Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993 Fyrsti loðnufarmurinn Morgunblaðið/Rúnar Þór SIGURÐUR VE 15 við bryggju í Krossanesi með fyrsta loðnufarm sumarsins í gærmorgun, um 1.370 tonn. Neytendafélag Akur- eyrar og nágrennis 5% ódýrara í KEA Nettó en Hagkaup NEYTENDAFÉLAG Akureyrar og nágrennis hefur nýlega lokið umfangsmestu verðkönnun sinni til þessa. Kannað var verð á 170 algengum vörutegundum í stór- mörkuðunum KEA Nettó og Hag- kaup á Akureyri. Niðurstaða könnunarinnar leiddi í ljós að vörur í KEA Nettó eru að jafnaði 5% ódýrari en í Hagkaup. Samanburður á verðlagi í fyrri könn- un félagsins, í kjölfar kjarasamn- inga, og nú sýnir að þessar verslanir hafa enn ekki hækkað verð að afstað- inni gengisfellingu. Að ósk verka- lýðsfélaganna mun félagið á næstu mánuðum kanna verð og bera saman verðlag í fleiri verslunum. Flestar vörur á svipuðu verði Fyrsta loðnan í Krossanes FYRSTA loðnan barst til Krossaness snemma í gærmorgun þegar Sigurður VE 15 kom að með 1.370 tonn. Loðna berst nú til Krossa- ness hálfum öðrum mánuði fyrr en í fyrra. Að sögn Jóhanns Péturs Ander- sen, framkvæmdastjóra Krossa- ness, virðist loðnan í Sigurði vera mjög góð líkt og sú sem aðrir bátar hafa borið að landi að undanförnu. Hún er stór en full af átu. Hann sagði að þessi farmur dygði verk- smiðjunni til vinnslu í fjóra sólar- hringa, en vinnslugetan er um 2.100 tonn á viku. Lítur vel út Jóhann Pétur sagði útlitið í loðnuvinnslunni gott nú, ekki síst vegna þess að nú bærist loðna að landi mun fyrr en í fyrra. Þá kom fyrsta loðnan til Krossaness 20. ágúst og haustið var einkar lélegt. Að vísu segðu sjómenn að loðnan á.miðunum virtist ekkert sérstak- lega mikil, en þar á móti kæmi að ekki væri búið að leita mikið enn. Jóhann sagði að ekki væru lengur samningar milli báta og loðnu- bræðslna, frekar væri unnt að segja að ákveðin samvinna væri milli bræðslna og einhverra báta, sumir kæmu þannig oftar en aðrir. Á meðan loðna er brædd er unn- ið á sólarhringsvöktum í Krossa- nesi. Verðmunur á flestum vörutegund- um i þessari könnun er fáeinar krón- ur en mun fleiri vörur eru ódýrari í KEA Nettó en Hagkaup. Nokkur dæmi af handahófí um nokkum verð- mun eru: 2 kg af strásykri kosta 96 kr. í KEA en 108 kr. í Hagkaup; dós af Royal lyftidufti kostar 185 kr. í KEA en 229 kr. í Hagkaup; Vita wrap plastfílma kostar 136 kr. í KEA en 109 kr. í Hagkaup; 2 lítrar af Coca cola kosta kr. 129 í KEA og 149 kr. í Hagkaup og kíló af svína- kótilettum kostar 1.436 kr. í KEA en 1.255 kr. í Hagkaup. Athygli vek- ur að dós af KEA-lifrarkæfu er fjór- um krónum dýrari í KEA Nettó en Hagkaup. I Á FÖSTUDAGS- og laugar- dagskvöld mun Sigurður Flosa- son saxafónleikari leika djass ásamt tveimur Akureyringum á Hótel KEA. Á efnisskránni eru gömul og gild djasslög og ljúflings- lög ýmissa tíma. Sigurður Flosason hefur nýlokið við að taka upp plötu sína með Norræna djasskvintettin- um og fór um landið með þeim flokki fyrir skemmstu. Að þessu sinni leika hins vegar með Sigurði þeir Óskar Einarsson píanóleik- ari, sem hefur verið nemandi Sig- urðar í saxafónleik undanfarið, og Þórir Jóhannsson bassaleikari, sem er nýkominn frá námi á Eng- landi og hefur störf í Sinfóníuhljóm- sveit íslands í