Morgunblaðið - 09.03.1993, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993
Landskeppni við
Frakka á 10 borðum
Skák_____________
Margeir Pétursson
DAGANA 17. til 27. mars næst-
komandi munu bestu skák-
menn íslands og Frakklands
heyja 10 umferða landskeppni
sem haldin verður í Hafnar-
firði og í Rópavogi. Búast má
við æsispennandi keppni, því
samkvæmt stigunum eru 10
manna landslið þjóðanna svo
að segja hnífjöfn. Frakkar eru
geysilega vaxandi skákþjóð,
árlega halda þeir fjölda alþjóð-
legra móta og fjölmenn kyn-
slóð ungra franskra skák-
manna er í örri framför.
Landslið íslands og Frakk-
lands mættust síðast á Ólymp-
íumótunum í Saloniki 1988 og
í Novi Sad 1990 og sigruðu
Frakkar í bæði skiptin með
minnsta mun, 2Vi— V/i.
Auk þess sem þjóðimar reyna
með sér í 100 skákum verður
einnig um einstaklingskeppni að
ræða. Góð verðlaun eru eru í
boði fyrir þá sem fá flesta vinn-
inga. Keppnisfyrirkomulagið er
með þeim hætti að hver Islend-
ingur teflir við alla Frakkana tíu
og öfugt. Til að ná áfanga að
stórmeistaratitli þurfa íslensku
liðsmennimar að fá sjö vinninga
af 10 mögulegum, en til áfanga
að allþjóðlegum meistaratitli þarf
fimm vinninga.
Franska liðið
Óvænt forföll urðu á síðustu
stundu í franska liðinu. Joel
Lautier, sem nýlega komst upp
i 2.645 stig, varð fyrir miklum
skakkaföllum í einvígi við Rúss-
ann Kramnik í Cannes í febrúar
og tapaði IV2—4‘/2. Þetta þýddi
töluvert stigatap fyrir Lautier og
hann sá sig um hönd og lagði
ekki í íslandsferð þar eð hann
óttaðist um að tapa enn frekari
stigum í viðureigninni við ís-
lenska landsliðið.
Boris Spasskí, fyrrum heims-
meistari, er hættur að tefla fyrir
franska landsliðið, en er samt
væntanlegur til landsins í nokkra
daga í tengslum við keppnina.
Forföll Lautiers urðu þó ekki
til að veikja franska liðið, heldur
til þess að franska skáksamband-
ið breytti um stefnu við val sitt
á mönnum. Hingað til hefur það
ekki leyft rússneskum stórmeist-
urum sem sest hafa að í Frakk-
landi að tefla með landsliðinu,
en það verður samt aðstoðarmað-
ur Kasparovs til margra ára, hinn
þrautreyndi stórmeistari Joszef
Dorfman, sem mun leiða franska
liðið. Dorfman hefur þjálfað og
teflt í Frakklandi í þijú ár og var
fyrirliði liðsins á Ólympíu- og
Evrópumótunum í fyrra, án þess
að tefla sjálfur. Liðið er þannig
skipað:
Joszef Dorfman SM 2.580
Olivier Renet SM 2.535
Bachar Kouatly SM 2.505
Manuel Appicella AM 2.495
Eric Prie AM 2.470
Emmanuel Bricard AM 2.460
Arnaud Hauchard AM 2.450
Jean-René Koch AM 2.450
David Marciano AM 2.430
Jean-Luc Chabanon AM 2.425
íslenska liðið
Tíu af ellefu stigahæstu skák-
mönnum íslands á lista FIDE 1.
janúar sl. eru með. Helgi Áss
Grétarsson er sá eini sem hefur
boðað forföll, en sæti hans tekur
Róbert Harðarson, sem næstur
er í stigaröðinni. Það sést glögg-
lega af skákstigum íslendinganna
að breiddin hér er ekki nærri því
eins mikil og hjá Frökkunum:
Jóhann Hjartarson 2.625
Margeir Pétursson 2.560
Jón L. Árnason 2.535
Helgi Ólafsson 2.515
Hannes Hlífar Stefánsson
2.495
Karl Þorsteins 2.480
Þröstur Þórhallsson 2.430
Héðinn Steingrímsson 2.420
Björgvin Jónsson 2.400
Róbert Harðarson 2.335
Larsen vann tölvuforritið
Margir skákhugamenn minn-
ast líklega viðureigna bandaríska
tölvuforritsins Deep Thought við
þá Kasparov og Karpov fyrir
nokkrum árum. Síðan þá hefur
IBM keypt forritið og lagt mikið
í að endurbæta það. Ný útgáfa
Hin þrítuga Nana Joseliani frá
Georgíu sló óvænt út Zsuzsu
Polgar, 23 ára.
