opnum örmum
og leitt hann inn í þessa nýju tilveru.
Afí fæddist á Vattamesi við Reyð-
aríjörð 2. september 1916. Foreldrar
hans voru hjónin Jón Eiríksson báta-
smiður og Magnea Torfadóttir hús-
móðir. Eignuðust þau fjögur böm,
en eitt þeirra, Eiríkur Þór, lést úr
berklum á unglingsaldri. Þau tvö sem
eftir lifa, Torfhildur og Róbert, eru
búsett í Reykjavík.
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavik. S(mi 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.