Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBBR 1993 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skíptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Landsfundur Sjálfstæðisflokks Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins verður settur í Laugardalshöll síðdegis í dag. Landsfundir Sjálfstæðis- flokksins vekja ávallt mikla athygli enda eru þeir umfangs- mestu og fjölmennustu stjórn- málasamkomur sem haldnar eru hér á landi. Eiga um átján hundruð manns rétt til setu á landsfundi að þessu sinni. Aðstæður eru um margt breyttar frá því að sjálfstæðis- menn gengu síðast til lands- fundar í mars 1991. Þá var flokkurinn í stjómarandstöðu en nú gegnir hann forystuhlut- verki í ríkisstjórn. Síðasti landsfundur snerist einnig að mestu um það formannskjör er þá fór fram en nú má búast við að málefni og stefnumörk- un verði í fyrirrúmi. Það er mjög mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að á lands- fundi hans fari fram opinskáar og hreinskiptnar umræður um stefnu flokksins. Fylgi flokks- ins hefur samkvæmt skoðana- könnunum farið dvínandi á undanförnum árum og hann gæti átt á hættu að glata þeirri yfirburðastöðu, sem hann hef- ur haft áratugum saman í ís- lenskum stjórnmálum. Ástæð- urnar fyrir veikari stöðu Sjálf- stæðisflokksins eru margar. Stjórnmálaumhverfið á íslandi og raunar Vesturlöndum í heild hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Átaka- línurnar hafa breyst. Kjósend- ur eru ekki jafn vanafastir og virðast grundvalla val sitt á stjómmálaflokki hverju sinni á nokkuð öðrum forsendum en áður. Hjá því verður heldur ekki litið að Sjálfstæðisflokk- urinn gegnir nú því erfiða hlut- verki að vera forystuflokkur í ríkisstjórn í einhverri mestu efnahagskreppu þessarar aid- ar. Innan flokksins gætir að auki óánægju með að hann hefur ekki staðið við gefin lof- orð um að hækka ekki skatta og niðurskurður ríkisútgjalda hefur ekki orðið í þeim mæli, sem búist var við. Það hefur Iíka tvímælalaust háð Sjálfstæðisflokknum að honum hefur á undanfömum árum ekki tekist að móta trú- verðuga stefnu í nokkrum mjög mikilvægum málaflokkum og þá fyrst og fremst í landbúnað- armálum og sjávarútvegsmál- um. Umræður undanfarinna missera sýna hins vegar glögg- lega að ekki verður til lang- frama búið við óbreytt ástand í þessum atvinnugreinum. Þjóðin mun ekki sætta sig við núverandi kvótakerfi í sjávar- útvegi og einnig er ljóst að grundvallarbreytingar á land- búnaðarkerfínu eru óhjá- kvæmilegar, þannig að í aukn- um mæli verði komið til móts við hagsmuni neytenda. Einnig liggur fyrir að umræður um breytta kjördæmaskipan, til að jafna vægi atkvæða, verða of- arlega á baugi á landsfundin- um. Ein helsta ástæða þess hversu hikandi Sjálfstæðis- flokkurinn hefur verið við stefnumörkun í mikilvægum málaflokkum á borð við sjávar- útvegsmál er að innan raða hans má finna jafnt sterkustu talsmenn sem hörðustu and- stæðinga kvótakerfisins. Flokkurinn hefur einnig notið verulegs fylgis meðal bænda en sterkasta vígi hans jafn- framt verið á höfuðborgar- svæðinu. Það á þó ekki að leiða til þess, eins og því miður virð- ist hafa orðið raunin of oft, að menn leiði hjá sér að taka af- stöðu og móta heildstæða stefnu. Sjálfstæðismenn eiga ekki að óttast að ræða þessi mál á hreinskilinn hátt og deila hart. Það felst enginn styrkur í því að breiða yfir ágreining, sem óneitanlega er til staðar. Styrk- urinn felst í því að geta tekist á, náð samkomulagi og taka síðan frumkvæðið í þjóðfélags- umræðum. Ef ekki er hægt að ná samstöðu innan Sjálfstæðis- flokksins um þessi mál má telja ólíklegt að um þau náist sátt í þjóðfélaginu í heild. Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins hefur mikla sérstöðu í íslensku stjórnmálalífi. í landsfundi býr gífurlegur kraftur, þegar tekst að virkja hann í kjölfar opinna umræðna og málefnalegra átaka. Þá daga sem hann stendur beinist athygli þjóðarinnar að flokkn- um og þeirri stefnu, sem hann hefur fram að færa. Nái sjálf- stæðismenn saman um raun- hæfa stefnu í þeim mikilvægu málaflokkum, sem áður voru nefndir, getur það gjörbreytt þjóðfélagsumræðunum. Þau tímamót verða á lands- fundi að þessu sinni, að beinar sjónvarpssendingar verða frá fundinum. Þar með geta lands- menn fylgst með umræðum á þessum mikla stjórnmálafundi milliliðalaust. Þetta frumkvæði sjálfstæðismanna á áreiðan- lega eftir að verða Sjálfstæðis- flokknum til framdráttar. 25 Fyrri umræða um kjara- og- atvinnumál á þingi Verkamannasambandsins Flestir vilja segja upp samningum FLESTIR sem til máls tóku við fyrri umræðu um kjara- og atvinnu- mál á þingi Verkamannasambands íslands í gær kröfðust þess að kjarasamningum yrði sagt upp í byrjun nóvember er forsendur þeirra koma til skoðunar í launanefnd aðila vinnumarkaðarins þar sem ríkisvaldið hefði ekki staðið við loforð sem gefin voru í tengsl- um við gerð samninganna í vor. Aðrir sem varlegar vildu fara mæltu því ekki mót að segja upp samningum, heldur lögðu áherslu á að menn þyrftu að gera upp við sig næstu skref sem tekin yrðu eftir uppsögn. Mikilvægt væri að skipuleggja framhaldið vel. Það væri komið nóg af hótunum á undanförnum árum. Ef menn segðu upp samningum þyrfti fólk að gera sér grein fyrir að tími væri kominn til að standa við hótanirnar. Það skipti mestu að fólk væri tilbúið til að fylgja fram kröfunum. Margir þingfulltrúar tóku til máls alls staðar að af landinu. í máli mjög margra kom fram óánægja með óráðsíu þeirra sem betur mættu sín, bæði innan embættiskerfisins og einkageirans. „Sjálftökuliðið" eins og það var orðað tæki sér laun eftir þörfum, fengi sér dýra bíla og færi í utanlandsferðir án tillits til ástands- ins í þjóðfélaginu á sama tíma og álögur væru auknar á almennt launafólk, sjúklinga og elli- og öror- kulífeyrisþega. Almennt launafólk bæri eitt byrðamar af þjóðarsáttinni og því yrði að breyta. Samningar taka of langan tíma Þá kom fram óánægja með það hvað gerð síðustu samninga hefði tekið langan tíma og það væri ekki hægt að una við að það endurtæki sig í kjölfar þess að samningum yrði sagt upp nú. Meðal annars kom fram hugmynd um að tilkynna ætti um verkfall fyrirfram til dæmis með tveggja mánaða fyrirvara ef samn- ingar tækjust ekki, til að koma í veg fyrir að þeir drægjust úr hömlu. Þá kom einnig fram sú skoðun að menn ættu ekki að vera feimnir við að gera launakröfur og þó fiskafli færi minnkandi væru ýmis jákvæð teikn á lofti, svo sem í ferðamanna- iðnaði, mikill loðnuafli og landanir erlendra fiskiskipa hér á landi og vinnsla á þeim afla. Aðrir riljuðu upp að ástæðan fyrir gerð síðustu samn- inga og þess að samið var um engar beinar launahækkanir hefði verið erfiðleikarnir í þjóðarbúinu og sú röksemd að með þeim væri sá mögu- leiki fyrir hendi að vernda atvinnu- stigið. Það hefði hins vegar komið í ljós að stjórnvöld hefðu enga at- vinnustefnu. Ekkert væri til dæmis gert til að fullvinna sjávarafla hér- lendis sem væri þó eitt öflugasta ráðið í atvinnumálum. Þrefaldur orkukostnaður úti á landi Nokkrir fulltrúar landsbyggðar- innar gerðu orkukostnað heimilanna að umtalsefni og kröfðust þess að hann yrði jafnaður á milli lands- hluta, það skipti kjör fólks miklu meiru en nokkrar krónur í umslagið. Var vitnað til talna frá iðnaðarráðu- neytinu frá því í desember í fyrra þar sem fram kemur að kostnaður af að hita 400 rúmmetra hús er nær þrefaldur þar sem hann