þess, Deep Blue, var prófuð í
Danmörku í síðasta mánuði og
tefldi m.a. fjögurra skáka einvígi
við gömlu kempuna Bent Larsen.
Þessi keppni vakti mikla athygli
í Danmörku og var æsispenn-
andi. Einvíginu lyktaði með
naumum sigri Larsens, 2‘/2—1V2.
En forritið tefldi síðan eina skák
við stórmeistarann Lars Bo Han-
sen og vann örugglega. Þetta
forrit er bæði haganlega samið
og einnig nýtir það sér gífurlega
orku. Sú útgáfa þess sem Larsen
tefldi við skoðaði 10 milljón stöð-
ur á sekúndu! Að sögn aðstand-
enda forritsins hijáðu það ýmsir
tækniörðugleikar sem verður
kippt í lag fyrir næstu keppni
þess, en þeir ætla sér að vinna
Kasparov innan fárra ára. Heims-
meistarinn hefur einnig sagst
búast við því að forritin verði
farin að slá bestu skákmönnunum
við fyrir aldamót.
Allt virðast þetta þó getgátur
einar og spár tölvusérfræðinga
um velgengni forrita sinna hafa
hingað til reynst alltof bjartsýn-
ar. Þá eru stórmeistarar að mjög
litlu leyti famir að rannsaka
tölvuskák með það fyrir augum
að ná sem bestum árangri gegn
þeim.
Áfall fyrir
Polgar-fjölskylduna
Úrslit í lokaeinvíginu í áskor-
endakeppni kvenna urðu geysi-
lega óvænt. Elsta Polgar-systirin,
Zsuzsa, hafði sigrað með miklum
yfirburðum á áskorendamótinu í
Peking í haust og þótti flestum
sem einvígi hennar við Nönu Jos-
eliani frá Georgíu yrði hreint
formsatriði. Zsuzsa er heilum
hundrað skákstigum hærri en
andstæðingurinn og vann tvær
fyrstu skákimar. En sú georgíska
var ekki á því að gefast upp, hún
náði að minnka muninn í sjöttu
skákinni og jafna í þeirri áttundu
og síðustu. Þá vora tefldar tvær
skákir með styttum umhugsunar-
tíma og varð aftur jafnt, 1—1.
Að lokum var varpað hlutkesti
og lukkudísimar reyndust alveg
hafa yfirgefið ungversku stúlk-
una. Það verða því þær Nana
Joseliani og Xu Jun, heimsmeist-
ari kvenna frá Kína, sem eigast
við í heimsmeistaraeinvígi kvenna
í haust.
Hollenskur milljónamæringur
hafði tekið að sér að kosta einvíg-
ið, en hann gerði ráð fyrir að það
yrði Zsuzsa Polgar sem myndi
mæta Xu Jun. Það virðist því sem
kvennaeinvígið sé komið í sömu
sjálfhelduna og einvígi Kasparovs
og Shorts. Þessi óvæntu úrslit
minna líka á það að þótt heims-
meistarinn sé 150 skákstigum
hærri en Short þá er ekki hægt
að ganga út frá því sem gefnu
að Kasparov haldi titlinum.
STALGRINDARHUS
Getum boðið mjög vönduð stálgrindarhús frá Finnlandi. Húsin eru
samþykkt af Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og henta m.a. vel
sem hlöður, gripahús, vélageymslur, reiðhallir og iðnaðarhúsnæði..
Einnig getum við boðið stálbita ásamt þakjárni á mjög hagstæðu verði.
