Morgunblaðið - 26.03.1993, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 26. MARZ 19.93
23
Utanríkisráðherra hefur ekki
trú á gildistöku EES 1. iúlí
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra telur þingsályktunartil-
lögu Steingríms Hermannssonar (F-Rn) formanns og Halldórs Ásgríms-
sonar (F-Al) varaformanns Framsóknarflokksins um tvíhliða viðræður
milli Islands og EB óþarfa, ótímabæra, jafnvel skaðlega. Það kom fram;
m.a. hjá utanríkisráðherra, að gildistaka og gildistími EES er óviss. I
fyrri umræðu um tillögu framsóknarmanna skýrði utanríkisráðherra
frá nokkrum atriðum sem hann byggir þetta stöðumat á.
Tillaga Steingríms Hermannsson-
ar (F-Rn) og Halldórs Ásgrímssonar
(F-Al) er svohljóðandi: „Alþingi
ályktar að stefnt skuli að því að ná
tvíhliða samningi við Evrópubanda-
lagið, fyrst og fremst á grundvelli
viðskiptahluta þess samnings sem
fyrir liggur um Evrópskt efnahags-
svæði. Því felur Alþingi ríkisstjóm-
inni að hefja undirbúning að slíkri
samningsgerð og fara þess á leit við
framkvæmdastjórn Evrópubanda-
lagsins að viðræður hefjist hið
fyrsta."
Tillaga framsóknarmanna var
rætt í nokkur stundarkorn í gær og
talaði fjöldi þingmanna. Framsókn-
armenn lögðu mikla áherslu á mikil-
vægi þess að með samþykkt þessarar
tillögu var að því stefnt að eyða
óvissu og með samþykkt slíkrar
stefnumörkunar væri jafnframt vísað
frá hugmyndum um aðild íslands að
Evrópubandalaginu, EB. Ólafur
Ragnar Grímsson (Ab-Rn) lýsti yfir
stuðningi Alþýðubandalagsins við
þessa tillögu sem væri einnig í sam-
ræmi við samþykkt miðstjómar Al-
þýðubandalagsins 28. júní 1992.
Forviðræður um eftirmál EES
Jón Baldvin Hannibalsson útanrík-
isráðherra sagði að viðræður um
hvernig form samningar tækju
ef/þegar önnur EFTA-lönd gengju í
EB væru útaf fyrir sig hafnar. Það
væri u.þ.b. ár síðan viðræður hefðu
verið teknar upp. Það hefðu farið
fram viðræður um formbreytingu
samningsins. Þetta hefði verið ítrek-
að rætt við forystumenn EB. Við
Frans Andriessen,
þáverandi utanrík-
isráðherra fram-
kvæmdastjómar
EB, og við utanrík-
isráðherra þeirra
þjóða sem farið
hafa með forystuna
í bandalaginu, Dou-
glas Hurd utanrík- '
isráðherra Bret-
lands í desember, Jón Baldv'in
Niels Helveg Pedersen utanríkisráð-
herra Danmerkur í febrúar og nú
fyrir nokkrum vikum við hinn nýja
utanríkisráðherra framkvæmda-
stjómar EB, Hans van der Broek.
Fundargerðir lægju fyrir frá þessUm
viðræðum og þessum fulltrúum EB
bæri öllum saman um að ef EFTA
legðist niður væri einfalt mál að
semja um stofnanaþáttinn, dómstól
og eftirlitsstofnun. íslendingar
mættu ganga út frá því sem gefnu
að samningsskuldbindingar og rétt-
indi EES-samningsins héldust þótt
formið breyttist. Það segði sig nán-
ast sjálft að þá þyrfti að efna til
samninga um breytingar á formi
stofnana. Ef EFTA-yrði ekki til þá
væri sjálfgefið að ekki yrði til eftir-
litsstofnun og dómstóll EFTA.
Utanríkisráðherra vildi ekki víkj-
ast undan að svara þeirri spumingu
hvers vegna væri ekki gengið frá
þessu nú þegar. Jón Baldvin sagði
svarið einfalt. Það væri samdóma
mat manna að það væri ekki tíma-
bært fyrr en EES-samningurinn
hefði tekið gildi. Við værum í óvissu
bæði með tímasetningu gildistöku
og einnig væri fullkomin óvissa um
gildistíma EES-samningsins. Við-
ræður um aðild nýrra ríkja að EB
væru nýhafnar og þær yrðu ekki
auðveldar og mörg ágreiningsefni
gætu orðið að ásteytingarsteini.
Flestir teldu það bamaskap af hálfu
Svía að lýsa því enn yfír að góðar
horfur væru á því að Svíþjóð gæti
orðið aðildarríki í ársbyijun 1995.
Utanríkisráðherra benti einnig á að
meirihlutasamþykki þjóðanna í nýj-
um aðildarríkjum væri ófengið. Og
eins og nú horfði, stefndi ekki í þann
meirihluta og margt gæti eflt and-
stöðuna.