haust. Þeir félagar, sem hafa áður leikið saman á KEA, munu að þessu sinni fletta upp í safni gamalkunnra djasslaga og leika auk þess ljúflingslög frá ýms- um löndum fram eftir kvöldi. ■ í BLÓMAHÚSINU á Akureyri verða tískusýningar og tónleikar um helgina. Um er að ræða klass- íska tónleika og djass og tískusýn- ingar tveggja verslana við upphaf Listasumars á Akureyri. Djasstríóið Skipað þeim mun leika í Blóma- húsinu á fímmtudagskvöld frá klukkan 21.00 og laugardagskvöld frá klukkan 22.00. A föstudags- kvöld klukkan 21.00 verða klassísk- ir tónleikar, en þar kemur fram dúett sem nefnist Sigríður og Halldór, en þau leika á fiðlu og gítar. Á laugardagskvöld klukkan 21.00 og sunnudag klukkan 16.00 verða svo tískusýningar þar sem verslanimar Hjá Hönnu og Ynja sýna sumarfatnað og undirfatnað. Samdráttur hjá DNG TALSVERÐUR samdráttur er £ framleiðslu þjá rafeindaiðnaði DNG á Akureyri ef miðað er við síðasta ár. Orsakirnar er að rekja til fyrirsjáanlegs samdráttar í smábátaútgerð. Fyrirtækið hefur auk framleiðslu á handfærarúllum fengist við að framleiða annan raf- eindabúnað, sett saman tölvur og fleira. Að sögn Kristjáns Eldjáms Jó- hannessonar, framkvæmdastjóra DNG, er samdráttur í framleiðslu fyrirtækisins töluverður frá síðasta ári. Framleiðslan er að 70% hand- færarúllur en vegna ástands í smá- bátaútgerð hérlendis hefur sala dregist saman. Að sögn Kristjáns eru jafnan um 13 manns starfandi við fyrirtækið en líkur á, ef ekki rætist úr, að fækka þurfi um einn til tvo starfsmenn. Að sögn Kristjáns hefur fyrir- tækið fengist við ýmsa aðra fram- leiðslu á rafeindabúnaði, meðal ann- ars fyrir Flugmálastjórn og Vega- gerðina og einnig hafa verið settar saman tölvur og ýmis búnaður tengdur þeim. Hann sagði sam- keppnina á þeim markaði hins veg- ar svo mikla að þessi framleiðsla skipti ekki sköpum fyrir fyrirtækið. Hann sagði jafnframt að samvinna væri góð við Marei hf., meðal ann- ars sameiginleg umboðs- og sölu- skrifstofa á vestur- og austurströnd Bandaríkjanna, svo og samstarf í framleiðslu á búnaði. Hins vegar hefði ekki náðst viðlíka uppsveifla á vörum DNG og Marels á þessum markaði. Morgunblaðið/Rúnar Þór Slysavarnahús í hjarta Akureyrar FYRSTA skóflustunga að nýbyggingu slysavama- deildar kvenna og sjóbjörgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri var tekin siðastliðinn Iaugardag. Húsið mun standa á uppfyllingu sjávarmegin við Strandgötu. Svanur Eiríksson arkitekt teiknaði húsið sem er tví- skipt með tengibyggingu. í öðrum hlutanum verður aðstaða sjóbjörgunarsveitarinnar en í hinum félagsað- staða deildanna beggja. í tengibyggingu verður ýmis aðstaða sem nýtist báðum húshlutunum. Slysavama- deildunum var úthlutað lóðinni fyrir tveimur árum en hafist verður handa við byginguna nú í vikunni og er stefnt að því að húsið verði fokhelt fyrir haust- ið. Félagar slysavamadeildanna munu freista þess að vinna að byggingunni sem mest sjálfír og treysta á Akureyringa að rétta þeim hjálparhönd. LISTASUMAR Á AKUREYRI LISTASUMAR - Festival ’93, hefst á Akureyri á laugardag með sýningu samnorræna Fenris-leik- hópsins í íþróttaskemmunni á Akureyri. Þar með hefst samfelid listadagskrá sem stendur það sem eftir lifir af júlí og allan ágúst- mánuð. Mikili