Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993 39 Hvatt til kynferðisglæpa? Frá Friðrík Einarssyni: í LESENDABRÉFI í Mbl. 3. júlí segir móðir frá því er maður hafði kynmök við fjögurra ára dóttur henn- ar og fleiri börn í sama húsi, þar sem hann bjó, Ómennið var kært. Játaði verkn- aðinn. Síðan eru látin líða þrjú ár. Móðirin fær að vita hjá embætti ríkis- saksóknara (eftir endurteknar fyrir- spurnir): „Málinu frestað í þijú ár. Ef hann bryti af sér á þeim tíma, þá yrði málið tekið upp aftur — ann- ars ekki.“ Er þetta ekki sama og að tilkynna öðrum, sem kynnu að hafa svipaðar tilhneigingar: „Þetta er nú allt í lagi, að þú prófir þetta, ef þig langar til. Ef ekki kemst upp um þig, verður þú beðinn um að hætta þessu.“ Hvers konar réttaröryggi höfum við á þessu landi? Þegar svona dusil- menni komast upp með að fremja sálarmorð, eða tilraun til sálarmorðs, og líkamsmeiðingar á saklausum börnum án þess að hljóta refsingu? Hann er ekki einu sinni geltur, svo að hann missi náttúruna og þar með ónáttúruna. Nauðgarar og aðrir kyn- ferðisglæpamenn vaða uppi í þessu þjóðfélagi, án þess reynt sé að aðhaf- ast eitthvað gegn þessum ófögnuði. Virðist jafnvel stundum mælt bót, eða þá afsakað. Hvað hugsa og hvernig líður al- þingismönnum sem eiga að setja lög, ráðherrum, sem hafa fram- kvæmdavaldið, dómurum, sem skipaðir era til að dæma? „Réttarfarið" sýnist mér vera á hraðri leið í að fólk fari sjálft að taka ýmis mál í sínar hendur. Hugsum okkur að í sambýlishúsi „móðurinnar" búi 3-4 mæður, hverra börn hafí orðið fyrir sömu reynslu og dóttir hennar. Misþyrm- ingu, sem þau bíða kannski aldrei bætur á sálu sinni. Hver mundi lá þessum konum, þótt þær tækju sig saman, næðu tökum á þessu ómenni, og beittu sömu aðferð sem notuð var í sveitum í gamla daga við lambhrúta, sem gera átti að sauðum, og áður en dýralæknar komu til sögunnar og gerðu aðgerð- ir í deyfmgu? Ég leyfi mér að taka undir allar spurningar móðurinnar til ríkissak- sóknara, og bæta við: 6. Hvemig hugsar hann um þetta mál. Hvaða hugsun er á bak við niðurstöðu hans? 7. Hvaða málsbætur hefir gerand- inn? 8. Hvað hafa bömin til saka unnið? FRIÐRIK EINARSSON læknir, Hæðargarði 35, Reykjavík. Hver uppgötvaði Kjarval? ar. Frá Hallfríði Guðhrandsdóttur Schneider: Listfræðingur Björn Th. Björnsson telur í Morgunblaðsgrein 15. maí sl. að danskir listfræðingar hafi uppgöt- vað Kjaral, en ekki alls ófróðir „menn hér heima“. Hver varð svo afleiðing þessarar uppgötvunar á meginland- inu og á íslandi? Harla lítil að mínum dómi. Frá því að Kjarval var um ferm- ingu geymdu Borgfirðingar eystra teikningar hans og skútukarlar borg- uðu fyrir myndir unglingsins. Eftir að hann kom til Reykjavíkur snemma á öldinni stækkaði aðdáendahópur- inn. í þessum hópi var pabbi minn, Guðbrandur Magnússon, sem strax hreifst af andlegri og listrænni fijó- semi þessa manns. Pabbi, þá ungur „ófróður" prentari, og nokkrir aðrir tóku sig til og fóru að selja teikning- ar og málverk Kjarvals til þess að