Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐUR LESBOK/C STOFNAÐ 1913 211. tbl. 81.árg. LAUGARDAGUR18. SEPTEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Kínverjar hóta að hundsa ÓL 1996 Mónakó. Reuter. KÍNVERJAR hóta því að sniðganga Ólympíuleikana í Atlanta árið 1996 fái þeir ekki sjálfir að halda leikana á aldamótaárinu, en Al- þjóðaólympíunefndin (IOC) ákveður nk. fimmtudag hvar leikarnir árið 2000 verða haldnir. Zhang Baifa, aðstoðarborgar- stjóri í Peking og framkvæmda- stjóri kínverskrar nefndar sem vinn- ur að því að fá leikana ti! Kína, hótaði í gær heimasetu 1996 ef Kínverjar hefðu ekki erindi sem erfíði. Þetta sagði hann í viðtali við ástralska sjónvarpsstöð og ítrekaði yfírlýsingarnar við blaðamenn í Mónakó í gær. Þvottastöð fyrir fólk Tókíó. Reuter. JAPANSKIR hugvitsmenn hafa fundið upp sjálfvirkan sturtu- klefa, mannaþvottastöð, þar sem líkaminn er þveginn án þess að viðkomandi þurfi nokkuð að gera annað en fara inn i klefann og standa þar kyrr í nokkrar mínút- ur. Þvottastöðinni svipar til símklefa að stærð og lögun og það eina sem gera þarf er að skella sér inn og ýta á takka. Fer þá allt í gang, fyrst sprautast vatn út um túður hér og þar á veggjum klefans til að bleyta skrokkinn, því næst úðast sápa yfír viðkomandi og svo er hún hreinsuð af, allt án þess að manns- höndin komi nærri, og í lokin leikur hlýr loftstraumur um líkama þess er í klefanum stendur og þurrkar hvern blett. Hægt er að velja mismunandi þvottaforrit, þar sem m.a. er mögu- legt að fá kaldan þurrk í lokin og einnig að sleppa við hárþvott. Tæk- ið þykir einkum hentugt fyrir þá sem hafa eiginlega ekki nennu til að skella sér í bað, t.d. vegna þreytu, þó nauðsynlegt væri frá hreinlætissjónarmiði séð. Zhang sagði að Kínverjar myndu gera Bandaríkjaþing ábyrgt fengju þeir ekki leikina en þingið sam- þykkti í sumar ályktunartillögu um að ekki bæri að fela Kínverjum leikjahaldið vegna mannréttinda- brota kínverskra stjórnvalda. Talsmaður IOC sagði í gær að yfírlýsing Zhangs myndi fremur draga úr líkum á að Kínverjar fái að halda leikana en hitt. I gær- kvöldi sagði He Zhenliang, formað- ur Ólympíunefndar Kína og vara- forseti IOC, að Kínverjar ætluðu ekki að hundsa leikana í Atlanta. Hann var margsinnis spurður að því hvort hann vildi lýsa því afdrátt- arlaust yfír að kínverskir íþrótta- menn myndu keppa þar en svaraði engu. Reuter Arafat eftirsóttur VEGGMYNDIR af Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palest- ínumanna (PLO), seljast grimmt þessa dagana og var myndin tek- in í gær af sölumönnum sem önn- uðu vart eftirspurn í Jerúsalem. í gær voru m.a. hengdar upp myndir af Arafat í vesturálmu Hvíta hússins í Washington en þar í borg opnar PLO sérstaka skrifstofu í næsta mánuði. Skýrt var frá því í gær að Bandaríkja- menn og ísraelar beita nú Sýr- lendinga miklum þrýstingi að leggja blessun sína yfír friðarsátt- mála ísraela og PLO og stíga skref sem dugað gætu til að ijúfa kyrrstöðu sem verið hefur í samn- ingum um frið í Miðausturlöndum. Háttsettur fulltrúi hjá PLO sagði í gær að ísraelar hefðu samþykkt að allt að 400.000 palestínskir flóttamenn fengju að snúa til heimkynna sinna á næstu fímm árum. Króatar jöfnuðu 11 þorp Serba í Kraiina við jörðu Eltlllb Krnoltu Rnlírroíl Rautor Citluk, Króatíy. Belgrad. Reuter. FULLTRUAR hersveita Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Króat- íu sögðu í gær að króatíski stjórnarherinn hefði jafnað 11 þorp Serba í héraðinu Knin Krajina í suðurhluta landsins við jörðu áður en sveitimar fóm þaðan á fimmtudag í samræmi við vopnahléssamkomulag Serba og Króata. Af ummerkjum væri augljóst að fyrirmæli um aðgerðirnar hefðu komið ofan frá. Jim Calvin ofursti, yfirmaður