Morgunblaðið - 09.03.1993, Side 39

Morgunblaðið - 09.03.1993, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993 39 Minning Ingólfur Kristinsson Fæddur 20. október 1910 Dáinn 26. febrúar 1993 Hinsta kveðja til kærs frænda Móðurbróðir minn, Ingólfur, lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri 26. febrúar sl. eftir stutt veik- indi. Hann fæddist á Akureyri og bjó þar alla ævi. Hann var því sann- ur Akureyringur. Ég minnist hans með mikilli hlýju og þakklæti. Úddi, eins og ég og bræður mín- ir og einnig böm Helgu móðursyst- ur ávallt nefndum hann, var okkur öllum mjög kær og mikils virði í uppvextinum. Hann var enn á barnsaldri þegar við vorum að fæð- ast hvert á fætur öðru og varð því ekki aðeins náinn frændi, heldur líka leikfélagi og vinur. Við dáðum hann öll og vorum stolt af honum, því hann var svo fallegur, góður og skemmtilegur. Ég var svo lánsöm, að hann og amma Guðlaug, sem var orðin ekkja, áttu heimili með foreldrum mínum um árabil þegar ég var að alast upp. Það var dásamlegt að hafa þau hjá sér, njóta daglegra samvista við þau og eiga þau að ef á bjátaði. Úddi frændi minn var svo barngóður að af bar og sóttum við öll til hans. Hann virtist alltaf hafa tíma til að sinna manni, að breyta grát í gleði og bregða á leik var honum eðlislægt. Það var ákaflega kært með hon- um og ömmu. Hann var yngsta barn hennar og eini drengurinn og varð henni alltaf ástríkur og um- hyggjusamur sonur. Amma, Guðlaug Stefanía Benj- amínsdóttir, og afi, Kristinn Jósefs- son, eignuðust ijögur börn, dæturn- ar Helgu, Magnúsínu og Guðrúnu og svo Ingólf. Þau urðu fyrir þeim mikla harmi að missa yngstu dótt- urina, Guðrúnu, aðeins tíu ára gamla. Og enn dró ský fyrir sólu er Helga lést 1928, 38 ára frá fjór- um ungum börnum. Það var mikil raun fyrir alla fjölskylduna og sorg og söknuður ömmu og mömmu minnar, Magnúsínu, var átakanleg- ur. Nú áttu þær aðeins Ingólf eftir og hann var sannarlega augasteinn og eftirlætisgoð þeirra beggja. Við- mót þeirra hvert við annað ein- kenndist af ástúð og umhyggju. Marnma var tíu árum eldri en Úddi, en þrátt fyrir það var sam- band þeirra sem jafnaldrar væru. Þau voru lík um margt, bæði svo opin og hlý, og vildu öllum gott gera. Ahugamálin voru einnig svip- uð hjá báðum, svo sem tónlist, leik- list, íþróttir og félagsmál. Þau léku bæði hjá Leikfélagi Akureyrar og Úddi söng lengi með Karlakórnum Geysi. Hann stundaði fimleika af kappi með LFA og var í sýningar- flokki þess félags. Þau systkinin höfðu bæði yndi af að dansa og man ég vel hvað mér þótti gaman að horfa á þau dansa saman; bæði svo létt i spori og geislandi glöð. Mér er líka minnisstætt hve mikið líf og fjör var alltaf í kringum hann frænda minn, enda var hann vin- margur og eftirsóttur vegna glæsi- leika og glaðværðar. Hann kvæntist ungur fallegri og góðri jafnöldru sinni, Grétu Jóns- dóttur, dóttur Jóns Björnssonar skipstjóra á Akureyri og konu hans Kristínar Guðjónsdóttur. Það var mikið jafnræði með þeim og hjóna- band þeirra farsælt og hamingju- ríkt. Þau eignuðust sex myndarleg og góð börn sem öll hafa verið for- eldrum sínum til gleði og sóma. Þau eru Hildur, sem er elst, þá Öm og Örlygur, síðan Gréta og Ingólfur og yngstur er Örvar. Bamabörnin eru 24 og barnabarnabörnin 32. Langalangafabarninu hélt hann í fangi sér á 82 ára afmælisdaginn. Móðurbróðir minn var því afar vin- sæll og naut af heilum hug sam- vista við afkomendur sina sem allir elskuðu hann og dáðu. Hann missti Grétu 25. apríl 1982 og var hún okkur öllum harm- dauði. Ég saknaði hennar á stijál- um ferðum okkar Ingva til Akury- erar eftir að hún féll frá, það hafði alltaf verið svo gott gaman