Utanríkisráðherra taldi jafnvel að
viðræður um tvíhliða samning núna
gætu verið varasamar. Með slíku
gætum við verið að kalla yfír okkur
opnun á samningum á gmndvelli sem
gæti reynst okkur afar óhagstæður,
s.s. veiðheimildir fyrir rýmri mark-
aðsaðgang.
Gildistaka EES
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
(SK-Rv) þótti gæta nokkurrar óvissu
í máli utanríkisráðherra um gildis-
töku EES-samningsins og spurði
hann nánar eftir þessum efasemdum,
jafnvel um það hvort EES tæki gildi
yfírleitt? Svar utanríkiráðherra var:
„Nei, ég held að ekki verði aftur
snúið." En utanríkisráðherra treysti
sér ekki til að fullyrða neitt um hve-
nær það yrði, jafnvel ekki um það
hvort gildistaka yrði á þessu ári.
Hann sagði að veruleg tregða væri
í þjóðþingum 2-3 landa, ekki bara á
Spáni. Utanríkisráðherra sagði einn-
MÞIIKSI
Þingsályktimartillaga rí kisstj órnarinnar lögð fram
Sótt um aukaaðild að VES
RÍKISSTJÓRNIN hefur farið þess
á leit að Alþingi lýsi stuðningi við
ákvörðun hennar um að Island
gerist aukaðili að Vestur-Evrópu-
sambandinu, VES. Hefur verið
lögð fram þingsályktunartillaga
um þetta á Alþingi.
Eiður Guðnason umhverfísráð-
herra undirritaði í Róm í fyrra skjal
um aukaaðild íslands að VES ásamt
utanríkisráðherrum Noregs og Tyrk-
lands. Fram kemur í greinargerð
þingsályktunartillögunnar að auka-
aðildarskjalið sé pólitísk yfírlýsing
ríkjanna, sem hlut eiga að máli, en
ekki lagalega bindandi samningur.
Skjal þetta er að miklu leyti efnislega
samhljóða Petersberg-yfirlýsingu
VES frá 19. júní 1992, en þar segir
m.a. að aukaaðildarríki geti tekið
fullan þátt í fundum ráðs, vinnuhópa
og undirnefnda VES, með nokkrum
skilmálum og takmörkunum s.s.
þeim að aukaaðilar geti ekki hindrað
ákvarðanir aðildarríkjanna.
Ekkí þátttaka í
hernaðaraðgerðum
Samkvæmt fyrrgreindu aukaðild-
arskjali mega aukaaðilar vænta þess
að verða beðnir að leggja fram fé
til þarfa samtakanna en framlög
verða endanlega ákvörðuð innan tíð-
ar. Tekið er fram í greinargerð þing-
sályktunartillögunnar að ísland muni
ekki taka þátt í hemaðaraðgerðum
VES, þar sem landið hafí ekki eigin
her.
í greinargerðinni segir einnig að
aukaaðilar hafí góða möguleika á að
koma skoðunum sínum og tillögum
á framfæri. Jafnframt geti þeir
tengst ákvörðunum sambandsins
hverju sinni. Það er mat ríkisstjórn-
arinnar að: „Þegar á heildina er litið,
hefur aukaaðild að Vestur-Evrópu-
sambandinu ýmsan ávinning í för
með sér fyrir ísland, en fáar kvaðir
eða skuldbindingar."
ig að ef svo færi að Maastricht-sam-
komulagið yrði ekki staðfest, myndi
það hafa víðtækar afleiðingar. Hann
hugði að fyrstu áhrif yrðu þau að
öllum aðildarviðræðum yrði sópað
útaf borðinu. Slíkt ætti út af fyrir
sig að styrkja EES-samninginn en
hins vegar yrði væntanlega pólitískt
uppnám sem myndi leiða til þess að
gildistakan drægist á langinn.
Utanríkisráðherra mat það svo að
höfnun Maastricht myndi fyrst í stað
leiða til þess að suðlægari ríki EB
myndu tregðast við að samþykkja
EES-samkomulagið en að lokum
myndu þeir sem ætluðu að byggja
upp harðan kjarna EB sjá sinn hag
í því að halda þeim ríkjum sem vildu
lausara samband utan við en veita
þeim aðgang að innri markaðinum
með EES.
Af fyrrgreindum ástæðum treysti
utanríkisráðherra sér ekki til að slá
neinu föstu um það að EES-samning-
urinn tæki gildi fyrir áramót. Það
væri fyrst og fremst Maastrict sem
kynni að flækja stöðuna og breytti
þá engu að fyrir lægju pólitískar
yfírlýsingar allra samningsaðila um
að hvetja öll þjóðþing til að ljúkja
staðfestingu og að stefnt skyldi að
gildistöku 1. júlí á þessu ári. Utanrík-
isráðherra sagist enga trú hafa á því
að það tækist 1. júlí.
