Morgunblaðið - 21.01.1993, Síða 1

Morgunblaðið - 21.01.1993, Síða 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 16.tbl. 81. árg. FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bill Clinton tekur við embætti sem 42. forseti Bandaríkjanna Uffe Grikkir reiddust Uffe Ellemann- Jensen er hann sagði þá halda EB í gislingu vegna Makedóníu. Grikkir reiddust Aþenu, Strasbourg. Reuter. UFFE Ellemann-Jensen ut- anríkisráðherra Danmerkur gagnrýndi Grikki harðlega í gær og sakaði þá um að halda Evrópubandalaginu (EB) í gíslingu með því að beita neitunarvaldi til þess að koma í veg fyrir að Make- dónía, fyrrverandi lýðveldi Júgóslavíu, yrði viðurkennt. Grikkir brugðust ókvæða við yfirlýsingum Uffe Elle- manns og sögðu Dani ekki valda foiystuhlutverki sínu í EB. „Við fordæmum fram- komu danska utanríkisráð- herrans, hún er óviðeigandi og óþolandi. Ummæli hans og ásakanir eiga ekki við rök að styðjast og ganga gegn sam- þykictum EB,“ sagði í yfirlýs- ingu grísku ríkisstjómarinnar. Þar sagði að þess yrði krafíst að framkoma Ellemanns-Jens- ens yrði tekin til umræðu á næsta fundi utanríkisráðherra EB. Boðar tímabil banda- rískrar endurnýj unar Washington. The Daily Telegraph. BILL Clinton var settur i embætti Bandaríkjaforseta síðdegis í gær. Hann er 42. forseti Bandaríkjanna. Hinn 46 ára gamli Clinton er þar með þriðji yngsti forseti í sögu landsins. í fjórt- án mínútna langri innsetningarræðu sinni við þinghúsið á Capitol-hæð lagði Clinton margsinnis áherslu á kynslóðamun- inn milli sín og fráfarandi forseta, George Bush. Orðið „breyt- ing“, sem var einskonar kjörorð kosningabaráttu Clintons á síðasta ári kom níu sinnum fyrir í ræðunni sem forsetinn skrifaði sjálfur eftir að hafa lesið vandlega innsetningarræður þeirra Johns F. Kennedys og Abrahams Lincolns. Ekki tímamótaræða í innsetningarræðunni sagði Clint- on að Bandaríkjamenn yrðu að búa sig undir breytingar og færa fómir til að koma Bandaríkjunum aftur á réttan kjöl. „Það er ekkert svo slæmt við Bandaríkin að hið góða við land- ið lækni það ekki,“ sagði forsetinn og síðar í ræðunni sagði hann nýtt tímabil bandarískrar endurnýjunar vera hafíð. Lagði hann einnig áherslu á að hagsmunir bandarísks almenn- ings mættu ekki verða útundan í hagsmunapoti valdamanna. „Við skulum einsetja okkur að koma á umbótum í stjórnmálum þannig að hróp valda og forréttinda yfírgnæfi ekki rödd fólksins," sagði Clinton. Hann þakkaði einnig Bush fyrir hálfrar aldar þjónustu í þágu Banda- ríkjanna. Flestir þeirra á Capitol-hæð sem hlýddu á ræðu Clintons voru sam- mála um að hún væri sigur fyrir hinn nýja forseta en þó ekki nógu frumleg til að teljast tímamótaræða. Um margt, jafn efnislega sem í fram- setningu, minnti ræðan á Kennedy. Þegar Clinton sagði að það væri kominn „tími til að láta af þeim ósið að búast við einhveiju af ríkisstjóm- inni en vilja ekkert láta í staðinn" þótti það til dæmis minna á hina frægu setningu Kennedys: „Ekki spyrja hvað landið þitt getur gert fýrir þig; spurðu hvað þú getur gert fyrir landið þitt“. Gekk að Hvita húsinu Að athöfninni lokinni hélt Clinton ásamt föruneyti frá þinghúsinu niður Pennsylvania breiðgötuna til Hvíta hússins, embættisbústaðar Banda- ríkjaforseta. Forsetinn ók fyrsta hluta leiðarinnar í brynvarðri Cad- illac-bifreið sinni en eftir nokkur hundruð metra steig hann úr henni og gekk síðasta spölinn ásamt Hill- ary, sem farið hafði úr kápunni og klæddist rauðri dragt, á meðan þús- undir manna hylltu hann og hrópuðu „við viljum Bill“. Jimmy Carter gekk einnig að Hvíta húsinu eftir að hafa svarið embættiseið sinn árið 1977. Um fimm þúsund lögreglumenn og að