Morgunblaðið - 10.07.1993, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ
IÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 10. JULÍ 1993
HANDKNATTLEIKUR
Víkingar stefna að Evrópu-
meistaratitli 1996
Jón Hjaltalín Magnússon, fyrrum formaður HSÍ, og aðrir gamlirVíkingar eru með ákveðin markmið
Fjölmargir fyrrum leikmenn
Víkings í handknattleik hafa
komið saman og stofnað áhuga-
mannahóp um að styðja við bakið
á nýrri stjórn Handknattleiks-
deildar Víkings og hvetja hana til
dáða. „Markmiðið er að miðla af
reynslu okkar og það er ekkert
launungarmál að takmarkið er
Evrópumeistaratitill keppnistíma-
bilið 1995-96,“ sagði Jón Hjaltalín
Magnússon, fyrrum formaður
Handknattieikssambands íslands
og landsliðsmaður úr Víkingi, sem
er forsvarsmaður stuðnings-
mannahópsins.
„Við höfum sett okkur mark-
mið og stefnum síðan markvisst
að því að ná því markmiði. Víking-
ur á marga góða leikmenn, eins
og Bjarka Sigurðsson og Birgi
Sigurðsson, sem eru landsliðs-
menn, og þá á félagið stóran hóp
af ungum og efnilegum leikmönn-
um, sem félagið mun kappkosta
að byggja upp fyrir átök framtíð-
arinnar. Þjáifarinn, Gunnar Gunn-
arsson, getur nú einbeitt sér betur
að þjáifun liðsins, þar sem það
er ekki eins mikið álag á honum
nú eins og síðasta keppnistímabil
er hann var einnig leikmaður i
miklum verkefnum með landslið-
inu. Við vitum að það eru sjö leik-
menn sem leika inni á vellinum,
en það þarf stóra beiðfylkingu til
að ná settu marki,“ sagði Jón
Hjaltalín.
-Er Víkingsliðið eins og það
er skipað í dag nægilega sterkt
til að ná þeim árangri sem þið
stefnið á?
„Nei, ekki til að ná Evrópu-
meistaratitli.“
- Þið þurfið þá að ná í sterka
leikmenn í Evrópupúsluspilið?
„Já, Víkingur þarf að fá tvo til
þijá sterka leikmenn til viðbótar.
Við munum ná i þá innanlands
og erlendis frá. Ég hef góð sam-
bönd um alla Evrópu og mun ég
nýta þau í leit að góðum leikmönn-
um.“
Víkingar hafa sett markið hátt
og það er stórhugur í herbúðum
þeirra. „Það eru mörg spennandi
verkefni framundan hjá Víking-
um,“ sagði Jón Hjaltalín Magnús-
son.
ÚRSLIT
Golf
EM pilta
Keppnin fer fram í Ascona í Sviss:
íslenska liðið tapaði fyrir Portúgal, 2:3, og
leika um síðasta sætið gegn Hollandi eða
Sviss í dag. Sigurpáll Sveinsson og Birgir
L. Hafþórsson unnu sína leiki.
Syjaleikarnir
Fimleikar
íslensku keppendurnir í fimleikum unnu öll
gull og silfurverðlaun á Eyjaleikjunum.
■ í skylduæfingum í karlaflokki urðu þeir
Jón Finnbogason, Guðmundur Brynjólfsson
og Jóhannes Níels Sigurðsson í efstu sætun-
um.
■í fijálsum æfingum vann Jón gull, Jó-
hannes Niels silfur og Guðmundur brons.
■ ! keppni á einstökum áhöldum fékk Jó-
hannes Níels gull fyrir gólfæfingar og
hringi, brons fyrir stökk og gull fyrir saman-
lagt. Guðmundur fékk silfurverðlaun fyrir
gólfæfingar og stökk og einnig fyrir saman-
-Jagðan árangur. Jón Finnbogason féll silfur-
''’verðlaun fyrir hringi og varð fjórði í saman-
lögðum árangri.
■ í skylduæfingum kvenna vann Sigurbjörg
Ólafsdóttir gull, Þórey Elísdóttir silfur, Erla
Þorleifsdóttir varð fjórða og Ragnhildur
Guðmundsdóttir sjötta.
