Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993
31
Minning
Svava Jensen
Fædd 21. september 1914
Dáin 10. september 1993
Með Svövu Jensen, móðursystur
minni, er gengin góð kona og sem
á margan hátt var einstök. Hún
hefur verið mér nálæg í eiginlegri
og óeiginlegri merkingu þess orðs
allt frá því ég man fyrst eftir mér.
Ég var aðeins átta ára þegar eig-
inmaður Svövu, Wilhelm Jensen,
lést. Ég man þó glöggt eftir honum.
Hann var þéttur á velli og afar
virðulegur í fasi. Ég bar ótta-
blandna virðingu fyrir honum og
fannst alltaf öruggara að halda
aftur af tápinu þegar Jensen var
heima, — enda átti hann alltaf rauð-
an kóngabrjóstsykur sem mér
fínnst ég enn finna lyktina af.
Eftir að ég eignaðist eigin fjöl-
skyldu gerði Svava sér far um að
kynnast börnunum og lagði sig
fram um að fá þau til að tala við
sig á þann sérstaka hátt sem henni
var einni laginn. Hún var sérlega
frændrækin og ræktarsöm og
fylgdist vel með hvar við vorum öll
stödd í lífsbaráttunni. Ég trúi ekki
öðru en í endurminningunni eigi
börnunum mínum einnig eftir að
þykja viðmót og framkoma Svövu
ekki síður eftirminnileg en mér
sjálfri.
í útliti var Svava grönn, fíngerð
og lágvaxin, en skorti hvorki
ákveðni né áræðni ef svo bar und-
ir. Hún var afar sjálfstæð kona og
nákvæm í öllu sem hún tók sér
fyrir hendur. Hún hafði sérstakt
dálæti á Dönum og því sem danskt
er. „Danskurinn er alltaf svo eleg-
ant,“ sagði hún. Að eiginmanni sín-
um látnum rak hún með miklum
ágætum heildverslun þeirra hjóna,
Jensen, Bjarnason & Co., meðan
kraftar og heilsa hennar entust.
Fjolskylda Þóris, sonar Svövu, og
Helgu konu hans var henni afar
hugstæð og voru barnabörnin íris,
Svava Kristín, Helga Vala og Pétur
Vilhelm henni sérstaklega hjart-
fólgin og náin.
Svava átti auðvelt með að ræða
við fólk uip flest þau málefni sem
voru á döfinni hveiju sinni. Ijóðmál-
um og sérstaklega pólitíkinni fylgd-
ist hún vel með alla tíð og hafði
eindregnar og fastmótaðar skoðanir
á mönnum og málefnum. Hún tók
afstöðu til málanna og kom því til
skila í umræðum á sinn sérstaka
hátt.
Flestum sem kynntust Svövu
hlýtur hún að hafa verið minnis-
stæð, persónan og allt fast hennar
var með þeim hætti að ekki er auð-
velt um samjöfnuð. Slíkar persónur
auðga líf þeirra sem þeim kynnast
og gera veröldina áhugaverðari að
lifa í. Slík var Svava frænka mín.
Blessuð veri minning hennar.
Asta Steinunn.
Nú þegar hún amma mín er horf-
in á braut, er mér mikill söknuður
í huga, en jafnframt streyma fram
einkar ljúfar endurminningar.
Við bjuggum á Ægisíðunni og
amma Svava í götunni fyrir ofan,
á Tómasarhaga. Það var því stutt
að fara til ömmu. Heimsóknirnar
urðu dálítil ævintýri, þegar hún fór
með mig og okkur systkini á skrif-
stofuna í Hamarshúsinu og gekk
með okkur um miðbæinn, því að
hún hitti mikið af fólki, sem hún
þekkti.
Þegar ég var 11 ára, bauð amma
mér fyrst með sér í viðskiptaferð
til Kaupmannahafnar, en hún átti
mikil viðskipti við dönsk fyrirtæki.
