Morgunblaðið - 10.07.1993, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.07.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993 25 Reglugerð sett um ósoneyðandi efni Bann við innfhitniiigi og sölu nýrra efna UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur sett reglugerð um varnir gegn mengun af völdum klórflúorkolefna (CFC) og halóna. Markmið reglugerðarinnar er að draga úr losun þessara efna út í umhverfið og vernda ósonlagið í heiðhvolfinu. Reglugerðin tekur gildi um næstu mánaðamót. Með reglugerðinni er bannaður innflutningur og sala nýrra CFC- efna og halóna. Þó verður heimil- aður tímabundinn innflutningur og sala efnanna til tiltekinnar notkunar. Bann við innflutningi og sölu nær ekki til endurnýttra og endurunninna efna. Ósoneyðandi Eftir því sem segir í tilkynningu ráðuneytisins eru klórflúorkolefni og halónar þau ósoneyðandi efni sem mest hafa verið notuð hér- lendis. Klórflúorkolefni eru m.a. notuð í kælikerfi og varmadælur, við framleiðslu á einangrunarfroðu og sem hreinsimiðlar í efnalaug- um. Halónar hafa fyrst og fremst verið notaðir í slökkvibúnað. Heimilit verður að flytja inn og selja klórflúorkolefni til fram- leiðslu á harðfroðueinangrun til 1. janúar 1994 og til notkunar í fatahreinsun, svo og í kælikerfi og varmadælur til 1. janúar 1995. Innflutningur og sala á lyfjum sem innihalda CFC-efni sem drifefni er heimil til 1. janúar 1996. Inn- flutningur og sala á halónum verð- KORTABÓK ROADATLAS 1:500 000 l-A NDMÆUNGAR ÍSLANDS ur óheimil frá og með næstu ára- mótum. Þó er gert ráð fyrir að þegar sérstakar ástæður mæla með því sé hægt að veita undan- þágu frá banninu. Samráð Við undirbúning reglugerðar- innar var haft samráð við fulltrúa atvinnulífsins og hagsmunaaðila á þeim sviðum þar sem fýrrnefnd bannefni eru notuð. Talsvert magn af klórflúorkolefnum og halónum er í umferð í dag og er líklegt að notkun endurunninna efna verði talsverð eftir að bannað hefur ver- ið að nota ný efni. Það mun lengja þann tíma sem íslenskur iðnaður hefur til að laga starfsemi sína að nýjum efnum og/eða breyttri tækni. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Borðað í verklok Verkinu var formlega lokið með grillveislu á lóð Landsbankaútibúsins á Stokkseyri. Tóku til fyrir Landsbankann Selfossi. UNGIR knattspyrnumenn og stuðningsfólk þeirra úr for- eldrahópi héldu upp á lok sam- starfsverkefnis með útibúi Landsbankans á Stokkseyri 2. júlí. Verkefnið var fólgið í til- tekt og hreinsun á Ióð bankans. Haldin var grillveisla til að ljúka verkinu formlega og síðan var kveiktur bálköstur. Árni Valdi- marsson afgreiðslustjóri sagði íþróttafélagið hafa tekið verkið að sér fyrir ákveðna þóknun og lýsti ánægju sinni með það að geta lagt félaginu lið og fengið um leið til leiðar komið góðu verki. Umhverfí bankans væri nú staðarprýði. - Sig. Jóns. Formaður stjómar Hafnasambands segir lækkun gjalda í Y estmannaeyj um koma á óvartf Skip munu sigla á stórar vöru- hafnir sem niðurgreiða gjöld STURLA Böðvarsson, formaður stjórnar Hafnarsambands sveit- arfélaga, segir fréttir af lækkun afla- og vörugjalda af sjávaraf- urðum í Vestmannaeyjum um 10% koma á óvart. Hann segir það m.a. vegna þess að stjórn Hafnarsambands sveitarfélaga hafði beint þeim tilmælum til hafnarstjórna að bíða með lækkan- ir uns stjórn sambandsins hefði fjallað um skýrslu sem liggur fyrir um afkomu hafnanna. Á mánudag verður fundur í stjórn Hafnarsambandsins þar sem fjallað verður um þetta og niður- staða Eyjamanna verður tekin til afgreiðslu. Ný korta- bókaf * Islandi LANDMÆLINGAR Islands hafa gefið út kortabók af ís- landi en hún kom síðast út árið 1987. Bókin er gorma- bundin í handhægu broti og er meginefni hennar kort í mælikvarðanum 1:500.000, auk sérkorta af Þingvöllum, Skaftafelli, Mývatni, Gullfossi og Geysi. Kortabókin veitir upplýsingar um þjóðvegakerfíð, veganúmer, vegalengdir og gerð slitlags, auk bestu fáanlegu heimilda um slóða á hálendi landsins. í Kortabókinni, sem er 80 bls., er að fínna upplýsingar fyrir ferða- menn t.d. um þjónustu á þéttbýlis- stöðum, söfn, vegalengdir og neyðarsíma auk leiðbeininga frá Náttúrverndarráði, Umferðrráði og Almannavömum er varða sam- skipti manns og náttúru. Sturla Böðvarsson sagði í við- tali við Morgunblaðið að fulltrúar LIÚ og Samtaka fískvinnslustöðva hefðu verið boðaðir til fundarins til að gera þeim grein fyrir stöðu málsins. En tildrög lækkunarinnar eru m.a. sú að fram hafði komið beiðni frá Landsambandi íslenskra útvegsmanna og Samtökum físk- vinnslustöðva til einstakra hafnar- stjóma að lækka aflagjöld um 50% og vörugjöld um 25%. Orfáar hafnir með góða afkomu Sturla sagði örfáar hafnir hafa verið með góða afkomu, t.d. í Reykjavík. „Vandinn sem fylgir því að lækka gjöldin mjög mikið er að það mun upphefjast mikil samkeppni milli byggðarlaga sem mun leiða til þess að flotinn mun sigla til stórra vöruhafna sem hafa efni á að gréiða niður hafnargjöld- in.