Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAfllÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993
FOLK
■ HERBERT Prohaska, fyrrum
landsliðsmaður Austurríkis, var á
föstudag ráðinn landsliðsþjálfari
Austurríksmanna. Hann tekur við
starfí Ernst Happel, sem lést í des-
ember. Prohaska, sem er 37 ára, lék
83 landsleiki fyrir Austurríki, en
hann lék á árum áður með Austría
Vín, Inter Mílanó og Róma.
■ PROHASKA hætti störfum sem
þjálfari Austría Vín á sl. ári og
gerðist þá þjálfari 21 árs landsiiðs
Austurríkis.
M DIEGO Maradona verður í
sviðsljósinu þegar Sevilla leikur
gegn Barcelona í dag, en hann lék
með félaginu áður hann fór til Na-
polí 1984. „Við mætum til leiks til
að leggja Barcelona að velli," sagði
Maradona, sem var rekinn af lei-
kvelli um sl. helgi.
■ LEIKMENN SeviIIa hafa fengið
að sjá átta rauð spjöld í vetur og
yfir 50 gul spjöld.
■ MICHEL Gonzales hjá Real
Madrid, leikur sinn 300. leik fyrir
félagið er Real Madridleikur gegn
Real Sociedad í San Sebastian.
■ BEND Schuster leikur á ný með
Atletico Madrid um helgina, en
hann hefur verið frá vegna meiðsla
í tvo og hálfan mánuð.
■ FRANK Rijkaard á við meiðsli
að stríða á ökkla og verður varla
með AC Milan gegn Cagliari. Þá
er Marco van Basten, einnig meidd-
ur. Ruud GuIIit mun leika og þá eru
Boban og Papin tilbúnir til að taka
stöður Rijkaard og Van Basten.
■ GIANLUCA Vialli leikur í dag
fyrsta sinni á heimavelli Sampdoría
síðan hann fór frá félaginu til Ju-
ventus fyrir keppnistímabilið. David
Platt og Brasilíumaðurinn Julio
Cesar leika ekki með Juventus
vegna meiðsla.
■ ALDO Agroppi hefur verið ráð-
inn þjálfari Fiorentina á Ítalíu, en
Luigi Radice var rekinn um sl. helgi.
Agroppi er 48 ára gamall og lék á
yngri árum með Tórínó.
■ AGROPPI mun setja Brian
Laudrup út úr liðinu sem leikur
gegn Udinese um helgina.
■ GRASSHOPPER, liðið sem Sig-
urðar Grétarssonar leikur með í
Sviss, hefur keypti hollenska sókn-
armanninn Ron Willems. Liðið, und-
ir stjóm Hollendingsins Leo Been-
hakker, þarf að leika í sérstakri
keppni um laus sæti í fyrstu deild
og ætlar sér að halda sæti sínu þar.
■ EINS leiks banni írska lands-
liðsmannsins Kevin Moran í heims-
meistarakeppninni var aflétt fyrir
helgi, en hann var dæmdur í leikbann
eftir að hafa fengið að sjá tvö gul
spjöld. Mistök dómara í leik Irlands
og Danmerkur í október, urðu til
þess að Moran var bókaður, en ekki
félagi hans Niall Quinn.
■ RÚSSNESKU frjálsíþrótta-
mennimir fjórir sem var vísað frá
Svíþjóð í desember vegna þess að
sterar fundust í farangri þeirra stóð-
ust lyfjápróf sem tekið var í Svíþjóð.
■ TALSMAÐUR alþjóðafijáls-
íþróttasambandins, Jayne Pearce
sagði að öll sýnin hefðu reynst nei-
kvæð og því ljóst að íþróttamennim-
ir hefðu ekki notað stera. Stangar-
stökkvarinn Rodion Gataullin,
grindahlauparamir Margarita
Ponomaryova, Tatyana Reshetn-
ikova og Lyudmila Narozhilenko
geta því snúið aftur til æfinga í Sví-
þjóð.
GOLF
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
Kristján Arason leiðir menn sína í FH til leiks gegn Wallau Massenheim í Evrópukeppni meistaraliða í dag.
FH-ingaroq Valsmenn mæta þyskum stórliðum ytra í dag:
ÞjáMaramir ætla ad
koma Þjóðverjum á óvart
Geir Sveinsson, fyrirliði Vals og landsliðsins, verður í eldlínunni í Essen í
dag. Mótheijamir eru ekki frýnilegir, segir þjálfarinn Þorbjörn Jensson, eftir
að hafa skoðað þá á myndbandi, en er þó bjartsýnn.
Gotfhermir heima í stofu!
Komið er á markað hér á landi
nýr golfhermir sem hægt er
að nota inni í stofu, svokallaður Pro
Swing System. Hægt er að tengja
herminn við heimilistölvuna og leika
á mörgum af bestu völlum heimsins,
eða nota hann til að æfa sveifluna.
Slegið er með kylfu sem er nokkm
styttri en venjulegar kylfur, en á
endanum er klumpur sem sendir frá
sér leisergeisla og tækið sjálft, sem
er á gólfinu, nemur sveifluna. Ekki
er slegið í boltann þannig að öllu er
óhætt í stofunni, en hin stutta kylfa
er ótrúlega h'k venulegri kylfu þegar
sveiflað er.
Hermirinn segir kylfmgnum
hvernig hann hittir kúluna, hvort
kylfan er opin eða lokuð, hvort bolt-
inn fer beint, til hægri eða vinstri
auk þess sem lengd höggsins er
mæld og hraði kylfínnar í sveiflunni.
Einnig fær kylfingurinn upplýsingar
um þann takt sem hann slær í.
