Morgunblaðið - 21.01.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.01.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1993 21 Ekki unnið að neinum virkjunum á þessu ári Miimstu framkvæmdir í sögn Laiulsvirkj unar HORFUR eru á að framkvæmdir Landsvirkjunar verði i ár minni en nokkurt ár í rúmlega aldarfjórðungs sögu stofnunarinnar. Blöndu- virkjun lauk á síðasta ári og nú er ekki unnið við neina vatnsafls- virkjun. Aætlað er að veija rúmlega 400 milljónum kr. til fram- kvæmda á árinu og eru rafalar fyrir Búrfellsstöð stærsti einstaki liðurinn. I fyrra var fjárfest fyrir um 500 milljónir kr. en árið 1991 var framkvæmt fyrir yfir 4000 milljónir kr. Vegna fjárhagsstöðu fyrirtækisins og vegna þess hvað dregið hefur úr framkvæmdum hefur verið ákveðið að minnka rekstrargjöld um 80 milljónir og stofnkostnað um 216 milljónir frá því sem áður var áformað. Það verður meðal annars gert með fækkun starfsfólks. mælingar, en ekki nýrra virkjana. 1800 milljóna tap Þrátt fyrir 4% hækkun gjaldskrár Landsvirkjunar í upphafi árs og lækkun kostnaðar verður um 700 milljóna króna tap af rekstri hennar á árinu, samkvæmt fjárhagsáætlun. Síðasta ár hefur ekki verið gert endanlega upp en útlit er fyrir að þá hafi verið 1,8 milljarða kr. tap af rekstrinum. Yfirvinna starfsfólks Landsvirkj- unar verður minnkuð um fjórðung með breytingum á vinnufyrirkomu- lagi í raforkustöðvum og minnkun vinnu á aðalskrifstofum, að sögn Þorsteins Hilmarssonar upplýsinga- fulltrúa Landsvirkjunar. Lækka út- gjöld stofnunarinnar um 33 milljón- ir kr. við það. Starfsfólki er fækkað sem nemur fjórum stöðugildum. Það er gert með því að ráða ekki í nokkur störf sem losna og á það að spara 9 milljónir í ár. Þá eru lækkuð framlög til almennra rann- sókna um 38 milljónir kr. frá því Karlakórinn Hekla Sýningar- gestir ná- lægt 30 þús. UM 30 þúsund manns hafa séð íslensku kvikmyndina Karla- kórinn Heklu, sem frumsýnd var fyrir mánuði. Að sögn Friðjóns Guðmunds- sonar sýningarstjóra í Háskóla- bíó, hefur aðsóknin verið þokka- leg og þar hafa 22 þúsund manns séð myndina. Utan Reykjavíkur hefur myndin verið sýnd á Akur- eyri og þar var aðsókn góð. Hafsteinn Daníelsson sem áður var áformað. Eru þetta rannsóknir sem tengjast rekstri virkjana, svo sem vatna- og jökla- undirbúningi 5 verkfræðingar hætta Landsvirkjun framkvæmir fyrir 424 milljónir í ár samkvæmt fjár- hagsáætlun. Stofnkostnaður hefur þá verið skorinn niður um 216 millj- ónir kr. frá fyrri áætlunum. Virkj- anarannsóknir eru lækkaðar um 200 milljónir kr., úr 250 í 50 millj- ónir kr. Þá var fímm verkfræðing- um í byggingadeild sagt upp störf- um og hætta þeir 1. maí. Sparar það 16 milljónir kr. á þessu ári. Fjárfestingar Landsvirkjunar 1966 - 1993 Upphæðir frá 1966 til 1992 eru á verðlagi 1991 en talan 1993 er á verðlagi í janúar ’93 8 milljarðar króna------------------ 1966 '68 70 72 74 76 78 ’80 ’82 ’84 ’86 '88 '90 '921993 Sumir verkfræðinganna eiga lang- an starfsferil að baki hjá Lands- virkjun. Eftir eru í byggingadeild tveir verkfræðingar og er annar þeirra deildarstjóri. Þorsteinn sagði að vegna þess að Landsvirkjun keypti að mikinn hluta rannsókna hefði niðurskurður fjárveitinga til rannsókna í ár og á síðasta ári komið fram í minnkun á aðkeyptri ráðgjöf. V. Fannst látínn við Sandvík 8 Maðurinn, sem fannst látinn skammt frá Sandvík á Reykja- nesi á sunnudagskvöld, hét Haf- steinn Daníelsson. Hafsteinn var tæplega 59 ára gamall, fæddur 2. febrúar 1934. Hann var til heimilis að Klettahlíð 7 í Hveragerði. Hafsteinn lætur eftir sig eigin- konu, móður og fimm uppkomin börn. A M B R-A SLÆR í GEGIU OG FÆR MIKIL GÆDI OG LAGT VERD amiia r v ■ ■ ■ Ai L A itarlegar íslenskar leiöbeiningar fylgja sem allir skilja. Stór og þægileg AMBRA músamotta. i/l O 5.0TB Handbók um DOS 5.0. Handbók um WINDOWS 3.1. AMBRA mappa undir gögn og leiöbeiningar. ' ' ' « « :: ! % \ \ ■hmhhmmmmmhhi Þegar þú kaupir AMBRA tölvu færðu ýmisíegt í kaupbæti 1 1X2 getraunaforrit ásamt leiöbeiningum. PC ÍÍÍSlmr-VÆ | BEST BUV AMBRA 386-25, 4/85MB, SVGA kr. 98.000* AMBRA 486-25, 4/107MB, SVGA kr. 138.000* TVÖ AF VIRTUSTU TÖLVUTÍMARITUM HEIMS VEITA AMBRA VIÐURKENNINGAR FYRIR EINSTÖK GÆÐI Á ÓTRÚLEGA LÁGU VERÐI AMBRA hefur farið sigurför um heiminn og hvarvetna slegið í gegn fyrir frábær gæði á einstaklega lágu verði. Það er einmitt fyrir þetta sem tvö af virtustu tölvutímaritum heims, PC Magazine og PC Today, hafa veitt AMBRA sérstakar viðurkenningar sem staðfestir að þegar þú kaupir AMBRA tölvu færðu mun meiri gæði en þú borgar fyrir. Auk þess færðu ýmislegt í kaupbæti þegar þú kaupir AMBRA tölvu. Hún kemur með DOS 5.0 og WINDOWS 3.1 uppsettum og er því tilbúin til notkunar. Láttu ekki einstaka tölvu úr hendi sleppa. Komdu í Nýherja, Skaftahlíð 24 og kynntu þér hvað þú færð stórkostleg gæði fyrir skemmtilega lágt verð. AMBRA er fyrir alla. A M B R A NÝHERJI SKAFTAHLlÐ 24 • SlMI 69 77 00 & 69 77 77 Alltaf skrefi á undan (S) m A . Raðgreiöslur GREIDSLUSAMNINGAR ‘Staðgreiðsluverð með VSK. w *• -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.