að koma í Helgamagrastræti 34, fallega húsið sem þau byggðu sér ung og bjuggu síðan í alla tíð. A kveðjustund þakka ég elsku Údda mínum samfylgdina og bið honum Guðs blessunar á æðri stig- um. Æskuminningarnar eru bjart- ari og fegurri vegna hans. Frændsystkinum mínum, fjöl- skyldum þeirra og öðmm aðstand- endum vottum við Ingvi og Berg- ljót Kristín einkadóttir okkar hina dýpstu samúð. Dýrmæt er fögur minning. Hólmfríður G. Jónsdóttir. Fyrstu kynnin mín af Ingólfi Kristinssyni, ömmubróður mínum, voru í bernsku minni þegar hann kom frá Akureyri í heimsókn til okkur í Kópavoginn og tók mig og litlu systur mína í „kleinu“. Þá var mikið hlegið og eftir það kölluðum við hann kleinukarlinn eða þangað til við fórum að kalla hann Ödda frænda. Undir því gælunafni gekk hann í minni fjölskyldu. Ég var svo lánsamur að fá að búa hjá þeim hjónum, Ingólfi og Grétu, í Helga- magrastræti 34 meðan ég var í Menntaskólanum á Akureyri, sam- tals í fimm vetur. Fyrir mig, sem hafði misst föður minn fáum árum áður, var það sérstakt lán að fá Údda frænda sem „plat-pabba“ og þau hjón voru mér í alla staði sem góðir foreldrar. Fyrir það get ég seint fullþakkað. Ingólfur var Akureyringur í húð og hár og var stoltur af bænum sínum. Hann kenndi mér m.a. mikilvægi þess að vera trúr upp- runa sínum og leggja rækt við heimaslóðir. Það gerði hann svo sannarlega með virkri þátttöku í félagsmálum, menningar- og stjómmálum bæjarins. Ungur að árum hóf hann að iðka íþróttir með Iþróttafélaginu Þór og Fimleikafélagi Akureyrar og fór með því í sýningarferðir til Reykja- víkur og víðar. Hann starfaði og lék með Leikfé- lagi Akureyrar um árabil og í mörg ár söng hann og starfaði með Karlakómum Geysi. Ingólfur var hugsjónamaður og baráttumaður fyrir betra lífi og var m.a. formaður Starfsmannafélags Akureyrar í tólf ár og var fulltrúi þess á þingum BSRB í Reykjavík og gegndi fleiri trúnaðarstörfum fyrir stéttarsystkini sín. Það segir sína sögu um hann að Starfs- mannafélagið gerði hann að heið- ursfélaga þess þegar hann varð sjötugur. Þá átti hann sæti fulltrúa á aðalfundum Kaupfélags Eyfirð- inga og var um tima formaður fé- lagsins Karl II. Sem fyrr segir var Ingólfur Akureyringur í húð og hár; hann fæddist þar og ólst upp. Ungur að árum missti hann föður sinn og varð snemma að byija að vinna fyrir sér. Hann vann m.a. við ullar- þvott hjá Gefjun, síðar skrifstofu- störf við póstbátinn Drang, en lengst af vann hann í Sundlaug Akureyrar eða þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Ingólfur kvæntist Grétu Jóns- dóttur 26. nóvember 1932. Hún var fædd 3. október 1910, en lést 25. apríl 1982. Þau hjón eignuðust sex börn: Hildi, gift Guðlaugi Tómas- syni og eiga þau fimm böm og tíu barnabörn, Öm, kvæntur Elsu Val- garðsdóttur og eiga þau þijú börn og fimm barnabörn, Órlyg, kvænt- ur Ásu Jónsdóttur og eiga þau fjög- ur börn og fimm barnabörn, Ing- ólf, sem kvæntur er Sigrúnu Valdi- marsdóttur og eiga þau fimm börn og níu barnaböm, Grétu, gift Sig- urði Hallgrímssyni og eiga þau fjögur börn og fimm bamabörn, og Órvar, kvæntur Erlu Ólafsdóttur og eiga þau tvö börn. Barnabörnin eru því orðin 23 og langaafabörnin 34 og eitt langalangafabarn. Öll börn þeirra Ingólfs og Grétu búa fyrir sunnan nema Örlygur, sem býr á Akureyri. Foreldrar Ingólfs vom Kristinn Jósefsson bónda á Krónustöðum í Saurbæjarsókn, fæddur 1. ágúst 1863, en bjó á Akureyri frá 1903, og kona hans Guðlaug Stefanía Benjamínsdóttir, fædd 12. ágúst 1870 á Stekkjarflötum. Jósef afi Ingólfs var bóndi á Krónustöðum, Sigurðsson bónda í Suður-Tjarnarkoti, Flóventssonar. Móðir Kristins Jósefssonar hét Friðbjörg, dóttir Þorláks tjikulás- sonar