Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993
19
Greiðslu KRON til búvöru- stoðarmað-
deildar SÍS rift með dómi isráðherra
Dómurinn hafnar kröfu þrotabús KRON um riftun á greiðslu til Samvinnulífeyrissjóðsins
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur kveðið innar við Furugrund fyrir 34,5 milljónir króna. garði, í ijórða lagi vegna sama tilgangs, hugsjóna
upp dóm í tveimur málum, sem þrotabú Kaup-
félags Reykjavíkur og nágrennis höfðaði til
riftunar á greiðslum KRON til búvörudeildar
Sambandsins og Samvinnulífeyrissjóðsins árið
1990, en því var haldið fram af hálfu þrotabús-
ins að KRON hefði í raun verið komið í þrot
þegar greiðslur þessar voru inntar af hendi.
Dómurinn dæmdi þrotabúinu í vil í málinu
gegn Sambandinu og rifti tæplega 19 milljóna
kr. greiðslu. Hins vegar sýknaði héraðsdómur
Samvinnulífeyrissjóðinn af kröfu um riftun á
greiðslu í formi hlutabréfa í Olíufélaginu.
í máli þrotabúsins gegn Sambandinu voru máls-
atvik þau að KRON seldi Grundarkjöri hf. á leigu
verzlunarrekstur í húsnæði sínu við Furugrund í
Kópavogi árið 1989. KRON framseldi samninginn
síðar um árið til búvörudeildar SÍS. Með afsali í
maí 1990 seldi KRON, sem hafí hætt rekstri í
apríl sama ár, búvörudeildinni efri hæð húseignar-
Hluti kaupverðsins, tæpar nítján milljónir króna,
var greiddur í peningum en afgangurinn með yfir-
töku skulda. Sama dag greiddi KRON búvörudeild-
inni aftur til baka sömu fjárhæð í peningum til
uppgjörs á skuld samkvæmt fjórum víxlum og inn
á einn víxil.
Margvísleg tengsl KRON og SÍS
Lögmaður þrotabúsins hélt því fram fyrir dómi
að greitt hafi verið með óvenjulegum greiðsleyri
í þessu viðskiptasambandi, ekki sízt miðað við fjár-
hagsstöðu KRON á þeim tíma. Þá sé um nákomna
aðila að ræða og verði ekki sagt að greiðslan
hafi verið venjuleg eftir atvikum. Hagsmuna- og
félagsleg tengsl KRON og Sambandsins væru
náin, í fyrsta lagi vegna eignarhluta KRON í
Sambandinu, í öðru lagi vegna fulltrúafjölda á
aðalfundum SÍS, í þriðja lagi vegna sameignar
fyrirtækjanna á ýmsum félögum, til dæmis Mikla-
og markmiða, sem fram kæmu í ýmsum samþykkt-
um, og í fimmta lagi vegna fjölþættra tengsla í
gegnum stjómarmenn félaganna, sem sumir hveij-
ir hafi verið í stjórnum beggja og dótturfélaga
eða starfsmenn annars og stjórnarmenn í hinu.
Þá hélt þrotabúið því fram að KRON hefði í raun
verið ógjaldfært eða orðið það við greiðsluna. SÍS
hlyti að hafa verið kunnugt um það, eða hefði
a.m.k. átt að kanna fjárhagsstöðu KRON.
Dómurinn féllst á að KRON og Sambandið yrðu
að teljast nákomnir aðilar, og að ósannað væri
að KRON hefði verið gjaldfært. Þá segir í niður-
stöðum dómsins: „Það er álit dómsins, að KRON
hafi í raun verið að greiða inn á skuld sína við
búvörudeildina með því að afsala húseigninni til
hennar. Ekki hefur verið sýnt fram á að það hafi
tíðkazt í viðskiptum þeirra, sem voru mjög mikil,
að KRON hafi greitt með fasteignum og almennt
telst það ekki venjulegur greiðslueyrir.“
ÖSSUR Skarphéðinsson umhverf-
isráðherra hefur ráðið Birgi Her-
mannsson, 29 ára gamlan sljórn-
málafræðing, sem aðstoðarmann
sinn. Birgir hefur verið stunda-
kennari við Háskóla Islands og
stundað rannsóknir við HI á veg-
um Stefáns Ólafssonar prófessors.
Birgir stundaði
nám í stjórnmála-
fræði og heimspeki
við Háskólann frá
1984 til 1988. Að
þvf loknu stundaði
hann nám í stjórn-
málafræði frá 1988
til 1993 við New
School for Social
Research í New York. Birgir er í
sambúð og á eins og hálfs árs gam-
alt barn. Hann hefur störf 1. ágúst.
Birgir
*
Gjafir til Arbæjarsafns frá Danmörku
Morgunblaðið/Sverrir
Tekið við gjöfum
HREFNA Róbertsdóttir safnvörður myndadeildar Arbæjarsafns og
Margrét Hallgrímsdóttir borgarminjavörður tóku við gjöfum Lou
og Arne Sander, en þau gáfu safninu meðal annars málverk af hjón-
unum Waldemar Fischer og Arndísi Teitsdóttur.