Kvöldin okkar í Tívolí eru mér
ógleymanleg. Amma þekkti mjög
vel til í Kaupmannahöfn, sem
minnti hana sterklega á Wilhelm,
afa minn. Því miður kynntist ég
honum aldrei nema af afspurn.
Árin liðu og ég fluttist til Kaup-
mannahafnar, en kom alltaf heim
öðru hvoru. Amma heimsótti mig
nú í sumar, og við gerðum næstum
því allt, sem við gerðum þegar ég
var 11 ára og upplifðum þá ferð,
okkur báðum til mikillar gleði.
Amma var þá enn við allgóða heilsu
og hafði gaman af að „spássera“
með syni mína. Þann yngri hafði
hún ekki áður séð, enda var hann
aðeins fjögurra mánaða.
Ég er þakklát fyrir, að við amma
áttum saman þessar stundir nú í
sumar. Þær koma því miður aldrei
aftur.
Þessi ferð ömmu til Kaupmanna-
hafnar var hennar síðasta. Skömmu
síðar bárust mér þær sorglegu frétt-
ir, að hún hefði veikst alvarlega.
Sem betur fer kom ég heim og
mátti hitta hana aftur. Elsku amma
mín, blessuð sé minning þín. Hvíl
þú í friði.
Iris Þórisdóttir.
Með nokkrum orðum vil ég minn-
ast Svövu mágkonu minnar, sem
andaðist þann 10. þ.m., tæpra 79
ára að aldri. Hún lést af völdum
höfuðáverka, sem hún hlaut við
byltu fyrir skömmu. Hún gekkst
undir aðgerð en náði sér ekki, enda
kraftar nokkuð teknir að þverra
fyrir óhappið. Þó var hún yfirleitt
Haraldur Hinriks-
son - Minning
Fæddur 10. apríl 1961
Dáinn 11. september 1993
Það var eins og högg í andlitið
þegar fréttirnar bárust. Halli vinur
okkar var dáinn. Það tók langan
tíma að meðtaka þær fréttir því að
hann var alltaf svo fullur af lífi og
orku. Lífið fór ekki mjúkum hönd-
um um hann, en hann var sterkur
og hafði sannkallað Pollýönnuvið-
horf til lífsins. Halli var mikill húm-
oristi og það var engin leið að vera
í fýlu nálægt honum því að já-
kvæðnin, brosið og sérkennilegi
hláturinn hans leyfðu það ekki.
Halli var ekki gallalaus frekar
en nokkur annar, en hafði marga
stóra, góða kosti. Hann hafði óend-
anlega þolinmæði og samúð með
vinum sínum þegar á þurfti að halda
því að hann var lífsreyndur og átti
auðvelt með að setja sig í spor ann-
arra. Það var einfaldlega ekkert
sem ekki var hægt að tala um við
hann og ef hann lofaði einhveiju þá
var gulltryggt að hann stæði við það.
Við eigum eftir að sakna Halla
ákaflega mikið og aldrei munum
við gleyma honum sem hafði svo
mikil áhrif á okkur. Missirinn er
mikill því sannir vinir eru dýrmæt-
ir. Við trúum þó að hann verði allt-
af nærri okkur, auk þess sem hann
mun alltaf eiga sér stað í hjörtum
okkar og það er gott að vita til
þess að hann verði til að taka á
móti okkur þegar okkar tími kemur.
Við vottum systrum hans og öðr-
um aðstandendum dýpstu samúð
okkar.
Ríkarður, Guðjón, Halldór,
Sigrún, Borghildur og
Elinborg.
Hér kveðjum við ljúfan vin, sem
ekki kemur aftur. Fólki er ætlaður
mislangur tími hér á jörðinni en það
er erfitt að sætta sig við að svona
góður drengur skuli þurfa að yfir-
gefa okkur á svo hörmulegan hátt.
