Morgunblaðið - 21.01.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANUAR 1993
9
UTIVISTARFÖT
fyrirgóngur oggolf
U0% afsláttur
TESS
V NEl
NEÐDUNHAGA 0pið virka da9a 9-18'
S. 622230. laugardag 10-14.
ÚTSALA
B O G N E R
sérverslun v/Óöinstorg, sími 25177
HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ
★ Vilt þú margfalda lestrarhraðann og bæta eftirtektina?
★ Vilt þú verða mikið betri námsmaður og auðvelda þér nám-
ið með auknum lestrarhraða og bættri námstækni?
★ Vilt þú lesa meira af góðum bókum?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax. Næsta námskeið hefst
fimmtudaginn 28. janúar. Skráning í síma 641091.
Ath.: Sérstakur námsmannaafsláttur. VR og flest önnur félög
styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðunum.
HRAÐLESTRARSKOLINN
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri
£ 1978-1993
TOSHIBA
Áttþú
ekki <
örbylgjuofn ?
Þeir sem eiga TOSHIBA örbylgjuofn segja að þaö sé tækið, sem
þeir vildu síst vera án. TOSHIBA eru mest seldu örbylgjuotnarnir á
Islandi og þeim fylgir ókeypis kvöldnámskeið hjá
Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennara.
Hvernig væri að láta drauminn rætast og fá sér slíkan kostagrip ?
Við bjóðum yfir 10 gerðir af TOSHIBA örbylgjuofnum á verði og
kjörum, sem allir ráða við!
Eínar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 “S 622901 og 622900
Fyrir árshátíðina!
Fyrir dömuna:
Samkvœmistöskur, samkvœmishanskar,
skartgripir, varalitir, naglalökk,
M0SCHIN0 og MURA sokkabuxur
Fyrir herrann:
svo sem silkibindi, bindisnælur, hnappar o.fl.
Opið laugardag kl. 10 — 16
Laugavegi 80, sími 61 13 30
Ingvar Carlsson, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna:
Bleyða eða leiðtogi „þroskaðs og fullvaxta flokks"?
Bleyðuskapur jafnaðar-
manna?
Blöð hliðholl Jafnaðarmannaflokknum í
Svíþjóð helga flest leiðara sína í gær
þeirri ákvörðun flokksforystunnar að taka
ekki ákveðna afstöðu til inngöngu Svía í
Evrópubandalagið, heldur bíða eftir þjóð-
aratkvæðagreiðslunni, sem haldin verður
þegar niðurstaða í aðildarviðræðum Sví-
þjóðar við EB liggur fyrir. Flokkurinn
ætlar heldur ekki að blanda sér í kosn-
ingabaráttuna fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna. Samt sem áður hafa jafnaðar-
menn afhent ríkisstjórn Bildt lista yfir þær
samningskröfur, sem þeir telja að Svíar
eigi að halda fram í viðræðunum. Mörg
kratablaðanna gagnrýna þessa afstöðu.
í Staksteinum er einnig gluggað í leiðara
Aftenposten í Noregi um mál Erichs
Honeckers, fyrrverandi leiðtoga Austur-
Þýzkalands.^
Stór flokkur
án skoðunar
í leiðara Aftonbladet,
undir fyrirsögninni „Til
lítils sóma, Carlsson", er
Jafnaðarmannaflokkur-
inn gagnrýndur harð-
lega. Blaðið er þeirrar
skoðunar að kröfulisti
flokksins sé réttlætanleg-
ur, en segir síðan: „Hins
vegar hefur hinn stóri
flokkur enga skoðun á
því hvort Svíar eigi að
ganga í Evrópubandalag-
ið eða ekki. Og það sem
verra er — jafnaðarmenn
hafa ekki hugsað sér að
taka neina ákvörðun í því
efni.“ Aftonbladet segir
að þetta hafi í för með
sér að flokkurinn verði
ótrúverðugur og telur
einstætt að stór stjóm-
málaflokkur skuli skjóta
sér undan því að taka
afstöðu í jafnstóm máli.
Lokaorð leiðarans em:
„Jafnvel stjómmála-
flokkur verður að hafa
eitthvert bein í nefinu —
að ekki sé talað um for-
ystu hans.“
Aðrir leiðarahöfundar,
sem fyigja jafnaðar-
mönnum að málum, em
heldur jákvæðari. Norr-
ISndska Socialdeniokrat-
en segir þó að hætta sé
á að ákvörðun jafnaðar-
manna verði túlkuð sem
bleyðuskapur og snýst til
vamar: „Þetta er ekki
ragmennska eða skortur
á ábyrgð heldur þvert á
móti styrkur og hrein-
skilni.“ Blaðið telur að
sú stefna, sem jafnaðar-
meim hafa ákveðið að
fylgja, sé ekki aðeins rök-
rétt, heldur skapi nýja
vídd i EB-umræðum í
Svíþjóð.
