Morgunblaðið - 10.07.1993, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JULI 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þig skortir þolinmæði til að
ljúka verkefni tengdu vinn-
unni í dag. Reyndu að standa
við loforð gefín ástvini í
kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú getur gert góð kaup í
dag. Þetta verður rólegur
dagur og þú hefur tækifæri
til að slappa af. Sýndu barni
þolinmæði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Nú er ekki rétti tíminn til
að lána öðrum peninga. Þú
nýtur vinsælda í hópi góðra
vina í kvöld, en ert með ein-
hverjar áhyggjur.
Krabbi
(21. júni - 22. júlí)
Smá misskilningur getur
komið upp milli ástvina. Þú
skilur ekki ástæðuna, svo
rétt er að ræða málin saman
í einlægni.
Ljón
(23. júli - 22. ágúst)
Einhver sem vill þér vel get-
ur átt erfitt með að uppfylla
kröfur þínar í dag. Skemmt-
analífíð heillar þig í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. septembcr)
Ágengni er ekki leiðin til
aukins frama í starfi. Lipurð
í samskiptum við aðra er
betri leið. Varastu óþarfa
eyðslu.
V°S .
(23. sept. - 22. október) ‘Qffc
Láttu ekki smámuni á þig
fá í dag. Þú átt ánægjulegar
stundir með ástvini í kvöld,
en getur átt erfitt með að
gera upp hug þinn.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Einhver smávegis ágrein-
ingur getur komið upp milli
vina. Tilboð sem þér berst í
dag er ekki jafn gott og það
sýnist.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Lánaðu engum kjörgrip sem
þú átt. Samstaða og róman-
tík eru ráðandi í dag, en
framkoma vinar getur valdið
vonbrigðum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gerðu þér ekki óraunhæfar
vonir í fjármálum. Þér miðar
nokkuð áleiðis, en þér ber
að varast einhvern sem vill
misnota þig.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Dagurinn færir þér bæði ást
og ánægju. Þú gætir þó átt
samskipti við einhvern sem
er ekki fyllilega hreinskilinn.
Vandaðu valið.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Siít
Nú getur verið hagstætt að
kaupa inn til heimilisins, en
láttu ekki hlunnfara þig.
Félagi er eitthvað viðutan í
dag.
Stjörnusþána á að lesa sem
dægradvól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á.traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
I H\/A£> sggirðu''
O/Yl
GTANOA
ONOHZ
\ T/Zé •£»
íáí
H/f SKVLD/éG'
GTgA þAÐ f* >
SÓL/N e$\
E/CKt HOLL
f=yene t
o/acu/z.'
GRETTIR
LJÓSKA
SMÁFÓLK
ILL JUST
SlT HERE, ANP
LET Y0U PlVlPE
THE C00KIE5
BETLOEEN 05..
P 065
CAN'T
COUNT
© 1993 United Feature Syndicate, Inc.
Ég ætla bara að sitja hérna og láta þig skipta smákökunum á milli okkar. Hundar kunna ekki að telja.
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
„Þetta er ekki gott,“ hvíslaði
Levy að mér á meðan við biðum
eftir útspili Mouiels, hinum meg-
in tjalds. Hann sýndi mér spilin
því til staðfestingar og þar blasti
við ásinn í „vara-tromplitnum“.
Og við vorum í sjö. Ég var svo
sem ekkert hissa, enda hafði ég
yfirmeldað um þennan ás með
vanhugsuðu kröfupassi.
ísland — Frakkland. Spil 5.
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ 2
V ÁD108
♦ Á1086
*K543
Vestur Austur
♦ ÁKG643 ♦ D987
¥9654 ¥ KG732
♦ G ♦ 72
♦ Á8 * 72
Suður
♦ 105
¥ —
♦ KD9543
♦ DG1096
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
Levy Þorl. Mouiel Guðm.
— 1 tígull 1 hjarta 2 lauf
2 spaðar 3 lauf 3 spaðar 4 hjörtu
4 spaðar 6 lauf 6 spaðar Pass
Pass 7 lauf Pass 7 tíglar
Dobl Pass Pass Pass
Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
Sævar Perron Jón Chemla
— 1 tígull 2 tíglar* 5 tíglar
5 spaðar Pass Pass Dobl
Pass Pass Pass
* hálitir, a.m.k. 5 hjörtu og 4 spaðar
Það var mikill stígandi 1 sögn-
um í lokaða salnum, en það kom
að því að Frakkarnir sögðu:
„Hingað og ekki lengra." En
Mouiel var ekki á skotskónum'
og valdi hjarta út, svo Þorlákur
slapp einn niður. Það var hins
vegar nóg til að skapa 11 IMPa
sveiflu til Frakkanna, því hinum
megin fór Sævar tvo niður á
fórninni.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á fyrsta meistaramóti Tékk-
lands í vor kom þessi staða upp
í viðureign alþjóðlega meistarans
Jans Votava (2.410), sem hafði
hvítt og átti leik, og Martins
Bures (2.215). Svartur lék síðast
13. - h7-h6.
14. Hadl! - hxg5, 15. Rxg5 -
Dc7, 16. He3 - f4 (Hindrar He3-
h3, en þá gefur kost á nýju sókn-
arfæri:) 17. Rce4! - Bf5, 18.
Rxf6+ - Bxf6,19. Hh3! og svart-
ur gafst upp, því hann verður mát
á h7 eða h8. Aðeins einn af sjö
stórmeisturum Tékklands (þeir
eru Jansa, Smejkal, Blatny, Lecht-
ynsky, Mokry, Meduna og Pach-
man) var með á mótinu og Vlast-
imil Babula, 19 ára, vann óvæntan
sigur. Alþjóðlegu meistaramir
Votava, Hracek og Haba voru
jafnir honum að vinningum en
lægri á stigum.
Við skiptingu gömlu Tékkóslóv-
akíu um áramótin fengu Slóvakar
aðeins þijá stórmeistara, en þar
af voru tveir þeir stigahæstu,
Ftacnik og Stohl. f síðustu keppni
skákliðs Tékkóslóvakíu á ólympíu-
mótinu í Manila fyrir ári áttu
Tékkar möguleika á verðlauna-
sæti fyrir síðustu umferð, en töp-
uðu þá fyrir íslendingum 1V2—2 '/2.