Morgunblaðið - 08.07.1993, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993
Morgunblaðið/Sverrir
Frumsýning- hjá Brúðubílnum
AMMA hengir upp þvottínn og trúðurinn Dúskur hjálpar tíl ásamt
Lilla og Helgu.
Brúðubíllinn sýn-
ir Bimm-Bamm
BRÚÐUBÍLLINN hefur frum-
sýnt leikritíð Bimm-Bamm og
er það önnur sýning leikhússins
í sumar.
í þessari sýningu er mikið að
gera hjá brúðunum. Amma er að
þvo stórþvott, þrífa og dusta fyrir
afmæli Garps. Að auki taka Dúsk-
ur trúður og Lilli, Drekinn, Krókó-
díllinn og margir fleiri þátt í gamn-
inu.
Leikritið var frumsýnt í Hallar-
garðinum í gær en næstu sýningar
verða í dag, 8. júlí, kl. 10 á gæslu-
vellinum við Fannafold og kl. 14
á vellinum við Amarbakka. Á
morgun, föstudaginn 9. júlí, er
sýning kl. 10 á gæsluvellinum við
Freyjugötu og kl. 14 við Bleikju-
kvísl. 12. júlí er sýning á Gullteigi
og Dunhaga, 13. júlí við Iðufell
og Fífusel, 14. júlí við Malarás og
Árbæjarsafn, 15. júlí Rauðalæk
og Frostaskjól, 16. júlí Safamýri
og Hvassaleiti, 19. júlí Suðurhóla
og Ljósheima, 20. júlí Tungusel
og Njálsgötu, 21. júlí Vesturberg
og Rofabæ, 22. júlí í Yrsufelli og
Stakkahlíð, 23. júlí í Gerðubergi
og Sæviðarsundi, 26. júlí við Ein-
arsnes v/Skerjafjörð og Tungu-
veg. Fyrri sýningin dag hvem í
þessari upptalningu hefst klukkan
CCL 600
AFBURÐA LASERPRENTARI
A3 og A4 pappír
600x600 punkta upplausn (dpi)
Intel 80960KB RISC örgjörvl
Intel 82961KD grafískur örgjörvi
Hárfínt duft (7 mlkrón)
Margföld minnisnýting
Postscript, PCL5 og HP-GL/2
35 TrueType leturgeröir •
13 HP-PCL5 leturgeröir
Appletalk-, raö- og hiiðtengi
Getur unniö á öllum tengjum
samtímis
SCSI tengi fyrir fontadisk
Sjálfvirk skynjun á Postscript og
PCL5
Tekur viö prentgögnum á meöan
prentaö er
Skaöar ekki Ozon lagiö
CQ>
NÝHERJI
'CalComp
A l oeWwed Company AUtaJ ikrtfl á undan
10 f.h., en sú síðari klukkan 14.
Síðustu sýningamar hefjast
klukkan 14 hinn 27. júlí við
Vesturgötu, 28. júlí við Austur-
bæjarskóla, 29. júlí við Barðavog
og 30. júlí er sýnt á Kambsvegi.
Nánari upplýsingar er að finna
í „Dagbók" Morgunblaðsins og hjá
íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
víkur. Allir em velkomnir á sýn-
ingar Brúðubílsins og er aðgangur
ókeypis.
Flaggað í Siglufirði á 90
ára afmæli síldarsöltunar
FYRSTA hafsíldin var söltuð í
Siglufirði 8. júlí 1903. Það voru
Norðmenn sem lönduðu farmin-
um og réðu fólk tíl síldarsöltun-
ar. Sú nýbreytni eða nýskipan
varð í launamálum að fólk fékk
vinnulaun sín borguð í pening-
um.
Síldarævintýri endurtekin
í dag em 90 ár liðin frá því að
fyrstu hafsíldinni sem veidd var á
djúpmiðum var skipað upp til sölt-
unar í Siglufírði. Björn Valdimars-
son bæjarstóri sagði Morgunblaðinu
að ekki yrði sérstök dagskrá í bæn-
um til að minnast tímamótanna
nákvæmlega á þessum degi. En
bæjarstjórinn átti samt ekki von á
öðm en að Siglfirðingar myndu
draga fánann að húni. Björn sagð-
ist einnig vænta þess að margir
bæjarbúar myndu leggja leið sína
að síldarplaninu við smábátahöfn-
ina til að anda að sér andrúmslofti
liðinna tíma og reyndar nýlegri síld-
arangan. Bæjarstjórinn minnti á að
um síðustu helgi hefði síld verið
söltuð og síldarball verið haldið í
tengslum við norrænnt vinabæjar-
mót. Björn Valdimarsson bæjar-
stjóri vildi sérstaklega vekja at-
hygli á því að næstu Verslunar-
mannahelgi myndu Siglfírðingar
minnast og halda síldarævintýri í
þriðja sinn. Hann sagði að þá yrðu
a.m.k. 5 tonn af síld söltuð.
Síldarspekúlantinn
ÓMAR Hauksson í hlutverki síldarspekúlantsins í síldarævintýri, en
hversdags er hann bókari.
Útborgað í peningum
Þótt ekki verði sérstök afmælis-
dagskrá verður flaggað bæði ís-
lenskum og norskum fána á síldar-
plani Siglfírðinga, því það vom
Norðmenn sem höfðu forstöðu um
fyrstu síldarsöltunina 8. júlí 1903.
