Morgunblaðið - 21.01.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1993
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Rokkbandalagið styrktí fatasöfnunina
Rokkbandalagið er hópur flórtán þroskaheftra unglinga sem starfað hafa saman að ýmsum verkefnum í
félagsmiðstöðinni Þróttheimum þar sem hópurinn kemur saman reglulega. Þau tóku þátt í fatasöfnun Þjóð-
kirkjunnar og Rauða kross íslands á dögunum og þóttu standa sig vel. Rokkbandalagið hefur staðið fyrir
böllum í diskóteki félagsmiðstöðvarinnar og opnu húsi þar sem ýmsum unglingum sem þau þekkja hefur
verið boðið í keppni í biljard, borðtenni og fleiri leikjum. Á myndinni eru fimm af meðlimum Rokkbandalagsins.
Framfærsluvísitalan upp um 1,2% í janúar
Helmingur hjá
hinu opinbera
UM 0,6% af 1,2% hækkun framfærsluvísitölunnar í janúar stafaði
af hækkun opinberrar þjónustu og gjalda til ríkisins. Þó voru verð-
lagsáhrif hækkana um áramót ekki að fullu komin fram. Ólafur G.
Einarsson menntamálaráðherra telur að sér hafi ekki verið stætt á
því að synja Ríkisútvarpinu um 4% hækkun vegna þess að hækkun-
in hafi verið sett í fjárlög.
Ósk um 12%
„Eftir að hafa fengið upplýsingar
frá stjómendum Ríkisútvarpsins um
niðurskurð kostnaðar og aðhald í
rekstri taldi ég rétt að verða við
ósk þeirra um 4% hækkun afnota-
gjalds," sagði Ólafur G. Einarsson
í gær um hækkun RÚV sem hann
heimilaði í vikunni. Ólafur sagðist
hafa hafnað beiðni Ríkisútvarpsins
um hækkun á síðasta ári. „í upphaf-
legi íjárlagafrumvarpi nú var ósk
þeirra um 12% hækkun afnota-
gjalda. Það breyttist við fjárlaga-
gerðina og niðurstaðan var 4%
hækkun. Eg taldi mér ekki stætt á
að hafna því ósk þeirra þar sem
gert var ráð fyrir þessu í fjárlög-
um,“ sagði Ólafur.
Fram kom hjá fjármálastjóra
Ríkisútvarpsins í blaðinu í gær að
hækkunin væri meðal annars til
úar, en kemur fram við næsta út-
reikning eða síðar. Hluti rafmagns-
verðshækkunarinnar á eftir að
koma fram. Lækkun endurgreiðslna
á virðisaukaskatti eggja og nokk-
urra kjöttegunda var ekki komin
fram í hækkuðu búvöruverði nema
að litlu leyti. Hækkun lyfjaverðs og
þjónustu sérfræðinga í kjölfar
breytinga heilbrigðisráðuneytisins á
þátttöku ríkisins í þessum kostnaði
var ekki komin fram. Heldur ekki
4% hækkun afnotagjalds Ríkisút-
varpsins. Loks má þess geta að
5,2% lækkun áburðarverðs sem
lækka mun verð á kindakjöti og
mjólk um nálægt '/i% kemur ekki
fram fyrr en síðar á árinu.
Bankar og sparisjóðir ákveða að lækka útláns- o g innlánsvexti
komin vegna aukinnar þjónustu,
það er morgunsjónvarps fyrir böm.
Ólafur sagði að vissulega væri það
rétt en einnig yrði að hafa í huga
að stjómendur stofnunarinnar
hefðu verið með aðhald í rekstri og
skorið niður. „Það urðu þeir að
gera vegna þess að þeir fengu ekki
hækkun í fyrra og ósk þeirra var
lækkuð úr 12 í 4% núna,“ sagði
Ólafur. Aðspurður hvort hann teldi
ekki hægt að ganga lengra í því
efni sagði Ólafur: „Jú ég tel að
þeir geti það, þó ég viti einnig að
þeir séu ekki sammála mér í því.“
Fleiri hækkanir
Við útreikning framfærsluvísi-
tölunnar í janúar, sem miðuð er við
verðlag í byijun janúar samanborði
við desemberbyijun, reyndist um
0,6% hækkunar vísitölunnar bein
afleiðing hækkana á opinberri þjón-
ustu og gjöldum til ríkisins. Tann-
læknakostnaður bama hækkaði um
11% vegna breytinga á endur-
greiðslu ríkisins á tannlæknakostn-
aði. Húshitun hækkaði um 8,5%
vegna álagningar virðisaukaskatts.
Taxtar hitaveitnanna hækkuðu
hlutfallslega mismikið vegna endur-
greiðslna hluta skattsins, eða á bil-
inu 5,3 til 14%. Rafmagnsverð
hækkaði um 2,1%. Bensínverð
hækkaði um 7,6%.
