Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993
17
Morgunblaðið/Björn Valdimarsson
Síldarsöltun á Sigló
SIGLFIRSKAR síldarstúlkur salta enn þótt þeir tímar, þegar silfur hafsins virtist óþrjótandi og Sigló minnti á gullgrafarabæ, séu löngu liðnir.
Slök byrj-
un hjá Is-
lendingum
ÍSLENSKU þátttakendurnir á
Opna alþjóðlega skákmótinu á
eyjunni Korfu í Grikklandi, Mar-
geir Pétursson og Hannes Hlífar
Stefánsson, hafa ekki byrjað sér-
lega vel. Eftir fimm umferðir af
níu hafði Hannes þijá og hálfan
vinning en Margeir þijá. Hollenski
stórmeistarinn Jan Timman tap-
aði nyög óvænt fyrstu skákinni í
einvígi við gríska stórmeistarann
Skembris.
Að sögn Margeirs Péturssonar
voru lokin á fyrstu skák Skembris
og Timmans sérlega lagleg. Mótinu
lýkur á sunnudag. Þátttakendur eru
rúmlega hundrað talsins. Margeir er
í sjötta sæti í stigáröð keppenda en
Hannes í tíunda.
♦ ♦ ♦ .-
Niðjamót á
Hólmavík
NIÐJAMÓT hjónanna Magnúsar
Magnússonar og Guðrúnar Guð-
mundsdóttur frá Hrófbergi í
Strandasýslu verður haldið á
Hólmavík dagana 24. og 25. júlí.
Sameiginlegt borðhald verður í
Félagsheimilinu á Hólmavík og hefst
dagskrá þar kl. 17 á laugardegi.
Svefnpokapláss verður í barnaskóla
staðarins. Æskilegt er að fólk láti
vita um þátttöku fyrir 12. júlí. Nán-
ari upplýsingar gefa Skúli, Sigríður,
Unnur og Steinunn.
Morgunblaðið/BAR
Eyjólfur Sigurðsson.
Kiwanis
Islending'-
ur í heims-
stjórnina
EYJÓLFUR Sigurðsson hefur ver-
ið kjörinn féhirðir heimsstjórnar
Kiwanishreyfingarinnar. Hann
kemur til með að taka við emb-
ætti forseta heimsstjórnar hreyf-
ingarinnar 1. október 1995, en
einbætti féhirðis er ákveðið skref
til þess að verða forseti heims-
stjórnar Kiwanis.
Eyjólfur, sem hefur verið eini full-
trúi Evrópu í heimsstjórn Kiwanis
síðastliðin fimm ár, hefur verið félagi
í Kiwanishreyfingunni í 29 ár. Þá
var hann Evrópuforseti hreyfingar-
innar árin 1982-1983 og árin 1974-
1975 var hann umdæmisstjóri ís-
lensku Kiwanishreyfingarinnar.
í dag eru um 330 þúsund félagar
í Kiwanishreyfingunni í 84 löndum.
Helsta markmið hreyfingarinnar er
líknarstarf og er mikil áhersla lögð
á aðstoð við þriðja heiminn, sérstak-
lega börn frá fæðingu til fimm ára
aldurs.
A Islandi eru rúmlega þrettán
hundruð félagar í Kiwanishreyfing-
unni, en hér eru 46 Kiwanisklúbbar
starfandi.
Forræðismál Sophiu Hansen
Tilmælum komið
til tyrkneska utan-
ríkisráðuneytisins
FARUK Okandan, aðalræðismaður íslendinga i Ankara í Tyrk-
landi, afhenti fulltrúa tyrkneska utanríkisráðuneytisins skrifleg
tilmæli Ingva S. Ingvarssonar, sendiherra, vegna tyrkneska for-
ræðismálsins í gær. Ingvi segir að mælst sé til þess að mála-
rekstri verði flýtt, öryggi Sophiu Hansens og fylgdarliðs hennar
verði tryggt og lögregluyfirvöld verði beðin um að veita aðstoð
við að færa dætur Sophiu til hennar á þeim dögum sem umgengn-
isrettur hennar kveður á um.
Ingvi S. Ingvarsson, sendiherra
íslendinga í Tyrklandi með aðsetur
í Kaupmannahöfn, sagði að til-
mæli til tyrkneskra stjórnvalda
hefðu verið send með símbréfi til
Faruk Okandan, aðalræðismanns
íslendinga í Tyrklandi. Hann hefði
ætlað að koma þeim til skila til
fulltrúa utanríkisráðuneytisins í
Ankara í gær.
Erfið staða
Ingvi sagði að í bréfinu væri
vakin athygli á því að málið væri
í afar erfiðri stöðu. „Og óskað er
liðsinnis tyrkneskra stjórnvalda við
að reyna að flýta fyrir málarekstri
og forða slysum á fólki,“ sagði
Ingvi. En auk þess sagði hann að
farið væri fram á að lögregla í
Istanbúl aðstoðaði við að færa
dætur Sophiu til hennar á þeim
dögum sem umgengnisréttur
kvæði á um.
Ekki taldi Ingvi að auðvelt væri
Tyrir tyrknesk stjórnvöld að ýta á
dómstóla. „En það er auðvitað lyk-
ilatriði að þessum málarekstri
verði flýtt. Hvort stjórnvöld treysta
sér til að hafa einhveija hönd í
bagga með því veit maður ekki,“
sagði hann. Hann sagði að frekari
viðbrögð færu eftir framgangi
mála.
Skoðanakönnun Gallup fyrir RÚV
Framsókn er með mest
fylgi stjórnmálaflokka
FRAMSÓKNARFLOKKURINN nýtur mests stuðnings kjósenda sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Gallup á íslandi hefur gert fyrir Ríkisút-
varpið og greint var frá í fréttum RÚV í gærkvöldi. Lýstu 31,3% stuðn-
ingi við flokkinn, sem er svipað hlutfall og í síðustu könnun Gallups
í maí. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú 26,4% fylgi en fékk 30,5% í könn-
uninni í maí. Ríkisstjórnin nýtur nú stuðnings 30% kjósenda skv. könnun-
Alþýðubandalagið bætir við sig frá
maí-könnun og er með 16,5% fyigi.
Fylgi Kvennalistans mælist 14,9%
og fylgi Alþýðuflokksins 10% sem
er svipað og í síðustu könnun.
Einnig var spurt um skoðanir á
verkum ráðherranna Jóhönnu Sig-
urðardóttur og Þorsteins Pálssonar.
Sögðust 72% vera ánægðir með störf
Jóhönnu og um 65% með störf Þor-
steins. Þá sögðust 77% stuðnings-
manna Alþýðuflokks heldur vilja að
Rannveig Guðmundsdóttir hefði orð-
ið ráðherra en Össur Skarphéðinsson.
Meb CORE -TÉX éginleika, tilvalíní feröalög,
veiöiferbir/golf, hestamermsku og göngufer&jr.
Hag5tæ&vér&.
gönguskór
viðallra hæfi, léttirog þægilegír, frá kr. 5.500.
Vatnsvarðir, vandaðir fjallaskór, kr. 6.900.
Vandaðir fjallaskór (þola 10 tíma í vatni)
kr. 12.900.
O.tivistabuöin geiigt U mf erðam i bstöð i n n i 'sími:19600 og 13072