Morgunblaðið - 08.07.1993, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993
Togari frá
Spánifyrir
Rauðanúp?
FORSVARSMENN útgerðarfé-
lagsins Jökuls á Raufarhöfn hafa
staðið í viðræðum við lánar-
drottna sína og spánska aðila
vegna kaupa á hálfkláruðu
spánsku skipi. Þorsteinn Olafs-
son, framkvæmdastjóri Jökuls,
segir að samningar séu enn á
umræðustigi en ef af verði sé
hugmyndin sú að ljúka við smíði
skipsins hér á landi. Gert er ráð
fyrir úreldingu togarans Rauða-
núps í kjölfar skipakaupanna.
Að sögn Þorsteins er verið að
smíða skipið í skipasmíðastöðinni
St. Domingo í Vigo á Spáni. Hann
sagði að það væri heldur stærra en
Rauðinúpur, 45 m á lengd og 11,9
m á breidd, en sennilega yrði það
lengt til að henta betur sem hálf-
frystiskip.
Þorsteinn sagði að allri grófvinnu
við skipið væri lokið en eftir væri
fínni vinna. Hann sagði að skipið
fengist á u.þ.b. hálfvirði nýs skips.
Verðbreytingar
v. gengislækkunarinnar
Morgunblaðið/Kristinn
I VON UM SUMAR OG SOL
Verðið Verðið hækkar
varkr. ernúkr. w*
Mullers
spaghetti 73,00 79,00 8,2%
Spaghetti-pakki
hækkar um 8,2%
ÝMSAR innfluttar matvörur hafa
nú hækkað vegna nýlegrar gengis-
fellingar. Sem dæmi má nefna Mull-
er spaghetti-pakka, sem áður kost-
aði 73 krónur, en kostar nú 79 krón-
ur. Það samsvarar hækkun um 8,2%.
Skattskil 3.445 fyrirtækja og einstaklinga skoðuð í átaki ríkisskattstjóra
Skattálagning 1.210 aðila
hækkuð um 280 milljónir
ÁTAK, sem ríkisskattstjóraembættið hóf á síðasta ári til eftirlits
með skattskilum fyrirtækja og einstaklinga, hefur leitt til þess að
álagning á alls 1.210 aðila hefur verið hækkuð um 282 milljónir
samtals. Gerð var úttekt á 1.445 fyrirtækjum með tilliti til tekju-
skatta og virðisaukaskatts og 2.000 einstaklingum með tilliti til
móttekins ökutækjastyrks. Alls voru því skattskil og framtöl hjá
3.445 aðilum athuguð. Tuttugu og fjórum málum hefur verið vísað
til meðferðar hjá skattrannsóknarstjóra.
Á síðasta ári voru öllum skatt- Tekjuskattsálagning vegna öku-
stjórum sendir listar með nöfnum tækjastyrks var hækkuð hjá 680
viðkomandi fyrirtækja og einstakl-
inga. Skoðun á þessum aðilum hófst
um áramót. í byijun júlí var staða
átaksins þannig að álagning hafði
vetið hækkuð hjá 530 fyrirtækjum
af 1.445. Tekjuskattsálagning var
hækkuð hjá 420 fyrirtækjum, sam-
tals um um 164 milljónir króna.
Meðalhækkun var 391.400 krónur.
Hjá 110 fyrirtækjum var álagning
virðisaukaskatts hækkuð, samtals
um tæpar 50 milljónir króna. Meðal-
hækkun á fyrirtæki var 450.900
krónur.
einstaklingum af þeim 2.000 sem
til skoðunar komu. Meðaltalshækk-
un var 100.500 krónur á mann.
Samtals hafði álagning verið
hækkuð um 282.400.000 krónur í
byijun mánaðarins. Hins vegar er
nokkur fjöldi mála enn á boðunar-
stigi, þ.e. hækkanir opinberra
gjalda hafa verið boðaðar gjaldend-
um en úrskurður ekki felldur. Var-
lega áætlað telur embætti ríkis-
skattstjóra að hækkun álagningar
upp á um 100 milljónir króna eigi
eftir að bætast við.
Fyrri hluti ársins hjá Iceland Seafood í Bandaríkjunum
Söluaukning um 200 millj.
Á FYRSTU fimm mánuðum þessa árs nam söluaukning hjá Iceland
Seafood í Bandaríkjunum rúmlega 200 miiyónum króna miðað við sama
tímabil í fyrra. Heildarsalan á þessu tímabili í fyrra nam 50,5 milljón-
um dollara en 53,6 milljónum í ár. Sæmundur Guðmundsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri íslenskra sjávarafurða hf., segir að vissulega séu
menn ánægðir með að salan sé vaxandi en vilji sjá meiri sölu þar sem
Bandarikjamarkaður sé nú hagstæðari en Evrópumarkaður.
