Morgunblaðið - 08.07.1993, Side 1
64 SIÐUR B/C
151. tbl. 81. árg.
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1998
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sýna samstöðu
MÖRG hundruð serbneskra kvenna komu í gær saman til mótmælafundar
á aðaltorgi höfuðborgarinnar, Belgrad. Þar hafa meðlimir í Endurnýjunar-
hreyfingu Serba verið í hungurverkfalli undanfarna fimm daga. Sýndu
konurnar samstöðu með þeim með því að vísa þremur fíngrum upp í loft,
sem er tákn serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.
Lögfræðingabrandarar
eru taldir auka á ofbeldi
Los Angeles. The Daily Telegraph. (
BRANDARAR um lögfræðinga hafa valdið því að mun meira er
nú um árásir á fólk í þeirri stétt, segir talsmaður stærstu samtaka
lögfræðinga í Bandaríkjunum. Harvey Saferstein, formaður Lög-
mannasamtaka Kaliforníu, segir að brandarar sem beinast gegn
lögmönnum ættu að flokkast undir „hatursglæpi". Hann fordæmdi
meðal annars útgáfu á bókum á borð við „101 aðferð til að losna
við dauðan lögfræðing".
Saferstein lét þessi orð falla í
tengslum við rannsókn á skotárás
sem gerð var á lögmannastofu í
San Fransisco í síðustu viku. Þar
létu átta manns lífið. Á líki árásar-
mannsins, sem banaði sjálfum sér,
fannst yfirlýsing þar sem hann bar
fyrirtækinu á brýn kynþátta- og
þjóðernisfordóma; að það hefði
„nauðgað" honum og taldi upp
nöfn „glæpamanna og nauðgara"
þar sem nöfn lögmanna voru nefnd.
Heimur án lögfræðinga
Annað sem Saferstein nefndi
voru sjónvarpsauglýsingar þar sem
„hinn fullkomni heirnur" er skil-
greindur sem heimur án lögfræð-
inga; þar sem kúrekar fanga lög-
fræðinga með snörum. „Eg bið
Bandaríkjamenn að hætta að of-
sækja lögfræðinga með þessum
hætti, ekki síst auglýsendur og
styrktaraðila, því þetta getur valdið
ofbeldi og árásum." Að sögn Safer-
steins eru atburðimir í San Frans-
isco einungis brot af þeirri ofbeldis-
öldu sem risið hefur gegn lögfræð-
ingum. Afbrotalögmenn hafa orðið
fyrir líkamsárásum af hálfu umbjóð-
enda sinna; lögmenn í f|ölskyldu-
málum hafa fengið hótanir frá fólki
sem stendur í illvígum skilnaðarmál-
um. í fyrra var lögfræðingur skot-
inn til bana á lögbókasafni í Los
Angeles og tveir lögfræðingar voru
myrtir í dómssal í Texas.
Kravtsjúk
vill eiga
kjamavopn
Kiev. Reuter.
LEONÍD Kravtsjúk, forseti Úkra-
ínu, sagðist í gær vera samþykkur
því að þær kjarnorkuflaugar úr
vopnabúri Sovétríkjanna fyrrver-
andi, sem staðsettar eru í landinu,
yrðu tímabundið lýstar eign Úkra-
ínumanna.
„Ég er þeirrar skoðunar að það
beri að ákveða að Úkraínumenn séu
eigendur þeirra kjarnorkuvopna sem
staðsett eru á landsvæði þeirra þar
til þau verða eyðilögð," sagði forset-
inn.
Þing Úkraínu samþykkti ályktun
í þessa veru í síðustu viku en um
176 kjarnorkuflaugar er að fínna í
Úkraínu. Utanríkisráðuneyti lands-
ins og margir þingmenn segja álykt-
unina hins vegar ekki hafa neitt laga-
legt gildi.
Kravtsjúk sagðist eihnig vera
þeirrar skoðunar að til Iengri tíma
litið ætti Úkraína að vera kjarnoku-
vopnalaust ríki.
Mannrétt-
indabrot
aldrei ver-
ið fleiri
London. The Daily Telegraph.
ÁRIÐ 1992 var ár „hörmu-
legra mannréttindahamfara"
að mati mannréttindasamtak-
anna Amnesty International.
Ársskýrsla samtakanna var
birt í gær og kemur þar fram
að mannréttindabrot hafa
aldrei verið framin I fleiri
rílqum, eða 161.
Meðal ríkja sem Amnesty seg-
ir hrikaleg mannréttindabrot
vera framin í eru Chad, Kína,
Irak, Líbería, Perú og Sri Lanka.
Samtökin segja að Evrópa sem
heimsálfa skeri sig út vegna
stríðsins í fýrrverandi Júgóslavíu
og versnandi ástands í lýðveld-
um Sovétríkjanna fyrrverandi.
Samkomulag um víðtæka lækkun tolla undirritað í Tókýó
Leitað að innstungu
BILL Clinton Bandaríkjaforseti og Kiichi Miyazawa, forsætisráðherra Japans, leita að innstungu fyrir heymartæki til að geta hlustað á
þýðingu á fundi sjö helstu iðnríkja heims.
Auknar líkur á GATT-
áárinu
AUKNAR líkur eru nú taldar á að takast
muni að ljúka Uruguaylotu GATT-viðræðn-
anna eftir að samningamenn Bandaríkjanna,
Kanada, Evrópubandalagsins og Japans und-
irrituðu í Tókýó í gær samkomulag um niður-
fellingu eða lækkun tolla á átján mikilvægum
vöruflokkum. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar
fögnuðu samkomulaginu óspart og sögðu að
i því fælist umfangsmesta tollalækkun sem
nokkurn tímann hefði verið samið um í sög-
unni. Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims
funda nú i Tókýó og er vonast til að þeir
muni taka undir samkomulagið i lokaályktun
sinni og að síðan verði fallist á það af þeim
110 ríkjum, sem aðild eiga að GATT.
Bandarískir embættismenn voru mjög bjart-
sýnir á áhrif af tollasamkomulaginu, yrði það
að veruleika, og sögðu að það myndi skapa tvær
milljónir nýrra atvinnutækifæra í heiminum. Þá
myndi það verða til að auka framleiðslu í heimin-
um um 5,4 billjónir Bandaríkjadala.
John Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði
að samkomulagið yrði til að auka viðskipti í
heiminum verulega og að af völdum þess yrðu
tollar lækkaðir á mikilvægum breskum útflutn-
ingsafurðum, s.s. vefnaðarvöru og skosku viskíi.
„Samkomulagið þýðir í einu orði atvinnu,“ sagði
Major.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti var svo ánægð-
ur með niðurstöðuna, að hann boðaði til blaða-
mannafundar í skyndi til að greina bandarískum
sjónvarpsáhorfendum frá því sem gerst hafði.
Þó að fundur leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims
sé ekki sá vettvangur þar sem samið er um
GATT var hann talinn mikilvægt tækifæri til
að sýna fram á að þessi voldugu ríki hefðu póli-
tískan vilja til að fá fram niðurstöðu í GATT-við-
ræðunum fyrir áramót. John Major sagði að
GATT-viðræðurnar ættu að geta hafist á ný í
Genf í næstu viku og að það væri „bijálæði“
ef einstök aðildarríki Evrópubandalagsins myndu
leggjast gegn samkomulaginu sem undirritað
var í Tókýó í gær. „Við verðum einfaldlega að
þrýsta á og þrýsta á óháð því hversu óvinsælir
við verðum fyrir vikið til að samkomulag náist
fyrir árslok,“ sagði Major.
Sjá nánar bls. 21.