minnsta kosti jafn margir örygg- isverðir gættu öryggis forsetahjón- anna á leiðinni. Rétt eins og í ræðunni við emb- ættistökuna er ætlað að setja tóninn varðandi stefnu hins nýja forseta þá er skrúðgangan frá þinghúsinu að Hvíta húsinu höfð til marks um hver verði „stíll" hans. Clinton ákvað að skrúðgangan ætti sem minnst að líkj- ast hersýningu og lagði í staðinn áherslu á að vera þjóðlegur og ná- lægt almenningi. Samkunda Bosníu-Serba samþykkir friðaráætlunina Reuter 42. forseti Bandaríkjanna sver eiðinn Bill Clinton var settur í embætti forseta Bandaríkjanna við hátíðlega at- höfn í gær. Myndin var tekin þegar hann sór embættiseiðinn, sem William H. Rehnquist, forseti hæstaréttar Bandaríkjanna, las honum. Eiginkona Clintons, Hillary, fylgist með. Clinton er 42. forseti Bandaríkjanna. Bænastund og kaffiboð Dagur hins nýja forseta hófst með bænastund í meþódistakirkju en síð- an fóru Bill og Hillary Clinton til Hvíta hússins, þar sem þau drukku kaffi með George og Barböru Bush. „Velkominn á nýja heimilið ykkar,“ sagði Barbara þegar hún tók á móti þeim. Vetrarsól skein á Washington meðan athöfnin við þinghúsið fór fram og Bill Clinton, klæddur dökk- bláum jakkafötum, hvítri skyrtu og skærbláu bindi sór embættiseiðinn. George Washington sór fyrst eiðinn, sem er 35 orð, árið 1789. Á meðan Clinton sór eiðinn lét hann vinstri hönd sína hvíla á bibiíu sem hann hafði fengið að gjöf sem drengur í kirkju baptista í heimaríki sínu Ark- ansas. Eiginkona hans Hillaiy stóð við hlið hans, klædd blárri kápu og hatt í sama lit ásamt, tólf ára gamalli dóttur þeirra, Chelsea, en hún faðm- aði föður sinn að sér um leið og hann hafði lokið við að sveija emb- ættiseiðinn. Nokkrum mfnútum áður hafði A1 Gore varaforseti, sem er 44 ára gamall, svarið sinn embættiseið. Serbar vilja skilyrðis- laust vopnahlé í Bosníu Genf, Pale í Bosníu. Reuter. SAMKUNDA Bosníu-Serba samþykkti í gær alþjóðlega friðaráætlun fyrir Bosníu með 55 atkvæðum gegn 15, en það var mun meiri munur en búist hafði verið við. „Þetta er skref í átt að friði. Við erum reiðubúnir að lýsa yfir tafarlausu og skilyrðislausu vopnahléi um alla Bosníu-Hersegóvínu, þar á meðal Sarajevo," sagði Radovan Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba, eftir atkvæðagreiðsluna. Cyrus Vance og Owen lávarður, sem eru í forsvari fyrir friðarviðræð- unum í Genf, fögnuðu því að Serbar hefðu samþykkt áætlunina. Friðar- viðræðunum verður fram haldið á laugardag en forsenda þess var að samkundan samþykkti áætlunina. Hún gerir ráð fyrir að lýðveldinu verði skipt niður í tíu sjálfstjórnar- svæði. „Þetta eru góðar fréttir," sagði Uffe Ellemann-Jensen, utanríkisráð- herra Danmerkur, þegar hann frétti af niðurstöðunni, en Danir fara nú með foiystuna innan Evrópubanda- lagsins. Hann sagðist vona að menn myndu ekki láta sitja við orðin tóm heldur hætta að beijast. Ef sú yrði ekki raunin væri bandalagið reiðu- búið að grípa til aðgerða. Vance og Owen áttu í gær fund með Ilija Izetbegovic, forseta Bosníu, og Mile Akmedzic, forsætisráðherra í Sarajevo, og sögðu að honum loknum að múslímar og Króatar í Bosníu hefðu fallist á að hætta átökum sín á milli. Audrey Hep- bum er látin Sameinuðu þjððunum. Reuter. LEIKKONAN Audrey Hep- burn lést í gær, 63 ára að aldri, eftir langa baráttu við krabba- mein í ristli. Audrey Hepburn hlaut Óskars- verðlaunin fyrir leik sinn í mynd- inni „Roman Holiday“ og var til- nefnd fjprum sinnum til verðlaun- anna. Á meðal annarra helstu mynda hennar eru „Breakfast at Tiffany’s,“ „Sabrina,“ „Funny Face,“ og „My Fair Lady“. Audrey Hepburn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.