og Friðfinnu Friðfinnsdóttur. Guðlaug Stefanía, móðir Ingólfs, var dóttir Benjamíns Jónssonar bónda á Stekkjarflötum og konu hans, Guðlaugar Gísladótur. Ingólfur átti þijár systur, en þær voru: Helga Sigríður, amma mín, fædd 27. júní 1889 í Samkomu- gerði, dáin 1928, Magnúsína, fædd. 1. janúar 1919 á Æsustöðum, dáin 16. desember 1992, og Guðrún, fædd 24. október 1904, dáin 22. júní 1915. Ingólfur var ætíð í miklum met- um hjá Guðrúnu, móður sinni, enda reyndist hann henni vel, m.a. með því að taka mig að sér og létta þannig undir með henni á erfiðum tímum. Eftir lát Grétu var Ingólfur svo lánsamur að eignast góða og trausta vinkonu, Þorbjörgu Han- sen, en hún og fjölskylda hennar reyndust honum vel síðustu_ árin. Örlygur sonur hans og Ása og fjölskylda þeirra voru honum stoð og stytta, jafnt í blíðu sem stríðu og var Ingólfur ánægður að hafa þau svo nærri. Helst hefði hann viljað hafa öll börnin hjá sér á Akureyri, enda var Akureyri besti bær í heimi í hans augum og hann átti alltaf bágt með að skilja hveiju fólk gæti verið að sækjast eftir suður. Ég á margar góðar minningar um þau hjón í Helgamagrastræti og þau gáfu mér, óhörðnuðum unglingi, vegarnesti, sem hefur reynst mér vel á lífsleiðinni. Ingólfur Kristinsson var góður drengur og sannur sonur Akur- eyrar. Ég kveð hann með þakklæti og virðingu um leið og ég óska fjöl- skyldu hans guðs blessunar. Bæn Skrifuð á blað verður hún væmin bænin sem ég bið jær en geymd í hugskoti slípast hún eins og perla í skel við hveija hugsun sem hvarflar til þín. Hrafn Andrés Harðarson. Minning Véný Viðarsdóttir Fædd 17. nóvember 1930 Dáin 1. marz 1993 í dag verður gerð frá Dómkirkj- unni útför Vénýjar Viðarsdóttur. Hún lést í Landspítalanum 1. marz sl. eftir stutta legu. Venna eins og hún var kölluð af vinum sínum fæddist í Reykjavík 17. nóvember 1930. Foreldrar hennar voru Anna Margrét Hall- dórsdóttir, kölluð Dassa af vinum sínum og samferðamönnum, dóttir Halldórs Georgs Stefánssonar læknis og konu hans Unnar Maríu Skúladóttur Thoroddsen hjúkrunar- konu og Viðar Pétursson tannlækn- ir, sonur Péturs Zóphaníassonar ættfræðings og konu hans Guðrún- ar Jónsdóttur. Þau Dassa og Viðar stunduðu bæði nám við Mennta- skólann í Reykjavík um þessar mundir. Venna ólst upp hjá móðurforeldr- um sínum. Að loknu barnaskóla- prófi innritaðist hún í Verzlunar- skóla íslands og lauk þaðan burtfar- arprófi vorið 1949 í hópi kátra skólasystkina. 17. nóvember 1954 giftist Venna eftirlifandi manni sínum, Gylfa Jónssyni bifreiðastjóra. Börn þeirra urðu fimm, Guðbjörg fóstra, f. 21. maí 1945, Unnur María, f. 12. októ- ber 1958, dó ung, Viðar íþrótta- kennari á Hellissandi, f. 26. desem- ber 1961, kvæntur Dröfn Skúla- dóttur, Siguijón trésmiður, f. 14. ágúst 1965, í sambúð með Elísa- betu Austmann, og Halldór nemi, f. 13. júní 1970. Barnabömin eru fjögur. Venna var gáfuð eins og hún átti kyn til, kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd. Hún var heilsteypt, hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og hélt þeim fram af festu. Við vorum ekki alltaf sammála, en það breytti í engu vináttu okkar. Árið 1973 flutt- ust þau Gylfi og fjölskyida í næsta hús við okkur við Skeiðarvog. End- urnýjuðust þá gömul kynni, börn okkar ólust upp saman og nær dag- legt samband var á milli heimil- inna. Foreldrar Vennu áttu bæði tvö hjónabönd að baki þegar þau lét- ust. Eftirtektarvert var hve mikill kærleikur var á milli hálfsystkin- anna, þau stóðu jafnan saman sem einn maður. Á kveðjustund er mér efst í huga að þakka vinkonu minni fyrir ára- tuga vináttu sem aldrei bar skugga á. Við sendum Gylfa og fjölskyldu þeirra allri