Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 39 HANDKNATTLEIKUR a ÍR-ingar Reykjavíkur- meistarar IR-ingar tryggðu sér í gærkvöldi Reykjavíkurmeistaratitilinn í handknattleik í meistaraflokki karla i fyrsta sinn síðan 1989 er þeir sigr- uðu KR-inga 25:21 í íþróttahúsinu Austurbergi í Breiðholti. KR hafði frumkvæði í leiknum til að byija með en ÍR átti góðan endasprett. Branislav Dimitrivitsch var marka- hæstur ÍR-inga með 8 mörk. Rób- ert Þór Rafnsson og Ólafur Gylfa- son gerðu fímm mörk hvor. Hilmar Þórlindsson var markahæstur KR- inga með 9 mörk. Valur og Víkingur gerðu jafn- tefli, 26:26, í síðasta leik mótsins í gær. Valur hafnaði í 2. sæti, Vík- ingur í þriðja, KR í fjórða sæti, Fylkir í fímmta, Ármann í sjötta og Fram í sjöunda og neðsta sæti. Danir til íslands? Danska landsliðinu í handknatt- leik hefur verið boðið að koma til ísiands og leika hér landsleiki á milli jóla og nýárs. Danir hafa ekki gefíð Handknattleikssambandi ís- lands ákveðið svar, en miklar líkur eru á að þeir taki boðinu og mæti til leiks. íslenska landsliðið leikur fjóra leiki í nýstofnaðri Evrópukeppni landsliða á næstu vikum. Fyrsti leikurinn verður gegn Finnum ytra Enn allt íhnúthjá - Fram og Aftureldingu Forráðamenn handknattleiks- deildar Fram og Aftureldingar hittust í gær til að reyna að kom- ast að samkomulagi um félaga- skipti Gunnars Andréssonar og Ja- sonar Ólafssonar úr Fram og yfír í Aftureldingu. Ekki náðist sam- komulag á fundinum en menn töluðu þó saman á skynsömum nót- um, eins og einn fundarmanna orð- aði það. Forráðamenn félaganna ætla að hittast aftur um helgina. Fyrsta deild kala hefst í næstu viku og því ekki mikill tími til stefnu. URSLIT Knattspyrna Þýskaland VfB Stuttgart - Kðln............1:1 (Kögl 79. - vsp.) - (Passlack 13.). 23.000. ■Eyjólfur Sverrisson lék allan leikinn með Stuttgart. Hann átti m.a. fallegt skot í stöng rétt áður en Kögl jafnaði úr vítaspymunni. Dubajek, leikmaður Stuttgart, var rekinn útaf um miðjan síðari hálfleik. Leipzig — Hamburg.............. 1:4 (Liebers 83.) - (Baeron 25., von Heesen 37., Baeron 74., Spies 88.). 18.000. Freiburg — Kaiserslautern........2:3 (Cardoso 52., Todt 72.) - (Ritter 23., Kadlec 67., Kuntz 80.). 15.000. Staða efstu liða: Eintracht..........7 6 1 0 21: 5 13 Hamburg............8 6 1 1 20:10 13 WerderBremen.......7 5 11 16:11 11 Duisburg...........7 34015: 810 Leverkusen.........7 4 2 1 13:10 10 Kaiserslautem......8 4 2 2 15:10 10 BayemMunchen.......7 3 2 2 16: 8 8 Dortmund...........7 3 1 3 12: 9 7 Köln ..............8 3 1 4 8: 9 7 VfB Stuttgart......8 1 5 2 14:17 7 Evrópukeppni bikarhafa Ljubljana, Slóveníu: Ihyduk Split — Ajax (Hollandi)...1:0 Ivica Momar (44.). 