Morgunblaðið - 09.03.1993, Síða 51

Morgunblaðið - 09.03.1993, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993 51 Nýr háskóli og rót- tæk uppstokkun á laimakerfi kennara NÝR háskóli í Reylg'avík og róttæk uppstokkun á launa- kerfi háskólakennara voru meðal hugmynda sem fram komu á málþingi sem Menntamálaráðuneytið hélt í sam- vinnu við Háskóla íslands, Félag háskólakennara og Stúd- entaráð HI, um stefnu og framtíð Háskóla íslands sl. laugar- dag. Olafur Proppé, dósent í Kennaraháskóla íslands, lagði til í framsöguerindi sínu að flestir sérskólar á háskólastigi yrðu sameinaðir í einn háskóla, Háskóla Reykjavíkur, m.a. í þeim tilgangi að veita Háskóla íslands samkeppni. Gísli Már Gíslason, formaður Félags háskólakennara, lagði fram hugmyndir sínar um nýtt launakerfi háskólakennara, en þær byggjast m.a. á því að laun yrðu rannsóknahvetjandi. Ólafur Proppé lagði til að flestir af þeim tólf skólum fyrir utan HÍ sem væru á háskólastigi myndu sameinast í einum skóla, Háskóla Reykjavíkur. Skólinn myndi skip- ast í þrjú til fjögur meginsvið sem nefna mætti skóla; kennaraskóla, listaskóla og tækniskóla, og ef til vill verslunarskóla. í kennaraskó- lanum yrðu sameinaðir Kennara- háskóli íslands, Þroskaþjálfaskól- inn, Fósturskólinn og íþrótta- kennaraskólinn. í listaskólanum yrðu Leiklistarskólinn, Myndlistar- og handíðaskólinn og Tónlistar- skólinn og jafnvel Listdansskólinn. | tækniskólanum yrðu Tækniskóli íslands og búvísindadeildin á Hvanneyri. Þarna gætu líka komið inn efstu stig Stýrimannaskólans og Vélskólans. í verslunarskólan- um yrðu Samvinnuskólinn og Tölvuháskóli Verzlunarskólans, ef áhugi væri fyrir hendi hjá þessum skólum. Margar flugur í einu höggi Ólafur sagði að með þessu fyrir- komulagi væri hægt að slá margar fiugur í einu höggi. „Við leysum vanda þeirra skóla á háskólastigi sem við hvað mesta tilvistarkreppu búa með því að marka þeim stað með formlegum hætti í viður- kenndum háskóla. Við búum til nýjan háskóla sem er nægjanlega stór og fjölþættur til að veita Há- skóla íslands heilbrigða og já- kvæða samkeppni. Við sköpum aðstæður til að marka heildar- stefnu um æðri menntun ílandinu og til að heíja markvissa uppbygg- ingu tveggja stórra háskóla, í stað fjölmargra stærri skóla,“ sagði Ólafur. Auk þess sagði hann að þessu gæti fýlgt mikil hagræðing og spamaður. Launakjörum fjarstýrt Gísli Már Gíslason, formaður Félags háskólakennara, vék að því í framsögu sinni að launakjör há- skólakennara væru bágborin og þeim væri í raun fjarstýrt af aðilum vinnumarkaðarins. Hann sagði að nauðsynlegt væri að samið yrði um rannsóknahvetjandi launa- kerfi, en sérfræðingar OECD, efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, hefðu ásamt mörgum öðr- um bent á nauðsyn þess. Gísii lagði síðan fram hugmyndir sinar um nýtt launakerfi háskólakennara, sem fyrst og fremst byggir á því að laun yrðu rannsóknahvetjandi, en ekki kennsluhvetjandi. Auka- þóknanir yrðu eingöngu greiddar fyrir vísinda- og rannsóknastörf og kennarar gætu keypt sig frá almennri kennslu með rannsókn- afé. Framlag til vísinda Samkvæmt hugmyndum Gísla myndu reyndari og færari kennar- ar aðallega sinna rannsóknatengdu framhaldsnámi, en framhaldsnem- ar myndu sinna einfaldari kennslu. Allur framgangur kennara byggð- ist á framlagi þeirra til vísinda og miklar kröfur yrðu gerðar til