Við söknum hans mikið, en erum
þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast svo sönnum manni sem
kom fram við alla sem jafningja,
hvort sem það voru börn, fullorðnir
eða dýr.
við góða heilsu fram á síðustu ár,
fylgdist af óvenjulegri athygli með
öllum hræringum í þjóðfélaginu og
hafði líka brennandi áhuga á póli-
tík. Man ég mörg símtölin okkar
undangengna áratugi, þar sem hún
spurði margs og sagði sínar skoðan-
ir umbúðalaust um menn og mál-
efni. Oftast vorum við sæmilega
sammála, en þó ekki alltaf. En allt-
af virtum við skoðanir hvors annars.
Svava var fædd í Reykjavík 21.
september 1914. Foreldrar hennar
voru Guðfinna Guðnadóttir frá Eyr-
arbakka og Loftur Gunnarsson,
kaupmaður á ísafirði. Leiðir foreldra
hennar lágu ekki saman. Svava var
þriggja ára gömul þegar móðir
hennar, Guðfinna, giftist Bjarna
Bjarnasyni, söðlasmið. Hjá þessum
elskulegu hjónum ólst hún upp við
ástríki og umhyggju í hópi hálf-
systkina, sem urðu fimm talsins,
auk Bjarna, sem Bjarni fósturfaðir
hennar átti fyrir hjónaband. Systk-
inin eru Guðmundur Ingi, lengi vél-
stjóri á togurum, búsettur í Reykja-
vík, kona hans var Sigriður Guð-
mundsdóttir, hún er látin. Ingveld-
ur, eiginmaður hennar var Einar
Thoroddsen, borgarfulltrúi í Reykja-
vík á sjötta áratugnum og yfírhafn-
sögumaður, hann er látinn. Kjartan,
bæjarverkstjóri í Garðabæ, kvæntur
Rögnu Pálsdóttur, Laufey, eigin-
maður hennar er Einar Örn Björns-
son frá Húsavík, dýralæknir á
Hvolsvelli, og Ragna, búsett í
Garðabæ, gift undirrituðum.
Árið 1942 giftist Svava Pétri
Wilhelm Jensen, kaupmanni frá
Eskifirði. Hann lést árið 1961. All-
mikill aldursmunur var á þeim hjón-
um en hjónaband þeirra var far-
sælt. Vel man ég Wilhelm Jensen,
höfðinglegan mann, sem gaman var
að ræða við. Var hann lífsreyndur
og mundi margt frá langri ævi. Þau
hjón bjuggu alla tíð í Reykjavík og
Svava bjó þar til dauðadags. Eign-
uðust þau einn son, Þóri Jensen,
fæddan 19. nóvember 1944. Kona
hans er Helga Valsdóttir og þeirra
börn eru íris, Svava Kristín, Helga
Vala og Pétur Wilhelm.
Árið 1945 stofnuðu Svava og
Wilhelm fyrirtækið Jensen, Bjarna-
son & Co. hf. og ráku það í samein-
ingu. Eftir frafall Wilhelms rak
Svava fyrirtækið áfram, en fyrir
nokkru tók sonurinn Þórir við
rekstrinum.
Nær íjörutíu ár eru liðin frá því
ég kynntist Svövu og systkinum
hennar, móður hennar og fósturföð-
ur. Mér eru þau Guðfinna og Bjarni
einkar minnisstæð. Þau voru gott
fólk í þess orðs fyllstu merkingu,
hvort á sinn hátt en þó ólík, Guð-
finna nokkuð ströng, en Bjarni ljúf-
ur og glaðsinna þótt blindur væri í
áratugi. Þau áttu ekki mikið af ver-
aldlegum gæðum, en gott hjartalag
og góð börn. Hjá þeim fengu Svava
og systkinin það veganesti sem vel
Á svona stundu hrannast minn-
ingarnar upp, það var svo gott að
vera nálægt honum því að hann
gerði engar kröfur, en gaf mikið
af sér. Þar sem Halli var annars
vegar var góð stemmning og mikið
grín.
Fyrst þú þurfir að fara, Halli,
þá óskum við þér alls hins besta
þar sem þú ert og biðjum Guð að
blessa þig og geyma vel.