er dýrastur samanborið við þar sem hann er ódýrastur. Kostnaðurinn er frá því að vera rúmar 31 þúsund krónur þar sem hann er minnstur upp í það að vera tæpar 88 þúsund krónur þar sem það er dýrast. I drögum að kjaramálaályktun sem liggur fyrir þinginu er lögð áhersla á að endurskoða þurfi þá aðferð sem notuð hafi verið við gerð samninga frá því „þjóðarsáttarsamn- ingarnir" voru gerðir 1990. Nauð- synlegt væri að endurskoða aðferða- fræði hreyfingarinnar í þeim efnum, Þingfulltrúar á verkamannasambandsþingi FULLTRÚAR á þingi Verkamannasambandsins. Flestir sem til máls tóku við fyrri umræðu um kjara- og atvinnumál á þinginu í gær kröfðust þess að kjarasamningum yrði sagt upp í byijun nóvember þar sem ríkisvaldið hefði ekki staðið við loforð sem gefin voru í tengslum við gerð samninganna í vor. því þau fyrirheit sem gefin hafi ver- ið við gerð „þjóðarsáttasamning- anna“ hafi ekki gengið eftir og verkalýðshreyfingin og aðrir aðilar vinnumarkaðarins geti ekki öllu lengur frestað því að taka á því verk- efni. Milljarða skattbyrði frá fyrir- tækjum yfir á einstaklinga Síðan segir: „Lausn síðustu kjara- deilu byggðist á yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar um aðgerðir á sviði atvinnumála ásamt fyrirheitum í efnahags- og peningamálum sem leiddu til lækkunar vaxta. Þetta hefði átt að leggja grundvöll að atvinnu- skapandi framkvæmdum, getað ver- ið ómetanlegur stuðningur við at- vinnulífið og skotið stoðum undir bætt kjör launafólks. Þetta hefur því miður ekki gengið eftir. Jafnframt gaf ríkisstjórnin fyrirheit um að hún myndi ekki við gerð fjárlaga leggja á ný gjöld eða skatta sen rýrðu kjör almenns launafólks. Verkalýðshreyf- ingin lýsti og yfir við lok samnings- gerðarinnar, að hún myndi líta á allar aðgerðir ríkisvaldsins, sem legðu auknar byrðar á launafólk, sérstaklega þá lægstlaunuðu, sem ógildingu á forsendum kjarasamn- inga.“ Þá er rætt um að vaxandi ágrein- ingur hafi verið á milli verkalýðs- hreyfingarinnar og samtaka atvinnu- rekenda um túlkun ýmissa réttindaá- kvæða kjarasamninga. Svo hart sé sótt að verkalýðshreyfingunni að hún verði að beita öllum tiltækum ráðum til að veija hagsmuni félaga sinna og óhjákvæmilegt sé að þetta kalli á viðbrögð af hennar hálfu.: Ennfremur er á það bent að ís- lensk fyrirtæki greiði lægri skatta en í nokkru öðru ríki innan OECD sem hlutfall af landsframleiðslu. Þrátt fyrir það liafi milljarða skatt- byrði verið flutt af fyrirtækjum yfir á launafólk. Nefnd um mótun menntastefnu skilar tillögum um áramótin Fjallað um lengd og fjölda námsára í framhaldsskólum SÚ HUGMYND að lengja skólaár og fækka námsvetrum í framhaldsskól- um kom fyrst fram við skipan nefndar um mótun menntastefnu vorið 1992 eftir því sem Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra segir. Hann væntir þess að nefndin skili mótuðum tillögum varðandi hugmyndina við starfslok sín um áramót. Aðspurður útilokar hann ekki að nám í grunn- og framhaldsskóla verði stytt um tvö ár. Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambands íslands, segir að til greina komi að lengja skólaárið. Hún hafi hins vegar efasemdir um að rétt sé að fækka námsárum. Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður Hins íslenska kennarafélags, telur ekki ólíklegt að þróunin verði í þá átt að lengja og fækka námsvetrum í fram- haldsskolum. Ólafur G. Einarsson menntamála- ráðherra sagði að allt frá skipun nefndar um mótun menntastefnu í aprílmánuði árið 1992 hefði verið umræða innan ráðuneytisins um að lengja skólaár framhaldsskóla og fækka að sama skapi námsárum. Þannig hefði verið tæpt á þessari hugmynd í áfangaskýrslu nefndar- innar frá því í janúar og nánari út- færslu hennar væri að vænta með lokatillögum hennar um áramót. Aðspurður hvaða forsendur lægju að baki hugmyndinni sagði Ólafur að mönnum væri annars vegar ljóst að erfitt yrði að veita öllum nemend- um störf á sumrin eins og gert hefði verið. Hins vegar þætti ekki, með tilliti til alþjóðlegra umhverfis, eðli- legt að íslenskir unglingar eyddu fleirum árum í skóla fyrir háskóla- nám en jafnaldrar þeirra í öðrum löndum. Ungt fólk í nágrannalönd- unum lýkur stúdentsprófi að jafnaði einu til tveimur árum fyrr en jafn- aldrar þeirra hér á Iandi og kvað Ólafur ekki útilokað að stytta grunn- og framhaldsskólanám um tvö ár. Neitaði Ólafur ekki að til greina kæmi að taka annað árið af grunn- skólanámi. Hvað tengsl ykóla og atvinnulífs varðaði sagði Ólafur að breytingar á lögum um framhaldsskóla hefðu þegar gefið aukið svigrúm fyrir meiri samvinnu skóla við aðila á vinnu- markaði. Hann minnti í þessu sam- bandi á að 1. september hefði verið gerður samningur milli Iðnskólans í Reykjavík, sem sæi um prentnám, menntamálamálaráðuneytis og aðila í prentiðnaði. Ekki endilega samhengi Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambands íslands, tekur fram að viðhorf Jóhönnu Sigurðar- dóttur félagsmálaráðherra á þingi Verkamannasambandsins varðandi framhaldsskóla sé ekki nýtt af nál- inni og vel komi til greina að lengja skólaárið. „Kennarasambandið er fyrir sitt leyti alveg tilbúið að ræða lengingu skólaársins og tók t.d. upp umræðu af því tagi í síðustu samn- ingaviðræðum. Þá hafnaði ríkis- stjórnin hins vegar samningum um þetta atriði,-" sagði Svanhildur og bætti við að hún væri ekki jafn hrif- in af hugmyndum um fækkun skóla- ára í kjölfarið. „Ég hef miklar efa- semdir í því sambandi og vísa þá t.d. til umræðu í þjóðfélaginu um að íslensk ungmenni séu ekki nægi- lega vel búin undir háskólanám. Eg held þess vegna að það væri afar rangt að fara að fækka skólaárunum sjálfum þó svo að skólaárið lengdist. Þannig sé ég ekki ástæðu til að tengja endilega saman þessar tvær hugmyndir,“ sagði Svanhildur. Áhersla á innihald Elna Katrín Jónsdóttir, varafor- maður HÍK, minnti eins og Svanhild- ur á að viðlíka hugmyndir hefðu skotið upp kollinum áður. „Ég tel að þessi einhliða áhersla á lengingu skólans í mánuðum og styttingu í árum sé engin lausn í sjálfu sér. Það þurfi að endurskoða menntakerfið og leggja verulega orku og þjálfun í að endurskipuleggja það þannig að það svari bæði kröfum nemenda, þörfum þeirra og samfélagsins,“ sagði Elna og játti því að umræddar hugmyndir gætu orðið hluti af endur- skipulagningu af þessu tagi. „Vissu- lega. Við lítum svo á að þróunin muni líklega verða eitthvað í þessa átt en áður en svo verður þarf margt annað að breytast," sagði Elna og ítrekaði að félagið legði mesta áherslu á innihald náms og námsum- hverfi. Á eftir væri hægt að ræða um skiptingu skólanáms í mánuði og ár og í beinu framhaldi samninga um kjör til þess að af því mætti verða. Hún minnti á starf nefndar um mótun menntastefnu og sagði að beðið væri eftir niðurstöðum hennar. AF INNLENDUM VETTVANGI PÉTUR GUNNARSSON 31. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í Reykjavík í dag Búist við sátt um forystumenn en átökum um ýmis stefnumál Morgunblaðið/Sverrir KJARTAN Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Friðrik Sophusson varaformaður, Davíð Oddsson formaður, og Ásdís Halla Bragadóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokks- ins, virða fyrir sér fundargögnin sem fulltrúarnir 1.800 sem rétt eiga á að sitja 31. landsfund Sjálf- stæðisflokksins fá afhent í dag. EKKI er fyrirfram búist við pólitískum stórtíðindum frá 31. landsfundi Sjálfstæðis- flokksins, sem settur verður í