Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993
5
Grafíkverk Braga Asgeirssonar í Listasafni Islands
Fyrsta lífsmarkið sem mað-
urinn gaf frá sér var grafík
YFIRLITSSYNING _ á grafík-
verkum Braga Ásgeirssonar
verður opnuð í Listasafni íslands
laugardaginn 18. september.
Bragi hefur á liðlega fjörutíu ára
tímabili sent frá sér hátt á annað
hundrað grafísk þrykk, tréristur,
steinþrykk, málmætingar, akvat-
intur, sáldþrykk og einþrykk.
Mörg þessara verka teljast til
öndvegisverka í íslenskri grafík-
list og hafa auk þess unnið til
verðlauna á alþjóðlegum grafík-
sýningum.
A sýningunni í Listasafni ís-
lands verða um það bil áttatíu
þrykk, frá 1952 til 1993. Elsta tré-
ristan er sjálfsmynd unnin í Osló
1952. Þungamiðja sýningarinnar
eru steinprentanir sem Bragi gerði
við Konunglegu listaakademíuna í
Kaupmannahöfn árið 1956.
„Við teljum þetta bestu grafík-
verk Braga,“ sagði Aðalsteinn Ing-
ólfsson í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að á sýningunni væri
sitt lítið af hveiju, flestar þekktar
grafíkaðferðir. Tekist hefði að ná í
margt svo að sýningin ætti að gefa
góða mynd af grafíklist Braga.
Aðalsteinn kallaði Braga „guðföð-
ur“ grafíklistarinnar hér á landi,
en benti líka á hlut þeirra sem auk
Braga mörkuðu dýpst spor, þeirra
Guðmundar Einarssonar frá Mið-
dal, Jóns Engilberts og Barböru
Árnason.
Bragi kenndi grafík í Myndlista-
og handíðaskólanum 1960-72 og
ól þannig upp tvær kynslóðir grafík-
listamanna. Jón Engilberts kenndi
Morgunblaðið/Bjarni
Bragi Ásgeirsson
Á yfirlitssýningu á grafíkverkum
Braga Ásgeirssonar má kynnast
ýmsum öndvegisverkum ís-
lenskrar grafíklistar.
líka, en einkum málaralist.
„Póetíska æð, áhuga á orðinu,“
sagðist Aðalsteinn finna í verkum
Braga og benti á að á sýningunni
væru myndskreytingar við Áfanga
Jóns Helgasonar og við tvö ljóð
eftir Matthías Johannessen.
Tímamót í skilningi á grafík
„Sýningin kom mér að mörgu
leyti á óvart,“ sagði Bragi Ásgeirs-
son í samtali við Morgunblaðið og
lagði áherslu á að vel væri að henni
staðið. Hann sagðist vera að sjá
sum koparþrykkin í fyrsta skipti á
blaði. Þau hefðu fundist af tilviljun
og Einar Hákonarson þrykkt þau
fyrir sig. „Þau reyndust mun betri
en ég ætlaði í gamla daga,“ sagði
Bragi.
Bragi Ásgeirsson kvaðst vona að
sýningin markáði tímamót í skiln-
ingi á grafík, hann teldi að menn
rúgluðu grafík saman við eftir-
prentanir.
Spurður um sérkenni grafíklist-
ar, hvort hún væri að einhveiju leyti
ólík annarri myndlist, hafði Bragi
það að segja að í málverkum væru
„grafísk eigindi, en margt í grafík
sem ekki er til í málverki, önnur
blæbrigðí?1
„Grafík hefur verið stunduð að
meira eða minna leyti frá því á
miðöldum," sagði Bragi og bætti
við: „Fyrsta lífsmarkið sem maður-
inn gaf frá sér má segja að hafi
verið grafík, hendur og fætur á
hellisveggjum."
Aðstöðuleysi
Hann kenndi aðstæðum eða öllu
heldur aðstöðuleysi um að minna
hefur farið fyrir grafík hér á landi
en víða annars staðar. Hér vantaði
verkstæði þar sem menn gætu unn-
ið saman í staðinn fyrir að fást við
grafíkina hver í sínu horni. Slíkt
væri óheilbrigt, en verkstæði hefðu
þá yfirburði að „þar lærði hver af
öðrum.“
Bragi sagðist binda vonir við
væntanlegt grafíkverkstæði á
Þrá
VERK eftir Braga Ásgeirsson. Það nefnist Þrá og er trérista í litum
frá 1952.
Kjarvalsstöðum, það gæti breytt
mörgu, en mestu skipti að á grafík-
verkstæði væri „rétt andrúm, sums
staðar sem ég þekki til er stórkost-
legt andrúmsloft.“
Listasafnið gefur út bók um graf-
ík Braga í tengslum við sýninguna.
í hana rita Bera Nordal, Aðalsteinn
Ingólfsson, Einar Hákonarson og
listamaðurinn sjálfur. Meðan á sýn-
ingunni stendur verður grafík
kynnt, m. a. verður sett upp grafík-
verkstæði í kjallara og íslenskir
garfíklistamenn standa fyrir sýni-
kennslu. Nokkrar grafíkplötur lista-
mannsins verða hafðar frammi til
sýnis.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
31. október.
J. H.
Þú þarft ekki að eyða yfir milljón
til að eignast vandaðan og rúm-
góðan fjölskyldubíl.
Komdu við hjá okkur og reynslu-
aktu P0l\IY sem svo sannarlega
er verðlagður með hagsmuni
neytenda í huga.
Innifalið f verði eru góð hljómflutningstaeki
(útvarp/segulband og hátalarar) og ryðvörn.
VERÐ RÐEINS
853.000
ÓRKlN 2114-9Ö-21