Brjánn og Sigurlaug.
hefur reynst. Ég veit að Svava mat
fósturföður sinn mikils og hann
Svövu. Og Svava sýndi þeim mikla
ræktarsemi eftir að hún fór að heim-
an. Um það vitna margar sögumar,
sem kona mín hefur sagt mér um
hugulsemi Svövu við foreldra sina
og systkini. Ung að árum fór Svava
að vinna hjá Ríkisskip. Hún var í
mörg ár skipsþerna á „Súðinni" og
sigldi víða, einnig um skeið á „Esj-
unni“. Þetta var fyrir stríð og lítið
vöruval í landinu. Kona mín hefur
sagt mér að aldrei hafi það brugðist
að Svava kæmi færandi hendi úr
hverri ferð, með ávexti og allt hvað
heiti hefur, en ekki fékkst í búð á
Patreksfirði í þann tíð. Þannig flutti
hún með sér sólskinið í húsakynnin
og hlaut að launum þakklæti, sem
hún átti skilið.
Ég minnist Svövu, mágkonu
minnar, með virðingu og er þakklát-
ur fyrir samfylgdina. Niðjum hennar
og öðrum ættingjum votta ég sam-
úð. Gengin er góð kona.
Olafur G. Einarsson.
Svava Jensen, frænka mín, var
alltaf þar og oftast nærri, — eins
lengi og ég man. Hún og hennar
fólk bjó á Blómvallagötu, en foreldr-
ar mínir á Brávallagötu, steinsnar
þar frá. Fjölskyldurnar fluttust um
líkt leyti á Hagana. Þar var á ný
spönn ein milli húsa og nær dagleg-
ur samgangur. Ég kynntist Svövu
enn betur, þegar hún „leigði“ mér
nokkra vetur á háskólaárunum.
Henni á ég mikið að þakka. Og
þegar hún nú er kvödd, fölskvast
mér margir litir. Svo fer og öðrum,
þeim sem hana þekktu vel.
Svava Jensen var fædd í Reykja-
vík 21. september 1914 og lést í
Borgarspítalanum hinn 10. þ.m.
Foreldrar hennar voru Loftur Gunn-
arsson, kaupmaður á ísafírði, og
móðuramma mín, Guðfmna Guðna-
dóttir. Svava var fyrstu þijú árin í
fóstri hjá góðu fólki hér sunnan-
lands. Þá giftist Guðfinna, amma
mín, afa mínum, Bjarna Bjarnasyni
söðlasmið. Þau bjuggu sér heimili
á Patreksfirði, þar sem Svava ólst
upp. Bjarni gekk Svövu í föðurstað,
og voru með þeim kærleikar föður
og dóttur. Systkini Svövu, börn
Guðfinnu og Bjarna, eru: Guðmund-
ur Ingi, Ingveldur, Kjartan, Laufey
og Ragna. Afi minn átti fyrir son,
Bjarna Bjarnason vélstjóra og iðn-
rekanda, sem látinn er fyrir nokkr-
um árum. Þau Svava voru jafnan
sem systkin.
Það óx enginn auður í innsta
húsinu í „Þorpinu“, og Svava hélt
til Reykjavíkur, þegar hún var 17
ára. Þar tók hún upp að nýju tengsl-
in við fósturíjölskyldu sína úr
bernsku, og héldust þau alla tíð.
Svava kom sér vel þar, sem annars
staðar, og þessa nutu einnig systk-
ini hennar, eftir að þau komu til
Reykjavíkur.
Svava vann lengi hjá Skipaútgerð
ríkisins sem skipsþerna, lengst af
á Súðinni. Hún lagði mikið af mörk-
um til heimilis síns á Patreksfirði,
enda hjálpfús og ræktarsöm svo af
bar. Þessir góðu kostir hennar
fylgdu henni alla tíð.
Svava giftist 1942 Pétri Wilhelm
Jensen, stórkaupmanni frá Eski-
firði. Wilhelm lést árið 1961. Einka-
sonur þeirra er Þórir verslunarmað-
ur, f. 1944. Kona hans er Helga
Valsdóttir. Börn þeirra Þóris og
Helgu eru: íris, Svava Kristín,
Helga Vala og Pétur Wilhelm.