Laugardalshöll í dag og stend- ur til sunnudags. Viðmælendur Morgunblaðsins telja að nokk- uð almenn samstaða sé í flokknum um endurkjör núver- andi formanns og varafor- manns til næstu tveggja ára. Þó verður að gæta þess, að kosningin er án tilnefningar, atkvæðaseðlum er dreift á meðal landsfundarfulltrúa og þeir skrifa nöfn þeirra, sem þeir vilja kjósa til þessara trún- aðarstarfa. Þess vegna er í raun ómögulegt að fullyrða nokkuð um það, hvað gerist í slíkri kosningu. í málefnastarfi má vænta snarpra umræðna um mál á borð við innflutning búvara og landbúnaðarmál, kjördæmamál og jöfnun at- kvæðisréttar. Samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins hyggjast nú 17 landsfundar- fulltrúar bjóða sig fram í kosn- ingum um 11 sæti í miðstjórn flokksins en þær kosningar fara fram á sunnudag. Nær 1.800 manns, fleiri en nokkru sinni fyrr, eiga rétt til setu á landsfundi en heimildar- menn Morgunblaðsins eiga ekki von á að allur sá hópur skili sér til Reykjavíkur þar sem landsfund- ur með málefnastarf í fyrirrúmi dragi ekki menn að sér með sama hætti og átök eins og þau sem urðu við formannskosningarnar í mars 1991. Á skrifstofu flokksins gera menn sér vonir um að 1.500- 1.600 fulltrúar mæti og fundurinn verði þar með hinn fjölmennasti í sögu flokksins. Með landsfundi verður ýtt úr vör því átaki í innan- flokksstarfí sem fylgir komandi sveitarstjórnakosningum. Sjálfstæðismenn víðs vegar að sem Morgunblaðið ræddi við eru hins vegar sammála um að um mikilvægan landsfund sé að ræða fyrir Sjálfstæðisflokkinn þar sem tíðinda geti verið að vænta úr málefnastarfinu sem nú standi ekki í skugga átaka í forystuliði. Afstaðan til öryggis- og varnar- mála sé ekki lengur það bindiefni Sjálfstæðisflokksins sem áður var og brýnt sé orðið að taka stefnu- mál flokksins til skoðunar. Ólíkar ályktanir um landbúnað Ágreiningur sjálfstæðismanna um búvörumál og innflutning þeirra kemur meðal annars fram í ályktunardrögum þeim sem lögð verða fyrir fundinn. í drögum land- búnaðamefndar og utanríkismála- nefndar er komið inn á málið en lögð áhersla á þann árangur sem náðst hefur og þær tilslakanir og skref í fijálsræðisátt sem vænta megi með GATT-samningi. Utan- ríkismálanefnd segir mikilvægt að standa þannig að aðlögun íslensks landbúnaðar að breyttum aðstæð- um vegna alþjóðasamninga að greinin sjálf eigi eðlilegan hlut að ákvörðunum. í drögum landbúnað- amefndar segir að landsfundur telji ótímabært að losa um innflutning umfram það sem felist í EES og væntanlegum GATT-samningi. Ályktunardrög viðskipta- og neyt- endanefndar flokksins er hins vegar á öðrum nótum. Sett er fram af- dráttarlaus krafa um að opnað verði fyrir innflutning unninna lándbún- aðarafurða. Um þetta, og landbún- aðarmál almennt, búast viðmælend- ur Morgunblaðsins við líflegum umræðum á landsfundi. í sjávarútvegsmálum eiga sjálf- stæðismenn ýmis óuppgerð mál. Endurskoðun laganna um stjórnun fiskveiða er yfirvofandi en eins og kunnugt er hafa hefðbundnar fylk- ingar í deilum um sjávarútvegsmál riðlast nokkuð og mótast ekki jafn- eindregið og áður af afstöðu til spurningarinnar um kvóta eða veiðileyfagjald; menn skipast nú ekki síður í sveitir eftir greinum og landshlutum. Forystumaður af Vestflörðum sem Morgunblaðið ræddi við kvaðst vonast eftir ítar- legri umræðu um stöðu sjávarút- vegisins þar sem tekið verði ann- ars vegar mið af stöðu einstakra greina og hins vegar af hagsmun- um héraða á borð við Vestfirði þar sem sjávarútvegur sé kjölfesta at- vinnu og byggðar. Kjördæmamálin Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hyggst ungliðahreyfing sjálfstæðismanna láta til sín taka í umræðum um efnahags- og ríkis- fjármál en