Morgunblaðið - 09.03.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993
25
Mótmælt með afsögn
Carlo Ripa di Meana, fyrrverandi umhverfisráðherra, ásamt Marinu,
konu sinni. Hann sagði af sér embætti á sunnudag og er fjórði ráð-
herrann í ríkisstjórn Giulianos Amatos, sem hættir á einum mánuði.
Hneykslis- og spillingarmálin á Ítalíu
Ovissa um fram-
tíð stjóraarinnar
Róm. Reuter.
GIULIANO Amato, forsætisráðherra Ítalíu, og stjórn hans áttu
undir högg að sækja í gær vegna áætlana um að taka vægilega
á þeim, sem gerast sekir um pólitíska spillingu. Á sunnudag
neitaði Oscar Luigi Scalfaro, forseti Ítalíu, að undirrita tilskip-
un þess efnis og um helgina sagði Carlo Ripa di Meana um-
hverfisráðherra af sér embætti í mótmælaskyni.
Talið er Amato bregðist við með
því að skipa nýjan mann í embætti
umhverfisráðherra og breyta tilskip-
uninni í frumvarp, sem lagt verði
fyrir þingið. Raunar telja margir, að
Scalfaro forseti, sem hefur verið
mikill stuðningsmaður Amatos, hafi
jafnvel bjargað honum með því að
neyða hann til að huga betur að
þessu viðkvæma máli.
Ef forsetinn hefði undirritað til-
skipunina hefðu þeir, sem dæmdir
hafa verið í fangelsi fyrir að afla
stjómmálaflokkum fjár með ólög-
mætum hætti, verið látnir lausir
strax en þess í stað gert að greiða
sekt og bannað að gegna opinberu
embætti í tvö og upp í fjögur ár.
Stjórnarandstaðan á Ítalíu hefur
gagnrýnt tilskipunina og dómarar
segja, að hún muni lama rannsókn-
arstarfið.
Andstaða Scalfaros var byggð á
því, að um væri að ræða tilskipun,
sem gæti farið í bága við þjóðarat-
kvæðagreiðslu um fjármögnun
stjórnmálaflokka en hún er fyrirhug-
uð í næsta mánuði. „Scalfaro virðist
hafa tekist það ótrúlega, að halda
eigin trúverðugleika án þess að fella
stjórnina," sagði dagblaðið La
Stampa en ítalska ríkisútvarpið taldi,
að eins líklegt væri að stjórnin félli.
Hneykslismálin á Italíu hafa leitt
í ljós, að stjómmálaflokkarnir fjár-
mögnuðu starfsemi sína að hluta
með því krefjast mútugreiðslna frá
kaupsýslumönnum og atvinnurek-
endum gegn því að útvega þeim opin-
bera verksamninga eða bankalán.
Snúast flest málanna um starfsemi
af þessu tagi en aðrir hafa verið
sakaðir um margvíslega aðra spill-
ingu, til dæmis beinan fjárdrátt eða
að hafa tekið við þýfi.
World Trade Center í New York
Islamska hreyf-
ingin sver af sér
aðild að tilræðinu
Kaíró, New York. Reuter.
HELSTA hreyfing herskárra múslima í Egyptalandi, Gama’a
el-Islamiya (Islamska hreyfingin), vísaði því á bug í gær að hún
væri viðriðin sprengjutilræðið í
in hótaði ennfremur að refsa
andlegan lærimeistara hennar,
íslamska hreyfingin sagði í yfir-
lýsingu að hún réðist ekki á sak-
lausa borgara. Sheik Omar Abdel-
Rahman, blindur kierkur sem býr í
New Jersey, væri ekki viðriðinnn
sprengjutilræðið í World Trade
Center. Sheik Omar var sýknaður
af ákærum um að hafa lagt blessun
sína yfir morðtilræðið á Anwar Sad-
at, forseta Egyptalands, árið 1981.
Hann hefur búið í Bandaríkjunum
frá 1990.
Tveir menn, sem hafa verið hand-
teknir vegna sprengjutilræðisins,
eru taldir vera fylgismenn klerksins.
Annar þeirra er jórdanskur rík-
isborgari af palestínskum uppruna,
Mohammed Salameh, sem var hand-
tekinn á fimmtudag og ákærður
fyrir aðild að tilræðinu. Grunur leik-
ur á að hann hafi tekið sendibíl sem
notaður var í tilræðinu á leigu.
Hinn maðurinn er 42 ára Egypti,
Ibrahim Elgabrowny, sem var hand-
tekinn og ákærður fyrir að ráðast
á tvo lögregiumenn bandarísku al-
ríkislögreglunnar FBI þegar þeir
leituðu að honum á heimili hans.