Wilhelm hafði áður verið kvænt-
ur og átti börn, sem sum voru eldri
en Svava. Börn Wilhelms og fjöl-
skyldur þeirra urðu einnig fjöl-
skylda Svövu. Þannig voru þær
Hanna (Jóhanna Jensen), dóttir
Wilhelms, og Svava miklar vinkon-
ur. Hanna lést nýlega, sem og Arn-
þór, bróðir hennar.
Þau Wilhelm og Svava ráku sam-
an innflutningsverslun, Jensen,
Bjarnason & Co., og hélt Svava
þeim rekstri áfram eftir fráfall Wil-
helms og meðan heilsa hennar
leyfði. Við reksturinn naut hún
góðrar aðstoðar Þóris, sonar síns,
enda voru þau mjög samrýnd.
Svövu lét vel að reka verslun.
Flestir viðskiptamanna hennar urðu
vinir hennar eða góðkunningjar.
Verslunin var hennar vinna, og hún
var sátt, ef hún fékk nóg til að fram-
fleyta sér og sínum. En hún var
nægjusöm. Það fór lítið sem ekkert
í súginn, og á öllum hlutum hafði
hún röð og reglu. Á kvöldin settist
hún gjarnan niður skamma stund
og skipulagði næsta dag. Hún vildi
ekki sóa tíma sínum frekár en öðru.
Svava Jensen var meðalkona á
hæð, grönn, rauðjarphærð, með
sérkennilega móbrún augu. Hún var
skarpleit í andliti og virðuleg í fasi.
Hún elti ekki sundurgerð í klæða-
burði, en þau föt, sem hún keypti
sér, voru vönduð. Hún bar sig vel,
stóð á sínu, enda þurfti ekki að
festa orð hennar í letur, svo að
héldu. Hún var oftast létt í máli
og gamansöm, en var í eðli sínu
alvörugefin og skoðaði hvert mál
grannt. Ef ég ætti að lýsa henni í
þremur orðum, þá eru þau: reisn,
í hógværð.
Svava lét sér annt um fjölskyldu
Wilhelms, sína eigin og vini sína.
Hún kunni, betur ef flestir sem ég
hef kynnst, að gera dagamun úr
litlu, en sparaði ekkert til, ef hún
vildi svo við hafa. Heimili hennar
var hlýlegt og smekklegt, og þar
sá aldrei neitt á neinu. Þannig var
hún sjálfri sér samkvæm, hvort
heldur það var heimili hennar eða
verslunarrekstur.
Ég naut ríkulega velvildar henn-
ar og ræktarsemi bæði fyrr og síð-
ar. Mér eru þó efst í huga veturn-
ir, sem ég bjó hjá henni. En henni
hefði ekki verið að skapi, að ég
hefði hér mörg orð um. Hún veitti
af hlýju. og einlægni og ætlaðist
ekki til neinna þakka.
Svava var ekki alltaf heilsugóð,
en þessi granna kona stóð alltaf
bein. Allir eldast, og hún felldi segl-
in í rekstri sínum eitt af öðru. Hún
hélt heimili til skamms tíma, og
stóð þar allt með sömu merkjum
og fyrr. Á efri árum voru barna-
börnin hennar líf og yndi. En hún
gleymdi engum.
Þórir, einkasonur Svövu, og hans
ijölskylda hafa mikið misst við veik-
indi og fráfall hennar. Þeim sendi
ég samúðarkveðjur mínar.
Við hin söknum hennar. Nú er
haust.
Ólafur Thóroddsen.
HREINLÆTI
= ÖRYGGI
Einföld, þœgileg, hnéstýrð
blöndunartœki.
Þar sem ýtrasta hreinlœtis
er gœtt.
Hagstœtt verð.
’wmmsmmmm hf,
| SSSaRMULA 21 SIMAR 686455 6S5966