þó ekki síst í umræðum um kjördæmamál og jöfnun at- kvæðisréttar. Sem kunnugt er standa um fjórfalt færri að baki hvers alþingismanns Vestfirðinga en hvers þingmanns frá Reykja- nesi. Með breytingum á kjördæma- skipan árið 1987 náðist jafnvægi milli flokka og undanfarið hafa aðilar úr öllum stjórnmálaflokkum fært í tal nauðsyn endurskoðaðrar kjördæmaskipunar í því skyni að jafna vægi atkvæða eftir búsetu. Flestar tillögur sem heyrst hafa gera jafnframt ráð fyrir fækkun þingmanna. Innan Sjálfstæðis- flokksins hafa löngum verið skipt- ar skoðanir á þessu máli og svo er enn. „Flokkurinn verður að taka af skarið og má ekki tapa frum- kvæði í málinu til annarra flokka ef hann ætlar að bera nafn með rentu og standa vörð um grund- vallarhugsjónir sínar,“ sagði áhrifamaður í ungliðahreyfing- unni. Forystumaður úr dreifbýlis- kjördæmi sagði að kjördæmamálið væri eitt af eilífðarmálum Sjálf- stæðisflokksins sem nú væri farið að ræða með sífellt vaxandi þunga. „Ég vildi gjarnan sjá breytingar en mér hefur alltaf fundist að Sjálf- stæðisflokkurinn legði ónauðsyn- lega ofuráherslu á þetta mál. Það er greiniiegt að kjósendurnir í land- inu leggja ekki jafnmikla áherslu á þetta mál og er sýnilegt að tiltek- inn hópur á landsfundi Sjálfstæðis- flpkksins hefur gert,“ sagði hann. „Ég er ósammála þeirri fullyrðingu að það sé nauðsynleg forsenda lýð- ræðis að vægi atkvæða sé jafnt á landinu öllu en viðurkenni að nú- verandi kosningakerfi er tilviljana- kennt og gallað." Fulltrúar hinna ólíku sjónarmiða eru hins vegar einhuga um að umræður um þetta mál muni setja mark á landsfund- inn, ekki síst í tengslum við um- ræður nú um sameiningu sveitarfé- laga og breytta verkaskiptingu rík- is og sveitarfélaga. Að öllu samanlögðu eiga við- mælendur Morgunblaðsins ekki von á hörðum málefnaátökum á landsfundinum nú fremur en oftast áður, aðeins „einstaka minni háttar gosi“ eins og einn þeirra orðaði það. Hjá flestum örlar á vonbrigð- um yfir því að minni spennu verði vart nú við upphaf landsfundarins en oftast undanfarin ár. Minni at- hygli sé að vænta fyrir flokkinn og málefni hans en jafnan í tengsl- um við landsfund. Átta ný framboð í miðstjórn Á landsfundi er kosið um 11 fulltrúa í miðstjórn Sjálfstæðis- flokksins en meirihluti miðstjórn- armanna er sjálfkjörinn vegna annarra trúnaðarstarfa fyrir flokk- inn. Meðan flokkurinn var í stjórn- arandstöðu kom síðasta miðstjórn að jafnaði saman á mánaðarfresti en í dag klukkan tvö kemur núver- andi miðstjórn saman til þriðja fundar síns á þessu ári. Eftir þann fund mun skýrast hverjir þeirra 11 sem kjörnir voru á síðasta landsfundi hyggja á endurkjör en i gær var talið að tveir þeirra gefi ekki gefa kost á sér að nýju. Nýir frambjóðendur sem Morg- unblaðinu er kunnugt um eru eftir- taldir átta aðilar: Ari Edwald, Reykjavik, Birgir Ármannsson, Reykjavík, Jón Helgi Björnsson, Norðurlandi eystra, María Yngva- dóttir, Seltjarnamesi, Pétur Rafns- son, Hafnarfirði, Sigrún Símonar- dóttir, Borgarnesi, Svanhildur Árnadóttir, Dalvík, og Örn Kærne- sted, Mosfellsbæ. Fyrir sitja í miðstjórn sem kjörn- ir fulltrúar á landsfundi: Davíð Sch. Thorsteinsson, Reykjanesi, Þuríður Pálsdóttir, Reykjavík, Magnús L. Sveinsson, Reykjavik, Hildigunnur Högnadóttir, ísafirði, Björn Jónasson, Siglufirði, Theód- ór Blöndal, Seyðisfirði, Drífa Hjartardóttir, Suðurlandi, Sigurð- ur Einarsson, Vestmannaeyjum, Guðlaugur Þór Þórðarson, Borgar- nesi, og Þorgrímur Daníelsson, Norðurlandi vestra. Guðlaugur Þór er nú sjálfkjörinn sem formaður SUS og samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hyggst Þorgrímur ekki sækjast eftir endurkjöri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.