Þá kom til Siglufjarðar norskt skip,
Marsley, skipstjóri Ole Myrset. Það
hafði meðferðis tunnur, salt og
60-70 tunnur af síld sem fengist
höfðu í reknet. Síldinni var skipað
á land og hófst söltun strax og
gekk hún vel. Sú nýbreytni eða
nýjung gerðist að lokinni þessari
söltun, að fólkið fékk vinnulaun sín
borguð í peningum. Sú útborgun
peningalauna _var um kl. 1. aðfara-
nótt 9. júlí. Áður höfðu launavið-
skipti farið fram með millifærslum
í verslun Gránufélagsins; innleggi
og úttekt. Verslunin bauð reyndar
fram aðstoð eða milligöngu sína við
þessa síldarverkun en hinir erlendu
atvinnurekendur höfnuðu þeim við-
skiptaháttum.
Mat framkvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
Um 4% raunvaxtalækkun
í nvju útboði á ríkisvíxlum
UM 4% lækkun á raunvöxtum kom fram I útboði á 3 mán-
aða ríkisvíxlum í gær að mati framkvæmdastjóra Þjónustu-
miðstöðvar ríkisverðbréfa. Er þá miðað við að árshraði
verðbólgu verði allt að 6% á næstu þremur mánuðum þeg-
ar áhrif gengisfellingarinnar í júnílok koma fram að fullu.
í útboðinu í gær var tekið tilboð-
um í 3.021 milljón króna frá 7
aðilum. Þar af tilboði í 1.300 millj-
ónir króna frá Seðlabanka íslands
á meðalverði samþykktra tilboða.
Alls bárust 33 gild tilboð í víxla
að íjárhæð 4.316 milljónir en ríkið
skuldbatt sig til að taka tilboðum
á bilinu 500 til 3.500 milljónir.
Meðalávöxtun samþykktra tilboða
var 9,49%. Lægsta ávöxtun var
9,2% en hæsta 9,55%.
Veruleg vaxtalækkun
Morgunblaðið/Sverrir
Augnlæknar þinga um gláku
JVJog
ístak áttu
Frá alþjóðlegu þingi augnlækna um gláku, sem haldið er í Háskólabiói
þessa dagana.
lægsta boð
250 læknar á alþjóð-
legu þingi um gláku
ÞESSA dagana er haldið hér á landi alþjóðlegt þing augnlækna og
vísindamanna á sviði gláku. Um 250 læknar, aðallega frá Norður-Amer-
íku og Evrópu, eru á þinginu, en það er haldið á vegum bandaríska
glákufélagsins og evrópska glákufélagsins. Þetta er í fyrsta skipti sem
þessi félög halda sameiginglega slíkt þing.
Á þinginu verða m.a. nýjustu læknis, sem tekur þátt í þinginu, er
rannsóknir á gláku kynntar og fjallað
um nýjar og bættar aðferðir við að
greina gláku á frumstigi. Þá verður
einnig fjallað um skurðaðgerðir við
gláku, sérstaklega leysiaðgerðir, sem
öpna nýjar leiðir til bættrar meðferð-
ar á gláku.
Að sögn Einars Stefánssonar augn-
ekki almennilega vitað hvað orsakar
gláku, en ef ekkert er að gert getur
sjúkdómurinn valdið blindu. Hins veg-
ar segir Einar að bæði með Iyfjameð-
ferð og leysiaðgerðum sé í flestum
tilfellum hægt að koma í veg fyrir
blindu. Hér á landi þjást um 2-3 þús-
und manns af gláku.
JVJ og ístak áttu lægsta tilboð
i verk við mislæg gatnamót
Reykjanesbrautar og Asbrautar
I Hafnarfirði en ekki Hagvirki-
Klettur, eins og ranghermt var
í blaðinu í gær.
Tilboð JVJ og ístaks hljóðaði upp
á kr. 95.039.410, sem er 85% af
kostnaðaráætlun verksins, sem var
kr. 112.029.840. Hagvirki-Klettur
var með næst lægsta tilboðið, kr.
96.900.000. Suðurverk bauð kr.
97.850.280, Uppfylling og Bygg-
ingafélagið Kambur buðu kr.
106.834.039, Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða bauð kr.
107.700.000, Loftorka bauð kr.
109.964.800 og Klæðning bauð kr.
123.350.000.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þeim mistökum sem urðu við
vinnslu þessarar fréttar.
í síðasta mánuði var meðal-
ávöxtun í útboðum á ríkisvíxlum
8,7% svo að í útboðinu í gær kom
fram 0,8% hækkun. En Pétur
Kristinsson, framkvæmdastjóri
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa,
sagði við Morgunblaðið, að í raun
hefði komið fram veruleg raun-
vaxtalækkun í útboðinu í gær ef
miðað væri við verðbólguforsendur.
Útboðin í júní hefðu miðast við um
1% verðbólguhraða, en nú væri
útlit fyrir allt að 6% verðbólguhraða
næstu þtjá mánuði vegna verð-
lagsáhrifa gengisfellingarinar. Því
væri raunvaxtalækkunin um það
bil 4%.
„Þetta er breyting frá því sem
oftast hefur orðið, að nafnvextir
elta ekki uppi verðlagsbreytingar
vegna gengisfellinga," sagði Pétur
en eftir gengisfellingu fyrir síðustu
áramót hækkaði ávöxtun ríkisvíxla
verulega í kjölfarið. Pétur sagði
ástæðuna fyrir því að það gerðist
ekki nú væntanlega þá að fjár-
magnsmarkaðurinn væri skilvirkari
en áður og tilboðin hefðu verið
mjög ábyrg og raunsæ.
Þegar Pétur var spurður hvort
hann teldi að útboðið í gær myndi
hafa áhrif á vaxtaákvarðanir banka
og sparisjóða á næstunni svaraði
hann að sér þætti það mjög trú-
legt. Búast hefði mátt við að ijár-
magnsmarkaðurinn horfði til þessa
útboðs og tæki síðan mið af því.