19. aldar málverk af
kaupmannshj ónum
ÁRBÆJARSAFNI hafa borist tvö 19. aldar málverk að gjöf frá
Danmörku ásamt ljósmyndum og postulínsgrip. Málverkin eru af
hjónunum Waldemar Fischer og Arndisi Teitsdóttur og er gefandinn
Loa Sander úr fjölskyldu Fischers í Danmörku.
Fischersund
Waldemar Fischer var einn þeirra
dönsku kaupmanna sem ráku versl-
un í Reykjavík fram undir 1870,
segir í frétt frá Árbæjarsafni. Versl-
un hans, Fischersverslun, var í hús-
Leiðrétting
Aðeins tveir
læknar töluðu
HELGI Valdimarsson prófessor í
ónæmisfræði hafði samband við
Morgunblaðið í gær og sagði rang-
hermt í frétt blaðsins um fyrirlestur
Roberto Tapia um síþreytu í fyrra-
kvöld að nokkrir læknar hefðu talað
á fundinum. Helgi segir að aðeins
hann og Ólafur ólafsson landlæknir
hafi tekið til máls. Jafnframt kvaðst
Helgi hafa setið fundinn til enda
og ekki heyrt neinn lækni taka
undir sjónarmið Tapia.
Helgi segir að hann hafi einung-
is spurt Tapia hvort hann hefði birt
þessar merkilegu upplýsingar sínar
í alþjóðlega viðurkenndum lækna-
tímaritum. Þetta væri lykilatriði til
þess að aðrir læknar gætu nýtt sér
þessa vitneskju í þágu sjúklinga
sinna.
inu við Aðalstræti 2 (Geysishúsinu)
og var ein af stærstu verslunum
bæjarins. Húsið var reist árið 1855
af Tærgesen kaupmanni á þeim
stað sem elstu verslunarhús bæjar-
ins höfðu staðið áður. Fischer keypti
verslunina árið 1865 en hann hafði
áður verið faktor í Knudtzonsversl-
un og einnig rekið um tíma verslun
á horni Aðalstrætis og Götuhúsa-
stígs. Stígurinn var síðar nefndur
Fischersund eftir Fischer kaup-
manni.
Styrktarsj óður
Um 1870 hóf Fischer skútu-
útgerð en hún tókst ekki sem skyldi.
Einnig hafði hann skip í förum.
Hann var vel liðinn í Reykjavík og
stofnaði meðal annars styrktarsjóð
fyrir sjómannsekkjur og böm
þeirra. Fyrst var úthlutað úr honum
árið 1890. Jón Helgason biskup
minntist Fischers frá uppvaxtar-
árum sínum og sagði hann hafa
verið mikið prúðmenni. Hann flutt-
ist síðar til Kaupmannahafnar og
þá stýrðu faktorar verslun hans hér.
Amdís Teitsdóttir var dóttir Teits
Finnbogasonar járnsmiðs og dýra-
læknis í Reykjavík. Hann byggði
fyrsta húsið við Suðurgötu árið
1833. Húsið hefur verið flutt f Ár-
bæjarsafn, en það stóð áður við
Suðurgötu 7.
PA NIHEtL
fyrir alla fjölskylduna
á frábæru verði
Stærðir 28-45
PANIh ..
Staerðir 36—45
PAí V
Stærðir 22-35
pa. jsk
Stærðir 35-46
Stærðir 35^17
PA. . .flt
PANIHM
Stærðir 6-12
Stærðir 4-8
Fást í eftirtöldum kaupfélögum og verslunum um land allt
Kaupf. Borgfirðinga, Borgarnesi.
Kaupf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík.
Kaupf. Húnvetninga, Blöndósi.
Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki.
Kaupf. Þingeyinga, Húsavík.
Kaupf. Fram, Neskaupstað.
Kaupf. Héraðsbúa, Egilsstöðum.
Kaupf. Héraðsbúa, Reyðarfirði.
Kaupf. Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði.
Kaupf.A-Skaftfellinga, Höfn, Hornafirði.
Kaupf. Rangeyinga, Hvolfvelli. KEA, Ólafsfirði.
Samkaup, Keflavík KEA, Dalvík.
Aldan, Sandgerði. Sportval, Kringlunni, Reykjavík.
Verslun Einars Þorgilssonar, Hafnarfirði. Kaupf. Dýrfirðinga, Þingeyri.
Samkaup, Hafnaríirði. Kaupf.V-Húnvetninga, Hvammstanga.
Nettó,Akureyri. Dalakjör, Búðardal.
KEA, Hrísalundi.Akureyri. Kaupf. Árnesinga, Selfossi.
Skóversl. Leós hf., ísafirði. Ársól, Garði.
Selið, Mývatni. Höfn þríhymingur, Hellu.
Óðinn.Akranesi. KEA,Siglufirði.
Búsport, Reykjavík.
Umboðsmenn:Ágúst Ármann hf., sími 686677.
euu.
A