Morgunblaðið - 10.07.1993, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.07.1993, Qupperneq 34
34 MQRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993 fólk f fréttum MYNDLIST Að láta drauminn rætast Morgunblaðið/Bjami H Myndlistarmaðurinn og fóstran Ásdís Gunnarsdóttir opnaði nýverið fyrstu sýningu sína í sýn- ingarsal Ráðhússins í Reykjavík. Við opnunina á dögunum sagði Ásdís, að með sýningunni væri hún að láta drauminn rætast. Hana hefði lengi dreymt um að halda sýningu á verkum sínum en ekki komið því í verk. Fyrir tilstuðlan fjölskyldunnar sem hvatti hana til að sækja um rými og tíma í Ráðhús- inu hefði hún áttað sig æ betur á því að stundin væri runnin upp. „Það var stór stund þegar mér barst svarbréf sem var á jákvæðu nótun- um,“ sagði_ Ásdís. Myndir Ásdísar eru flestar lands- lagsmyndir eða margs konar hug- hrifsmyndir unnar með vatnslitum. Sagði Ásdís, sem starfar á Grænu- borg, að viðtökur hefðu verið vonum framar og allt væri þetta draumi líkast. Þess má geta, að sýningunni lýkur um helgina. Morgunblaðið/Bjami Ásdís við nokkur verka sinna. HEIMSÓKN Ráðherra ferðast um Borgarfjörð Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra var á ferð í Borgarfirði fyrir skömmu. Heimsótti hann all- marga bændur og kynnti sér bú- skap í héraðinu. Skoðaði hann með- al annars hefðbundin kúa- og sauðfjárbú, svínabú og garðyrkju- stöðvar og spjallaði við bændur. Með honum voru þingmenn Sjálf- stæðisflokksins í lq'ördæminu. Heimsóknin var gagnleg og skemmtileg, að sögn gestgjafa. Myndin var tekin þegar landbúnað- arráðherra skoðaði vetrarræktun á gúrkun í gróððurhúsi á Laugalandi í Stafholtstungum. Ráðherrann er lengst til hægri á tali við Bjarna Helgason garðyrkjubónda, þá er Bjami Gottskálksson ráðherrabíl- stjóri, þingmennirnir Guðjón Guð- mundsson og Sturla Böðvarsson og lengst til vinstri er Þórhallur Bjamason garðyrkjubóndi. SONGLEIKIR Lloyd Webber vekur mikla eftirvæntingu Andrew Lloyd Webber, sem slegið hefur í gegn með ótal söngleikjum gegnum tíðina, sviptir hulunni af nýjasta sköpunarverki sínu, „Sunset BouIevard“, í næstu viku. Þessi 300 milljóna kr. söng- leikur hefur vakið gríðarlega eftir- væntingu meðal leikhúsgesta í London og þarf að leita aftur um tæplega 40 ár til þess að finna hliðstæðu. Þá var það söngleikur- inn „My Fair Lady“ sem var frum- syndur í Londeftir að hafa slegið í gegn á Broadway. „Sunset Bo- ulevard" hefur hins vegar hvergi verið frumsýnt og virðist ætla að slá öll met áður en til þess kemur. Miðar pantaðir fyrr 400 milljónir króna Lesendum Morgunblaðsins kann að þykja söngleikurinn í dýr- ari kantinum en Andrew Lloyd Webber veit greinilega hvað hann syngur því verkið hefur þegar halað inn meira en 400 millj. kr. í miðapöntunum. Titillag söng- leiksins, „With One Look“, sem sungið er af Barbra Streisand, hefur þegar náð miklum vinsæld- um og telja Bretar það gefa fögur fyrirheit um tónlist Webbers í Sól- setrinu. Tæknilegir örðugleikar seink- uðu framsýningu verksins um tvær vikur en eins og kunnugt er þá réðu tæknimenn ekkert við hina rafvæddu sviðsmynd vegna truf- lana frá talstöðvum leigubíla og þráðlausum símum. Þetta vanda- mál er nú úr sögunni og er fyrir- hugað að frumsýna verkið 12. júlí fyrir breskan aðal og gallharða gagnrýnendur. Þá mun það bætast í hóp fjögurra annarra verka Lloyd Webbers sem sýnd eru í London um þessar mundir. Glenn Close fer með aðalhlutverkið íbúar Los Angeles þurfa að bíða fram í desember til þess að beija söngleikinn augum en þar vestra mun leikkonan Glenn Close fara með aðalhlutverkið. En hvað segir Andrew Lloyd Webber um velgengni sína? „Eg vil ekki hljóma hrokafullur en ég get auðveldlega skilið vinsældir verka minna,“ segir hinn 45 ára gamli milljónamæringur sem hlaut riddaratign bresku krúnunnar á síðasta ári. „Það er einfaldlega vegna þess að þeir söngleikir sem boðið er upp á eru, því miður, almennt ekki nógu góðir,“ segir hann. Það verð- ur fróðlegt að sjá hvort „Sunset Boulevard“ tekst að bæta þar úr. Titillag söngleiksins „With One Look“, sem Barbra Steisand syng- ur hefur þegar náð miklum vin- sældum. SÆNSKAR GO-GO" STULKUR A HOTEL ISLANDI .. Næstu 4 helgar munu þær Jannica Midas og Sara Simsson koma fram 5 sinnum á kvöldi og skipta jafnoft um búninga og dansa við tónlist frá diskótímabilinu. Diskótekarar Daddi DJ - Alli Bergás - Gísli Sveinn Hollywood/Sigtún rifja upp gamlar rispur. MIÐASALA OG BORÐAPANTANIR I S: 687111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.