Það er heildverslunin Sveinsson
hf. sem flytur herminn inn og í dag,
sunnudag, verður hann til sýnis og
reynslu hjá Kjarna að Nýbýlavegi
26 í Kópavogi milli klukkan 10 og
18. Tækið kostar 49.500 með einum
golfvelli en 59.500 með tölvuteng-
ingu og einum velli. Hver völlur kost-
ar síðan 5.000 krónur.
LIÐ FH og Vals verða bæði í
eldlfnunni í dag í Evrópu-
keppninni íhandknattleik í
Þýskalandi. FH mætir Wallau
Massenheim íkeppni meist-
araliða og Valur liði Tusem
Essen íkeppni bikarhafa. Báð-
ir leikirnir eru fyrri viðureignir
liðanna íátta liða úrslitum, en
þau mætast svo aftur hér á
landi um næstu helgi. Það var
hugur í þjálfurum beggja ís-
lensku liðanna er Morgun-
blaðið náði tali af þeim f
Þýskalandi, þó þeir segðu að
vitaskuld yrði við ramman reip
að draga.
Kristján Arason þjálfari FH
sagði alveg ljóst að þýska lið-
ið væri sterkara en sænsku meistar-
amir í Ystad, sem FH-ingar slógu
út úr keppninni í síðustu umferð.
„Það er engin spurning — þýska
liðið er með betri einstaklinga í fleiri
stöðum. “ Hann sagði skytturnar
þijár sterkasta vopn Massenheim-
liðsins; „Finninn Michael Kállmann
á miðjunni, örventa skyttan Scwalb
og Stefan Schöne hinum megin.
Við verðum fyrst og fremst að ná
að stoppa þessa þijá menn.“
Kristján sagði aðspurður að
helsta leynivopn íslenska liðsins
gæti verið að reyna að beita hraða-
upphlaupum sem mest. Sagðist
frekar eiga von á því að Þjóðveij-
arnir byggjust við að FH-ingar
reyndu að halda hraðanum niðri,
„en auðvitað er þetta fyrst og
fremst spurning um vörnina. Til að
ná hraðaupphlaupum verður vörnin
að vera sterk.“
Kristján lék með Gummersbach
í Þýskalandi á sínum tíma, en fór
þaðan til Spánar eftir að hafa orðið
þýskur meistari vorið 1988. „Þann
vetur varð Massenheim í 5. sæti
deildarinnar. Þá var Kállmann kom-
inn, en Schöne og Schwalb voru
keyptir fljótlega eftir það. Síðan
hefur liðið smám saman orðið sterk-
ara og toppnum var náð í fyrra
þegar það varð bæði Evrópumeist-
ari bikarhafa og þýskur meistari.
Og þetta er besta lið Þýskalands í
dag. Það tapaði að vísu í deildinni
í vikunni, en þá var Kállmann í
banni. Massenheim-liðið leikur
kerfisbundið; mun skemmtilegri
handknattleik en mörg þýsk — ekki
þann kraftahandknattleik sem oft
hefur einkennt þýsk lið. Þetta verð-
ur mjög erfítt, en gefum allt í þetta
og vonum það besta,“ sagði Krist-
ján.
Þjálfarinn hefur verið meiddur
að undanförnu, en segist í það
minnsta ætla að leika með í vöm-
inni í dag.
Ekki frýnilegir andstæðingar
Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals,
sagðist hafa skoðað myndbands-
upptöku af leik Tusem Essen og
Hameln fyrr í vetur, sem lauk mað
jafntefli, 20:20. „Það var hörkuleik-
ur og þetta eru vissulega ekki frýni-
legir andstæðingar. Það er alveg
ljóst,“ sagði Þorbjöm við Morgun-
blaðið.
„Við verðum að reyna að spila
skynsamlega. Aðalmálið fyrir okkur
er að halda hraðanum niðri. Við
reynum að sjálfsögðu að vinna, en
ef svo óheppilega vill til að við verð-
um að tapa reynum við að hafa það
með sem minnstum mun. Og ég tel
að þó við töpum með fjögurra
marka mun eigum við enn mögu-
leika á að komast áfram.“
Þýsku liðin tvö sem taka á móti
íslendingunum í dag mættust í
deildinni fyrir skömmu, og þá sigr-
aði Wallau 24:22. Aðalstjörnur Ess-
en Iiðsins eru sem fyrr þýski landsl-
iðsmaðurinn Jochen Fraatz og Hvít-
Rússinn Alexander Tútskíjn, örv-
henta stórskyttan fræga. „í leikn-
um gegn Wallau gerðu þeir sam-
tals 19 af 22 mörkum liðsins. Fra-
atz gerði 12 og Tútskíjn sjö. Eftir
upplýsingum sem ég hef gengur
allt út á að þeir skjóti. Þeir ljúka
langflestum sóknum liðsins."
Þorbjörn sagðist ekki ætla að
láta taka Fraatz úr umferð, þó svo
sum lið beittu þeirri aðferð í þýsku
deildinni. „Mér er alveg sama þó
hann geri 12 til 15 mörk, bara ef
við vinnum leikinn. Eg er með viss-
ar hugmyndir hvernig best er að
leika gegn þeim. Ég ætla að tala
um þær við strákana, og athuga
hvort þeir eru ekki sammála mér,“
sagði Þorbjörn, en vildi ékki gefa
leyndarmálið upp. Sagði þó að um
væri að ræða leikaðferð sem Þjóð-
veijarnir væru ekki vanir að beitt
væri gegn þeim. Og bætti við að
endingu: „Við seljum okkur dýrt.“
Þorbjörn sagði ennfremur að ekki
þýddi annað en að vera bjartsýnn,
annars ættu menn ekki að standa
í þessu.