Morgunblaðið - 08.07.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993
11
unn góð skil, bæði hvað varðar
söngtækni og túlkun.
Tónleikunum lauk Þórunn með
íslenskum söngverkum, fyrst
þremur eftir Jón Leifs, við vísur
úr Hávamálum, og þá þremur eft-
ir Karl 0. Runólfsson. Þórunn hef-
ur náð góðu valdi á sérkennilegu
tónmáli Jóns Leifs og söng öll lög-
in mjög vel en þó sérstaklega það
síðasta, Deyr fé, deyja frændur.
Sama má segja um lög Karls en
þar var Hrafninn mjög vel sung-
inn.
Þórunn er mjög góð söngkona,
ræður yfir góðri tækni og hefur
tónlistina vel á valdi sínu en mætti
aðeins mýkja tónmyndunina, sem
hefði komið að góðum notum í
lögunum eftir Debussy og Brahms.
Davíð K. Játvarðsson lék mjög vel
og samvinna hans og Þórunnar
var „músíkantísk" og sérlega vel
samstillt.
Fyrsti þj ó ð minj adagiirinn á sunnudaginn
ÁKVEÐIÐ hefur verið að næsti sunnudagur, 11. júlí, verði sérstak-
ur þjóðminjadagur. Er þetta í fyrsta sinn hér á landi sem at-
hygli almennings, ekki síst ferðafólks, er beint að söfnum og
menningarminjum um land allt með þessum hætti. Víða í Evrópu
eru þjóðminjadagur eða dagur menningararfleifðar orðnir árleg-
ur viðburður.
Ókeypis aðgangur verður að
Þjóðminjasafninu í Reykjavík, þar
sem m.a. er í gangi viðamikil af-
mælissýning, Nesstofusafni á Sel-
tjarnarnesi, Sjóminjasafninu í
Hafnarfirði, Keldum á Rangárvöll-
um, Víðimýrarkirkju í Skagafirði
og Laufásbæ í Eyjafirði. Þá verður
boðið upp á leiðsögn sérfræðings
við hinar sögufrægu fornleifar á
Stöng í Þjórsárdal, en þar standa
yfir fornleifarannsóknir sem varp-
að hafa nýju ljósi á byggð og
mannlíf í dalnum.
í fréttatilkynningu frá Þjóð-
minjasafninu segir: „Fólk sem er
á ferð um landið er hvatt til að
skoða nærliggjandi byggðasöfn og
huga að minjum og minjastöðum
á leið sinni. Þjóðminjasafnið hefur
gefíð út þjóðminjakort, aðgengi-
legan leiðarvísi um söfn og minja-
staði um land allt og fæst það á
afgreiðslustöðum olíufélaganna og
víðar. Þjóðminjakortið er einfaldað
skýringarkort sem heppilegt er að
nöta með ferðakortum Landmæl-
inga íslands.
íslenskar þjóðminjar eru ein
undirstaða sjálfstæðrar þjóðmenn-
ingar á íslandi. Á tímum þegar
Islendingar tengjast umheiminum
og öðrum þjóðum og menningar-
heimum miklu nánari böndum en
áður er ræktun og varðveisla ar-
fleifðar þjóðarinnar mikilvægari
en nokkru sinni fyrr.“
Ný vasasöngbók komin út
FÉLAG tónskálda og textahöfunda hefur gefið út nýja söngbók
sem ber heitið 250 íslenskir dægurlagatextar. I bókinni eru text-
ar eftir rúmlega 40 höfunda og spannar efnið meira en 30 ár í
íslenskri dægurlagasögu.
í fréttatilkynningu frá FTT seg-
ir: „Fæstir þeirra texta sem birtast
í bókinni hafa verið gefnir út á bók
áður, en einnig eru í bókinni upplýs-
ingar um hljóðritanir. Meðal annars
eru hér útgefnir textar sem Hljóm-
ar, Flowers og Dátar sungu á sínum
tíma, en einnig koma við sögu
Brimkló, Trúbrot, Stuðmenn, Spil-
verk þjóðanna, Ðe Lónlí Blú Bojs,
Mannakorn, Bubbi, Megas, Bjart-
mar, Ný dönsk, Sálin hans Jóns
míns og margir fleiri. Þessi útgáfa
ætti því að vera kærkomin viðbót
við allar þær söngbækur sem út
hafa komið á undanförnum árum.
250 íslenskir dægurlagatextar
koma út á tíu ára afmæli Félags
tónskálda og textahöfunda en áður
hefur félagið gefið út fimm nótna-
hefti með íslenskum lögum.“
Söngbókin er 286 bls. í vasa-
broti og kostar 1.425 kr. Um dreif-
ingu sér íslensk bókadreifing.
Ibúðtil sölu
2ja herb. íb. í 6 ára gömlu fjölbhúsi við Hverafold er
til sölu og laus strax. íb. er um 60 fm ásamt stæði í
bílahúsi. Ib. er á jarðh. með sér afgirtum garði fyrir
íbúðina. Húsnæðislán frá 1987 er áhv. kr. 1,7 millj.
Upplýsingar veitir Haukur Pétursson í síma 35070
eftir kl. 19.00.
Grandavegur
- þjónustuíbúð fyrir aldraða
Vorum að fá í sölu sérlega glæsilega og skemmtilega
3ja herb. tæplega 90 fm íbúð á 8. hæð í lyftuhúsi.
Sólstofa. Mikil sameign. Glæsilegt útsýni yfir borgina.
íbúðin er til afhendingar nú þegar. Eign í sérflokki.
EIGNASALAN, Ingólfsstræti 8,
símar 19540 og 19191.
STORUTSALA
GARÐHUSGQGN
20-40% AFSLÁTTUR
Gbandsoleil
ARREDA SPA2I APEKTI
Itölsk gæðavara
Seld með 20-40% afslætti
meðan birgðir endast.
Hvítt veðurþolið plast.
Mikið úrval - Frábært verð!
FESTIVAL
Kringlótt borð 90 cm breitt.
„ýb&áétrrkrtSTUT-
Verð nú kr. 2.674,-
CLUE
Armstóll. Setdýpt 58 cm.
__VeFé-áðorkFT8957~
Verð nú kr. 695,-
VIENNA
Armstóll. Setdýpt 58 cm.
__VeFé4étirkrr.u95T-
Verð nú kr. 876,-
Oll sumarblóm
á kr. 39,-
Risabúnt:
12 afskornar rósir á aðeins
kr. 895,-
blómoual
+-
Tjaldadagar í Skátabúðinni
\ B J ó 51
V/4
<8 'A/
■A _ ¥Q
« JL. *
Alla fimmtudaga í sumar sýnum við þær
49 tegundir af tjöldum sem fást í
Skátabúðinni. Þá færðu tjaldið sem þig vantar
með allt að 10% staðgreiðsluafslætti.
KsT
-3KAWK FKAMMK
Snorrabraut 60 • Sími 61 20 45