Morgunblaðið - 26.03.1993, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1993
fclk f
fréttum
TÍSKUSTRAUMAR
Giorgio Armani
kynnir ilmvatn
Morgunblaðið/Þorkell
FYRIRSÆTUR
Fordstúlkan 1993
Dustin Hoffman,
Ron Silver og Whoopi Goldberg voru líka
dökkklædd. Meira að segja hattur Whoopi er svartur.
Bima Rut Willardsdóttir, 16 ára Dalvíkur-
stúlka, varð hlutskörpust í Ford-keppninni,
sem fór fram í síðustu viku á Sólon Islandus.
Hún lýkur grunnskólaprófí í vor og fer að öllum
líkindum út til Bandaríkjanna strax í sumar eða
í haust. Á myndinni má sjá stúlkurnar sem
lentu í fimm efstu sætunum eftir að verðlauna-
afhending hafði farið fram. F.v. Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir sem hreppti annað sætið,
Fordstúlkan Bima Rut, þá Berglind Ólafsdótt-
ir sem var í þriðja sæti, Erla Björg Guðrúnar-
dóttir sem lenti í fimmta sæti og lengst til
hægri er Ragna Borgþóra Gylfadóttir, sem
lenti í fjórða sæti.
Hún hefur örugglega ekki
verið af verri endanum
kynningin hjá tískuhönnuðinum
Giorgio Armani þegar hann bauð
til sín fjöldanum öllum af ríku
og frægu fólki. Enda mikið í
húfi. Tækist honum að koma því
til skila að nýja ilmvatnið hans,
Gio, væri hluti af lífsstíl ríka
fólksins væri honum vel borgið.
Meðal þeirra sem sáust á kynn-
ingunni voru Dustin Hoffman,
Martin Scorsese, Cher, Whoopi
Goldberg, Lee Radzwill, Robert
De Niro, Spike Lee, Russell
Simmons og Donna Karan.
Þegar Spike Lee var spurður
að því hvaða fatnaðar hann gæti
ekki verið án sagðist hann alltaf
verða að eiga Nike-skó. Donna
Karan, sem hefur mjög einfaldan
smekk, sagði að uppáhaldsföt sín
væru úr kasmír. Cher sagðist
ganga um heima hjá sér í ítölsk-
um bol, en Whoopi Goldberg
sagði að uppáhaldsflík sín væri
Giorgio Armani fagnar hér
Cher, sem er öll svartklædd.
Vestið virðist vera úr stungnu
leðri eða plastefni.
Pavarotti hefur ekki brosað
svona gleitt þegar hann upp-
götvaði hvað gerðist.
OHEPPNI
Pavarotti of
þungur fyr-
ir baðkarið
Aumingja Luciano Pavarotti,
sem er alltaf að kljást við
þyngdina og slúðurdálkar í öllum
heimshornum fylgjast með, varð
fyrir óhappi nýlega sem ýtir enn
frekar undir þá skoðun að hann
verði að megra sig. Reyndar mun
hann vera í megrunarkúr um
þesar mundir.
Pavarotti var á ferð í London
nýlega og gisti á Hyde Park
Hotel eins og svo oft áður. Syngj-
andi sæll og glaður ákvað hann
að fara í bað, nema að baðkarið
þoldi ekki þau 140 kíló, sem
Pavarotti er sagður hafa verið.
Baðkarið losnaði einhvern veginn
frá veggnum og vatnið fór að
leka niður í matsalinn. Hinn
syngjandi tenór hafði ekki hug-
mynd um hvað gerst hafði fyrr
en hann fór niður í borðsalinn,
þar sem vatnið var farið að leka
niður eftir veggjum.
Kennari við læknadeild Háskóla íslands sýnir hestahóf, sem nýlega
hefur verið meðhöndlaður með efni, sem gerir það að verkum að
hann varðveitist nánast í frumlíkingu.
MorgunDlaoio/uuoiaugur l ryggvi ftarisson
Helga Guðrún Johnson hefur verið ráðin til Háskólans sem kynning-
arfulltrúi í afmörkuðum verkefnum. Hér aðstoðar hún væntanlega
nemendur skólans.
Álfrún G. Guðrúnardóttir leikur hér Gerði Gýmisdóttur og Jón Jóns-
son leikur Skirni. Til hliðar má sjá Jón Hnefil Aðalsteinsson kennara
í þjóðháttafræði ásamt eiginkonu sinni, Svövu Jakobsdóttur rithöfundi.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Fróðlegir molar og
uppákomur
Eins og þegar hefur komið fram
í fjölmiðlum fór fram kynning
á námi í Háskóla íslands og skólum
innan Bandalags íslenskra sérskóla
um síðustu helgi. Ekki var einungis
um þurrar kynningar og staðreynd-
ir að ræða, heldur var framsetning
í sumum deildum þannig, að til
mikillar fyrirmyndar var.
Gestum og gangandi var einnig
boðið upp á menningarlegt efni svo
sem danssýningar og Ieikrit. Á veg-
um þjóðháttadeildar var til dæmis
fluttur hluti úr Skírnismálum eftir
dr. Terry Gunnell, sem er doktor í
þjóðfræði við háskólann í Leeds. í
doktorsritgerð hans, sem var úr
Eddukvæðum, kemur meðal annars
fram, að Eddukvæðin hefðu í
frumbúningi verið tilbúin til leik-
gerðar. Næsta haust er fyrirhugað
námskeið innan þjóðháttafræðinnar
á þessu sviði.
COSPER
oflO
COSPER
Ekki veit ég af hverju hann grenjar. Það er í það minnsta
ekki vegna þess að hann er þyrstur!