afla fjár svo hann kæmist til náms ytra. Salan var treg, en pabbi sagð- ist hafa selt allmörg og að sinn bezti viðskiptavinur hafi verið Thor Jens- en, sem einu sinni keypti þijú í einu. Fyrsta sýningin á verkum Kjarv- als var haldin 1908 og vakti ekki nógu mikla athygli til að vera getið á prenti í Reykjavík, en pabbi skrif- aði um hana í Austra á Seyðisfirði. Árið 1913 hélt Kjarval sýningu í Iðn- skólanum og stórskáldið Einar Bene- diktsson skrifar í Isafold 9. ágúst um sýninguna og þar á meðal um beztu myndina þar: „Hafís við sólar- lag“: „Hún er vottur þess, að Jóhann- es Kjarval muni óvenju fljótt verða fijáls og þora að líkast sjálfum sér, en þó jafnframt vera sannur og hlýðnast lögmálum hinnar sönnu list- Kjarval komst út í nám. Hinir „lærðu“ dönsku listfræðingar kunnu auðheyrilega að meta íslendinginn, en ég er sammála „erkivitleysu" Kjartans Guðjónssonar, listmálara, „að alþýðan hafi tekið hann (Kjarv- al) upp á sína arma i fyllingu tímans" án áhrifa hinna dönsku fræðinga. Það vora menn eins og Ragnar Ásgeirsson, Jón Þorsteinsson, Magn- ús Kjaran, Kristján í Kiddabúð, Ragnar í Smára, Markús ívarsson, Sigurður Benediktsson og ekki sízt Þorvaldur Guðmundsson, sem létu verk Kjarvals tala og skína. Vinsæld- ir hans jukust og andvíg gagnrýni rénaði. Höfundar, sem um hann skrifuðu bækur, örvuðu einnig hróð- ur hans. Svo vora menn eins og pabbi, sem t.d. unnu bak við tjöldin og stóðu fyrir sýningum á listaverkunum. Kjarval kunni vel að meta sína vini. Dæmi um það er þegar hann rauk út úr Ráðherrabústaðnum þegar átti að heiðra hann þar með orðu. Æstur í skapi birtist hann skyndilega inn í stofu á Ásvallagötunni, þar sem for- eldrar mínir sátu í rólegheitum, og sagði: „Ég vildi ekki sjá þessa orðu fyrst þú fékkst hana ekki líka, Guð- brandur, eins og ég hafði mælt með.“ Skyldi Kjarval hafa samþykkt það, að lærðir danskir listfræðingar hefðu uppgötvað sig? Hann var stoltur og sjálfstæður. Hann sannaðis sig sjálf- ur. Enginn uppgötvaði hann, en hann eignaðist aðdáendur. HALLFRÍÐUR GUÐBRANDS- DÓTTIR SCHNEIDER, 5935 Kimble Ct. Falls Church, VA 22041, USA LEIÐRÉTTINGAR Reykurinn frá þyrlunni í frétt Morgunblaðsins í gær af björgun mannanna í Kollumúla seg- ir að lítil flutvél hafí fundið þá, en rétt mun vera að það var þyrla Landhelgisgæzlunnar, sem fann mennina. Þá skal tekið fram að mennimir voru ekki með neitt reykblys, heldur er reykurinn á baksíðumynd Morgunblaðsins frá reykblysi, sem gæzlan varpaði niður til þess að fá nákvæma vindátt. Gæðaeftirlit, ekki skipaskoðun Misskilja mátti frétt á baksíðu Morgunblaðsins á þriðjudag, en þar var sagt frá því að útvegsmenn í Vestmannaeyjum hefðu boðið út skipaskoðun. Samgönguráðuneytið vill koma því á framfæri að um hafí verið að ræða útboð á reglu- bundnu gæðaeftirliti á vegum Fiski- stofu. Með orðinu skipaskoðun sé liins vegar átt við hina árlegu aðal- skoðun skipa, þar sem dæmt er um haffærni þeirra. Ekki kæra Misvísandi fyrirsögn var í frétt á bls. 2 í gærdag um listflug og