■ í fijálsum æfíngum varð Sigurbjörg í
fyrsta sæti, Þórey í öðru sæti og Erla í því
fjórða.
■í keppni á áhöldum kvenna fékk Þórey
gull fyrir tvíslá, silfur fyrir stökk og brons
fyrir gólfæfingar. Hún fékk gull fyrir sam-
anlagt. Sigurbjörg fékk silfur fyrir tvíslá,
jafnvægisslá og samanlöðum árangri.
Ragnhildur fékk silfur fyrir gólæfingar,
brons fyrir tvislá og einnig fyrir samanlagð-
an árangur. Erla fékk gull fyrir stökk og
jafnvægisslá, brons fyrir gólfæfingar, en
keppti ekki á tvíslá.
Badminton
Elsa Nielsen varð í gær sigurvegari í einliða-
' teik kvenna er hún vann Bridger Hunt frá
Guemsey 11:8 og 11:2.
■Elsa og Áslaug Jónsdóttir fengu silfur í
tvfliðaleik.
Skotfimi
Island vann í liðakeppni í keppni með loft-
skambyssu (2272), en haglabyssuskotmenn
höfnuðu í fjórða sæti. íslenska sveitin varð
sigurvegari í fijálsri skambyssukeppninni
(3094 stig), en í einstaklinskeppni varð
Ölafur P. Jakobsson annar með 1073 stig.
Hjólreiðar
Staðan í Tour de France eftir sjö keppnis-
leiðir. Tími fyrsta keppnismanns, en síðan
koma tíma hvað næstu menn eru langt á
eftir honum. Það munar t.d. aðeins 12 sek.
á fyrstu tveimur keppendunumr'
M. Cipollini, Ítalíu.........25.21:28
W. Nelissen, Belgíu.......... 12
J. Bruyneel, Belgfu............... 30
, L. Jalabert, Frakklandi........... 44
Á. Zuelle, Sviss.................. 45
Z. Jaskuia, Póllandi.............. 53
E. Breukink, Hollandi........... 1:03
P. Louviot, Frakklandi.......... 1:16
S. Bauer, Kanada................ 1:21
J. MuSeeuw,J3elgíu............... 1:22
F. Ballerini, Italíu......... 1:29
C. Mottet, Frakklandi........... 1:33
A. Hampsten, Bandar............. 1:34
HJOLREIÐAR / TOUR DE FRANCE
Reuter
Hvaða hamagangur er þetta í blíðunni?...geta beljurnar sem liggja í hvíldarstöðu á grasbala í Normandí hugs-
að, þegar keppendur í Tour de France-hjólreiðakeppninni bruna framhjá heimahögum þeirra í langri röð.
FRJALSIÞROTTIR
Barist um gullklumpa á Bislet-leikvanginum í Ósló í kvöld
Morceli reynir heimsmet
Alsírbúinn Noureddine Morceli,
sem ætlar sér að bæta átta
ára gamalt heimsmet í míluhlaupi
í kvöld á Bislet-leikúnum í Ósló, fær
óvæntan keppinaut á brautinni þar
sem er Bretinn Steve Cram, heims-
methafi í greininni. Bretinn, sem
tilkynnti þátttöku í míluhlaupinu í
Osló að þessu sinni á síðustu
stundu, hljóp á 3 mín. 46,32 sek.
er hann setti metið, á Bislet-leikun-
um sumarið 1985.
Bislet-leikarnir eru ætíð eitt
skemmtilegasta mót sumarsins í
ftjálsum og ósjaldan hafa heimsmet
í hlaupum fallið á leikvanginum,
enda stemmningin alltaf framúr-
skarandi og stuðningur áhorfenda
við keppendur góður.
Mótið á Bislet er eitt hinn fjóru
stærstu stigamóta alþjóða ftjáls-
íþróttasambandsins í ár — Gullmót-
anna fjögurra sem svo hafa verið
kölluð — þar sem aðeins þeim bestu
í hverri grein hveiju sinni er boðið.
