Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
Tafír við Strandgötu vegna lóðadeilna
Verkinu lokið eft-
ir um mánaðartíma
SÍÐUSTU daga hefur verið unnið af krafti við gerð nýrrar Strand-
götu, en hún er lögð út í Pollinn og verður gamla gatan notuð sem
húsagata í framtíðinni. Áætlað er að nýja gatan verði tilbúin eftir um
það bil mánuð.
■£• /n Morgunblaðið/Golli
I flaumnum
GERT er ráð fyrir að búið verði að leggja götuna í lok þessa mánað-
ar eða byijun þess næsta.
Framkvæmdir hófust í apríl og
var áætlað að ljúka verkinu í byijun
júlí síðastliðins, en verkið hefur taf-
ist í sumar vegna deilna sem upp
komu um lóðamál. Þau hafa nú ver-
ið leyst og heimild veitt til að halda
verkinu áfram.
Guðmundur Guðlaugsson verk-
fræðingur hjá Akureyrarbæ sagði
að þessa dagana væri verið að ljúka
við að leggja iagnir í götnuna sem
og niðurföll, þá yrði burðarlagi ekið
í götuna og hún síðan malbikuð.
„Það er meiningin að láta þessa hluti_
ganga hratt fyrir sig og vinna verk-
ið af krafti,“ sagði Guðmundur.
Tilbúin eftir mánuð
Áætlað er að í lok mánaðarins eða
byijun þess næsta verði búið að
leggja götuna en þá tekur við ýmiss
konar frágangur, eins og gerð kant-
steina og fleira þannig að Guðmund-
ur áætlaði að ekið yrði um nýja
Strandgötu eftir um það bil mánuð.
Gatan er 350 metra löng, frá Glerár-
götu að Hjalteyrargötu, tvær akrein-
ar með umferðareyju á milli. Síðar
er áætlað að leggja göngustíg með-
fram götunni og hlaða upp steinvegg
meðfram honum.
MESSUR
Akureyrarprestakall:
Messað verður í Akureyrar-
kirkju næstkomandi sunnudag
kl. 11. B.S. Fundur verður í
Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju
kl. 17 sama dag í kapellunni.
Rætt verður um landsmót æsku-
lýðsfélaga.
Verslunarrekstur til sölu
Til sölu er verslunin FÍNAR LÍNUR á Akureyri, rótgróin
fataverslun ífullum rekstri. Verslunin er í góðu leiguhús-
næði í miðbænum. Góð erlend og innlend viðskiptasam-
bönd fylgja. Ath.: Góður sölutími framundan.
Markaður með ódýran fatnað
Til sölu er verslun á Akureyri, sem selur ódýran fatnað
á börn og fullorðna, staðsett í hjarta bæjarins við Ráð-
hústorg. Góð erlend og innlend viðskiptasambönd
fylgja.
jm FASTEIGNA & (J Sími 96 11508.
“ SKIPASALA3C Pétur Jósefsson, sölustjóri.
NORÐURLANOS íl Benedikt Ólafsson hdl.
Skinnaiðnaðarfyrirtæki verður endurreist á Akureyri
Akureyrarbær leggur 22,5
milljónir í nýtt fyrirtæki
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykki á fundi á fimmtudag að
leggja fram allt að 50% af hlutafé
til stofnunar nýs skinnaiðnaðar-
fyrirtækis á Akureyri en þó ekki
hærri upphæð en 22,5 milljónir
króna. Verið er að safna hlutafé
þessa dagana en ætlunin er að
leggja upp um 45 milljónir króna
í hlutafé hins nýja fyrirtækis.
Á fundi bæjarrráðs var til umfjöll-
unar bréf frá Iðnþróunarfélagi Eyja-
fjarðar þar sem farið var fram á að
Framkvæmdasjóður Akureyrar að-
stoði við endurreisn skinnaiðnaðar-
fyrirtækis á Akureyri með hlutafjár-
framlagi að upphæð 22,5 milljónir
króna, en bæjarráð hafði í sumar lýst
sig reiðubúið til þátttöku sem minni-
hlutaaðili í uppbygginu fyrirtækisins.
Meirihluti bæjarráðs samþykkti á
fundinum að leggja fyrirtækinu til
allt að 50% af hlutafé til stofnunar
fyrirtækisins, en þó ekki hærri upp-
hæð en 22,5 milljónir króna.
Starfsfólk Rekstrarfélags ÍSÍ
ákvað í síðustu viku að leggja fram
andvirði sumarhúss starfsmannafé-
lagsins sem hlutáfé. Starfsmannafé-
lagið á sumarbústað við Bifröst í
Borgarfirði, sem ákveðið hefur verið
að selja, en áætlað er að andvirðið
nemi um þremur milljónum króna.
Þá hafa þeir starfsmenn sem hljóta
vinnu hjá hinu nýja félagi iýst sig
reiðubúna að leggja fram hlutafé úr
Að sögn Gunnars Jónssonar for-
manns Iþrótta- og tómstundaráðs
liggja fyrir hugmyndir tveggja sér-
fræðinga á þessu sviði um hvað best
sé að gera til að bæta hljómburðinn.
Hann sagði að þessi úttekt sem fyrir-
hugað væri að gera tengdist hugsan-
eigin vasa. Þannig er áætlað að fram-
lag starfsmanna geti í heild numið
4-5 milljónum króna.
Rekstrarfélag Landsbanka íslands
.hefur rekstur þrotabúsins á leigu til
næstu mánaðamót, en fram til þess
tíma verður ötullega unnið að því
að safna hlutafé.
legum tónleikum Kristjáns Jóhanns-
sonar næsta vor. íþróttahöllin er sá
staður sem sterklega kemur til
greina vegna tónleikahaldsins. „Ef
menn vilja á annað borð fara út í
þetta verk er ástæða til að gera það
núna,“ sagði Gunnar.