Hækkanir nokkurra liða vom
ekki komnar út í verðlagið þegar
verðlagið var kannað í byijun jan-
Vísitölur
á uppleið
HAGSTOFAN hefur reiknað
vísitölu byggingarkostnaðar
eftir verðlagi um miðjan jan-
úar 1993. Reyndist hún vera
189,8 stig og hækkar um
0,1% frá desember 1992. Vísi-
tala þessi er fyrir febrúar.
Sl. 12 mánuði hefur vísitalan
hækkað um 1.3%. Síðustu 3
mánuði hefur vísitala bygging-
arkostnaðar hækkað um 0,4%
sem er 1,5% hækkun á ári.
Þá hefur Hagstofan einnig
reiknað út vísitölu launa fýrir
janúarmánuð 1993 miðað við
meðallaun í desember sl. Er
vísitala 130,7 stig eða 0,2%
hærri en I fyrra mánuði.
Samsvarandi launavísitala,
sem gildir við útreikning
greiðslumarka fasteignaveð-
lána, tekur sömu hækkun og
er því 2.858 stig í febrúar 1993.
Meðalvextir almennra skulda-
bréfalána munu lækka um 0,4%
Miðstjórn Alþýðusambands Islands telur vaxtalækkunina ófullnægjandi
ÍSLANDSBANKI, Búnaðarbanki og sparisjóðirnir ákváðu í gær
að lækka bæði útláns- og innlánsvexti og tekur breytingin gildi
í dag. Landsbankinn mun ekki breyta sínum vöxtum. Meðalvextir
almennra skuldabréfalána lækka um 0,4% eða úr 14,6% í 14,2%.
Engar breytingar eru hins vegar gerðar á vöxtum vísitölubund-
inna skuldabréfa og eru meðalvextir þeirra áfram 9,5%. Hjá
Búnaðarbanka lækka kjörvextir á almennum skuldabréfum um
0,75% eða úr 12,5% í 11,75%, hjá íslandsbanka um 0,6% eða úr
13,4% í 12,8% og hjá sparisjóðunum um 0,5% eða úr 12,6% í 12,1%.
Landsbankinn er áfram með lægstu kjörvexti á almennum skulda-
bréfum eftir vaxtahækkanirnar um seinustu áramót eða 11,5%.
Með þessum breytingum hafa
vaxtahækkanir sem tóku gildi um
seinustu áramót að hluta gengið
til baka en þá hækkuðu innláns-
stofnanir nafnvexti um l,5%-2% í
ljósi horfa um verðhækkanir á
næstu mánuðum. Ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um að hætta við
lækkun á endurgreiðslu virðis-
aukaskatts af vinnu við íbúðarhús-
næði hefur hins vegar leitt til þess
að hækkun lánskjaravísitölu febrú-
armánaðar er minni en ella og
hækkar um 0,52%. Talið var að
lækkun endurgreiðslnanna myndi
valda 1,07% hækkun vísitölunnar.
0,5-1,6% lækkun víxilvaxta
Meðaltal forvaxta á víxlum
lækkar um 0,6% eða úr 14,1% í
13,5% í kjölfar vaxtabreytinganna
sem ákveðnar voru í gær. Mest er
lækkunin hjá íslandsbanka sem
lækkar vexti á almennum víxillán-
um og viðskiptavíxlum um 1,6%
og lækka forvextir víxla úr 15,6%
í 14%. Búnaðarbankinn lækkar
forvexti víxillána um 0,75% eða
úr 13,5% í 12,75% og á viðskipta-
víxlum um 0,25%. Sparisjóðimir
lækka forvexti víxillána og við-
skiptavíxla um 0,5% og lækka
vextir á víxlum því úr 14,1% í
13,6%.
Auk þessa lækkaði íslandsbanki
vexti á afurðalánum í íslenskum
krónum um 0,6% og Búnaðarbank-
inn lækkaði afurðalánavexti sína
um_ 0,5%.
Á innlánahlið lækka vextir
sparibóka og tékkareikninga um
0,25% hjá íslandsbanka, Búnaðar-
banka og sparisjóðunum.
Brynjólfur Helgason aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, sagði
að Landsbankinn hefði gert litlar
breytingar á vöxtum á síðasta ári
og útlánsvextir í stærstu útláns-
flokkunum séu enn lægstir í
Landsbankanum. „Við gengum út
frá tiltölulega lágri verðbólguspá
við síðustu vaxtaákvörðun og höf-
um ekki ennþá séð ástæðu til
breytinga," sagði hann. \
Vaxtahækkun spariskírteina
gagnrýnd
Ragnar Önundarson, fram-
kvæmdastjóri íslandsbanka, sagði
að eftir þessar breytingar væri
vaxtamunur í íslandsbanka 2,8%.
