Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993 23 íafla og hagræðingn tílsam- kipum samhengi við rekstur þessa fisk- vinnsluhúss. Ég sé ekki að það geti gengið upp. Hins vegar mun alltaf og á að vera í gangi ákveðin þróun í atvinnugrein eins og sjávarútveg- inum. Það verða alltaf lögð af ein- hver hús og ég tel að 'iánastofnanir og aðrir eigi að bera ábyrgð á því að lána ekki til starfsemi sem ekki getur gengið og fólkið á hveijum stað verður þá að taka sig saman um þann rekstur, en það er grund- vallaratriði að rekstrarskilyrði þess- ara fyrirtækja séu fyrir hendi,“ sagði Kristján. Sértæk aðgerð „Ég er í grundvallaratriðum ósammála sjóðshugmyndum og starfi sjóðs eins og þessa þar sem leggja á gjöld á heildina en greiða svo einhveijum tilteknum einstak- lingum út úr honum,“ sagði Kristján ennfremur. „Hér er áfram um sér- tæka aðgerð að ræða sem núver- andi stjórnarflokkar og sérstaklega sá stærri nánast bannfærðu fyrir síðustu kosningar en eru nú að leiða yfir okkur í breyttri mynd. Ekki síst með því að leggja svo á þennan sama sjóð að yfirtaka sjóði fyrri rík- isstjórnar, Atvinnutryggingadeild Byggðastofnunar og híutafjárdeild- ina. Það er ósanngjarnt úr hófi fram og á sér engan líka að flytja skuld- bindingar þannig frá einum rekstra- raðila til annars,“ sagði Kristján. - En svo við höldum okkur við útgerðina. Þú segir að mörg skip verði óútgerðarhæf. Hver er þá hæfileg stærð flotans? „Það er erfitt að leggja mæli- kvarða á stærð flotans en við meg- um heldur ekki miðstýra þessu öllu. Á undanförnum árum höfum við fengið ný frystiskip sem hafa unnið aflann úti á sjó með mjög góðum árangri og besta afkoman í flotan- um hefur verið hjá þessum skipum. í öðru lagi erum við að nota þessi skip nú til veiða á úthafskarfa en það eru engin önnur skip sem geta það. Við höfum byggt upp nokkur ný rækjuveiðiskip og í dag erum við með fimm skip við Nýfundnaland á rækjuveiðum. Ekki værum við þar nema vegna þess að við eigum þessi skip, sem geta unnið rækjuna um borð. Við verðum alltaf að hafa ein- hvern hvata og leyfa mönnum að taka áhættu. Eg get fullyrt um öll nýju skipin í flotanum í dag að þar er um vel stöndugar útgerðir að ræða, þar sem menn eru'að taka áhættu með mikla fjármuni. Hér er því ekki verið að taka mikla áhættu á kostnað banka eða sjóða,“ segir hann. Kvótaframsal lykilatriði hagræðingar „Ég tel að þetta eigi að þróast þannig að hveijum og einum sé í sjálfsvald sett hvort hann sjái sér hag í því að sækja um úreldingu á skipi og fái 50% af húftryggingar- verði skipsins, haldi heimildunum og geti flutt þær yfir á annað skip. Lykilatriði allrar hagræðingar í út- gerðinni er að heimilt sé að flytja aflaheimildir á milli skipa samhliða úreldingu, en þetta eiga ritstjórar Morgunblaðsins erfitt með að skiljaj“ svarar Kristján. -1 skýrslu Tvíhöfðanefndar er hent á að yrði Hagræðingarsjóður- inn þurrausinn í úreldingarstyrki dygði það til að minnka flotann um aðeins 4%, en hann mætti hins veg- ar minnka um 20-30%. „Við úreldum ekki flotann um 20% á örfáum árum. Þetta gerist með þróun á lengri tíma en aðalat- riðið er að það stefni í rétta átt. Nú stendur til að leggja á vinnsluna sambærilegt gjald og á útgerðina eða um 80 milljónir á ári. Svo