íþróttahöllin
Úttekt á hljómburði
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur samþykkt að veita allt að hálfri milljón
króna til áð láta gera úttekt á hljómburði í íþróttahöllinni. Upphæðin
sem varið verður til þessa verks verður flutt frá fjárveitingaliðnum
„óvænt og óviss útgjöld" yfir á liðinn „íþróttamál“.
í '
iHtööur
r
a
tnorgun
________
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Foreldrar hvattir til þátttöku í
vetrarstarfinu. Guðsþjónusta kl. 14.
Athugið breyttan messutíma. Fjöl-
breytt tónlist. Einsöngur Reynir
Guðsteinsson. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Guðs-
þjónusta fyrir alla fjölskylduna í
upphafi barnastarfs. Dómkórinn
syngur. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Grímur Grímsson.
Organisti Kjartan Ólafsson. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarfið
hefst kl. 11. 3-6 ára börn á neðri
hæð. 6-10 ára börn og foreldrar í
fjölskyldumessu í kirkjusalnum.
Föndur og fræðsla. Leikræn tjáning
og mikill söngur. Messa kl. 14. Alt-
arisganga. Barnakór Grensáskirkju
syngur undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Prestur sr. Gylfi Jóns-
son. Innritun fermingarbarna eftir
messu. Þess er óskað að foreldrar
fermingarbarna komi til kirkju
ásamt börnum sínum.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa kl. 11. Altaris-
ganga. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Orgeltónleikar kl. 17. Kvöldmessa
kl. 20 á vegum Reykjavíkurprófasts-
dæmis vestra fyrir presta, sóknar-
nefndir, starfsfólk, söngfólk og
sjálfboðaliða safnaða í prófasts-
dæminu. Fjölmennum. Fjórir prest-
ar og fjöldi leikmanna annast mess-
una. Mótettukór Hallgrímskirkju
syngur. Organisti Hörður Áskels-
son.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Kristinn Á. Friðfinns-
son. Organisti Jón Stefánsson. Kór
Langholtskirkju (hópur V) syngur.
Kaffisopi eftir guðsþjónustu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Bjöllusveit Laugarnes-
kirkju leikur. Organisti Ronald Turn-
er. Sr. Jón D. Hróbjartsson. Barna-
starfið hefst á sama tíma í umsjá
Þórarins Björnssonar. Heitt á könn-
unni eftir guðsþjónustu og köku-
basar bjöllusveitar.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M.
Halldórsson. Messa kl. 14. Orgel
og kórstjórn Reynir Jónasson. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir. Organisti Hákon
Leifsson. Þema ársins Biblían verð-
ur kynnt. Kirkjugestir taki Biblíuna
með sér til messu. Barnastarfið
hefst á sama tíma. Nýtt barnaefni.
Umsjón Eirný Ásgeirsdóttir og Bára
Friðriksdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Þór Hauksson.
Organisti Sigrún Steingrímsdóttir.
Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Daníel Jónas-
son. Samkoma Ungs fólks með
hlutverk kl. 20.30. Gísli Jónasson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Lenka Máté-
ová. Prestarnir.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Guðþjónusta kl. 11 í félagsmiðstöð-
inni Fjörgyn. Guðsþjónusta kl.
12.30 í Hjúkrunarheimilinu Eir. Org-
anisti Sigurbjörg Heigadóttir. Vig-
fús Þór Arnason.
HJALLAPRESTAKALL: Guðsþjón-
Guðspjall dagsins: (Matt.
6). Enginn kann tveimur
herrum að þjóna.
usta kl. 10.30. Fundurmeðferming-
arbörnum og foreldrum þeirra að
lokinni guðsþjónustu. Organisti
Kristín G. Jónsdóttir. Guðsþjónusta
kl. 14. Fundur með fermingarbörn-
um og foreldrum þeirra að lokinni
guðsþjónustu. Organisti Kristín G.
Jónsdóttir. Kristján Einar Þorvarð-
arson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson héraðsprestur. Organ-
isti Stefán R. Gíslason. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Smári
Ólason. Bogi Arnar Finnbogason
syngur einsöng. Safnaðarprestur.
FRÍKIRKJAN,JRvík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11, upphaf barnastarfsins
í vetur. Guðsþjónusta kl. 14, sér-
staklega beðið fyrir friði og kær-
leika. Gestir aðstoða í tali og tón-
um. Organisti Pavel Smid. Cecil
Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
KFUM/KFUK, SÍK: Almenn sam-
koma í upphafi vetrarstarfs félag-
anna. Upphafsorð og bæn hefur
Willy Petersen. Ræðumenn verða
Aðalsteinn Thorarensen, Anna
Hilmarsdóttir og Linda Sjöfn Sig-
urðardóttir. Einnig verður leikræn
tjáning.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Alla rúmhelga daga messa
kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffladelfía:
Brauðsbrotning kl. 11. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður
David Jenkins. Öllum opið.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudag
kl. 11 helgunarsamkoma, kl. 20
hjálpræðissamkoma. Major Anne
Gurine og Daníel Óskarsson stjórna
og tala á báðum samkomunum.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17. Ræðumaður
Eiríkur Skála frá Tórshöfn.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11 og guðsþjónusta kl. 14. Prest-
ur sr. Olafur Jóhannsson. Kór Víði-
staðasóknar syngur. Organisti Úlrik
Ólason. Sóknarprestur.