Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993
Frakkar breyta nafni íslensks hörpudisks
Talið geta valdið
20% verðlækkun
STJÓRN Félags rækju- og- hörpudiskframleiðenda hefur sent utan-
ríkisráðuneytinu mótmæli við þeirri ákvörðun franskra sljórnvalda
að breyta nafngift íslensks hörpudisks á markaði í Frakklandi úr
Coqullies St. Jacques í Pétongles d’islande og krefst þess að málið
verði tekið upp við frönsk yfirvöld og einskis látið ófreistað að tryggja
viðunandi lausn þess. Stjórnin segir í bréfinu að þessi nafnbreyting
geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslenska hörpudiskvinnslu og
um sé að ræða augljósa viðskiptahindrun gagnvart mikilvægri út-
flutningsafurð sem stríði á móti markmiðum EES-samningsins.
Er talin hætta á að íslenskur
hörpudiskur verði framvegis flokk-
aður með verðminni hörpudiskteg-
undum sem leiði til þess að verð
muni lækka verulega.
Að sögn Péturs Bjarnasonar,
framkvæmdastjóra félagsins, er
hætta á að verðlækkunin geti orðið
um 20%.
Þrýstingur franskra sjómanna
talin ástæðan
Pétur sagði að íslenskur hörpu-
diskur hefði um árabil verið settur
á markað í Frakklandi undir merk-
inu Coqullies St. Jacques eða Skel
heilags Jakobs, sem hefði verið
samheiti tólf tegunda og flokkaður
sem slíkur í orðabók OECD um
verslun með fisk og fiskafurðir.
Frönsk yfirvöld hefðu nýlega ákveð-
ið að íslenskum seljendum væri
óheimilt að nota þetta nafn við
markaðsfærslu á hörspuskel, senni-
lega vegna þrýstings frá frönskum
sjómönnum. Krefst stjórn félagsins
tafarlausra aðgerða af hálfu ís-
lenskra stjórnvalda vegna þessa
máls.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sjálfsbjargarhúsið 20 ára
SJÁLFSBJARGARFÉLAGAR gerðu sér dagamun þegar þeir héldu upp á 20 ára afmæli Vinnu- og dvalarheimil-
is Sjálfsbjargar í gær. Dagskráin var með fjölbreyttum hætti og má þar nefna hátíðarárbít, móttöku borgar-
stjóra, grill, söng og skemmtiatriði við Sjálfsbjargarhúsið. Rúsínan í pylsuendanum var síðan útidansleikur um
kvöldið. Að ofan sjást menn léttir í lundu í grillveislu.
VEÐUR 1/ÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
tliti voður
Akureyri 7 rigning
Reykjavfk 9 skýjað
Bergen 11 skýjað
Helsinki 17 skýjað
Kaupmannahöfn 16 skúr
Narssarssuaq 12 heiðskírt
Nuuk vantar
Osió 16 rigning
Stokkhólmur 16 skúr
Þórshöfn 9 skúr
Algarve 20 þokumóða
Amsterdam 17 skýjað
Barceiona 26 heiðskfrt
Berlín 16 skúr
Chicago 21 skýjað
Feneyjar 22 léttskýjað
Frankfurt 21 skýjað
Glasgow 16 súld
Hamborg 14 skúr
London 20 skýjað
Los Angeles 19 alskýjað
Lúxemborg 20 skýjað
Madríd 29 heið8kírt
Malaga 28 heiðskfrt
Mallorca 27 léttskýjað
Montreal 25 léttskýjað
NewYork 27 mlstur
Orlando 26 skýjað
París 21 hálfskýjað
Madelra 23 Iótt8kýjað
Róm 28 léttskýjað
Vín 18 skýjað
Washington 27 mistur
Winnipeg 9 heiðskfrt
Dagsbrún vill segja
kj arasamiiingum
lausum í nóvember
Búast má við hörðum viðbrögðum í
haust, segir formaður VMSÍ
STJÓRN Verkamannafélagsins Dagsbrúnar hefur ákveðið að
le&gja til í launanefnd aðila vinnumarkaðarins, sem sett var á
laggirnar við gerð kjarasamninga í maí, að gildandi samningum
verði sagt upp fyrir 10. nóvember. Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, sem á sæti í launanefndinni, segist eiga
von á að ýmsar hækkanir muni skella yfir launafólk í haust og
segir að ef samningum verði sagt upp muni Dagsbrún ekki fara
aftur í samflot með Alþýðusambandinu. Gagnrýnir hann forystu-
sveit samtakanna harðlega. „Eg
nyög lélega,“ segir Guðmundur í
Björn Grétar Sveinsson, for-
maður Verkamannasambands ís-
lands, segir að búast megi við
hörðum viðbrögðum í haust því
um einhliða kjaraskerðingu sé að
ræða með gengisfellingunni sem
ákveðin var 27. júní og sagði að
við gerð kjarasamninganna hefði
verið rætt um að endurmeta ætti
forsendur kjarasamninganna á
þriðja ársfjórðungi ef ástæða þætti
til.
