Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ IÞRÓTTIR LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 KNATTSPYRNA Fallbaráttan í algleymingi íslandsbikarinn afhentur á Akranesi í dag. Nær Þórður að slá markametið? FALLBARATTAN í 1. deild karla veður í algleymingi í dag þegar næst siðasta umferðin fer fram. Fjögur lið eru töl- fræðilega enn í fallhættu; Vík- ingur, ÍBV, Fylkir og Þór. Vfk- ingar mæta IBV á Valbjarnar- velli og má hvorugt liðið við því að tapa og sama má segja um Fylki sem mætir Fram í Árbænum. Þórsarar mæta Val á Akureyri og nægir jafntefli til að gulltryggja sæti sitt. Þrír leikmenn Víkings taka út leikbann gegn ÍBV. Miðheij- inn Thomas Javorek og vamar- mennirnir Björn Bjartmarz og Hall- dór Jónsson. Eyjamenn era með tvo leikmenn í banni þá Nökkva Sveins- son og Rút Snorrason. Möguleikar Víkinga era óneitanlega minnstir í stöðunni. Tapi Víkingur stigi gegn ÍBV er það fallið og ef Fylkir tapar fyrir Fram verður hreinn úrslitaleik- ur milli ÍBV og Fylkis í Vestmanna- eyjum í síðustu umferð um hitt fall- sætið. Vinni hinsvegar Víkingur og Fylkir sína leiki eru bæði ÍBV og Víkingur fallin. ÍA fær íslandsbikarinn Skajgamenn tryggðu sér endan- lega Islandsmeistaratitilinn í síð- ustu umferð og fá íslandsbikarinn afhentan á Akranesi eftir leikinn gegn ÍBK í dag. Spennan í kringum þennan leik verður sjálfsagt spurn- ingin um það hvort Þórði Guðjóns- syni takist að slá markamet Péturs Péturssonar og Guðmundar Torfa- sonar. Hann hefur þegar gert 18 mörk í deildinni og þarf því aðeins tvö í viðbót til að slá metið. Óli Þór Magnússon Keflvíkingur er ekki langt undan því hann hefur gert 15 mörk og hann lætur sjálfsagt ekki sitt eftir liggja á Skaganum í dag. Fimmti leikur 17. umferðar fer fram á morgun, sunnudag, á KR- velli þar sem KR-ingar taka á móti næst efsta liði deildarinnar, FH, sem þegar hefur tryggt sér UEFA- sætið að ári. í 2. deild er aðeins spuming um það hvort það verður Stjaman eða Leiftur sem fylgja Breiðablik upp í 1. deild. Stjarnan leikur á heima- velli gegn Þrótti Neskaupstað og Leiftur mætir UBK í Kópavogi og heíjast báðir leikimir kl. 14. Tinda- stóll og BÍ era þegar fallin. Fj. leikja U J T Mörk Stig ÍA 16 14 1 1 58: 16 43 FH 16 10 4 2 33: 19 34 FRAM 16 8 1 7 36: 30 25 ÍBK 16 7 3 6 28: 27 24 VALUR 16 6 3 7 24: 21 21 KR 16 6 3 7 32: 30 21 ÞÓR 16 5 4 7 18: 25 19 FYLKIR 16 5 1 10 19: 34 16 ÍBV 16 3 4 9 21: 39 13 VÍKINGUR 16 3 2 11 19: 47 11 Markahæstir Þórður Guðjónsson, ÍA.............18 Óli Þór Magnússon, ÍBK............15 Helgi Sigurðsson, Frain...........14 Haraldur Ingólfsson, í A..........13 Hörður Magnússon, FH..............12 Mihajlo Bibercic, í A.............11 Anthony Karl Gregory, Val..........9 Höttur sigurvegari í 4. deild karla Morgunblaðið/Kristinn Höttur frá Egilsstöðum sigraði Fjölni í úrslitaleik 4. deildar 1:0 að Varmárvelli í Mosfellsveit fyrir skömmu. í liði Hattar eru eftirtaldir. Efri röð frá vinstri: Sigurður Magnússon, Ágúst Ólafsson, liðsstjóri, Sigurður Amar Jónsson, Valgeir Pétursson, Smári Brynjarsson, Haraldur Klausen, Veigur Sveinsson, Hörður Guðmundsson, Kári Hrafnkelsson, Ómar Jóhannsson, þjálfari, Gunnar Leifsson, Víðir Guðmundsson, liðsstjóri, Eyjólfur