kenn- ara. Nýráðnir kennarar, lektorar, yrðu ráðnir til sex ára og laun þeirra yrðu um 1,5 til 1,8 milljónir króna á ári. Endurráðning og framgangur lektora í dósentsstöð- ur byggðist á framlagi þeirra til vísinda og dósentslaun yrðu 2,5 til 3 milljónir á ári. Prófessorar þyrftu að vera fremstir í sínu fagi á heimsmælikvarða. Laun þeirra yrðu 3,5 milljónir á ári og hækk- uðu með framlögum til rannsókna. Allur frekari framgangur byggðist á framlagi til vísinda og afköstum. Gísli sagði að ef þetta kerfi yrði tekið upp myndu núverandi kenn- arar starfa áfram samkvæmt nú- gildandi launakerfi. Þeir gætu komið inn í nýja kerfið, en sömu kröfur yrðu þá gerðar til þeirra og til nýráðinna kennara. Gísli sagði að ef þessar hug- myndir yrðu framkvæmdar mynd- um við eignast framsækinn há- skóla, sem yrði sá aflvaki þekking- ar sem við vildum að hann væri. Skólinn myndi laða til sín nemend- ur, bæði erlenda og innlenda. Allt rannsóknastarf yrði öflugra og innflutningur á þekkingu myndi dragast saman og útflutningur að sama skapi aukast. Atvinnulífið áhugasamt Fulltrúar atvinnulífsins á mál- þinginu, Lára V. Júlíusdóttir fram- kvæmdastjóri ASÍ og Jónas Friðrik Jónsson lögfræðingur hjá Verslun- arráði, voru bæði þeirrar skoðunar að efla ætti tengsl Háskólans við atvinnulífið. Jónas sagði að Há- skólinn ætti á erfíðleikatímum eins og nú væru, að gegna lykilhlut- verki í nýsköpun í samvinnu við ríkisvaldið og atvinnulífið. Háskól- inn hefði hins vegar ekki úr miklu að spila og þyrfti því að leita ýmissa nýrra leiða til að fjármagna rannsóknir og kennslu. „Eitt af þeim atriðum sem gætu aukið þátt- töku íslenskra fyrirtækja í rann- sóknaverkefnum væri að framlög til slíkra rannsókna mætti telja til reksturskostnaðar, þó að framlag- ið félli ekki undir hina almennu skilgreiningu reksturskostnaðar í skattalögum," sagði Jónas. Hann sagði að jafnframt væri æskilegt að hrinda þeirri hugmynd í fram- kvæmd að bjóða einstökum fyrir- tækjum eða fyrirtækjahópum, að styrkja stöðu prófessora við Há- skólann, þar sem prófessorinn myndi gegna kennsluskyldu í þágu skólans en rannsóknaskyldu að hluta í þágu atvinnulífsins. „Þessar hugmyndir sem ég hef nefnt eru settar fram í þeirri trú að auknar rannsóknir leiði til efna- hagslegs ávinnings til lengri tíma litið, og framlög, bæði einkaaðila og hins opinbera, skili sér til baka,“ sagði Jónas. Jónas varpaði einnig fram þeirri hugmynd hvort ríkisvaldið og at- vinnulífið ættu ekki í sameiningu að reka verkefnaskrifstofu þar sem kennarar og nemendur við Háskól- ann gætu komið með hugmyndir að verkefnum. Fyrirtæki gætu einnig látið skrá verkefni sem þau hefðu áhuga á að láta vinna fyrir sig og síðan yrði athugað hvort þama yrði samval á milli. „Svona markaðsskrifstofa þyrfti ekki að vera dýr. Hún gæti verið rekin í samvinnu ríkisins og samtaka at- vinnurekenda og þó svo að kostn- aður væri í lágmarki gæti hagur af henni orðið mjög mikill ef vel tækist til,“ sagði Jónas Friðrik. Hlutur Háskólans í andlegu lífi Guðrún Helgadóttir alþingis- maður auglýsti eftir hlut Háskól- ans í andiegu lífi þjóðarinnar, og sagðist alltof lítið heyra í þeim merku mönnum sem þar væru inn- an dyra. Hún sagðist muna þá tíð er nánast allir hefðu hlustað á háskólamenn eins og Sigurð Nor- dal þegar þeir komu í útvarpið og þættir með honum og fleiri há- skólamönnum hefðu verið