Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993 29 Minning Viktoría Kristín Guð mundsdóttir, Björk, Sandvíkurhreppi Fædd 24. desember 1915 Dáin 26. júní 1993 Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama, en orðstír deyr aldregi, hveim sér góðan getur. (Hávamál) Þegar ég minnist tengdamóður minnar, þeirra mætu konu Kristínar í Björk, kemur þetta forna erindi upp í huga mér, það á svo einstak- lega vel við. jafnframt kemur það upp í hugann að hinn 24. júní sl., er við fjölskyldan fyrir norðan kvöddum hana í síðasta sinn, voru liðin nákvæmlega 14 ár frá því ég sá hana fyrst á heimili hennar í Björk. Þó að viðdvölin væri ekki löng í það skiptið varð mér strax ljóst að þar fór mikil mannkostakona og myndarleg, bæði í sjón og raun. Það, ásamt fleiri kostum minnar góðu tengdamóður, átti eftir að stað- festast með nánari kynnum. Kristín, eins og hún var alltaf kölluð, var fædd í Vorsabæjarhjá- leigu í Gaulveijabæjarhreppi hinn 24. desember 1915, næstyngst sex systkina. Foreldrar hennar voru Guðmundur ívarsson, bóndi þar, og kona hans, Guðrún Magnúsdóttir. Ung að árum missti hún báða for- eldra sína, föður sinn er hún var tíu ára og móður sína tvítug. Þau systk- inin tóku við búi að foreldrum sínum látnum og sýndu þá sem oftar hver dugnaður og manndómur í þeim bjó, þannig að af var látið. Erfiðar aðstæður í æsku komu í veg fyrir langa skólagöngu, en eftir að skyldunámi lauk stundaði Kristín nám við Hverabakkaskóla hjá Árnýju Filippusdóttur. Hún þurfti að hætta námi er móðir hennar lést áður en skólaárinu lauk. Kom sá tími oft til tals á milli okkar er ég, handa- vinnukennarinn, forvitnaðist um fal- legan útsaum og vefnað frá þessum tíma, sem enn prýðir heimilið í Björk. Fatasaumur var þó sá þáttur hann- yrðanáms er henni var notadrýgst- ur, enda ekki mikill tími aflögu til tómstunda frá umönnun stórrar fjöl- skyjdu. Árið 1940 fluttist Kristín að Björk í Sandvíkurhreppi er hún giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Jóni Gíslasyni. Foreldrar hans bjuggu hjá þeim allt til dauðadags og einnig bjuggu um tíma í Björk Ólafur bróð- ir Jóns og Guðbjörg, eiginkona hans, og síðar hún ein ásamt yngstu börn- um þeirra eftir að hún var orðin ekkja. Ég hef oft undrast hvernig gamla húsið í Björk rúmaði allt þetta fólk, en víst er að þá voru gerðar aðrar kröfur um lífsins gæði en í dag. Og ekki hafa þrengsli og lítil þægindi komið í veg fyrir góð sam- skipti fólksins á bænum ef marka má ræktarsemi barna Ólafs við heimilið í Björk. Börn og unglingar voru í sveit í Björk á hverju sumri, nokkur þeirra sumar eftir sumar, allt upp í tíu sumur. Fyrir barnabörn- in var ætíð nóg hús- og hjartarými hjá ömmu og afa, um lengri eða skemmri tíma, jafnt að vetri sem sumri, fyrst í gamla húsinu og síðar í nýja húsinu sem flutt var í 1978. Þau Kristín og Jón eignuðust sjö börn, sem öll eru á lífi, bamabörnin eru orðin 16 og barnabarnabörnin ljögur. Vinnudagur Kristínar mun oft hafa verið ærið langur því að hún gekk til allra starfa, úti sem inni, jafnframt því að annast bömin sín sjö af umhyggju einstakrar móð- ur. Hún var hlýr persónuleiki sem jafnt menn sem málleysingjar hænd- ust að. Ég hygg að allir þeir sem kynntust henni hafi séð að í henni sannaðist máltækiði „sælla er að gefa en þiggja“. Hún gekk hæglát og traust til allra verka af mikilli ósérhlífni. Ég minnist þess fyrir nokkrum ámm að mér fannst hún bera sig eitthvað einkennilega að við upp- vaskið svo að ég spurði hana hvort hún hefði meitt sig. Henni fannst ekki sérstaklega orð á því gerandi, en viðurkenndi þó að hún hefði