fjöldi listamanna leggur hönd að verki og fiestar listgreinar fá notið sín á þessu Listasumri til upplyftingar Akur- eyringum og nærsveitamönnum svo og þeim þúsundum ferða- manna, innlendra og eriendra, sem leggja leið sína um höfuðstað Norðurlands. Það eru Atvinnumálanefnd Akur- eyrarbæjar, Ferðamálaráð Eyjafjarð- ar, Gilfélagið og MENOR sem standa að Listasumri - Festival ’93. Fram- kvæmdastjóri er Eggert Kaaber. Eggert sagði að með þessu átaki væri þess freistað að halda úti viða- mikilli og fjölbreyttri dagskrá fyrir bæjarbúa og nágranna og ekki sfst að auka til muna þau tækifæri sem ferðalöngum, erlendum og innlend- um, stæði til boða hér á Akureyri. Þá gæfist listamönnum, bæði þeim sem eru á Akureyri og nágrenni og aðkomnum, með þessu gullið tæki- færi tii að koma list sinni á fram- færi, hveijum með sínu móti. Enn- fremur væri með Listasumri kannað- ur grundvöllur fyrir því að halda á Akureyri reglulegar listahátíðir í framtíðinni. Fjölskrúðug listadagskrá Vönduð dagskrá Listasumars verður borin í hús á Akureyri og einn- ig dreift um nágrannabyggðir. Þar kemur fram að á dagskránni eru leik- sýningar, tónleikar af ýmsu tagi, myndlistarsýningar, danslist, gjöm- ingar, bókmenntavökur og blanda af þessu öllu. Þá eru Sumartónleikar í kirkjum á Norðurlandi og tónieikar í tengslum við Gítarfestival og nám- skeið á Akureyri meðal dagskrárliða. Að sögn Eggerts Kaaber hefur gengið afar vel að fá listamenn til að taka þátt í Listasumri og taldi hann þá sem kæmu fram skipta hundruðum. Fjölmennasti hópurinn væri Femis-hópurinn, sem opnar Listasumarið með sýningu klukkan 17.00 á iaugardag í íþróttaskemm- unni. Af öðrum dagskráratriðum nefndi hann stórsöngvarann Ólaf Áma Bjamason, sem syngur í Safn- aðarheimilinu á mánudagskvöld, djasstónleika með Tómasi R. Einars- syni og fleiram, myndlistarsýningar ýmsar, bæði einkasýningar og sam- sýningar, annars vegar eldri borgara og hins vegar akureyrskra lista- manna. Hann sagði að selt yrði inn á flest atriði Listasumars en verði stillt mjög í hóf þannig að aðgangs- eyrir væri að jafnaði 500 krónur. Þó væri ókeypis aðgangur að fjölda at- riða. Opnir dagar - opin kvöld Eggert sagði að á Listasumri yrði nokkram sinnum boðið upp á opna daga og opin kvöld þar sem fólki byðist að koma og fylgjast með störf- um listamanna og reyna sjálfir að kljást við listina, til dæmis leirmuna- gerð. Þá yrðu haldin tónlistarkvöld þar sem fólki byðist að koma með hljóðfæri sín og leika eða syngja sér og öðrum til skemmtunar. Stefnt væri að því að allir gætu tekið þátt í Listasumri, ungir jafnt sem aldnir. Til viðbótar við auglýsta dagskrá sagði Eggert að búast mætti við óvæntum uppákomum í miðbæ Akur- eyrar hvenær sem er á meðan Lista- sumar stendur og auk þess mætti gera því skóna að atriði bættust við dagskrána þegar á liði. Dagskrá Listasumars fer að mestu fram í og við Grófargil, sem oft er nefnt Listag- il. Þar á gilbarminum eru safn;iðar- heimilið og kirkjan, en þar verður ftöldi tónleika, og í Gilinu verða myndlistarsýningar í ýmsum sölum, meðal annars Deiglunni, sem er nýr fjölnotasalur Gilfélagsins. Auk þess verða margir dagskrárliðir í veitinga- húsum víða um bæinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.