„Mér vitanlega var ekkert sam-
band haft við launanefndina um
þessi mál. Menn hljóta að svara
þessu með viðbrögðum í haust en
það er eftir að ákveða hver þau
verða,“ sagði Björn Grétar.
Guðmundur J. Guðmundsson
sagðist hafa miklar áhyggjur af
atvinnuástandinu í vetur og spáir
því að innan Dagsbrúnar verði 700
manns orðnir atvinnulausir í jan-
úar á næsta ári samanborið við
500 í janúar á þessu ári. Hann
segir þó að tekist hafi að draga
mjög úr atvinnuleysi meðal félags-
manna Dagsbrúnar í sumar og í
því sambandi skiþti mestu máli
hve röggsamlega Reykjavíkurborg
hafi gengið til verks við að skapa
mönnum atvinnu á starfssvæði
Dagsbrúnar. Guðmundur kvaðst
hafa trú á að gripið verði aftur
til gengisfellingar í vetur og búast
mætti við hækkunum á þjónustu
hins opinbera og sköttum í tengsl-
um við gerð fjárlagafrumvarpsins.
Sagði hann að launamismu'nurinn
færðist sífellt í aukana og nú
væri þriðjungur Reykvíkinga á
fátæktarmörkum á sama tíma og
annar þriðjungur virtist eiga nóga
peninga. Sagði hann að búast
mætti við tíðindum á vinnumark-
aðinum í haust því hatur og heift
hefði gripið um sig meðal fólks
sem liði hreinlega skort.
tel forystu Alþýðusambandsins
samtali við Morgunblaðið.
Uppsögn tekur gildi 1. janúar
I kjarasamningi ASÍ og sam-
taka vinnuveitenda er gert ráð
fyrir að launanefnd, skipuð þrem-
ur fulltrúum frá hvorum samn-
ingsaðila fýlgist með framvindu
efnahags-, atvinnu- og verðlags-
mála og geri tillögur um viðbrögð
til samtakanna og stjórnvalda.
Skal hún endurmeta samningsfor-
sendur og hugsanleg tilefni til
uppsagnar samningsins fyrir 10.
nóvember og er hvorum hluta
launanefndar heimilt að segja
samningum lausum ef marktæk
frávik hafa orðið á samningsfor-
sendum sem eru m.a. byggðar á
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og
að gengi krónunnar verði innan
viðmiðunarmarka Seðlabankans
enda verði áætlað verðlag sjávar-
afurða í íslenskum krónum að
meðaltali 3% hærra á 3. ársfjórð-
ungi 1993 en á 1. ársfjórðungi og
haldist a.m.k. jafn hátt úr samn-
ingstímann. Einnig var við það
miðað að aflakvótar á næsta físk-
veiðiári verði ekki minni en á yfír-
standandi fiskveiðiári. Komi til
uppsagnar tekur hún gildi 1. jan-
úar 1994.
♦ ♦ ♦
IJtanríkisráðu-
neytið flytji
I undirbúningi er að flytja
starfsemi utanríkisráðuneytisins
að Rauðarárstíg 25 en þar er
Byggðastofnun m.a. til húsa.
Starfsemi ráðuneytisins er nú á
þremur stöðum og með flutningun-
um er ætlunin að sameina hana
undir einu þaki. Að sögn Þorsteins
Ingólfssonar ráðuneytisstjóra er
ekki ljóst hvenær flutningarnir
verða.
i
í
i
í
I
I
1
i
I
1
1
I
I
1
I
+