vinsælli en þættir Hemma Gunn væru í dag. Pétur Þ. Óskarsson, formaður Stúdentaráðs HÍ, gerði Lánasjóð íslenskra námsmanna að umtals- efni og sagði að ýmsar breytingar væru nauðsynlegar á þeim bæ. Nefndi hann t.d. að kröfur LÍN til námsframvindu væru aðrar en kröfur Háskólans og nauðsynlegt væri að samræma kröfumar. Ólaf- ur G. Einarsson menntamálaráð- herra tók undir orð Péturs í loka- ræðu sinni og sagði að samræmi yrði að vera í þessum málum. Hann sagði að það lægi fyrir stjórn LÍN að endurmeta ýmsar reglur sem nú væri komin reynsla á og þegar væri ljóst að sumu þyrfti að breyta. Endurskipulagning Birgir ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri og formaður þró- unamefndar Háskóla íslands, gerði grein fyrir starfi nefndarinn- ar og nokkmm af þeim hugmynd- um sem þar hefðu verið ræddar, eins og greint var frá í Morgun- blaðinu á sunnudaginn. Hann sagði að huga þyrfti að endurskipulagn- ingu námsins og rætt hefði verið um að taka upp þriggja ára gmnnnám í flestum deildum og bjóða síðan upp á tveggja ára meistaranám eftir það og jafnvel þriggja ára doktorsnám í kjölfarið. Birgir sagði að einnig væri rætt í nefndinni hvort taka ætti inn í Háskólann fleiri námsgreinar og færa aðrar til annarra skóla. Það væri einnig brýnt fyrir Háskólann að auka og bæta tengslin við þjóð- lífið og atvinnulífið. Ólafur G. Einarsson, mennta- málaráðherra, fluttu lokaræðuna á málþinginu og fór yfir margar þær hugmyndir sem varpað var fram. Hann sagði í sambandi við umræð- una um kjaramál háskólakennara að menntamálaráðherra ætti að hafa sterkari stöðu í samningamál- um og vel kæmi til greina að há- skólakennarar semdu beint við yf- irstjórn skólans um kaup og kjör. Það hefði marga kosti í för með sér. Ólafur sagðist fagna þeim sjónarmiðum atvinnulífsins sem heyrðust á málþinginu, og allar þær hugmyndir sem fram hefðu komið á málþinginu væri nauðsyn- legt að skoða betur og mörgum þyrfti hrinda í framkvæmd. ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVIK: FLESTALLIR lögreglumenn geta tekið undir efni forystu- greinar Morgunblaðsins sl. sunnudag þar sem höfundur fjallar um afbrot og aðgerðir. í niðurlagi segir hann „að tíma- bært sé að veita þessum málum meiri athygli og þeim sem eru í daglegri snertingu við þau öflugri stuðning". Þeir lands- menn, sem ekki lásu greinina, eru hvattir til þess sem og Kaup- mannahafnarbréfið í sama blaði. Um helgina þurfti lögreglan 54. sinnum að hafa afskipti af ölvuðum einstaklingum, en auk þess komu ölvaðir einstaklingar við sögu fjögurra líkamsmeið- inga, 14 ölvunarakstursmála, 6 heimilisófriða og 19 ónæðis- mála, auk þess sem 4 ölvaðir leituðu sjálfir eftir því að fá að deila fangageymslunum með 35 öðrum þar sem þeir áttu ekki í önnur hús að venda. Af þeim voru a.m.k. 3 er eiga við geðræn vandamál að etja. Alls var tilkynnt um 30 um- ferðaróhöpp þar sem einungis var um eignatjón að ræða, en auk þess urðu meiðsli á fólki í 7 tilvikum. Á föstudagsmorgun var tilkynnt um að ekið hefði verið á gangandi vegfaranda á Meistaravöllum og að ökumað- urinn hefði ekið á brott eftir óhappið. Meiðsli vegfarandans urðu minniháttar, en ökumaður- inn var stöðvaður skömmu síðar og handtekinn. Jafnvel var talið að hann hefði ekið á vegfarand- ann af ásettu ráði. Lögreglan þurfti að kæra 105 ökumenn fyrir að aka of hratt. Af þeim þurfti að svipta