Sigurvegari í hverri grein í kvöld,
eins og á þremur síðari gullmótun-
um, í Zurich, Berlín og Brussel, fær
eitt kíló af gulli í verðlaun. í kvöld
getamenn líka átt von á því, í fyrsta
skipti, að úr þeim verði tekið blóð-
sýni til rannsóknar af þeim sem sjá
um lyfjapróf.
Morceli, sem er heimsmeistari í
1.500 m hlaupi, hefur náð góðum
tímum á hlaupabrautinni að undan-
förnu. Hljóp þá vegalengd m.a. á
3:29,20 í Narbonne í Frakklandi í
síðasta mánuði. Cram, sem er orð-
inn 32 ára, hefur hins vegar ekki
verið áberandi upp á síðkastið, og
raunar ekki náð neinum merkileg-
um árangri síðan hann varð Evr-
ópumeistari í 1.500 m hlaupi fyrir
sjö árum, enda átt við erfið meiðsli
að stríða. Hann er ekki eins fljótur
og áður og hefur að mestu helgað
sig 5.000 m hlaupi í ár, en nærvera
hans í kvöld er þó talin gera mílu-
hlaupið — lokagrein mótsins — enn
athyglisverðari og skemmtilegri en
ella. Cram er þó ekki talinn munu
Cipollini
tekur aftur
við gulu
peysunni
Belgíumaðurinn Johan Bruyneel
varð sigurvegari á sjöttu
keppnisleiðinni Tour de France hjól-
reiðakeppninni í gær, sem varð til
þess að landi hans Wilfried Nelissen,
sem leiddi keppnina, þarf að afklæð-
ast gulu keppnispeysunni, sem sá
keppandi klæðist sem besta tíma
hveiju sinni klæðist. Italinn Mario
Cipollini, sem lét Nelissen fá peys-
una sólarhring áður, tekur á ný við
peysunni og hjólar í henni sjöundu
keppnisleiðina. Bruynell, sem setti í
„fluggír" síðustu 15 km af hinni 158
km löngu leið frá Evreux, — kom í
mark á þremur tímum 11.30 mín.,
eða þrettán sek. á undan Cipollini,
sem kom næstur í mark.
blanda sér í baráttu um sigur kvöld
enda góðir hlauparar sem taka þátt;
m.a. spænski ólympíumeistarinn í
greininni frá því í Barcelona, Ferm-
in Cacho og David Kibet frá Kenýa,
sem sigraði í míluhlaupinu á Bislet
í fyrra.
Carl Lewis og félagar í Santa
Monica fijálsíþróttafélaginu eru
farnir heim til Bandaríkjanna til að
undirbúa sig fyrir HM í Stuttgart,
eftir nokkur mót í Evrópu, en aðrir
frægir landar þeirra verða í Osló í
kvöld. Michael Johnson og heims-
methafinn Butch Reynolds taka
t.a.m. báðir þátt í 400 m hlaupi,
en Johnson afrekaði það í síðasta
mánuði að bera sigurorð af, Reyn-
olds á þeirri vegalengd á bandaríska
úrtökumótinu fyrir HM.
Þá mætast þeir Andre Cason frá
Bandaríkjunum og Bretinn Linford
Christie í 100 m hlaupi. Cason á
besta tíma ársins, en Christe varð
Ólympíumeistari í Barcelona í fyrra.
Risakast
Bodení
Laugar-
dalnum
— tryggir honum
þriðja sætið á
heimslistanum
Risakast sænska spjótkastar-
ans Patrik Boden á Laug-
ardalsvellinum 17. júní, þar sem
hann kastaði 88.26 m og setti
vallarmet, hefur tryggt honum
þriðja sætið á heimsafrekalist-
anum, sem var gefinn út í gær.
Yfirburðarspjótkastari á árinu
er 95.54 Jan Zelezny frá Tékkn-
eska lýðveldinu, sem hefur kast-
að spjótinu 95.54, en næst
lengsta kastið á árinu á Þjóð-
veijinn Raymond Hecht —
88.90.
UTI EROBIKK
með Bertu íæfingastúdíóinu
JLaugard. kl. 14.00 og 16.00
Sunnud. fcl. 14.00 og 16.00
NATTURUPARADIS I GRINDAVIK Sími 92-68526