10.000. KNATTSPYRNA 10. október, en síðan koma Króatar og leika í Reykjavík 20. október. Landslið Búlgaríu kemur hingað til lands og leikur tvo leiki í keppninni 11. og 12. nóvember. Eftir áramót fer landsliðið til Króatíu og þá koma Finnar og leika hér. Landslið Hvíta- Rússlands leikur báða leiki sína hér á landi. Sigurvegarinn í riðlinum kemst í 16-liða úrslitakeppni EM, sem fer fram í Portúgal í júní 1994. Morgunbiaðið/Ámi Sæberg Ólafur Gylfason , fyrirliði ÍR-inga, lyftir hér bikamum eftir sigurinn á KR í gærkvöldi. IMei! — við2milljóna króna kröfu Rússa Heims- og Ólympíumeistarar Rússa verða ekki með á sterku móti í Strassborg ásamt íslendingum, Frökkum og Svíum Heims- og Ólympíumeistarar Rússa taka ekki þátt í fjög- urra þjóða handknattleiksmóti í Strassborg í Frakklandi, sem ís- lenska landsliðið tekur þátt í 7. - 9. desember. Rússar settu fram þær kröfur að þeir fengju þijátíu þúsund dollara fyrir að leika í mótinu, en Alþjóða handknattleikssambandið sagði; Nei, þið fáið engar greiðslur. Frakkar buðu þeim þjóðum sem urðu í fjórum efstu sætunum á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992 á mótið. Talið er að ástæðan fyrir kröfum Rússa, séu að handknatt- leiksforustan í Rússlandi hafí ekki mikla peninga á milli handanna, en það er þó ekkert nýtt-að Rússar fari fram á dágóðar peningaupp- hæðir fyrir að mæta með landslið sitt í keppni. Miklar líkur eru á að Þjóðverjum verði boðið að taka sæti Rússa, þar sem það verður haldið við landa- mæri Þýskalands. Það myndi jafn- framt gefa Frökkum dágóðar fjár- hæðir vegna beinna útsendinga í sjónvarpi til Þýskalands og auglýs- ingatekjur samfara sjónvarpsút- sendingum. ÍMém FOLK ■ HELGI Bjarnason, varnarmað- ur Fylkis, fór til náms í Danmörku fyrir skömmu, en kom gagngert frá Danmörku í gær til að leika með liði sínu gegn Fram í 1. deildinni í dag. ■ DÓMARINN Burge frá Wales mun dæma síðari leik Feyenoord og ÍA í Rotterdam 29. september. Petersen frá Noregi mun dæma leik Vals og Aberdeen í Skotlandi sama dag. Þá mun Huzu frá Rúm- eníu dæma síðari leik KR og MTK í Búdapest. ■ DÓMARAR í Englandi hug- leiða að fara í verkfall í næsta mán- uði. Ástæðan fyrir því er sjálfsmorð dómarans Frank Martin frá Wales, en hann framdi sjálfsmorð eftir að hafa verið settur í bann af enska knattspyrnusambandinu. Ástæðan fyrir banninu var að Martin var með létt spaug þegar dómarar komu sam- an í próf fyrir keppnistímabilið — en það þoldu forráðamennirnir ekki. ■ UNNIÐ er að rannsókn vegna sölu Paul Gascoigne til Lazio á Ítalíu. Grunur leikur á að Terry Venables, fyrrum framkvæmda- stjóri félagsins, hafí ekki hreint mjög í pokahorninu vegna sölunnar — að peningum hafí verið stungið undir stól. Þá hefur vakið athygli að ít- alskur veitingastaður í London fékk greidd 200 þús. pund. Ýmsar aðrar einkennilegar upplýsingar um pen- ingagreiðslur til ákveðna manna — hafa komið fram. ■ HOLLENDINGAR verða að leggja landslið San Marínó að velli með miklum mun í undirnkeppni HM í næstu viku, en þeir berjast um sæti í lokakeppninni í Banda- ríkjunum við Norðmenn og Eng- lendinga. Tveir leikmenn frá Fey- enoord er í sextán manna landsliðs- hóp Hollands — þeir Ed de Goey, markvörður og sóknarleikmaðurinn Rob Witschge. Þjálfaranámskeid Fræðslunefnd ÍSÍ gengst fyrir þjálf- aranámskeiði, A-stigs, sem er sam- ræmt bóklegt námskeiðs