dott- ið við útiverk. Ekki vildi hún láta mig sjá um uppvaskið, en féllst þó á að ég þvægi en hún þurrkaði. Hún reyndist handleggsbrotin. Alltaf gat hún fundið verkefni til að stytta barnabörnunum stundir og aldrei skoraðist hún undan að lesa fyrir þau á kvöldin þrátt fyrir langan vinnudag, það var alveg sjálfsagt. í hugum minna barna var það sjálf- sagður hlutur að fara til ömmu og afa í Björk í hveiju fríi. Þar sakna þau nú vinar í stað. Heljar reip kómu harðlega sveigð að síðum mér, slíta ég vilda, en seig þau vóru, létt er laus að fara. (Úr Sólarljóðum) Kristín greindist með krabbamein fyrir tveimur árum. Hún gekk i gegnum erfiða meðferð sem bar þann árangur að fjölskyldan var orðin vongóð um að tekist hefði að vinna bug á sjúkdómnum. En því miður reyndist um svikalogn að ræða, meinið tók sig upp og hafði að þessu sinni yfirhöndina. Ékki hafði hún mörg orð um það þó að heilsan væri orðin slæm upp á síðkastið. Að kvarta það var ekki til í hennar orðaforða. Ég spurði hana um páskana hvernig henni liði. Hún svaraði: „Ja, svona...“ og þá vissi ég að henni leið alls ekki nógu vel. Enda lagðist hún á sjúkrahús fljótlega eftir hvítasunnu og átti ekki afturkvæmt. Þó að aldur hennar væri orðinn allhár var kærleiksbrunnur hennar langt frá því þurrausinn og hún hafði af miklu að miðla. Hugsun hennar snerist alla tíð um velferð sinna nánustu og annars samferða- fólks. Það var lærdómsríkt að kynn- ast henni og ég er þakklát fýrir hveija þá stund sem börnin mín fengu að njóta samvista við hana. Ferð þín er hafin. Fjarlægjast heimatún. Nú fylgir þú vötnum sem falla til nýrra staða og sjónhringar nýir sindra þér fyrr augum. (Hannes Pétursson) Tengdamóðir mín hefur lagt upp í sína hinstu för. Það er skarð fyrir skildi í Björk og missir aldraðs eigin- manns mikill. En Kristín í Björk skildi eftir flekklausar minningar okkur til huggunar. Megi hún hvíla í friði. Anna Kristín Gunnarsdóttir. Hinn 26. júní lést í Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi Viktoría Krist- ín Guðmundsdóttir húsfreyja í Björk í Sandvíkurhreppi. Hún verður í dag borin til grafar frá Selfosskirkju og vil ég því minnast hennar með nokkrum orðum. Kristín, eins og hún var oftast nefnd, fæddist í Vorsabæjarhjáleigu í Gaulveijabæjarhreppi 24. desem- ber 1915. Voru foreldrar hennar' hjónin Guðmundur bóndi í Vorsabæj- arhjáleigu ívarsson bónda þar Guð- mundssonar þar Gestssonar í Vorsabæ Guðnasonar frá Gerðum í Landeyjum og Guðrún Magnúsdóttir bónda í Selparti Friðrikssonar bónda í Forsæti og Selparti Bergssonar bónda í Hólum í Stokkseyrarhreppi Jónssonar eldra Ingimundarsonar Bergssonar í Brattsholti Sturlaugs- sonar. Var Kristín sjöundi liður frá þeim merka ættföður, Bergi hrepp- stjóra sem Bergsættin er kennd við. Kristín ólst upp í Vorsabæjarhjá- leigu í rjörmiklum og fjölmennum systkinahópi. Systkini hennar voru þau Guðmundur bóndi í Vorsabæjar- hjáleigu, Lovísa húsfreyja í Vest- mannaeyjum, ívar sem síðastur bjó í Saurbæ í Villingaholtshreppi, Guð- mundur Elías járnsmiður á Selfossi, Stefán Ágúst verkamaður í Vest- mannaeyjum og Magnús landpóstur á Selfossi. Þetta voru atorkumikil systkini, hvar sem þau kusu sér starfssvið og svo hjálpsöm og verk- lagin að mjög margir nutu góðs af. Hinn 19. október 1940 giftist Kristín Jóni bónda Gíslasyni í Björk í Sandvíkurhreppi og frá því ári hefur hún verið þar heimilisföst, eða í 53 ár. Þar hafði Jón tekið við búi af foreldrum sínum, Gísla Lafranz- syni og Sigríði Vigfúsdóttur, árið 1934. Bjó Jón fyrst á móti Ólafi bróður sínum, en hann fluttist svo að Þórðarkoti í Flóagaflshverfi