Morgunblaðið - 21.01.1993, Síða 17

Morgunblaðið - 21.01.1993, Síða 17
M.OKGL',\BI.Al)IÐ FIMMTUDAGUli 21, JANUAR, j-993 aÍZ Frönsk-þýsk samvinna í þrjá áratugi Haldið upp á 30 ára afmæli Elysée-samkomulagsins FRANSKA sendiráðið og Alliance Francaise ásamt þýska sendi- ráðinu og Göthe-Institut hafa ákveðið að halda upp á að um þessar mundir eru þrjátíu ár liðin frá því Elysée-samkomulagið var undirritað. Það samkomulag markaði upphaf sátta og sam- vinnu milli Frakklands og Þýskalands. almenna kosti. Unnt er að stýra aflflæði með jafnstraumi á mun hraðvirkari hátt en með riðstraumi og getur það bætt stöðugleika kerf- anna og minnkað orkutap. Dæmi er sambandið „Pacific Intertie" (1.600 MW, 1.400km) í Kaliforníu milli norður- og suðurhluta ríkisins og hið nýja Fenno-Skan samband milli Svíþjóðar og Finnlands. Ekki er þessi tækni án ágalla. Nefna má kostnað við endabúnaðinn, sem er verulegur. Einnig veldur skortur á nothæfum jafnstraumsrofum því að ekki er unnt að byggja upp jafn- straumskerfi. Endabúnaður getur truflað riðstraumskerfið með yfír- tónum o.sv.frv. Höfundur er prófessor í raforkuverkfræði við Háskóla Islands. -------» ♦ ♦-------- Þann 22. janúar 1963 undirrit- uðu Charles de Gaulle Frakk- landsforseti og Konrad Adenau- er, kanslari Vestur-Þýskalands, hið svokallaða Elysée-samkomu- lag þar sem sættir landanna eru staðfestar og grunnur lagður að gagnkvæmri samvinnu á ýmsum sviðum. Hið upprunalega sam- komulag var mjög einfalt í snið- um. Gert var ráð fyrir að leiðtog- ar landanna hittust á sex mánaða fresti og samvinnu á sviði utan- ríkis-, varnar- og menntamála. Samstarfíð hefur þó orðið mun víðtækara með tímanum. í frétt frá franska sendiráðinu segir að það alþjóðlega um- hverfi, sem var við lýði er sam- komulagið var gert, hafi tekið miklum og djúpstæðum breyting- um. „Sameining Þýskalands hef- ur enn styrkt tengsl þjóðanna og gefíð samskiptum þeirra á sviði stjórnmála, menningar og efna- hagsmála byr undir báða vængi, jafnt hjá einkaaðilum sem opin- berum. í heimi og þá sérstaklega Evr- ópu þar sem þjóðernishyggja og gamlar væringar milli þjóða skjóta upp kollinum, er ímynd fransk-þýskrar samvinnu fyrir- mynd, sem hægt er að líta til.“ Til að halda upp á að 30 ár séu liðin frá undirritun samkomu- lagsins verður kvikmynd Erics Rohmers „La Marquise d’0“ sýnd í Háskólabíói í dag en hún er byggð á sögu Heinrichs von Kleist. Reykjavíkurborg 12.787 á launaskrá ÁRIÐ 1992 voru 12.787 á launa- skrá hjá Reykjavíkurborg, þar af voru 1.909 í Vinnuskólanum. Þá fengu 8.037 greidda yfirvinnu eða um 74% launþega utan Vinnuskólans. Samsvarandi tölur í launakerfi Borgarspítalans sýna að þar voru 2.294 á launa- skrá og þar af 2.016 með yfir- vinnu, eða 88%. Þetta kemur fram í svari við fyr- irspurn Ólínu Þorvarðardóttur um yfírvinnu og hlunnindagreiðslur til starfsmanna Reykjavíkurborgar ár- ið 1992 og lagt hefur verið fram í borgarráði. Þar segir enn fremur að bílastyrkir og dagpeningar teljist hvorki til hlunninda né launaupp- bótar. Jafnframt að dagpeningar og kaup á hlífðarfatnaði eða ein- kennisfatnaði séu ekki færð í launa- kerfi borgarinnar. Reikningsárinu sé ekki lokið og því liggi upplýs- ingar um þann kostnað ekki fyrir fyrr en eftir tíu daga. Akstur og yfirvinna Fram kemur að greiðslur vegna aksturs á vegum borgarinnar voru tæpar 120 milljónir króna á árinu 1992 og yfirvinna var 1,5 milljarð- ar. Á vegum Borgarspítala voru greiðslur vegna aksturs 33,4 millj- ónir króna og vegna yfirvinnu rúm 481 milljón. Heildarlaun með launa- tengdum gjöldum voru hjá borginni tæpir 6,6 milljarðar og hjá Borgar- spítala rúmir 2 milljarðar króna. -----♦-■»-♦-- Sama árgjald fyrir hunda BORGARRÁÐ hefur samþykkt að árlegt gjald fyrir hunda í Reykjavík verði það sama á árið 1992. Árgjaldið verður því áfram 8.800 krónur fyrir hvern hund árið 1993. Tæknival viöyrkefandiur m KYIKWWiCARVERÐ ú t ja n ú.a rmám titó * HP Vectra 486/25N Borðtölva 486sx 25 MHz, 4MB vinnsluminni, Super VGA14" lággeisla litaskjár, Ultra VGA skjákort á Local Bus. 85MB diskur, Dos 5.0, Windows 3.1 og mús. HP Laserjet IIIP Hágæða laserprentari sem afkastar 4 bls. á mínútu. Prentar í 300 punkta upplausn. Er með upplausnaraukningu. HP Laserjet 4 Nákvæmur og öflugur laserprentari. Prentar í 600 punkta upplausn og er með upplausnaraukningu. Hefur 45 innbyggðar leturgerðir og RISC örgjörva sem auðveldar útprentun á flókinni grafík. LaserJet 4 er samhæfður viö öll þekktustu netkerfi og einnig viö Macintosh. HP Deskjet 500C Bleksprautuprentari sem prentar í lit, jafnt á pappír sem glærur. Prentar í 300 punkta upplausn og allt að 240 stafi á sekúndu. Fæst einnig tengjanlegur viö Macintosh. HP rekstranörur Eigum ávallt fyrirliggjandl fjölbreytt úrval af rekstrarvörum fyrir Hewlett Packard tölvur og prentara. Ert þú svo heppinn að eiga elsta HP laserprentara á íslandi? I tllefnl HP daganna leitum viö aö elsta HP laserprentaranum á islandi. Elgandi hans fær nýjan HP LaserJet IIIP aö gjöf fró HP á íslandi. Leitinni lýkur kl 14.00 laugardaginn 30. janúar. Nánari upplýsingar gefur Gunnar Lárusson hjá Tæknivali. HEWLETT PACKARD Tæknival ---------------------- HP A ÍSLANOI HF * Öli «erö «riu iroeö VSK og raí@e®l «ið tollgengi í ^asraiíaniiitonitoL Skeífunni 17, símí 6816 65

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.