Morgunblaðið - 10.01.1993, Side 36
JMmgiiitltfafrUk
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVI NNU/\ UGL YSINGAR
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
SVÆFINGA- OG GJORGÆSLUDEILD
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
DAGVINNA
Laus er hlutastaða hjúkrunarfræðings á
rannsóknastofu í meltingarsjúkdómum. Á
deildinni eru m.a. gerðar maga-, ristil-, gall-
vega- og berkjuspeglanir. Fyrirhugað er að
deildin flytji í nýtt húsnæði fyrri hluta þessa
árs.
Nánari upplýsingar gefur Bergdís Kristjáns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
601300, eða deildastjórar í síma 601283.
Lyflækningadeild 14E
Hjúkrunarfræðingur óskast nú þegar eða
eftir samkomulagi á hjartadeild Landspítal-
ans, 14-E, sem er 21 rúma deild. Starfsað-
staða er góð svo og tækjakostur.
Hjartadeild Landspítalans hefur um áraraðir
verið leiðandi í hjúkrun hjartasjúklinga og er
deildin þekkt fyrir styrka stjórn, gott skipulag
og fagleg vinnubrögð.
í boði er einstaklingsbundin aðlögun í umsjá
reynds hjúkrunarfræðings. Vinnutími eftir
samkomulagi.
Upplýsingar gefa Unnur Sigtryggsdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri, eða Sigurlaug Magn-
úsdóttir, aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri, sími
601250.
TAUGALÆKNINGADEILD 32A
Hjúkrunarfræðingar óskast á allar vaktir (fáar
næturvaktir).
Taugalækningadeildin tekur á móti sjúkling-
um með vefræna sjúkdóma í mið- og út-
taugakerfi.
Starfsaðstaða er mjög góð og er deildin vel
búin hjálpartækjum.
Upplýsingar gefur Jónína Hafliðadóttir, hjúkr-
unardeildarstjóri, í síma 601650.
Einnig gefur Bergdís Kristjánsdóttir, hjúkrun-
arframkvæmdastjóri, sími 601000/601300,
upplýsingar um stöðuna.
OLDRUNARLÆKNINGADEILD
Hjúkrunardeildastjóri óskast á öldrunarlækn-
ingadeild 2 frá 1. febrúar eða eftir samkomu-
lagi.
Deildin er 17 rúma deild, sem sérhæfir sig
í meðferð og hjúkrun sjúklinga með andlega
hrörnun.
Upplýsingar veitir Guðrún Karlsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 602266 eða
601000.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi meö starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og meö,
og leggjum megináherslu á þekkingu, kærleik og virðingu fyrir einstaklingn-
um. Starfsemi Ríkisspftala er helguö þjónustu víö almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni aö leiöarljósi.
Seiðaeldi og hafbeit
Silfurlax hf. óskar að ráða stöðvarstjóra til
starfa við seiðaeldis- og hafbeitarstöð sína,
sem staðsett er á norðanverðu Snæfells-
nesi. Fyrirtækið er meðal stærstu hafbeitar-
fyrirtækja landsins og leggur áherslu á fram-
leiðni, gæði, þekkingu og þróunarstarf á sínu
sviði.
Starf stöðvarstjóra felst m.a. í daglegri um-
sjón með seiðaeldis- og hafbeitarstöðinni,
verkstjórn pg öflun aðfanga, áætlanagerð,
ýmis konar skráningum og þróunarstarfi í
samstarfi við framkvæmdastjóra félagsins.
Æskileg reynsla: Stjórnun, störf við fiskeldi
eða fiskirækt, rannsóknastörf, sjómennska,
köfun.
Æskileg menntun: Fiskeldisfræði, líffræði, bú-
fræði, sjávarútvegsfræði eða skyld menntun.
Krafist er búsetu í nálægð við vinnustað og
stendur stöðvarstjóra til boða húsnæði (ein-
býlishús) í Stykkishólmi. Einnig hefur viðkom-
andi afnot af bifreið á staðnum.
Laun samkvæmt samkomulagi.
Skriflegar umsóknir, með ýtarlegum upplýs-
ingum um heimilisfang, menntun og fyrri
störf, umsagnaraðila og önnur viðkomandi
atriði, skulu sendast fyrir lok janúar til:
Silfurlax hf.,
pósthólf603, 121 Reykjavík.