“ Hann sagði ljóst að sumar hafn- ir gætu ekki lækkað gjöld um 10% nema bæjarsjóðir hlypu undir bagga vegna þess að reksturinn stæði ekki undir sér þegar litið væri til fjármagnskostnaðar og afborgana lána. „Stjórn hafnarsambandsins hef- ur því varað við því, nema að vel athuguðu máli og á ákveðnum forsendum, að hafnir lækki gjald- skrána. Ef þær lækka er ljóst að jafnframt verður að koma til frest- un á afborgunum af lánum t.d. í Hafnarbótasjóð og aðrar lána- stofnanir sem hafnir hafa tekið lán hjá til að fjármagna framkvæmd- ir.“ Ríkisframlag ekki aukið á móti Síðastliðinn miðvikudag birtist í Morgunblaðinu frétt um lækkun- ina í Vestmannaeyjum og segir Sturla að í þeirri frétt komi fram að það sé ekki hætta á því að fram- lög ríkisins til hafna verði skert þótt gjaldskrá sé lækkuð. Hann segir hins vegar að ekkert tryggi það í bráðabirgðalögunum sem sett voru. „Það hlýtur að liggja í augum uppi að ekki er líklegt að framlög ríkisins munu aukast til hafna sem telja sig geta lækkað gjaldskrá." Mokstur á hálendisveg- um mun meiri en áður SPRENGISANDUR var opnaður fyrir umferð í gærmorgun og hefur sjaldan þurft að moka jafn mikið á þeirri leið eins og í ár. Magnús Iljartarson hjá Vegaeftirlitinu segir að mikill þrýstingur sé frá ferða- mannaþjónustunni á Vegagerðina að opna leiðir því oft væri búið væri að selja ferðamönnum ferðir yfir hálendisvegi fyrir áætlaða opnunardaga. Hjá ferðaskrifstofum, sem selja ferðir um hálendið, kom fram í sam- tölum við Morgunblaðið, að mestu máli hafi skipt að Sprengisandur opnaði. Magnús segir að alltaf hafi eitthvað þurft að moka á leiðum eins og yfir Kjöl og Sprengisand en núna hafi þurft að gera mikið meira af því en áður. Magnús segir að Fjallabaksleiðir fari að opna, það sé áætlað um helgina en geti dreg- ist eitthvað fram í næstu viku. Miðaverð lægra í forsölu Forsala aðgöngumiða á Bind- indismótið í Galtalækjarskógi hefst 10. júlí og stendur til 26. júlí. Aðgöngumiði fyrir fullorðinn kostar 4.800 kr. og 4.300 kr. fyr- ir unglinga 13, 14 og 15 ára. Eft- ir 26. júlí hækkar miðaverðið um 500 krónur og verður því 5.300 fyrir fullorðna og 4.800 fyrir ungl- inga. Börn, 12 ára og yngri, frá ókeypis inn. Forsala aðgöngumiða verður í Seglagerðinni Ægi, Eyja- slóð 7, Reykjavík, frá og með 10. júlí og á nokkrum stöðum á suð- vesturhorni landsins síðar í júlí. Samtök tónskálda á Norðurlöndum Magnús Kjartansson útnefndur forseti MAGNÚS Kjartansson hljómlistarmaður og formaður STEF hefur verið útnefndur forseti Nordisk mode, sem er nokk- urs konar norðurlandaráð samtaka tónskálda að sögn Magn- úsar. Starf hans mun aðallega felast í því að skipuleggja næsta þing samtakanna, sem verður haldið á íslandi eftir tvö ár. Samtökin eru hagsmunasamtök tónskálda á Norður- löndum allt frá dægurlagatónskáldum til nútíma tónskálda. Magnús segir að allir kraftar beinist nú að því að vernda höf- undaréttinn. Hann nefnir sem dæmi að ef verður af gervi- hnattasendingum á íslandi þannig að allir geti nálgast þær auðveldlega verði höfundarétt- armál mjög flókin. Það verði að vera skýrt hvernig og hvar höf- undargjöld eigi að innheimtast. „Ábyrgð mín felst í því að kalla saman fundi ef þurfa þyk- ir og fylgjast með því hvað er að gerast," segir Magnús. Hann segir að þing samtakanna sé haldið á tveggja ára fresti og á það mæti framkvæmdastjórar og forsvarsmenn tónskáldafé- laga á Norðurlöndunum. „Á þessum þingum fer fram stefnu- mótun og þau eru samvinnuflöt- ur norrænu landanna til þess að mynda ákveðna heild og Magnús Kjartansson standa saman um mikilvægustu málefni höfundaréttarins," seg- ir Magnús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.