Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 32

Morgunblaðið - 10.07.1993, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993 Minning * Björn Kristján As- geirsson skipsljóri Fæddur 5. maí 1926 Dáinn 1. júlí 1993 Að kvöldi 1. júlí andaðist við störf úti á sjó Bjöm Kr. Ásgeirsson þar sem hann leysti af vin sinn sem skipstjóri. Sjómennska hafði verið hans ævistarf og hann stóð meðan stætt var og hneig svo niður örend- ur þegar síðasta kastið hans kom upp. Þannig geta gæfumenn helst óskað sér ævilokin, að hlýða þegar kallið kemur, en þeir sem eftir standa hrökkva óþyrmilega við þar til þeir átta sig á að það var Drott- inn sjálfur sem stóð á ströndu og sagði: Kom til mín. Því kalli kunnum við öll að hlýða. Björn elst upp í stómm systkina- hópi hjá foreldrum sínum þeim Ás- geiri Kristjánssyni og Þórdísi Þor- leifsdóttur, hér á kampinum við fjörðinn fagra. Faðir hans var alla tíð sjómaður og var svo handtaka- góður og laginn að ég og fleiri sem lærðum verkleg handtök hans höf- um engin séð betri á langri sjó- mannsævi. Móðir Björns var einnig mikil sómakona til orðs og æðis, enda systir Páls Þorleifssonar, þess rómaða yfirburðamanns þeirrar tíð- ar. Þannig undirstöður stóðu að Birni. Því er ekki að undra að hann ætti sinn stóra þátt í uppbyggingu þessa 50 ára þorps sem enn státar af nægri atvinnu og vaxandi gengi. Bjöm byijaði ungur á sjónum, eða um 14 ára, með frænda sínum og föður og þarf ekki að orðlengja að það kom fljótt í ljós að þar var fyrir- myndar sjómannsefni á ferðinni. Hann fór svo 18 ára að fara með bát og tókst það með ágætum eins og vænta mátti. Síðan lá leiðin í sjómannaskólann til að afla sér menntunar og fullra réttinda. Upp frá því varð hann fljótlega skip- stjóri á þeim stærstu bátum sem héðan úr Grundarfirði vom gerðir út og hafnaraðstæður leyfðu. Einnig var hann með mb. Svan og Fylki, síðan með mb. Pál Þor- leifsson og þá Blíðfara, sem keyptir og byggðir vom fyrii- hann því að Björn reyndist alltaf afla- og happa- maður. Einnig leysti hann af á frægum aflaskipum, svo sem ms. Skarðsvík SH og Farsæli SH og Gmndfirðingi II sem lýsir best því trausti og áliti sem hann hafði. Við Bjöm keyptum saman 145 tonna bát sem skírður var mb. Ásgeir Kristjánsson, föðurnafni hans. Við Kristbjöm Gíslason, Ólafsfirði — Minning Minningar liðinna ára eru sumar ótrúlega skýrar. Síðustu daga hafa þær sótt meira á hugann og era mínar bestu minningar tengdar Bjössa, heimili og heimilisfólki þar. Þar átti ég mitt annað heimili alla tíð. Þar var mér tekið opnum örmum hvenær sem mér datt í hug og fannst ekkert athugavert við að fara til Ólafsfjarðar og vera þar eins lengi og mér þóknaðist. Mild vom orðin og mjúk var höndin þín, aldrei datt mér í hug í þá daga að Birna frænka og dæt- umar ættu meira tilkall til þín en ég. Hjá ykkur var alltaf sólskin þegar ég var bam. Börnum mínum og allri minni fjölskyldu varstu hlýr og góður. Bimu frænku minni, dætrum og öðrum vandamönnum votta ég sam- úð mína. Guð blessi minningu þína. B.G. t Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar og móðursystur, STEIIMUNNAR INGIMUNDARDÓTTUR, Sæbraut 10, Seltjarnarnesi. Jórunn Ingimundardóttir, Ragnheiður Ingimundardóttir Blöndal, Helga Ingimundardóttir, Einar Ingimundarson, Benedikt Eiríksson. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför móð- ur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGIT BORLAUG GUÐMUNDSSON. Erling V. Árnason, Einar Róbert Árnason, Margrét Guðmundsdóttir, Ingi R. Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. áttum hann í nokkur ár, en seldum hann síðan til að fjármagna okkar hlut í mun stærra fiskiskipi. Eitt af hinum góðu manngildum Bjöms var að segja vel til ungum mönnum sem vom að byija til sjós. Hann gaf sér alltaf góðan tíma til að leiðbeina þeim og að skýra fýrir þeim gildi aðgæslunnar fyrir örygg- ið. Margir ungir menn eiga honum að þakka sina verklegu innsýn í sjómennskuna. Björn var einnig einn af stofn- endum verslunarfélagsins Grundar hf. og í stjórn þess frá byijun. Við byggðum upp saltverkunarstöð og fleira sem nú eru fýrirtæki Soffaní- asar Cecilssonar. Fleira mætti sjálf- sagt telja, en hér sést að okkar kæri frændi og vinur átti hlutdeild í mörgu sem samtíðina varðaði og framtíðin mun njóta. Björn giftist eftirlifandi konu sinni, Aðalheiði Lydiu Guðmunds- dóttur, 30. maí 1959, og eiga þau saman fjögur börn og þau eru: Guðmundur Ásgeir, f. 1960, sjó- maður, Andrea Þómnn, f. 1962, húsmóðir á Akranesi, Sveinn Jó- hann, f. 1964, sjómaður, og Bjöm Heiðar, f. 1967, sjómaður. Bjöm átti dóttur áður en hann giftist, en hún heitir Alda Sæunn, f. 1953, nú húsmóðir í Grandarfirði. Björn og Aðalheiður ólu einnig upp tvö börn hennar frá fyrra hjónabandi þau Bjarna Eyjólfsson, f. 1948, og Sigurrós Ernu Eyjólfs- dóttur, f. 1955. Einnig í heimilis- og einkalífi reyndist þessi kæri sam- ferðarmaður okkar sómi í alla staði, og því er harmur kveðinn -að öllu hans nánasta fólki sem sér nú á eftir sínum fýrirmyndarmaka og Steingrímur Krist- jánsson - Minning Fæddur 27. nóvember 1917 Dáinn 30. júní 1993 Það var hringt að norðan í gær og sagt að hann Steini á Litluströnd væri látinn. Það er nú þannig að þó að árin færist yfir fólk, þá eigum við aldrei von á að hinsta kallið komi. Steingrímur var fæddur á Skútu- stöðum í Mývatnssveit, sonur Krist- jáns Jónssonar frá Stöng og Guð- rúnar Friðfinnsdóttur frá Skútu- stöðum. Eftirlifandi eiginkona hans er Þóra Ásgeirsdóttir, dóttir Ásgeirs Kristjánssonar og Jónu Einarsdótt- ur. Synir Steingríms og Þóru em Birgir, Finnur, Kristján og Egill. Sambýliskona Finns er Sigríður og þau eiga tvö börn. Kristján er gift- ur Hörpu, þau eiga einnig tvö börn. Unnur heitir sambýliskona Egils. Það koma upp í hugann minning- ar um þennan öðling sem Steini alltaf var. Það var stutt í hlátur og hressleika hjá honum, en umfram allt var hann traustur og ábyggileg- ur maður. Steini var mikill söngmaður og tók þátt í kórstarfí í sinni sveit. Það er ekki hægt að minnast Steina án þess að geta um ævistarf- ið hans. Hann var búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri, enda átti jörðin og búskapurinn hug hans allan. Steini var sérstaklega góður við skepnurnar sínar og var umhug- að um að sem best færi um þær. Það fór ekki framhjá neinum sem að Litluströnd komu, hvað allt var hreint og snyrtilegt, bæði jörð og útihús. Steini og Þóra fluttust til Akur- eyrar, heimabæjar Þóru, fyrir stuttu. Þar ætluðu þau að eyða ævikvöldinu saman. Steini var kom- inn í kór aldraðra þar og þau hjón- in blómstruðu á nýja staðnum. Birgir, elsti sonur þeirra hjóna, tók við búskapnum á Litluströnd, en Steini og Þóra vom einmitt ný- komin í heimsókn þangað, þegar