kara- melludreifingu úr flugvél. Eins og fram kemur í fréttinni hefur ekki verið lögð fram kæra vegna þessa flugs heldur er skýrsla um það til athugunar hjá Loftferðaeftirlitinu. VELVAKANDI TAPAÐ/FUNDIÐ Símboði SÍMBOÐI tapaðist fyrir utan Arahóla 4 í Breiðholti helgina fyrir páska. Pinnandi vinsamlega hringi í síma 77712. Fundarlaun. Gleraugu fundust VÖNDUÐ kvenmannsgleraugu, líklega lesgleraugu, með ól fund- ust hangandi á stöðumæli við versluna Stúdíó MFG, Laugavegi 48, sl. mánudag. Upplýsingar í versluninni á opnunartíma. Sundtaska tapaðist SVÖRT sundtaska tapaðist á leiðinni frá Holtinu í Hafnarfirði að Mávahrauni sl. sunnudag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 653517. Á sama stað fást kettlingar gefins. Frakki tapaðist KARRÍGULUR rykfrakki tapað- ist á Kringlukránni 16. maí. Sá sem veit um afdrif frakkans er vinsamlega beðinn að hringja í síma 12958. Viðlegubúnaður í Þjórsárdal GULUR og svartur Adidas-bak- poki og rauðbrún Puma-íþrótta- taska hurfu úr tjaldi í Þjórsárdal sl. helgi. í töskunni var m.a. fatn- aður, peningar og gleraugu. Taskan var merkt Ester As- björnsdóttur, Háaleitisbraut 41, Reykjavík, sími 36714. Hafi ein- hver orðið var við þessar töskur er hann vinsamlega beðinn um að hafa samband við Ester í síma 36714. Fundarlaun. GÆLUDÝR Kettlingur í heimilisleit KOLSVARTUR högni, 7 víkna gamall, óskar eftir góðu heimili af sérstökum ástæðum. Upplýs- ingar í síma 619876. Sjálfsrækt 5 vikna námskeið, sem fjallar um áhrif uppeldis, ást og samskipti, líkamsrækt, mataræði, hugsun, markmiðasetn- ingu, öndun, innsæi, hugleiðslu og lögmál velgengni. ftarleg námsgögn, fyrirlestrar, æfingar og einkatími. Tími: 10. júlí - 11. ágúst, laugardaga frá kl. 9-11 og mið- vikudaga frá kl. 20-22. Leiðbeinandi: Gunnlaugur Guðmundsson, stjömuspekingur. Stjörnuspekistöðin, Kjörgarði, Laugavegi 59, sími 10377. Tvöfaldir laugardagarí .. því nú tökum við okkur frí á sunnudögum íjúlí \fyt!• Sérstakur afsláttur fyrir seljendur kompudóts á laugardögum: Lítill bás - aöeins kr.: 2.450.- Stór bás - aöeins kr.: 3.150.- KOLAPORTIÐ MARKAÐSTORG Upplýsingar og bókanir sölubása frá kl 9-17 í síma 625030 Jarðvegs- þjöppur i Eigum fyrirliggjandi FERMA jarðvegsþjöppur, margar stærðir, bensín og diesel, á mjög góðu verði. Fallar hf Dalvegi 24, 200 Kópavogi, símar 42322 ■ og 641020. VIÐEYJARSTOFA | q)Cs> í hinni sögufrægu Viðeyjarstofu, „Slotinu", er rekinn vandaður veitingastaður. Þan svigna borðin undan krásunum, rétt eins og þau gerðu fyrir 200 árum. Matseðillinn og matreiðslan er þó með öðrum hætti en þá var. Má freista þín með fjögurra rétta sælkeramáltíð fyrir 2,980,- krónur? Opið fimmtudaga - sunnudaga frákl. 19:00 til 24:00. <2)(9 Við bjóðum einnig upp á rjúkandi heitt kaffi og meðlæti í Viðeyjarstofu: fimmtudaga - sunnudaga og í Viðeyjarnausti: mánudaga - miðvikudaga. Opið frá klukkan 14:00 til 16:30. <Ú(S> Upplýsingar og borðapantanir í sfmum 62 19 34 og 68 10 45

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.