Morgunblaðið - 08.07.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993
7
Nýjung hjá Þyrluþjónustunni hf.
Flogið í þyrlu yfir
Reykjavík, út í Við-
ey og á Akranes
I SUMAR ætlar Þyrluþjónustan hf. að bjóða upp á útsýnisflug yfir
Reykjavík í einni af þyrlum sínum. Þyrlan er af gerðinni Bell Jetran-
ger og tekur fimm manns í sæti með flugmanni. Ætlunin er að lagt
verði upp í útsýnisflugið frá þyrlupalli, sem á að reisa við norðvestur-
enda Faxagarðs í Reykjavíkurhöfn, að sögn Hrafns Haukssonar, ann-
ars eigenda Þyrluþjónustunnar. Hrafn sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að útsýnisflugið myndi aðallega beinast að erlendum ferðamönnum,
sem kæmu með skemmtiferðaskipum til landsins. Sama fyrirtæki ætlar
að bjóða upp á flug út í Viðey og jafnvel upp á Akranes, ef sérstaklega
er um það beðið. Aætlað er að flugið hefjist strax eftir næstu helgi.
Hrafn sagði að flugið í sumar
myndi vera tilraunaflug en sagðist
vona að það gæti átt framtíð fyrir
sér. Kortið hér til hliðar sýnir þyrlu-
leiðina í öllum aðalatriðum en vind-
átt hverju sinni mun stjóma því ná-
kvæmlega hvaða leið verður flogin.
Flogið yfir opnum svæðum
„Við fljúgum eftir stóru götunum
og yfír opnum svæðum þannig að
'ef upp kemur mótorbilun eða eitt-
hvað slíkt getur maður nauðlent á
eyjunum," sagði Hrafn. Hann sagði
að þyrla svifi eðlilega til jarðar ef
vélin stoppaði og því væri hægt að
stýra henni til mjúkrar og ömggrar
lendingar í slíku tilfelli. Mikils mis-
skilnings gætti almennt um þetta
atriði. Hrafn lagði mikla áherslu á
að þyrla væri ekki glæfratæki heldur
öruggt tæki til að flúgja með.
Þyrlupallinn reisir Þyrluþjónustan
í samráði við Reykjavíkurhöfn, sem
mun útvega hluta af efninu í pallinn,
að sögn Hrafns, en svo ætlar fyrir-
tækið að léigja timbur. Byggingar-
tími hans áætlar Hrafn að sé um
fjórir dagar.
Út í Viðey og á Akranes
Fjórir munu komast með í hverja
ferð og sagði Hrafn að útsýnisflugið
myndi kosta 2.500 kr. á mann og
hver flugferð mundi vera í um 10
til 12 mínútur. Það virkaði kannski
stuttur tími en væri í raun og veru
frekar löng flugferð. Þyrluþjónustan
ætlar einnig að bjóða upp á ferðir út
í Viðey, sem munu kosta 1.000 kr.
á mann aðra leiðina, og svo sagði
Hrafn að hægt yrði að sérpanta flug
til og frá Akranesi enda væri þyrla
ekki nema 10 mínútur að fljúga á
milli Akraness og Reykjavíkur.
Hvildardeild á Landakotsspítala í júlímánuði
3,7 milljóna fjárveit-
ing til starfseminnar
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ veitti 3,7 milljónum króna í aukafjárveit-
ingu til rekstrar hvíldardeiidar, sem þrír hjúkrunarfræðingar reka í
júlímánuði á Landakotsspítala. Eins og kom fram í frétt blaðsins í gær
hafa hjúkrunarfræðingarnir nýtt lokun einnar deildar á spítaianum
og starfrækja þar í sumarfríum sinum hvildardeild fyrir aldraða.
Að sögn Guðmundar Árna Stef-
ánssonar, heilbrigðisráðherra, var
aukafjárveitingin veitt eftir að tillaga
um rekstur deildarinnar barst ráðu-
neytinu, og segist hann búast við að
slíkur rekstur sé úrræði, sem eigi
eftir að nota í framtíðinni.
Heilbrigðisráðherra segir þá þjón-
ustu, sem hvíldardeildin bjóði upp
á, mjög þarfa. „Ég hygg að þarna
sé verið að leysa mörg vandamál sem
uppi hafi verið og að þetta sé hið
besta mál,“ segir Guðmundur Árni.
Áður á St. Jósefsspítala
Hann segir að hvíldarinnlagnir
sem þessar hafi áður verið á St. Jó-
sefsspítala í Hafnarfirði um nokkurt
árabil, þó ekki hafl verið um slíkt
verktakaform að ræða. Hins vegar
hafí verktakastarf verið þekkt meðal
lækna hér á landi, en á meðal hjúkr-
unarfræðinga sé slíkur rekstur nýr
af nálinni.
Um framhald á rekstri deilda, eins
og hvíldardeildinni á Landakoti, seg-
ir Guðmundur Árni að hann eigi von
á að starf sem þetta verði aukið frem-
ur en minnkað, sérstaklega þegar
verið sé að ræða um deifdir, sem
annars væru lokaðar vegna sumar-
leyfa.
Innbrot og íkveikja
BROTIST var inn á skrifstofu veitingahússins Argentínu á Barónsstíg
í fyrrakvöld og reynt að kveikja þar í. Eigandi staðarins varð var við
eldinn áður en hann náði útbreiðslu og tókst að slökkva í honum.
Rannsóknarlögregla rikisins vinnur nú að rannsókn þessa máls.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu er skrifstofan á hæðinni fyrir
ofan veitingastaðinn og þar hafði
verið brotin upp hurð og síðan kveikt
í ruslafötu. Er komið var að hafði
eldurinn komist í tölvu og tölvuborð
en greiðlega gekk að slökkva hann.
Lögreglan segir að litlu hafi munað
að illa færi því á hæðinni fyrir ofan
er kolageymsla veitingahússins.
Loðnuaflinn yfír 14.000 tonn
ÞRÁTT fyrir treg aflabrögð á loðnumiðunum í fyrri-
nótt er loðnuaflinn nú kominn yfir 14.000 tonn. Þar
af hafa loðnubræðslur tekið á móti 12.046 tonnum en
auk þessa voru þrjú skip á leið í land með yfir 2.600
tonn í gærdag, það er Sunnuberg, Gígja og Börkur.
Samkvæmt upplýsingum frá Félagi íslenskra fiskimjöls-
framleiðenda hefur mest af aflanum hingað til farið til Síldar-
verksmiðja ríkisins á Raufarhöfn sem tekið hafa á móti 4.500
tonnum, þar á eftir kemur Hraðfrystihús Eskifjarðar með
2.735 tonn en þar hefur Hólmaborgin tvisvar lagt upp full-
fermi.
Viðskiptavinir
sparisjóðanna
hafa sterkan
Bakhjarl.
BAKHJARL
SPARISJÓÐANNA
6,85% RAUNÁVÖXTUN
FYRSTU 6 MÁNUÐI
ÁRSINS
Enn einu sinni hefur reynslan sýnt
að þeir sem vilja ávaxta sparifé á innlánsreikningum
geta borið mikið úr býtum hjá sparisjóðunum.
Hafðu þetta í huga
á næstu vikum og mánuðum.
íí
SPARISJÓÐIRNIR
fyrir þig og þína