er verið að tala um að leggja sérstak- lega 500 milljónir á útgerðina, sem mér virðist að eigi að fara til að úrelda fiskvinnslustöðvar. Þama hefði átt að draga línu á milli, þann- ig að útgerðin standi undir eigin úreldingu og fiskvinnslan undir sinni. Fram hjá þessu er horft í þeim hugmyndum um Þróunarsjóð- inn sem sem birst hafa,“ segir Krist- ján. Niðurfærsla æskilegri - Utanríkisráðherra hefur sagt að talsmenn hagsmunasamtaka í sjávarútvegi hafi verið með kröfur um 16% gengisfellingu. Voru það forystumenn útvegsmanna? „Ég kannast ekki við að við höf- um látið í ljós neina tölu um gengis- breytingar. Mér virðist- hann vera að nota okkur eins og einhveija grýlu á þjóðina til að fá hana til að sætta sig við það sem ákveðið var vegna þess að einhveijir aðrir vondir menn hafi viljað ganga lengra,“ segir Kristján. „Ég taldi að vegna þess að við erum að minnka aflann þetta mikið yrðum við að aðlaga kjör okkar að breyttum aðstæðum. Það þýðir að við getum ekki flutt inn jafn mikil verðmæti til eigin neyslu og við höfum gert og til þess þarf að skapa jafnvægi. Ég taldi að æskilegra hefði verið að fara einhvers konar niðurfærsluleið, en það hefur sýnt sig að það gengur ekki og því var þetta eðlileg aðgerð miðað við þær aðstæður sem uppi voru.“ - Dugar 7,5% gengisfelling sjáv- arútveginum? „Núna mun afkoman batna um 3-3*/2% vegna breytinga á genginu en Þjóðhagsstofnun spáir því að afkoman verði aftur svipuð og við búum við í dag án þess að tíma- setja það, en maður verður að ætla að það verði á næsta ári þegar skerðingarnar koma fram,“ segir hann. Kristján sagði að frestun afborg- ana lána í Fiskveiðasjóði, hjá At- vinnutryggingadeild og í fleiri sjóð- um myndu bæta greiðslustöðu greinarinnar umtalsvert, sérstak- lega vegna skuldbreytinga hjá Fisk- veiðasjóði. Afkoma sjávarútvegsins yrði þó eftir sem áður mjög slæm. Hann var þá spurður hvort hann teldi að grípa þyrfti til gengisfelling- ar á ný í vetur. „Meðalverðlækkun á sjávarafurð- um í heild frá því á sama tíma í fyrra er um 15%. Gengisbreytingin er fyrst og fremst ákveðin vegna verðbreytinga á afurðum okkar frekar en vegna aflasamdráttarins. Við skulum ekki segja hvað gerist á næsta ári. Ef við upplifum verð- hækkanir batnar þetta en gengis- breyting hefur líka neikvæðar hliðar vegna þess að tilkostnaður hækkar samhliða, en það má ekki fóma hagsmunum lífvænlegra fyrirtækja vegna þeirra sem eru ofhlaðin skuld- um og neita þess vegna að breyta genginu. Almennt hækkar verðmæti þess sem við fáum í íslenskum krón- um og bætir afkomuna hjá öllum lífvænlegri fyrirtækjum,“ svaraði Kristján. „Við gerum ráð fyrir að ekki verði gripið til frekari aðgerða í sex til átta mánuði, en það er engin leið að segja fyrir um hvað kann að gerast á næsta ári,“ sagði hann. Tillögur LÍÚ um lokun veiðisvæða Fram kom í máli Kristjáns að hann leggur einnig áherslu á að til að bregðast við aflasamdrættinum verði að loka ákveðnum uppeldis- svæðum þorsks til að koma í veg fyrir smáfiskadráp. „Við þessar að- stæður eigum við að gera átak í að byggja stofninn upp með því að ná betri nýtingu. Við þurfum að veiða stærri fiska en við höfum gert, fleiri tonn með færri fiskum. Stjórn LÍÚ samnþykkti í síðustu viku tillögur um lokun