Góðfúsfega feítið uppfýsínga hjá okkur
UM BOÐ/SALA:
HEKLA
LAUGAVEG1174
SÍMI695500
VERÐDÆMÍ: miðað við gengi29/l '93
Stcerð:: 11.20 x 12.40= 138m2 Kr. 1.086.000
— 11.20 x24.40=273m2 Kr. 1.632.000
— 14.20 x24.40=346m2 Kr. 2.047.000
— 20.20 x 40.40=816mz Kr. 4.605.000
SALA:
Eyrarvegi 37
800 Selfoss
Sími 98-22277
_____________Brids_________________
Umsjón Arnór Ragnarsson
íslandsmót yngri spilara í
sveitakeppni
íslandsmót yngri spilara, fæddir
1968 eða síðar, verður haldið helgina
12., 13. og 14. mars nk. Skráning er
á skrifstofu Bridssambands íslands í
síma 91-689360 og skráningarfrestur
er til miðvikudagsins 10. mars. Það
verður spiluð einföld umferð, allir við
alla, og lengd leikja ræðst af því hve
margar sveitir taka þátt. Keppnisgjald
er kr. 10.000 á sveit og keppnisstjóri
verður Kristján Hauksson. Spilað er
um gullstig, hver unninn leikur gefur
'h gullstig á spilara.
Bridsklúbbur Fél. eldri
borgara Kópavogi
Föstudaginn 26. febrúar var spilað-
ur tvímenningur og mættu 12 pör.
Úrslit urðu:
Garðar Sigurðsson - Eysteinn Einarsson 211
Jósef Sigurðsson - Einar Einarsson 187
HeiðurGestsdóttir-StefánBjömsson 177
Jón Hermannsson - Sveinn Gamalíusson 1786
Meðalskor 165 stig.
Þriðjudag 2. mars var spilaður tví-
3M
Röntgenfilmur
menningur og mættu 16 pör. Úrslit
urðu:
Friðgeir Ágústsson - Guðmundur Á. Guðm. 258
SæbjörgJónasdóttir - Bergsveinn Breiðfiörð 248
GunnarPálsson-GústafFinnbogason 244
Margrét Sigurðardóttir - Bragi Salómonsson 236
HannesAlfonsson-ValdimarLárusson 231
Meðalskor 210 stig.
Næst verður spilað þriðjudaginn 9.
mars kl. 19 að Digranesvegi 12.
Bridsfélag Hreyfils
Síðastliðinn mánudag voru spilaðar
fimm umferðir í barómeter-tvímenn-
ingnum. Að loknum tuttugu umferð-
um er staða efstu para þessi:
ÓskarSigurðsson-SigurðurStóngrímsson 311
Daníel Halldórsson - Ragnar Bjömsson 267
Jón Sigtryggsson - Skafti Bjömsson 253
Ágúst Benediktsson - Rósant Hjörleifsson 178
Vetrarmitchell BSÍ
Föstudagskvöldið 5. mars var spil-
aður eins kvölds vetrarmitchell í Sig-
túni 9. 32 pör spiluðu og urðu úrslit
þannig:
N/S riðill
ValtýrPálsson-BjömSnorrason 506
MaríaÁsmundsd.-Stóndórlngimundarson 485
AronÞorfmnsson-KjartanJóhannsson 485
ÞórðurMöller-RögnvaidurMöller 475
A/Vriðill
GuðlaugurNielsen-AntonValgarðsson 491
ÁsthildurSiguigíslad.-LárusAraórsson 477
GuðlaugurSveinsson-ÓskarKarlsson 460
IngaLáraGuðmunds.-HannaFriðriksd. 458
Næsta föstudagskvöld, 12. mars,
verður ekki spilað vegna íslandsmóts
yngri spilara í sveitakeppni sem hefst
kl. 19.30 í Sigtúni 9.
Sí&asta hraðlestrarnámskeiðið
Síðasta námskeið vetrarins hefst fimmtudaginn 11. mars nk.
Viljir þú margfalda lestrarhraöann, hvort heldur er til að
bjarga næstu prófum með glæsibrag eða til að njóta þess
að lesa meira af góðum bókum, ættir þú að skrá þig strax
á næsta námskeið.
Lestrarhraði nemenda fjórfaldast að jafnaði.
Við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
Skráning aila daga í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
S 1978-1992 CS