St. Franciskusspítali,
Stykkishólmi
Sjúkraþjálfarar
Sjúkraþjálfari óskast til starfa á endurhæfing-
ardeild spítalans frá 1. febrúar eða eftir nán-
ara samkomulagi.
Framtíðarstarf með möguleika á stöðu deild-
arstjóra endurhæfingardeildar.
Umsækjandi þarf að vera vel menntaður og
reyndur.
Æskilegt er að hann sé kunnugur orthopae-
disk medicinskum aðferðum við greiningu
og meðferð kvilla í hreyfikerfi.
Áhersla lögð á gott samstarf lækna og
sjúkraþjálfara.
Sjúkrahúslæknir er menntaður í orthopae-
diskri medicin við Cyriaxskólann í London
og starfar sem kennari við þann skóla.
Námskeið í orthopaediskri medicin á vegum
Cyriaxskólans og SFS verður haldið í Stykkis-
hólmi í júní 1993. Sjúkraþjálfara verður boð-
in þátttaka í þessu námskeiði, sem stendur
í 7 daga.
Stykkishólmur er um 1.250 manna byggðar-
lag, þar sem perlur breiðfirskrar náttúru
glitra í hlaðvarpanum.
í Stykkishólmi er einsetinn grunnskóli með
framhaldsdeild (tvö ár), góður leikskóli auk
kröftugs tónlistarskóla. Ný íþróttamiðstöð
er í bænum og gefur hún mikla'möguleika á
fjölbreyttri íþróttaiðkan.
Húsnæði f boði.
Góð laun.
Hafir þú áhuga á skemmtilegu, en oft krefj-
andi starfi í hinu fallega umhverfi okkar, þá
hafðu samband við Jósep (yfirlækni), Lidwinu
(hjúkrunarforstjóra) eða Róbert (fram-
kvæmdastjóra) í síma 93-81128.
Starf á matvæla-
og heilbrigðissviði
Hollustuvernd ríkisins óskar eftir að ráða
dýralækni, matvælafræðing eða aðila með
aðra háskólamenntun á matvæla- eða heil-
brigðissviði. Starfið felst í ráðgjöf, fræðslu
og verkefnum tengdum löggjöf og eftirliti á
sviði matvæla og almenns heilbrigðiseftirlits,
m.a. ítengslum við Evrópskt efnahagssvæði.
Umsóknum, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal skila fyrir 25. janúar nk.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf
sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Jón Gíslason,
forstöðumaður heilbrigðiseftirlitssviðs,
í síma 688848.
Hollustuvernd ríkisins,
■ Ármúla 1a, pósthólf8080, 128 Reykjavík.
Vöruhússtjóri
Kaupfélag Eyfirðinga auglýsir stöðu vöruhús-
stjóra lausa til umsóknar.
Vöruhús KEA er stór sérvöruverslun á Akur-
eyri og ber vöruhússtjóri ábyrgð á rekstrr
þess, vörukaupum og sölu í samræmi við
mótaða sölustefnu. Starf vöruhússtjóra heyr-
ir undir kaupfélagsstjóra.
Leitað er eftir starfsmanni, sem hefur reynslu
af smásöluverslun og heildsöluverslun á
hverskonar sérvörum. Viðskipta- eða rekstr-
armenntun er æskileg.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Umsóknir er tilgreini aldur og menntun,
ásamt starfsreynslu þurfa að berast aðalfull-
trúa félagsins, Sigurði Jóhannessyni, fyrir
25. janúar næstkomandi.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Sölumenn/
markaðsfulltrúar
Stórt tölvufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að
ráða eftirtalda starfsmenn til framtíðarstarfa:
1. Markaðsfulltrúa tölvubúnaðar/netkerfa.
Sala og markaðssetning á tölvubúnaði
ásamt ráðgjöf til viðskiptavina.
2. Markaðsfulltrúa viðskiptahugbúnaðar.
Sala á viðskiptahugbúnaði og ráðgjöf
varðandi val á honum.
3. Sölumann rekstrarvara.
Sala á rekstrarvörum fyrir tölvur og skyld-
an búnað.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með
góða menntun og hafi áhuga á sölu- og mark-
aðsstörfum. Helst er leitað að ungu og áhuga-
sömu fólki með haldgóða tölvuþekkingu.
Umsóknarfrestur er til og með 13. janúar
1993.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavúrðustíg 1a - 101 Reykjavlk - Sfmi 621355