kanadísks herfylkis í Krajina- héraðinu, sagði að Króatar hefðu gengið kerfisbundið og skipulega til verks. Kveikt hefði verið í hveiju einasta húsi og flest þeirra verið jöfnuð við jörðu. Til þess hefði þurft mikinn tækjakost og mikið sprengiefni. „Það er greinilegt af öllu að fyrirmæli um verknaðinn hafa komið frá æðstu yfirvöldum og hersveitirnar fengið sérstakan mannafla og tækjakost til verks- ins. Þetta er ekkert í líkingu við það hvemig hersveitir á undan- haldi eiga til að skilja við sig,“ sagði Calvin. Calvin sagði að nokkur lík hefðu fundist í húsarústum en jarðrask benti til þess að teknar hefðu ver- ið fjöldagrafir og óttast væri að þar væri ijöldi líka. Króatar náðu sneið af Krajina er þeir sóttu þar skyndilega fram fyrir rúmri viku. Serbar svöruðu með stórskotaliðsárás á króatísku höfuðborgina Zagreb. Um síðir samdist um vopnahlé þar sem Serbar settu það sem skilyrði að króatísku sveitirnar yrðu dregnar til baka frá Krajina. Owen vongóður Owen lávarður sáttasemjari í Bosníudeilunni sagðist í gær von- góður um að á þriðjudag tækist að ljúka samningum um frið í Bosníu. Leiðtogar þjóðarbrotanna þriggja hafa þá verið boðaðir til fundar á flugvellinum í Sarajevo. Ofgamenn fagna sigri STUÐNINGSMENN Breska þjóðarflokksins, flokks hægri öfgamanna sem boðað hafa útlendinga- og kynþáttahatur, fagna óvæntum sigri í aukakosningum til bæjarstjórnar Millwall í austurhluta Lundúna. Frambjóðandi flokksins, Derek Beackon, hlaut 1.480 atkvæði eða sjö umfram frambjóðanda Verkamannaflokksins. Fulltrúi Íhaldsflokksins fékk aðeins 134 atkvæði í fjórða sæti. Kirkjuleiðtogar og stjórnmála- menn fordæmdu úrslitin og Michael Howard innanríkisráðherra sagði óviðunandi að til opinberra trúnaðarstarfa veldust menn sem viður- kenndu ekki að allir þegnar landsins væru jafnir fyrir lögum. Kafbátaleitartækni við hvalarannsóknir á Atlantshafi Telja stofnana stærri en áður hefur verið áætlað HVALASTOFNAR „tala“ hver með sínum hreim, að sögn vísindamanna bandaríska flotans og Cornell-háskóla í New York-ríki er undanfarna tíu mánuði hafa fylgst með hljóð- um nokkurra hvalategunda á Atlantshafi. Þeir hafa að sögn breska blaðsins The Independent notað hlustun- artækni sem þróuð var til að fylgjast með kafbátaflota Sovétríkjanna sálugu. Bráðabirgðaniðurstöður benda til þess að hvalastofnarnir séu stærri en talið hefur verið. Fylgst hefur verið með steypi- reyði, langreyði og hnúfubak, teg- undum sem allar eru taldar í útrým- ingarhættu, en einnig hrefnu sem hvalveiðiþjóðir álíta að nóg sé til af. Fjöldi einstaklinga af hverri teg- und kom vísindamönnunum mjög á óvart og alls skráðu þeir um 35.000 afar ólík köll fyrstu þijá mánuðina. Ekki er enn búið að ganga fyllilega úr skugga um það hve mörg dýrin voru. Vísindamennirnir telja hins vegar góðar líkur á að hægt verði að telja dýrin með mun meiri ná- kvæmni en fram til þessa og fylgj- ast með sveiflum í stofnstærð ef frekari rannsóknir verði gerðar. Við fyrri talningar hefur einkum verið stuðst við kannanir úr lofti og af skipum. „Þetta er ekki ósvipað því að fylgjast fyrst með nokkrum útvöld- um næturklúbbum í Evrópu, heyra kunnuglegt lag, heyra þar næst tónlist frá öllum klúbbunum í álf- unni og taka eftir því að sums stað- ar er leikinn djass, annars staðar rokk og loks dálítið af þunga- rokki,“ sagði Christopher Clark, stjórnandi rannsókna á náttúru- hljóðum við Cornell-háskóla. „Fjöl- breytnin í hljóðum langreýða var miklu meiri en áður hafði mælst.“ Clark sagði að hvalir á hafsvæðinu milli Grænlands, íslands og Noregs virtust nota ákveðið hljómfall og hrynjandi sem ekki hefði greinst hjá frændum þeirra á vesturhluta Atlantshafs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.