Bandaríska sjónvarpið CNN
skýrði frá því að lögreglan hefði
fengið vitneskju um nafn annars
manns sem hefði verið með Mo-
hammed Salameh þegar hann tók
sendibílinn á leigu. Maðurinn hefði
hins vegar horfið fyrir viku. CNN
sagði að lögreglan hefði fundið raf-
taugar á heimili hans en ekki væri
vitað hvort þær tengdust sprengju-
tilræðinu.
ísraelar sakaðir um aðild að
tilræðinu
Irönsk stjórnvöld sökuðu ísra-
elsku leyniþjónustuna Mossad um
að hafa staðið fyrir sprengjutilræð-
inu í því skyni að ala á hatri á
World Trade Center. Hreyfing-
þeim sem reyndu að ófrægja
Sheik Omar Ábdel-Rahman.
Reuter
Grunaður um tilræðið
Mohammed Salameh, jórdanskur
ríkisborgari af palestínskum
uppruna, hefur verið ákærður
fyrir fyrir aðild að sprengjutil-
ræðinu í World Trade Center.
múslimum. Þá birti Khaleej Times
í Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum frétt á forsíðu frá fréttaritara
í New York þar sem hann sakar
bandaríska fjölmiðla um að hunsa
„mikilvægt hlutverk ísraelsku kon-
unnar Josie Hadas“ í málinu. Þegar
Salameh tók sendibílinn á leigu gaf
hann upp símanúmer Hadas, en
talsmenn FBI hafa ekki viljað svara
spumingum blaðamanna um hvort
hún sé ísraelsk og tengist ísraelsku
leyniþjónustunni.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraue
Kopavogi, sími
571800
Toyota 4Runner V-6 '91, rauður, sjálfsk.,
ek. 22 þ. Sóllúga, rafm. í ruðum, álfelgur,
33“ dekk o.fl. V. 2,4 millj.
Toyota Corolla XL 1600 liftback 16-V’92,
rauður, 5 g., ek. aðeins 20 þ. V. 1.030
þ. Sk. ód.
Daihatsu Feroza SX 4 x 4 '91, 5., ek. 11
þ. Veltigrind o.fl. V. 1.180 þ.
Subaru 1800Í GL station '87, blásans.,
sjálfsk., ek. 110 þ. Rafm. í rúðum o.fl.
Gott eintak. V. 690 þ. stgr.
Jeep Cherokee 2,5 L '85. Blár (tvílitur),
sjálfsk., ek. 82 þ. mílur. V. 890 þ. Skipti.
Góð vaxtalaus lán.
Daihatsu Charade GTi Turbo '88, svart-
ur, ek. 73 þ. Ný skoðaður. V. 580 þ. Sk. ód.
Daihtasu Charade TX '91, 5 g., ek. 19
þ. V. 630 þ.
MMC Galant GLSi Super Saloon '91
sjálfsk. m/öllu, ek. 31 þ. V. 1.400 þús. Sk.
ód.
MMC Lancer EXE hlaðbakur '92, sjálfsk.,
ek. 15 þ. V. 1.080 þ. Sk. ód.
MMC Lancer GLX '88, sjálfsk., ek. 68 þ
Rafm. í rúðum o.fl. Fallegur bíll. V. 550 þ.
Peugout 309 GL Profile '91,5 dyra, rauð
ur, 5 g. Gott ástand. V. 595 þús. stgr.
Ford Bronco 8 cyl. (302) '74, sjálfsk.,
mikið endurnýjaður. Gott ástand. V. 480
þ. Góð lán.
»IIl: Fjoldi bilreíöa á gifii staðgrciðslu-
verði eða sannoiornum lánakjörum.
VZterkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Nýtt útbob á spariskírteinum
ríkissjóbs verbur mibviku-
daginn 10. mars
Næstkomandi miðvikudag fer fram nýtt útboð
á spariskírteinum ríkissjóðs. Um er að ræða hefð-
bundin verðtryggð spariskírteini í eftirfarandi
flokkum:
l.fÍ.D 1993 5 ár 10. apríl 1998
l.fl.D 1993 10 ár 10. febrúar 2003
Þessir flokkar eru skráðir á Verðbréfaþingi íslands
og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki þeirra.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í spariskír-
teinin eru hvattir til að hafa samband við
framangreinda aðila, sem munu annast
tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari
upplýsingar.
Öll tilboð í spariskírteinin þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miðvikudaginn
10. mars. Tilboðsgögn og allar nánari
upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins,
Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40.
Spariskírteinin verða seld með tilboðsfyrirkomu-
lagi. Löggiltum Verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
jmiðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum
kostur á að gera tilboð í spariskírteinin samkvæmt
tilteknu tilboðsverði. Lágmarkstilboð er
kr. 5.000.000 að nafnverði.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40