Morgunblaðið - 21.01.1993, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1993
45
■ LIVERPOOL hefur boðið 2
milljónir punda (um 200 milljónir
ÍSK) í John Scales, varnarmanninn
sterka hjá Wimbledon. Forráða-
menn Lundúnaliðs-
Frá Bob ins voru ekki hrifnir,
Hennessy og sögðust varla
í Englandi taka tilboðinu, en því
hefur reyndar ekki
enn verið svarað formlega.
M KEVIN Keegan, stjóri New-
castle, hefur boðið 1,2 milljónir
punda í Andy Cole, hinn þeldökka
framheija Bristol City. Hann er 21
árs og kom frá Arsenal sl. sumar
fyrir 600 þúsund pund. Cole hefur
Srt 14 mörk í vetur.
LES Ferdinand, sem leikið hef-
ur frábærlega í framlínunni hjá QPR
í vetur, var efstur á óskalista Keeg-
ans. QPR neitaði hins vegar að selja
hann og nú er Ferdinand reyndar
meiddur og verður frá keppni næsta
| mánuðinn.
' M TRANMERE, sem er í toppbar-
áttu í 1. deild, vill kaupa framheijann
: Graeme Sharp fyrir 300.000 frá
I Oldham. Hann var í tíu ár hjá Ever-
ton, og býr enn á Merseyside, og
Iforráðamenn félagsins vilja fá hann
við hlið Johns Aldridge í framlín-
una.
• ROY Keane hefur neitað að
skrifa undir nýjan samning við Nott-
ingham Forest. Segir ekkert liggja
á, því enn séu 18 mánuðir eftir af
núgildandi samningi.
FIMLEIKAR
Leiðbeinendur
frá Moskvu
j^hj álfaranámskeið á vegum Fim-
leikasambands íslands verður
haldið á föstudag og laugardag.
Tveir leiðbeinendur frá Moskvu verða
á námskeiðinu; Dr. Vladimir
Smolevski, yfirmaður fimleikadeildar
við æðstu menntastofnun um líkams-
þjálfun í Moskvu og Viktor Raz-
umovski, landsliðsþjálfari Rússa.
Þeir munu hefja námskeiðið með
fræðslu um nýjustu viðhorf í fimleik-
um og verður kennslan bæði verkleg
og í formi fyrirlestra.
Auk íslenskra þjálfara sækja þjálf-
arar frá hinum Norðurlöndunum
námskeiðið og eins hefur íþrótta-
kennurum sérstaklega verið boðið.
GOLF
Konráð BJarnason
Konráð
hættir
Konráð Bjamason, forseti Golf-
sambands íslands, lætur af
því embætti á þingi sambandsins
sem verður í Leirunni fyrstu helgina
í febrúar. Hannes Guðmundsson,
varaforseti GSÍ, hefur ákveðið að
gefa kost á sér í embætti forseta
og ekki er vitað um aðra þannig
að Hannes verður væntanlega næst
forseti GSÍ.
SvJOKRANUDDARAFÉLAG Islands
VIÐURKENNT SJÖKRANUDDKÁM
Sjúkranuddarafélag íslands veitir þér upplýsingar og
aðstoð við að komast í nám í viðurkenndum sjúkranudd-
skólum í Þýskalandi og Kanada.
íslensk heilbrigðisyfirvöld veita þér löggildingu á starfs-
heitinu sjúkranuddari að loknu námi frá þessum löndum.
Auk þess veitir Lánasjóður íslenskra námsmanna lán
til námsins.
Upplýsingar veita:
Jóhanna Viggósdóttir, í síma: 91 -622744 (fyrir Kanada)
Harpa Harðardóttir, í síma: 91-20560 (fyrir Þýskaland)
íþrótlir
ínýrrí
Evrópu
Iþróttasamband íslands efnir til
sérstaks fundar með forystuaðil-
um í íþróttahreyfingunni og fleirum
n.k. þriðjudag, þar sem tekin verður
til umfjöllunar og kynningar hver
væntanleg áhrif aðild að Evrópska
efnahagssvæðinu hefur á íþrótta-
starfsemina í hlutaðeigandi löndum,
bæði íþróttalega, efnahagslega og
atvinnulega.
Fundurinn hefst kl. 17.30 og flyt-
ur Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ,
ávarp, en ræðru flytja William Eng-
seth, forseti íþróttasambands Nor-
egs, og Ingi Bjöm Albertsson, alþing-
ismaður og formaður íþróttanefndar
ríkisins.
íkvökl
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Höllin: Ármann-ÍBV....kl. 18.30
2. deild karla:
Höllin: Ármann-UMFA.....kl. 20
Fjölnishús: Fjölnir-KR.kl. 20.30
Körfuknattleikur
1. deild kvenna
Hagaskóli: KR-ÍS...........20
Seijaskóli: ÍR-UMFN........20
Vandaöur og spameytinn 5 dyrajeppi
AflmikU 16 ventla vél með beinni innspýtingu, 96 hö.
Vökvastýri - vandaður búnaður
Gormafjöðrun á öllum hjólum, aksturseiginleikar í sérflokki.
Grindarbyggður - auðvelt að hækka bílinn upp.
Eyðsla frá 8 lítrum á 100 km.
^SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 . SlMI 685100
\
1
í
3
I
I
á
í S L AN D S B AN K A
ÍSLAN DSBAN Kl
- / takt viö nýja tíma!
Sparileiðir íslandsbanka fœra
þérgóða ávöxtun á bundnum
og óbundnum reikningum
Sparileið 3 gaf S,3% raunávöxtun
á árínu 1992 sem var hœsta raunávöxtun meðal
óbundinna reikninga í bönkum og sparísjóðum.
Sparileið 4 er bundinn reikningur sem gaf
6,3% raunávöxtun árið 1992.
Ávaxtabu sparifé þitt á árangursríkan hátt. íslandsbanki býður
fjórar mismunandi Sparileiðir sem taka mið af þörfum hvers og eins.