árið 1937. Bjó þá Jón næstu ár með til- styrk foreldra sinna og systkina en árið 1940 hófu þau Kristín þar bú- skap sem staðið hefur til þessa. Vel fórst Kristínu við tengdafor- eldra sína sem dóu hjá henni í hárri elli og mágafólk hennar átti sér heimili í Björk svo iengi sem það kaus. Þetta varð mjög snurðulaus yfirtaka húsmóðurvaldanna á fjöl- mennu sveitaheimili og þá kom það eðli Kristínar fram að ganga fum- laust og hljóðlátt fram í hveiju verki. Sjö börn eignuðust þau Jón á næstu tólf árum, en þau eru: Guðrún, f. 1941, húsfreyja á Selfossi, bjó áður á Leirubakka í Landsveit; Sigríður, f. 1942, búsett heima í Björk; Ólaf- ía, f. 1943, húsfreyja í Reykjavík; Guðmundur, f. 1944, vélstjóri og trésmiður og nú bóndi á móti föður sínum í Björk; Gréta, f. 1946, hús- freyja á Selfossi; Ragnheiður, f. 1950, húsfreyja á Selfossi; og Sig- urður, f. 1952, íslenskukennari við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki. Þessi stóri barnahópur var það sem Kristín eignaðist best á lífsleið- inni og mat mest. Þótt systkinin færu til náms var þeim heimilið mjög kært og alltaf fannst mér mannmargt í Björk þótt þar væru nú undir það síðasta ekki til heimil- is aðrir en gömlu hjónin og þau systkini, Sigríður og Guðmundur. Kristín tók barnabörnin að sér og studdi þau sem bjuggu lengra að til skólagöngu á Selfossi með dvöl þar á heimilinu. Að koma sjö börnum til manns var mikið átak og jörðin Björk er ekki stór að flatarmáli. En Björkin hefur ávallt farið vel með sína og þannig var um búskap þeirra Jóns og Kristínar. Þau liðu aldrei skort, fylgdust vel með í öllum bú- skaparframförum, reistu öll hús sín að nýju. Það var gert á löngum tíma, lítt stofnað til skulda en að lokum sátu þau hjónin í fallegu einlyftu steinhúsi og nutu þar ellidaganna. Kristín Guðmundsdóttir var kona há vexti og þrekin, bar sig vel, hafði prúða framkomu. Ókunnugt fólk hefði talið hana fámála. Það var hún kannski á mannamótum. En heima í eldhúsi, með fjölskyldunni og nán- um vinum beinlínis geislaði af henni. Hún gat verið svo hnyttin í orðalagi að maður mundi það lengi. Ekki var hún hvefsin eða áreitin, lagði gott til mála en ef hún þurfti að finna að einhveiju brá fyrir léttri kímni sem hitti í mark án þess að særa. Hún var því sterkur persónuleiki og átti sterkan og tryggan vinahóp. Þar held ég að henni hafi þótt bestur fengur í spilaklúbbi sem hún hélt uppi hér í sveitinni með sjö öðrum konum í hin mörg síðustu ár. Henni var unun að blanda geði við þessar vinkonur sínar og tók höfðinglega á móti þeim. Reyndar var alltaf tilbúið veisluborð í eldhúsi hennar og ekki einungis þakka ég gott meðlæti held- ur öll þau góðu ráð sem hún veitti mér og öðrum á lífsleiðinni. Kristín í Björk var sterkur per- sónuleiki og sá styrkur yfirgaf hana ekki hin síðustu ,ár er hún barðist við krabbamein. Það yfirvann hún lengi með uppskurðum og lyfjum, en mest þó með viljaþreki sínu. Ég man hana glaða og káta fyrir örfáum vikum er ég heimsótti þau Jón. En skjótt getur dauðinn höggvið og það gerði hann hér. En eftir er skilin minningin um afbragðs konu sem við sveitungar minnumst með hlý- hug og virðingu. Eiginmanni hennar og börnum sendi ég mínar bestu samúðarkveðjur. Páll Lýðsson. í dag verður borin til grafar amma okkar V. Kristín Guðmundsdóttir er lést aðfaranótt laugardagsins 26. júní. Amma tilheyrði þeirri kynslóð sem fæddist og bjó í sveit allt sitt líf. í augum okkar barnabamanna var hún hin fullkomna amma með fal- legu gráu flétturnar og hjarta úr gulli. Alltaf var hægt að leita til ömmu og eru þær ófáar stundirnar sem við