Hann sagði að vaxtaákvörðunin
um áramót hefði byggst á spá um
5,5% verðbólgustig frá áramótum
til 1. maí en þar sem vitað var að
stjómvöld höfðu í huga að draga
úr veðlagshækkunum með því að
hætta við lækkun endurgreiðslna
virðisaukaskatts hafi verið ákveðið
að miða við 3,5% verðbólgu og
hækka vexti um 2% frá og með
áramótum. Endurskoðuð verðbólg-
uspá sýni nú 2,9% verðbólgu fyrir
sama tímabil og því lækki bankinn
almenna útlánsvexti um 0,6%.
Ragnar gagnrýnir hækkanir
sem ákveðnar hafa verið á raun-
vöxtum verðtryggðra spariskír-
teina ríkissjóðs til áskrifenda og í
almennri frumsölu úr 6,5% í allt
að 7,3%. „Bankamenn era mjög
hissa á að ríkissjóður skuli yfir-
bjóða innlánsvexti með vaxta-
hækkunum á spariskírteinum rík-
issjóðs. Bankamir era mjög við-
kvæmir fyrir slíkum breytingum.
Þegar fram í sækir þýðir það sam-
svarandi hækkun á útlánsvöxtum.
Okkur óar við því ef raunvextir á
innlánum sem ríkið býður eru
komnir í 7%, sem stjómmálamönn-
Vaxtabreytingar 21. jan.
Breytingar á vöxtum almennra
skuldabréfalána banka og sparisjóða
um fínnst ærið háir útlánsvextir
þegar bankamir eiga í hlut,“ sagði
Ragnar.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði að þegar ákveðið var
að bjóða spariskírteini á almennum
markaði hefði verið ákveðið að
aðlaga vexti spariskíreina til
áskrifenda að markaðskjöranum
að nokkru Ieyti eftir að reynsla
væri fengin af útboðunum. Sagði
hann að vextir til áskrifenda hefðu
verið mun hærri fyrrir nokkram
misserum en þeir hefðu ekki tekið
neinum breytingum á undanföm-
um mánuðum. „Þessi aðlögun sem
Ríkisvíxlar
MEÐALÁVÖXTUN þriggja
mánaða ríkisvíxla lækkaði um
0,5% eða í útboði sem fram fór
í gær frá síðasta útboði 6. jan-
úar. Meðalávöxtun samþykktra
tilboða er 11,49%, sem svarar
til 10,72% forvaxta.
Með þessu útboði skuldbatt
ríkissjóður sig til að taka tilboðum
nú hefur verið ákveðin er einangr-
að fyrirbæri og á ekki að hafa
nein áhrif á markaðinum," sagði
hann.
Ófullnægjandi lækkun
í ályktun um vaxtamál sem
miðstjórn Alþýðusambands íslands
sendi frá sér í gær er þessi vaxta-
lækkun bankanna ekki talin full-
nægjandi. Miðstjómin telur að mið-
að við raunvexti á verðtryggðum
skuldabréfum í bönkum og spár
um þróun lánskjaravísitölu næstu
fjóra til sex mánuði sé eðlilegt að
óverðtryggðir skuldabréfavextir
lækki í minnst 13% að meðaltali.
Bankarnir þurfi því að lækka vexti
um 0,5% til 1% að meðaltali og
einstakir bankar um 1,5% til við-
bótar þeirri lækkun sem ákveðin
var í gær að mati ASÍ.
Þá er ríkisstjórnin sérstaklega
gagnrýnd fýrir að hafa ekki staðið
við fyrirheit um aðhald í vaxtamál-
um við gerð kjarasamninga síðast
liðið vor. Er bent á að raunvextir
spariskírteina á eftirmarkaði hafí
verið 7,5% til 7,8% frá því í haust
sem séu um 1% hærri raunvextir
en heitið var sl. vor. Auk þess
bendir miðstjómin á að ríkisstjóm-
in hafi nýverið hækkað vexti nýrra
spariskírteina í 7%.
„Það er íhugunarefni fýrir kom-
andi kjarasamninga hvort krefjast
skuli nýrrar lagasetningar um
ákvörðun vaxta,“ segir í lok álykt-
unar miðstjómar ASÍ.
á bilinu 500 til um það bil 3.000
milljóna kr.
Alls bárast 32 gild tilboð í ríkis-
víxla í útboðinu að fjárhæð 2.641
milljónir króna og var tekið tilboð-
um að upphæð 2.491 milljónir kr.
frá 30 aðilum. Lægsta ávöxtun
eftir útboðið er 11,17% og hæsta
ávöxtun 12,10%.
Meðalávöxtun lækk-
ar um 0,5% í útboði