Hveijir vilja ekki ísland í EB?
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra sagði enga óvissu ríkja
um afstöðu íslenskra stjórnvalda og
stjórnmálaflokka gagnvart aðild að
EB en enginn stjómmálaflokkur hef-
ur slíkt á sinni stefnuskrá. Það væri
heldur ekki nein ástæða til að ætla
það jafnvel þótt héma væru stjórn-
málaflokkar sem fylgdu því máli, að
gatan inn í EB væri greið. „Það vill
svo til að við vitum að Evrópubanda-
lagið hefur ekki minnsta áhuga á
að fá Island sem aðila að bandalag-
inu. Og mjög valdamikil öfl innan
bandalagsins myndu eindregið leggj-
ast gegn því að það gerðist."
Utanríkisráðherra rakti nokkrar
ástæður þessa áhugaleysis á aðild
íslands. Það væri ríkjandi skoðun
miðað við óbreytta skipan og starfs-
hætti bandalagsins að EB gæti ekki
tekið inn svokallaðar „örþjóðir", s.s.
Kýpurbúa, Möltubúa og Islendinga,
og veitt þeim fullgild réttindi, t.d.
að fá „alla gjörninga og pappírsflóð
bandalagsins" þýdd á tungumál við-
komandi þjóða. Utanríkisráðherra
sagði að eindregnustu andstæðingar
EB-aðildar hérlendis ættu „mjög
trausta bandamenn í forystusveit
Evrópubandalagsins sjálfs."
Sighvatur
Sturla
Lokun Staðarfells
Ekkí haft
samráð við
heilbrigðis-
ráðuneyti
SIGHVATUR Björgvinsson heil-
brigðis- og tryggingaráðherra
segir að ekkert samráð hafi verið
haft við heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytið um lokun meðferðar-
heimilis SÁÁ að Staðarfelli. Hann
telur _ samkomulag ráðuneytisins
við SAA frá 8. desember vera ótví-
rætt og væntir þess að við það
verði staðið. Sturla Böðvarsson
(S-Vl) spurðist fyrir um skoðun
ráðherra á fyrirhugaðri lokun
SÁÁ á meðferðarheimilinu.
Heilbrigðis- og tryggingaráðherra
rakti samkomulag það sem hann
hafði gert við forráðamenn SÁÁ í
desember, en það gerði m.a. ráð fyr-
ir því að ráðherra myndi beita sér
fyrir því að lækkun á fjárveitingum
til SAÁ yrði 20 milljónir króna en
ekki 35 milljónir eins og frumvarp
til fjárlaga fyrir árið 1993 gerði ráð
fyrir. Á móti gerði samkomulagið
m.a. ráð fyrir að samningsaðilar
skipuðu nefnd til að undirbúa á árinu
1993 samning um þjónustu þá sem
ríkissjóður keypti af SÁÁ vegna
meðferðar áfengissjúkra.
Aframhaldandi rekstur
I samkomulaginu sagði einnig að
fulltrúar SÁÁ samþykktu að starf-
rækja sjúkrastofnanir SÁÁ á árinu
1993 miðað við slíka afgreiðslu mála
og myndu taka að sér að leita leiða
til að „hagræða og spara í rekstri
stofnana sem þessu nemur í rekstri,
hugsanlega verður um einhvern sam-
drátt í starfseminni að ræða verði
ekki annars kostur.“
Sturla Böðvarsson sagðist vænta
þess að heilbrigðisráðuneytið myndi
gera allt sem í þess valdi stæði til
þess að staðið yrði við þennan samn-
ing. Samningsbrot væru óviðunandi
og yllu óþolandi óvissu fyrir starfs-
fólk að Staðarfelli um atvinnuöryggi
sitt.
H3BBBBEHBHB
ZANCASTER ÁRSÓL
HUÐGREINING I DAG KL. 13-17
Grímsbæ
10% kynningarafsláttur.
HMMÍ
AÐEINS EIN JÖRÐ
AÐEINS EI.NN BILL
Frá upphafi hafa hönnuðir Honda Civic viljað
framleiða eins umhverfisvæna bíla og mögulegt er.
Þetta hefur tekist með hreinbrunavélinni (VTEC)
sem skilar meiri orku á hvem lttra af bensíni og
mengar minna en áður hefur þekkst. Til að
fullkomna verkið er Civic settur saman úr 80%
endurvinnanlegum efnum. Þessir „umhverfis-
vænu“ bílar eru nú fáanlegir hér á landi.
Til afgreiðslu strax • Opið virka daga kl. 9:00 - 18:00 og laugardaga kl. 11:00 - 15:00 • Honda • Vatnagörðum 24 • Sími (91) 68 99 00
Á RÉTTRl LÍNU