tvo ökumenn „á staðnum". Á laugardagskvöldið framvís- aði ungur maður greiðslukorti til greiðslu varnings í söluturni í austurborginni. Þegar maður- inn var farinn með kortið og^ vaminginn uppgötvaðist að hann hafði framvísað stolnu greiðslukorti. Lögreglan handt- ók manninn ásamt öðrum á veit- ingastað síðar um kvöldið. í fór- um hans fannst hið stolna greiðslukort. Honum var vísað til vistunar í fangageymslunum. Á sunnudagskvöld var komið að manni að gramsa á skrif- stofu fískverkunarhúss á Grandagarði. Maðurinn á lang- an afbrotaferil að baki. Hann hafði þröngvað sér meðfram rennihurð til þess að komast óboðinn inn í fyrirtækið. Hurð fangageymslunnar þurfti hann hins vegar ekki að opna sjálfur. í þessari viku og næstu helgi mun lögreglan á Höfuðnesjum kanna sérstaklega ljósabúnað ökutækja og hvort ökumenn aki undir áhrifum áfengis. Um helg- ina þurfti lögreglan á svæðinu að hafa afskipti af 25 ölvuðum ökumönnum. Fimm þeirra höfðu lent í umferðaróhöppum áður en til þeirra náðist. Athugasemd vegna frétt- ar um „Hvíta víkinginn“ SIGUMHJR Sigurðarson dýralæknir hefur beðið Morgunblaðið um að birta eftirfarandi athugasemd: „Það er einhver misskilningur í frétt um „Hvíta víkinginn", sem birtist í Morgunblaðinu sl. laugar- dag, 6. þ.m. Ég hef aldrei talað við Aftenposten í Noregi en ég veit, að blaðamaður þar reyndi að ná í mig en mistókst. Hins vegar er það rétt, að Dýra- vemdarnefnd ríkisins vakti at- hygli norskra yfirvalda dýravemd- armála á umdeildu atriði í þessari mynd þar sem svin er skorið á háls að því er virðist lifandi og óskaði svara við því ef unnt væri, hvort tilskilin leyfi hefðu verið fengin og eftirlit verið með dýrun- um meðan á töku stóð. Það er ekki eftir mér haft í þessu sambandi, að Hrafn hafi misþyrmt dýrum. Hins vegar er mér kunnugt um það, að ýmsum ofbýður hvemig Hrafn notar dýr í myndum sínum fyrr og nú og Dýravemdamefnd lýsti yfir á sín- um tíma vanþóknun á fyrmefndu atriði og taldi það grafa undÉffT'’ tilfSmingu manna fyrir góðri með- ferð á dýrum, sem öllum mönnum er skylt að ástunda. En Dýra- verndarnefnd fullyrti ekkert um misþyrmingar enda hafði hún ekki nægar upplýsingar til þess.“ y ies 9. kikvika - 7. man 1993 Nr. Lákur: Rðóin: 1. Ancoua - Gokm - X- 2. Atalanta - Inter - x - 3. Fojgta - Brcscia - x - 4. Juventus - NapoU i - - 5. AC Milan - Florcnttoa i - - 6. Panna - Lazio í - - 7. Pcacara - Udtocac - X - 8. Roma - CagUari - X - 9. Sampdoria - Torlno - - 2 10. AscoU - Vcrtma - X - 11. Ccacna - Coacnza 1 - - 12. Lucdicac - Piaccnu - x - 13. Padova - Lecce í - - HciIdarvinningauppharAin: 15,0 milljónir króna 13 rfttír: (“ 2.002.610 | kr. 12 réttir: 27.710 | kr. llréttlr: f 2.130 | kr. lOréttir: T 570 | kr. —ef þú spilar til að vinna! 9. Idkvika - 6. mara 1993 | Nr. Lakur : Röð'ui: 1. Blackburn -Sheft Utd. - X - 2. Ipswich - Arscnal - - 2 3. Uvcrpool - Man. Utd. - - 2 4. Q.P.R. - Norwich 1 - - 5. Wimblcdon - Soutbampt. - - 2 6. Bamaley - Lckcater - - 2 7. Birmlngham - Oxford 1 - - 8. Briatol C. - Tranmerc - - 2 9. Miliwall - Sunderland - X - 10. Pcterbrgh. - Grimaby 1 - - 11. Southend - Cbarlton - - 2 12. Watford - Swindon - - 2- 13. Wcat Ham - Wolvea 1 - - HcildarvinningsuppiucOin: 137 milljónir króna | 13 réttir: 3.674340 | 12 réttir: 74380 | 11 réttír: 5320 lOréttír: 1370

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.