innilegar samúðarkveðj- ur. Finnur Stephensen. í hendi Guðs er hver ein tíð, í hendi Guðs er allt vort stríð, hið minnsta happ, hið mesta fár, hið mikla djúp, hið litla tár. (M.J.) Við vorum ungar að árum þegar leiðir okkar lágu fyrst saman í skóla. Sú vinátta, sem þá var stofn- að til, var byggð á traustum grunni og hefur þar aldrei fallið skuggi á. Ógleymanlegir eru skóladagarnir þegar væntingar til lífsins og tilver- unnar eru mestar. Þá eignuðumst við marga vini og kunningja sem halda hópinn enn þann dag í dag. Véný vinkona okkar var félagslynd og vinsæl meðal skólasystkinanna og lagði dijúgan skerf til þeirrar samheldni sem hefur ávallt ríkt hjá VÍ ’49. Við vinkonumar héldum áfram að hittast reglulega og þann- ig urðum við þátttakendur í lífs- hlaupi hver annarrar. Véný ólst upp hjá móðurforeldrum sínum, Unni Skúladóttur Thorodsen og Halldóri G. Stefánssyni lækni. Naut hún mikillar ástúðar og umhyggju þeirra og var hvers manns hug- ljúfi. Menningarlegt uppeldi hennar og meðfæddar góðar gáfur nýttust henni vel í lífinu. Véný kynntist mannsefni sínu, Gylfa Jónssyni, árið 1953. Var hjónaband þeirra mjög hamingju- ríkt. Þau eignuðust fimm böm, en urðu fyrir þeirri iriiklu sorg að missa tæplega sex ára dóttur sína 1964 eftir langvarandi veikindi. Þá kom vel í ljós stilling Vénýjar og æðm- leysi sem hún einnig sýndi í sínum eigin veikindum. Andleg verðmæti og mannleg samskipti mat hún meir en verald- leg gæði. Hún var mikil og vand- virk hannyrðakona og hafði mikla ánægju af því að gleðja aðra með fallegum munum sem hún hafði unnið. Véný hafði alla tíð mikla gleði af spilamennsku og tók oft þátt í brids-keppnum með góðum árangri. Ættfræði var henni hugleikin og bjó hún yfir miklum fróðleik á því sviði. Síðustu tíu árin starfaði hún í hlutastarfi sem hjúkranarritari á öldrunardeild Landspítalans í Há- túni og líkaði það starf vel. Minningarnar þjóta í gegnum hugann og er erfitt að hugsa sér framtíðina án Vénýjar vinkonu okk- ar. Það er mikil lífsreynsla að missa svo nána vinkonu. Ljúft viðmót, glaðlyndi og hlýja til allra sem hún umgekkst voru ríkir þætti í fari hennar og þeirra nutum við ekki síst. Þegar leiðir skiljast nú um sinn og tómleiki og söknuður fylla hug- ann minnumst við okkar kæra vin- konu með þakklæti fyrir vináttu hennar og kærleiksríka samfylgd. Algóður Guð styrki og blessi ást- vini hennar alla á þessari kveðju- stundu. Helga, Hildur, Ragnheiður og Sigurlaug. Sælir eru hjartahreinir, því þeir munu Guð sjá. Þetta ritningarverk finnst mér eiga vel við Véný, því að allir sem hún kynntist um ævina urðu vinir hennar og alltaf velkomn- ir á heimili þeirra Vénýjar og Gylfa, og alltaf var hún boðin og búin að rétta hjálaprhönd til þeirra. Það eru ljúfar minningar sem rifjast upp fyrir mér þegar ég bjó hjá Vennu og Gylfa í Seiðarvoginum. Frá fyrsta degi voru ég og Dísa mín orðnar hluti af fjölskyldunni og Venna besta vinkona sem ég gat eignast. Ég kveð þig með söknuði elsku Venna, og bið Guð að geyma þig að eilífu. Ég bið Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar elsku Gylfi og böm. Helga Pálmadóttir. í minningxi móðursystur Við minnumst hlýju hennar, glað- værðar, notalegrar nærveru, gáska, gjafmildi, hispursleysis og stríðni. Við minnumst yndislegrar konu. Við minnumst með söknuði ótal samverustunda sem hafa alltaf ver- ið svo sjálfsagðar og auðsóttar. Venna er dáin og samverustund- irnar verða ekki fleiri en minningin um elskulega frænku lifir. Valdís og Ólafur Páll. * Blóm Skreytingar Gjafavara Kransar Krossar Kistuskreytingar Opið alla daga frá kl. 9-22 Fákafeni 11 s. 68 91 20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.