Minning Anna Gimnlmigsdóttir frá Víðinesi íHjaltadal Fædd 18. október 1915 Dáin 1. júlí 1993 Hvert laufblað er fellur til jarðar lifir áfram á öðru sviði. Mér datt þetta í hug er Hjalti hringdi í mig til að tilkynna mér lát móður sinn- ar. Sú frétt kom ekki á óvart. Hún var búin að vera veik lengi og nú síðast helsjúk í sjúkrahúsi Skaga- íj'arðar. Ég heimsótti hana nokkmm sinnum. Hún var alltaf sama já- kvæða manneskjan þó að hún gæti ekki hreyft sig hjálparlaust. Ég var að koma frá því að gleðjast yfir ungu lífi er ég fékk þessa frétt. Þannig er lífíð. Kynslóð fæðist og kynslóð deyr. Anna var fædd á Víðinesi í Hjaltadal, dóttir hjónanna Gunn- laugs Jónssonar og Sigríðar Guð- mundsdóttur. Þar ólst hún upp. Veturinn 1931 var ég á Hólum í unglingadeildinni. Einn daginn sagði handavinnukennarinn okkur að ung stúlka frá Víðinesi ætlaði að fá að vera með okkur í handa- vinnutímum. Svo kom þessi unga stúlka björt og falleg. Hún kom með sólskinið sú. Þannig var Anna. Það fylgdi henni sólskin hvar sem hún fór. Seinna urðum við Anna samtíða á Hólum. Ég var þjónusta skólapilta, hún var hjá skólastjóra- hjónunum. Þennan vetur var Páll Sigurðsson frá Lundi í Fljótum íþróttakennari. Hann var svo elsku- legur að taka okkur starfsstúlkur í tíma eftir vinnu. Seinna varð hann eiginmaður Önnu. Þau gengu í hjónaband 8. október 1935. Ég hef alla tíð síðan haft samband við þessi elskulegu hjón. Anna og Páll áttu fyrst heima í Gamlabænum á Hólum 1935-1945, síðan á Hofi i Hjaltadal 1945-1963 og fluttust svo til Akureyrar og bjuggu þar 1963-1985. Þau flutt- ust til Sauðárkróks 1985 og áttu heima á Öldustíg 15 þar til yfír lauk. Þegar ég fluttist til Sauðár- króks 1987 á Öldustíg 8 var stutt á milli okkar Önnu. Oft sátum við saman og rifjuðum upp liðna tíð. Það vom dýrmætar stundir. Anna og Páll áttu þijú börn. Þau eru: María, f. 25. mars 1936, gift Þórarni Þórarinssyni, þau búa í Vogum í Kelduhverfí og eiga fimm börn; Sigurður, f. 26. apríl 1937, búsettur í Reykjavík, hann á þijú börn; Hjalti Þórarinn, f. 25. júní föður. Eiginkonu, börnum og öðrum ástvinum Björns óskum við trúar- styrks til að takast á við orðinn hlut. Við hjónin og fjölskyldur okkar þökkum ógleymanlega gengna samvem og óskum öllum aðstand- endum guðs samfýlgdar. Guðmundur Runólfsson. Okkur langar að minnast elsku afa okkar með þessum fáum línum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma, megi Guð styðja þig og styrkja á þessari erfiðu stundu og við vottum þér samúð okkar. Barnabörn. Steini lést. Hugurinn reikar til baka, þegar ég var á Litluströnd sem strákur í sumarfríi hjá Þóru móðursystur minni. Ég minnist Steina með hlý- hug og þakklæti fyrir allt. Við vottum Þóru frænku og fjöl- skyldu okkar dýpstu samúð. Þórarinn, Ingibjörg og börn. 1947, kvæntur Guðrúnu Rafnsdótt- ur, þau em búsett á Saúðárkróki og eiga eitt bam. Nú þarf Anna ekki lengur að beijast, nú er hún komin alla leið. Þegar ég lendi fleyi mínu við strönd- ina hinum megin við fljótið sem skilur okkur að um stundarsakir vona ég að Anna taki á móti mér brosandi og björt og færi mér hið eilífa sólskin. Þá verður allt gott. Ég votta aðstandendum mína inni- legustu samúð og minnumst þess að sorgin sem ristir dýpst var einn- ig okkar bjartasta gleði. Margrét Jónsdóttir frá Fjalli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.