Þegar skoðaðar eru tölur sem
liggja að baki söluaukningunni
kemur í ljós að sala á fiskréttum
hefur vaxið um ríflega 10%. Aukn-
ing á sölu flaka er nokkru meiri
eða um 20%. Sala á öðrum afurð-
um minnkaði nokkuð.
Hagstæð framleiðsla
Sæmundur segir að daufasti
sölutími ársins sé núna en menn
geri sér vonir um að salan taki
aftur kipp í haust. „Hvemig nán-
asta framtíð á þessum markaði
verður er svo aftur háð samkeppn-
isaðilum okkar, eins og til dæmis
þeim sem selja Alaska-ufsann svo
erfítt er að spá í það dæmi,“ seg-
ir Sæmundur. „Og svo á eftir að
sjá hvernig samdrátturinn í þorsk-
veiðiheimildum leikur okkur.“
í dag
Börn
Brúðubíllinn sýnir Bimm-Bamm 16
Sambandið______________________
Greiðslu KRON til SÍS rift með
dómi 19
Frjómagn
Minnsta ftjómagn síðustu þrjú ár
25
Leiðari
I þágu bamanna 22
Viðskipti/Atvinnulíf
► Gjaldeyrir innan seilingar -
Ferðaþjónustan í vamarbaráttu
- Verslunarráð kvartar undan
skattayfirvöldum - Ný tækni hjá
JCB - Kaffiverð hækkar
A dugskrá
► Senditíðni útvarpsstöðva -
Kanadískt sjónvarpsefni - Ljós-
myndarar sem eltast við þekkt
fólk - Fólk í fréttum - Myndbönd
- Bíóin í borginni
Þota lenti í Keflavík með dauðan hreyfíl
Morgunblaðið/Bjami
Óánægðir farþegar
CARL Friedman: Flugfélagið stóð sig illa. Rit Savage: Upplýs-
ingar um hreyfilbilunina komu seint.
„Taugatitringur
en ekki skelfing“
BOEING 747-SP breiðþota frá United Airlines lenti á Keflavíkur-
flugvelli kl. 12.37 í gærdag eftir að einn af fjórum hreyflum
vélarinnar stöðvaðist um 100 sjómílur suðsuðvestur af landinu.
Flugvélin var á leið frá London til Los Angeles með 191 far-
þega. Af þeim fóru 70 til New York og Baltimore með Flugleið-
um í gær. Ilinir gistu í Reykjavik í nótt og verður sennilega
send vél eftir þeim í dag. Oánægja var meðal farþega vegna
þess hve litlar upplýsingar þeim voru gefnar og þurftu þeir að
bíða í a.m.k. tvær klukkustundir í Leifsstöð án þess að vita um
framhaldið. Vélinni verður flogið til Bretlands eða Bandaríkj-
anna, þar sem gert verður við hana.
„Þegar drapst á hreyflinum
greip ekki beint um sig skelfing
heldur frekar taugatitringur. All-
ir voru frekar rólegir. Við vorum
nýbúin að fá matinn okkar þegar
við fundum fyrir hristingi og það
er líklega þá, sem drapst á hreyfl-
inum, en okkur var ekki sagt frá
því fyrr en seinna," sagði Rit
Savage frá Seattle í Bandaríkj-
unum, en hún var farþegi í flug-
vélinni.
Óánægja með skipulag
Hjá farþegum vélarinnar, sem
þurftu að gista hér á landi í nótt
og Morgunblaðið ræddi við í
gærkvöldi, kom fram óánægja
með það hvernig flugfélagið stóð
sig eftir lendingu. „Það var hald-
ið vel á öllum málum þangað til
við komum í flugstöðina en frá
því stóð flugfélagið sig mjög illa.
Þeir sendu alla farþegana skipu-
lagslaust inn í flugstöðina án
nokkurra skýringa. Við það gerði
mikill órói vart við sig hjá fólki,“
sagði Carl Friedman frá Los
Angeles.
Hann sagði að farþegamir
hefðu þurft að ganga um flug-
stöðina í að minnsta kosti tvo
klukkutíma án nokkurra upplýs-
inga og sumir hefðu ekki einu
sinni vitað að þeir ættu að gista
á hóteli fyrr en þeir voru komnir
í áætlunarbílinn á leið til Reykja-
víkur.