og und- anfari A-stigsnámskeiða sérsam- bandanna. Námskeiðið verður hald-^ ið í íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugardal föstudaginn 24. september til sunnudagsins 26. september. Skráning á skrifstofu ÍSÍ. UM HELGINA Knattspyrna 1. DEILD KARLA 17. umferðin verður leikin í dag og á morg- un. Laugardagur: Akranes: IA - ÍBK....................14 Akureyri: Þ6r - Valur................14 Valbjarnarv.: Víkingur - ÍBV.........16 Fylkisv.: Fylkir- Fram...............16 Sunnudagur: KR-völlur: KR - FH...................16 2. DEILD Slðasta umferðin í 2. deild karla verður leikin f dag, laugardag. Kópavogur: UBK - Leiftur.............14 Þróttarv.: Þróttur R. - UMFT.........14 Grindavík: UMFG-KA...................14 Atjömuv.: Stjaman - Þróttur N........14 ísafjörður: ÍB - ÍR..................13 2. FLOKKUR Fram og ÍBV leika síðasta leikinn I a-deild 2. flokks karla á Framvellinum á morgun, sunnudag, kl. 14. Sigri Fram eða geri jafn- tefli, verða Framarar íslandsmeistarar, en sigri ÍBV verða Skagamenn meistarar. Golf Opið styrktarmót verður hjá Golfklúbbnum Keili í dag. Mótið er haldið til styrktar sveit Keilis, sem tekur þátt í Evrópukeppni fé- lagsliða á Spáni. Hjá Golfklúbbi Suðamesja verður Spari- sjóðsmót. í dag, laugardag, verður leikið I Grindavík en á morgun í Leirunni. Skvass Fyrsta skvassmót vetrarins verður haldið í Veggsporti við Stórhöfða um helgina. Mót- ið er öllum opið. Körfuknattleikur KR og Valur mætast í Reykjavfkurmótinu í Iþróttaúsinu á Seltjamamesi kl. 20 á sunnudag í dag kl. 14.00 leika Haukar og UMFG í Reykjanesmótinu í Hafnarfirði. Eldri knatt- spyrnumenn ath.l Skrokkamót eldri flokks Breiðabliks í knattspyrnu verður haldið á sandgrasvellinum í Kópavogi laugardaginn 25. sept- ember. Rétt til þátttöku eiga lið skipuð leikmönnum 30 ára og eldri. Einnig verður leikið í sérriðli 40 ára og eldri ef næg þátttaka fæst. Keppt verður í 7 manna liðum. Þátttökugjald er 10.000. Skráning og nánari upplýsingar eru í síma 688777/46263 (Andrés), 684280 (Hákon), 641990 (Einar eða Jón) eða 643397 (Sighvatur). Einnig er hægt að senda inn þátttökutil- kynningar á símrita 40050. "N GETRAUNADEILDIN Hollensku liðin töpuðu öll Hollenska liðið Ajax tapaði óvænt 1:0 á útivelli fyrri Hajduk Split frá Króatíu í Evrópukeppni bikarhafa í gærkvöldi. Leikurinn var fluttur til Ljubljana í Slóveníu vegna ástandsins í Króatíu. Þar með töpuðu öll fimm hollensku liðin í fyrstu umferð keppninnar. Þetta er ein versta útreið sem hollensk lið hafa fengið í Evrópukeppni í fjölmörg ár. Meistarar Feyenoord töpuðu eftirminnilega fyrir Skagamönn- um á Laugardalsvelli á miðvikudagskvöld og PSV Eindhoven, Vitsesse Arnhem og FC Twent töpuðu öll leikjum sínum í fyrstu umferð. KR-VÖLLUR, SUNNUDAGÍNN 19. SEPTEMBER, KL. 16.00 Bakarameistaraleikurinn KR-FH KR-ingar! Fjölmennum og styðjum okkar menn til sigurs. KR-klúbburinn hittist fyrir leik. Léttar veitingar. SUÐURVERI llll FORMPRENT dcftctas ■ QUXPMBMT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.