svæða í júlí og ágúst þar sem smáfiskur heldur sig í stórum stíl. Aðalatriðið er að við göngum ekki of nærri stofninum með smá- fiskaveiði á togveiðiskipum fyrir Norðurlandi. Nú bíðum við eftir að ráðherra taki afstöðu til þessara til- lagna,“ sagði Kristján. Island og Sameinuðu þjóðirnar 1946-1980 Bókin tilbúin Morgunblaðið/Kristinn VINNU er nú lokið við útgáfu bókar um ísland og Sameinuðu þjóðirnar 1946 til 1980. F.v. Guðmundur R. Árnason, Gunnar G. Schram, fulltrúi útgefanda, og Gunnar Á. Gunnarsson, en Guðmundur og Gunnar Á. eru meðhöfundar og ritsljórar bókarinnar. Afstaða íslendinefa oft í andstöðu við Vesturlönd ÍSLAND hefur tekið injög sjálfstæða afstöðu innan Sameinuðu þjóðanna í mörgum mikilvægum málum og hefur það sjálfstæði vaxið með árun- um. Þetta kemur m.a. fram í bókinni Island í eldlínu alþjóðamála - stefnumótun og samvinna innan Sameinuðu þjóðanna 1946-1980. Bókin fjallar um aðild íslands að Sameinuðu þjóðunum allt til ársins 1980 og hvernig Island varði atkvæði sínu við atkvæðagreiðslur og hvers vegna. Bókin er þýðing á doktorsritgerð Valdimars Unnars Valdimarssonar, sem tveir samnemendur hans luku við en Valdimar lést í umferðarslysi áður en hann náði að ljúka ritgerðinni. Gunnar Á. Gunnarsson og Guð- mundur R. Árnason, báðir doktorar í stjórnmálafræði og samnemendur Valdimars í London School of Eco- nomics, lögðu mikla vinnu í að ljúka ritgerðinni og þýða yfir á íslensku. Fyrsta sinnar tegundar „Hér er í fyrsta skipti rakin, könn- uð og rýnd efnislega hin alþjóðapóli- tíska saga íslendinga, afstaða þeirra og stefna í megin alþjóðamálum,“ segir Gunnar G. Schram, formaður stjórnar Alþjóðamálastofnunar HÍ, sem gaf út bókina. Gunnar Á. Gunnarsson segir að þegar hann og Guðmundur hafi tekið við verkinu um mitt ár 1989 hafi Valdimar verið búinn að gera beina- grind að öllu verkinu og búinn að semja fyrstu drög að kjama þess og helstu köflunum. Morgunblaðið birti Valdimar Unnar Valdimarsson tvo kafla úr drögunum að doktorsrit- gerðinni í nóvember 1991 þegar 45 ár voru liðin frá inngöngu íslands í Sameinuðu þjóðirnar. Gunnar og Guðmundur þakka Nich- olas A. Sims sérstaklega fyrir hans framlag til bókarinnar en Sims er dósent við London School of Eco- nomics og var leiðbeinandi Valdimars í doktorsnáminu. Hann hjálpaði þeim við að ljúka verkinu á ensku en þeir þýddu það síðan yfir á íslensku. ísland sjálfstætt í upphafi setur bókin fram tilgátur, sem síðan er leitast við að athuga hvort standist. í bókinni kemur margt athyglisvert fram, m.a. að ísland var fyrsta ríkið, sem tekur upp mál um varnir gegn mengun hafsins á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. í bókinni kemur einnig fram að íslendingar tóku mjög oft afstöðu, sem skaraðist við vilja flestra Vesturlanda og oft einnig Norðurlanda. Til að mynda studdi ís- land sjálfstæðisbaráttu portúgölsku nýlendanna þrátt fyrir að það hefði getað skaða saltfiskverslun mikið. í bókinni er m.a. leitað skýringa á þessu sjálfstæði þjóðarinnar í alþjóðlegum samskiptum. Sýslumaður leggur liald á hræ hvítabjarnarins DYRA- og náttúruverndarsamtök, innanlands og erlendis, krefjast þess að skipsveijar á Guðnýju ÍS verði sóttir til saka fyrir hvítabjarnarveiði. Þau krefjast þess einnig að