Flokksaga ýtt
til hliðar
Dala-Demokraten lítur
á ákvörðun jafnaðar-
manna sem vísbendingu
um að þeir hafi nú ýtt
flokksaganum til hliðar
og telur hana gott dæmi
um hvemig „þroskaður
og fullvaxta flokkur"
hagar sér.
Dagblaðið Arbetet tel-
ur að samningskröfur
jafnaðarmanna sýni ein-
arða afstöðu Svía og hafi
góð áhrif á skoðanir al-
mennings á Evrópu-
bandalaginu: „Jafnaðar-
menn hafa tekið tillit til
þess óöryggis, sem er að
fínna hjá almenningi
gagnvart EB-aðild. Að-
eins með slíkri afstöðu
er hægt að breyta hinu
neikvæða viðhorfi til
Evrópubandalagsins,"
segir leiðarahöfimdur
Arbetet Hann telur hins
vegar óheppilegt að ekki
eigi að taka afstöðu með
eða á móti Evrópubanda-
lagsaðild á flokksþingi
jafnaðarmanna, sem
haldið verður næsta
haust. „Með vissum rétti
má segja að Jafnaðar-
mannaflokkur Sviþjóðar
hafi með þessu skotið sér
hjá að taka afstöðu til
eins stærsta máls nútím-
ans,“ segir í leiðara Ar-
betet
I forystugrein blaðsins
Östra Smáland segir hins
vegar að hyggilegt sé að
bíða eftir þjóðaratkvæða-
greiðslunni: „Það væri
ekki við hæfi að flokkur-
inn færi með eitt af
stærstu málum tíunda
áratugarins á annan
hátt.“
Jákvæða hlið-
inámáli
Honeckers
I leiðara Aftenposten
er fjallað um mál Erichs
Honeckers og niðurstöðu
þess raunar fagnað. Þar
segir. „Það er uppörv-
andi söguleg þversögn
að fyrrverandi leiðtogi
Þýzka alþýðulýðveldis-
ins, Erich Honecker, sem
múraði þegna sina inni,
sé nú látinn laus úr fang-
elsi af mannúðarástæð-
um. Stjórnarskrárdóm-
stóllinn í Beriín hefur
komizt að þeirri niður-
stöðu að stjórnarskrá
ríkisins kveði á um virð-
mgu fyrir réttindum ein-
staklingsins. Þess vegna
er ekki lengur hægt að
rétta í.máli hins áttræða
og dauðsjúka Honeckers,
alveg burtséð frá því
hversu alvarleg ákæran
á hendur honum er; að
hafa gefið skipanir um
að skjóta fióttamenn við
landamæri þýzku ríkj-
anna.
Sem ieiðtogi gamla
Austur-Þýzkalands sýndi
Honecker sjálfur aldrei
þá virðingu fyrir mann-
réttindum, sem kemur
nú honum sjálfum til
góða. Hann var ekki leið-
togi réttarríkis, en hann
er dreginn fyrir dóm í
réttarríki. I því felst
munurinn og þess vegna
eru málalokin uppörv-
andi.“
JANÚARTILBOÞ
TONIC þrekhjól og þrekstigar
TM-270
A VANDAÐ EN 0DYRT
A MEÐ RÓÐRASTÝRI
A BREITT, MJÚKT SÆTI
Verð kr. 12.609,- stgr.
(áður 16.812,-).
A TOLVUMÆLIR MEÐ 0LLU I A PULSMÆLIR (0G T0LVA)
A 8 KG. KASTHJ0L
A BREITT, MJÚKT SÆTI
Verð 16.030,- stgr.
(áður 21.373,-).
A12 KG. KASTHJOL
A BREITT, MJÚKT SÆTI
Verð 19.284,- stgr.
(áður 25.712,-).
5
co
ro
ío
OPIÐ LAUGARDAGA 10-13
PÓSTSENDUM UM LAND ALLT
GS3C1D
mm mm R e Í ð h j Ó / 3 V C T S / U H Í H
ORNINNp*
SKEIFUNNI f I
VCRSLUN SÍMI 679890 VCRKSTÆÐISÍMI679891