Skúlason, liðsstjóri og Hermann Níels- son, formaður knattspymudeildar Hattar. Neðri röð frá vinstri: Guðgeir Siguijónsson, Þórður Ragnarsson, Jón Fjölnir Albertsson, Jón Kristinsson, Baldur Braga- son, Heimir Hallgrímsson, fyrirliði, Magnús Jónasson, Árni Ólason, Grétar Eggertsson, Hilmar Gunnlaugsson, Viðar Jónsson og Jón Gunnar Axelsson. Frá Bob Hennessy í Englandi FOLX ■ TOTTENHAM seldi miðvallar- spilarann Paul Allen til Southamp- ton í gær fyrir 550 þús. pund, en hann skrifaði undir þriggja ára samning. Ossie Ardiles, fram- kvæmdastjóri Tott- enham, sagði að All- an væri ekki inní framtíðarliði sínu. Állen er 31 árs og kom til Tottenham frá West Ham fyrir fimm árum. ■ LIVERPOOL keypti bakvörðinn Julian Dicks frá West Ham á 1,5 millj. punda, en West Ham fékk tvo leikmenn frá Liverpool í staðinn — David Barrows og Mike Marsh, en þeir leika með West Ham gegn Blackburn í dag. ■ DICKS,, sem er 25 ára, hefur átta sinnum verið rekinn af leikvelli á keppnisferli sínum og þar af þrisvar á sl. keppnistímabili. ■ WEST Ham fékk þriðja leik- manninn til liðs við sig í gær — keypti Lee Chapman frá Portsmouth á 250 þús. pund, en Portsmouth keypti hann frá Leeds í sumar á 220 þús. pund. ■ MANCHESTER City keypti írska landsliðsmanninn Alan Kernaghan frá Middlesbough á 1,5 millj. punda í gær. Það er aðeins þijár vikur síðan Kernaghan skrif- aði undir þriggja ára samning við “Boro“ — en félagið ákvað að selja hann til að kaupa þijá nýja leikmenn fyrir upphæðina sem fékkst. ■ TONY Adams, fyrirliði Arsenal mun leika með félaginu gegn Man. Utd. á Old Trafford á morgun og einnig Ian Wright, sem meiddist lít- ilsháttar í Evrópuleiknum gegn OB í vikunni. ■ MARK Hughes kemur á ný inn í lið Man. Utd., en Bryan Robson mun missa stöðu sína í liðinu. ■ IAN Marshall og Paul Mason, sem Ipswich keypti í sumar, leika sinn fyrsta leik með félaginu í dag — gegn Aston Villa. ■ JIM Bett og Joe Miller, leik- menn hjá Aberdeen, meiddust í Evrópuleiknum gegn Val, geta ekki leikið með liðinu gegn Glasgow Rangers í dag. Fjórir aðrir leikmenn liðsins eru einnig á sjúkralista. ISLANDSMOTIÐ 2. D EI L D • • KOPAVOGSVOLLUR - AÐALLEIKVANGUR Breiðablik - Leiftur í dag kl. 14.00 i 09 Knattspyrnuóhugamenn! Sjáið Breiðablik taka á móti bikarnum. HANDKNATTLEIKUR ísiandsmótið hefsl um helgina Islands- og bikarmeistararnir mætast í fyrsta leik Íslandsmótið í handknattleik hefst um helgina, en á sunnudaginn verður leikin heil umferð í 1. deild kvenna. íslandsmeistarar Víkings hefja titilvöm sína með leik gegn bikarmeisturum Vals að Hlíðarenda kl.20. Aðrir leikir verða sem hér segir: Fylkir - Fram í Austurbergi kl. 20 og strax á eftir, eða kl. 21.30 leika Ármann og Grótta. FH leikur gegn Haukum í Kaplakrika kl. 20 og ÍBV fær KR í heimsókn kl. 20.30. Fyrsta deild karla hefst á mið- vikudaginn með leik FH - Selfoss í Kaplakrika, en á fimmtudaginn verða leiknir fimm leikir: KR - Vík- ingur, Stjarnan - Haukar, KA - ÍBV, Valur - ÍR og Afturelding - Þór. BYKO w VIKIHGUR - IBV í dag kl. 16.00 á Laugardalsvelli. Komið og sjáið spennandi leik EJ^ A3T TÖLVUR ISLENSKAR to mMHIR ipróttamiðstOðinni v/sigtun 104 REYKJAVÍK SÍMI 68 83 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.