skipverjar hafi engan fjárhagslegan hagnað af þessari veiði. Vararíkissaksóknari og sýslumaðurinn í Bolungarvík segja lögreglurannsókn enn standa yfir. Sýslumaðurinn hefur lagt hald á hræ hvítabjarnarins. Drápið á hvítabirninum hefur kallað fram hörð viðbrögð ýmissa dýra- og náttúruverndarsamtaka, innlendra og erlendra. Undanfarna daga hafa um- hverfisráðuneytinu borist nokkur bréf, t.d. frá Sambandi dýravemdarfélaga íslands, dönsku náttúruvemdarsam- tökunum Danmarks naturfreds- forening, Náttúraverndarsamtökum Álandseyja o.fl. Síðast í gær fékk umhverfisráðherra erindi frá Alþjóð- legu dýravemdunarsamtökunum, World Society for the Protection of Animals, WSPA. Samtök þessi hafa um 300 aðildarfélög víðs vegar um veröldina. í þessu tilskrifi til umhverfisráðherra er lögð rík áhersla á að ísbjamarhræið verði ekki söluvara. Alþjóða dýravernd- unarsamtökin segja dráp bjamdýrsins vera brot á alþjóðasamningum um vemd dýra í útrýmingarhættu og einn- ig að dýrið hafði verið drepið með mjög þjáningarfullum hætti. Samtökin hvetja umhverfísráðherra til þess að beita sér fyrir því að skipveijar á Guðnýju verði sóttir til saka. Lögreglurannsókn Samband dýraverndarfélaga fs- lands kærði Jón Pétursson skipstjóra á Guðnýju ÍS til sýslumannsins í Bol- ungarvík 27. júní síðastliðinn. Ásta Valdimarsdóttur, þá settur sýslumað- ur, yfírheyrði skipstjóra, gerði skýrslu og sendi til embættis ríkissaksóknara. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Bragi Steinarsson vararíkissak- sóknari að þetta mál væri enn í lögreg- lurannsókn og vísaði á sýslumanninn í Bolungarvík um nánari upplýsingar. Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungavík, staðfesti að málið væri nú í hans höndum til áframhaldandi rannsóknar og að henni lokinni yrði málið á ný sent ríkissaksóknara sem myndi taka ákvörðun um hvort ákært yrði í málinu eða látið niður falla eða rannsakað enn frekar. Sýslumaður var spurður að þvi hvaða ráðstafanir hefðu verið gerðar varðandi bjarn- dýrshræið. Sýslumaður sagði að lagt hefði verið hald á hræið og væri það á leiðinni til Reykjavíkur. Vöraflutn- ingafyrirtæki Ármanns Leifssonar var falið að flytja þennan farm og vöru- flutningabifreið var væntanleg til Reykjavíkur snemma í dag. Má ekki verða féþúfa Ekki tókst að ná sambandi við Öss- ur Skarphéðinsson umhverfísráðherra í gær. En hann hefur áður í fjölmiðlum lýst mikilli vanþóknun á hinni um- deildu bjarnarveiði. Ráðherrann hefur og vakið athygli á framvarpi um vemd og veiði villtra dýra þar sem ísbirnir á sundi og ís yrðu friðaðir og hvatt mjög til þess að fyrrgreint frumvarp verði samþykkt skjótlega á næsta Alþingi. Umhverfisráðherra hefur einnig látið þá skoðun uppi að þessi bjarnar- veiði mætti ekki verða neinum að fé- þúfu; til fjárhagslegs ábata eður ávinnings. Umhverfisráðherrann telur að stjórnvöld hafi lagaheimild til að gera bjarndýrahræið upptækt í vísind- anna þágu tii nauðsynlegra náttúra- fræðilegra og heilsufræðilegra rann- sókna. Vegna ofangreindra atriða fór umhverfisráðherrann þess á leit við skipstjóra Guðnýjar í síðustu viku að skipveijar afhentu bjamdýrahræið Náttúrufræðistofnun og tóku skip- veijar vel í þau tilmæli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.