Morgunblaðið - 09.03.1993, Síða 9

Morgunblaðið - 09.03.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993 9 MED VISA A AFMÆLISARI 50 þúsund króna fríúttektir mánaðarins komu á eftirtalin „Lukkunúmer“: 69973 og 71659 (Hafnarfjörður) (Garðabær) 0\ KVENNA ATHVARF Námskeið verður haldið á vegum Samtaka um kvennaathvarf 11 .-13. mars nk. í Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, kl. 19-22 fimmtudag og föstudag og kl. 10-16 á laugardag. ! Efni námskeiðsins er m.a.: Kynning á Samtökum um kvennaathvarf og starfsemi þess. Áhrif heim- ilisofbeldis á konur og börn. Stuðningur við þol- endur ofbeldis. Starfsemi Stígamóta. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í símum 91-613720 og 91-611205. Þátttaka er öllum opin. Námskeiðsgjald er kr. 3.500. ///' ______ Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 ® 622901 og 622900 Blomberg eldunartækin hlutu hin eftirsóttu, alþjóðlegu IF hönnunarverðlaun fyrir framúr- skarandi glæsilega og hugvit- samlega hönnun. Enginn býður nú meira úrval af innbyggingartækjum ( sam- ræmdu útliti en Blomberg I Komdu til okkar og kynnstu Blomberg af eigin raun, hringdu eða skrifaðu og fáðu sendan 60 slðna litprentaðan bækling á (s- lensku. Stefán Ólafsson. Auðlindin býr í fólkinu Stefán Ólafsson, dósent við félagsvís- indastofnun háskólans, fjallar um for- sendur framfara í atvinnulífinu í grein í Fjármálatíðindum, tímariti hagfræði- deildar Seðlabankans: „Við þurfum að reka burt bölmóðinn og sækja fram með kappi, taka til hendinni á vinnustöðun- um, breyta áherzlum í menntakerfinu, auka sveigjanleika á vinnumarkaði, festa heilbrigð samkeppnisskilyrði í sessi og örva nýsköpun. Tækifærin eru allt um kring, en helzta forsenda framfaranna er sú, að við lærum betur að virkja þá auðlind sem í fólkinu sjálfu býr.“ Framfara- hyggja Stefán Ólafsson segir m.a. í grein í Fjármálatíð- indum: „Almennt hcld ég að segja megi, að Islending- ar hafi þokkalega fram- farahyggju í umhverfi sínu nú á dögum. Þeir eru jákvæðir gagnvart nýjungum, opnir fyrir nýjum tíðaranda og tæknitólum, en hins veg- ar togar hefðartryggðin einnig alltaf í þá. Hún kemur fram í menning- arlegri íhaldssemi og of- urumhyggju fyrir fram- leiðsluháttum og búsetu- mynstrum fortíðarinnar. Þó hefur sú hugsun þok- að nokkuð á allra síðustu árum, svo sem sjá má t.d. á stefnubreytingu í land- búnaðarmálum. Miklu er þó enn kostað til að vernda byggðarlög fyrir breytingum. Helzta nei- kvseða afleiðing hefðar- tryggðarinnar hér á landi er einmitt sóun fj;ir- muna í vonlaust vemdar- starf, sem betur hefði mátt nýta til nýsköpunar. Lifsskoðun þjóðarinnar er þó almennt séð fram- farasinnuð, rekin áfram af mikilli efnahyggju og ásókn í nútímaleg gæði.“ Vinnumemi- ing - skipulag vinnunnar Síðar í greininni segir: „Almennt má segja að íslendingar búi yfir þróttmikilli vinnumenn- ingu. Þetta kemur fram í þvi, að mjög stór hluti þjóðarinnar stundar launuð störf af einhveij- um toga og að vinnutími við launuð störf er lang- ur, samanborið við aðrar þjóðir ... En vinnuvilji skilar sér ekki sjálfkrafa í meiri verðmætasköpun. Ef óskynsamlega er staðið að skipulagi vinnu og vin- nutíma getur framleiðni samt verið lítil, einnig ef fæmi í verklagi er ábóta- vant. Það á einmitt við um íslendinga, að þvi er virðist. Þeir vinna mikið en afkasta Iitlu á hverri viimustund. Þjóðveijar vinna hins vegar frekar stuttan tíma en afkasta afar miklu á hverri vinnustund. Japanir bæði vinna mikið og afkasta miklu á vinnustund ... Agi og hollusta aJmennra starfsmanna em einmitt taldar vera með stærri uppsprettum framfar- anna í þessum löndum." í greininni segir og: „Margt bendir til að íslendingar eigi ómæld tækifæri tíl hagvaxtar með því einfaldlega að að breyta skipulagi vinnu og vinnutíma. Lítil fram- leiðni islenzka atvinnu- lífsins samanborið við aðrar þjóðir bendir að minnsta kosti til þess.“ Framhalds- skólar - verk- menntakerfi Stefán Ólafsson segir og: „Háskólamenntun er þýðingarmikil fyrir þjálf- un sérfræðinga og fólks sem bera þarf uppi rann- sóknir, en slíkt nám og starf hentar einungis miklum minnihluta nem- enda. Millistig skólakerf- isins, framhaldsskólam- ir, skipta mestu máli fyr- ir fjöldann og fyrir at- vinnulífið. Góðan grunn þarf fyrir alla til að þeir getí haft góða fæmi í undirstöðugreinum og skapað sér áframhald- andi persónuþroska, en að því frátöldu þarf ræktun starfshæfni að taka við, hvort sem er með beinni verkmenntun eða skólun i viðfangsefn- um sem atvinnulifi tengj- ast Verkmenntakerfið þarf að tengjast atvinnu- lifinu beint, svo sem er í hinu árangursríka þýzka kerfi, sem og í Sviss, Austurríki og Japan, þar sem nám í skóla er sam- einað námi á vinnustað (ekki endilega með meistarakerfi líkt og tíðkast hefur í bygging- ariðnaði). Sterkt verk- menntakerfi er einmitt talið vera ein þýðingar- mesta forsendan fyrir miklum styrk þýzka iðn- aðarins, sem og þess jap- anska." ....■■■■■. ..■■ ■..■......Z— Loðfóðraður V ETRARFATNAÐUR í synaiandi sveiftu Stórsýning Geirmundar Valtýssonar Geirmundur, Berglind Björk, Guðrún Gunnarsdóttir, Ari Jónsson, Maggi Kjartans • 6iddu við - Með vaxandi þrá Ort í sandinn - Ég er rokkari Fyrir eitt bros - Sumarsæla Ufsdansinn - Þjóðhátið i Eyjum Helgin er að koma Í syngjandi sveiflu - Sumarfrí Utið skrjáf i skógi - Með þér Ég syng þennan söng A þjóðlegu nótunum Tifar tímans hjól - Vertu Ég bið þin - Á fullri ferð Ég hef bara áhuga á þér Látum sönginn hljóma Nú er ég léttur - Nú kveð ég allt Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fýrir dansi Kynnar: Þorgeir Ástvaldsson og Margrét Blöndal. .Malscðill: 'Rjótnasúpa ‘’Princcss incð Imjlalijöíi Jlamha- otj tjrísaslcik mei qrilluðum sveppum otj rósnwrínsósu Sðppehinurjómaröml Þríréttaður kvöldverður kr. 3.900 Verð á dansleik kr. 1.000 Þú sparar kr. 1.000 SÍMI 687111 Miðasala og borðapantanir daglega milli kl. I4-I8 á Hótel Islandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.