barnabörnin höfum dvalist hjá ömmu og afa í Björk, í lengri eða skemmri tíma. Ömmu var umhugað að við vær- um ekki svöng og voru þá kjötboll- ur, flatkökur og kleinur það vinsæl- asta. Nánast aldrei lánaðist að fá ömmu til að setjast við matborðið með okkur þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir. Hugkvæmdist þá einum hug- vitsmanninum í fjölskyldunni að útbúa fyrir hana sérstaklega háan koll þannig að hún gæti fylgst með borðhaldinu samtímis því að hræra í pottunum. Amma okkar sem var fædd á aðfangadag bar alla tíð með sér frið og hlýju jólahátíðarinnar og fengum við barnabörnin sextán að njóta þess í ríkum mæli. Söknuður okkar allra er mikill, en minningin um hana og það sem hún hefur gefið okkur er og verður dýrmætt veganesti um ókomna framtíð. Guð blessi ömmu. Barnabörn og barna- barnabörn. Erfidrylikjur Glæsileg Iviiíii- hlaðborð fallegir salir og mjög góð þjónusta. Upplýsingar í síma 2 23 22 FLUGLEIÐIR flfif E1 IÐfTlIIJIi T FÉLAGSLÍF FERÐAFELAG ÍSLANDS Helgarferðir 9.-11. júlí Brottför föstud. kl. 20.00: 1. Þórsmörk - Langidalur. Gönguferöir við allra hœfi. Góð gisting í Skagfjörösskála. Munið ódýra sumardvöl. Ferðir einnig á sunnudögum og mið- vikudögum kl. 08 að morgni. 2. Fimmvörðuháls - Skógar. Gist í Þórsmörk. Gengið yfir hálsinn á laugardeginum (8-9 klst. ganga). Seljavallalaug heimsótt. 3. Landmannalaugar. Góð gist- ing f sæluhúsinu. Gönguferðir. Brottför laugard. kl. 08.00: Siglt, gengið og hjólað á Kjalarsvæðinu. 1. Hvítárvatn - Karlsdráttur. Stórkostleg sigling á Hvítár- vatni í Karlsdrátt. Gönguferðir. Gist ( Hvítárnesskála. 2. Ný fjallahjólaferð: Hvítár- vatn - Hagavatn - Geysir. Ferð í samvinnu við (slenska fjalla- hjólaklúbbinn. Gist í Hagavatns- skála. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni, Mörkinni 6, sími 682533. Laugardagur 10. júlf kl. 08: Gönguferð á Heklu. Gengið frá Skjólkvium. 7-8 klst. ganga. Verð 2.100 kr. Miðsumarferð á hálendið 17.-25. júlí: Ekið austur með suðurströnd- inni, gist f Stafafelli, næst á Sma ouglýsingar fíímhjQlp Hallormsstað og siðan liggur leiðin inn á hálendið, s.s Snæ- fell, Kverkfjöll, Öskju, Hvanna- lindir, Herðubreiðarlindir. Til baka verður ekið um Sprengi- sand. Einstök ferð um stórbrotið landslag - hálendiö norðan Vatnajökuls allt ( einni ferð. Ferðafélag Islands. Orð lífsins, Grensásvegi8 Vakningarsamkoma í kvöld kl. 20.30. Mikill söngur og beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir! í kvöld kl. 20.309 er almenn sam- koma í Þrfbúðum, Hverfisgötu 42. Mikill og fjölbreyttur söngur. Samhjálparvinir vitna um reynslu sína af trú. Kaffi að lok- inni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. VEGURINN Kristiö samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Lækningasamkoma kl. 20.00 í kvöld á Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Kennt verður um guðlega lækn- ingu og beðið fyrir sjúkum. „en þeir sem vona á Drottinn fá nýjan kraft,... Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.“ UTIVIST Hallveinarstín 1 • simi 614;3p Kvöldferð fimmtudag 8. júlf: Kl. 20 Undirhlíöar. Létt og skemmtileg ganga fyrir alla fjöl- skylduna á Bláfjallasvæðinu. Verð kr. 1.000/1.100. Frítt fyrir börn 15 ára og yngri. Miðar við rútu. Helgarferðir 9.-11. júlí: Kl. 18.00 jökulheimar. Kl. 20.00 Básar við Þórsmörk. Kl. 20.00 Básar - Fimmvörðu- háls. Laugardag 10. júlí kl. 8.00 Fimmvörðuháls. Ath. að sjálfboðaliða vantar til starfa við skálavörslu í Fimm- vörðuskála í júlí. Áhugasamir hafi samband við skrifstofu Útivistar. Útivist. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.