Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 45
r
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993
45
SIGLINGAR
3
Unnu íslandsbikarinn
EIRÍKUR Einarsson, Daníel G. Friðriksson og Valdimar Karlsson unnu
íslandsbikar Siglingasambandsins 1993, en keppninni lauk fyrir skömmu.
Alls tóku 5 áhafnir þátt í mótinu, en keppnin fer þannig fram að keppt er
á tveimur eins 18 feta bátum, sem eru eins útbúnir þannig að aðeins
hæfni áhafnarinnar ræður úrslitum. Þetta var í fyrsta sinn síðan 1989
sem þessi keppni er haldin hér á landi. Þetta keppnisfyrirkomulag er
mjög vinsælt erlendis og á vaxandi vinsældum að fagna hér á landi.
Mótið fer þannig fram að allir keppa við alla og tekur hver keppni um
25 mínútur og alls voru keppnirnar 25 talsins. Tveir dómarar fylgja bátun-
um eftir og dæma öll brot samstundis. Fyrri hluti keppninnar fór fram
í september en það tókst ekki að ljúka henni fyrr en um síðustu helgi
vegna logns. Keppnin var mjög jöfn og spennandi en þeir Eiríkur, Daníel
og Valdimar höfðu það í lokin. í 2. sæti urðu þeir Viðar Ólsen, Gunnar
Hilmarsson og Jónas.
GOLF
Dregið í riðla í
HM í holukeppni
Corey Pavin fær í dag tækifæri
til að hefna fyrir tapið gegn
Peter Baker í Dunhill-keppninni á
sunnudaginn. Þá mætast þeir í
heimsmeistarakeppninni í holu-
keppni sem fram fer í Englandi.-
Þar keppa tólf af bestu kylfingum
heims og búið er að draga í riðla.
t
Steve Elkington frá Ástralíu leik-
ur við Bandaríkjamanninn John
Daly og sigurvegarinn úr þeirri við-
ureign leikur við Bretann Nick
Faldo á morgun, en Faldo er raðað
númer eitt á styrkleikalista móts-
ins. David Frost frá S-Afríku mæt-
SKOTFIMI
Skotfélag Kópa-
vogs setti tvö
íslandsmet
Sveit Skotfélags Kópavogs setti
tvö íslandsmet á móti sem
fram fór í íþróttahúsinu Digranesi
um helgina. Fyrst setti sveitin met
í keppni með loftskammbyssu, náði
1.699 stigum. Sveitina skipuðu
Ólafur Jakbosson (573), Jónas Haf-
steinsson (566) og Hannes Tómas-
son (560). Sveit Aftureldingar varð
í öðru sæti með 1.587 stig. í sveit-
inni voru Ólafur Jakobsson (553),
Hannes Tómasson (541) og Hannes
Haraldsson (533). Áfturelding varð
í öðru sæti.
Einnig var mót í riffilskotfimi,
50 skot liggjandi. Þar sigraði Gylfi
Ægisson með 574 stig. Gunnar
Bjamason varð annar með jafn-
mörg stig og Auðunn Snorrason
þriðji með 571 stig. Þeir ery allir
úr Skotfélagi Kópavogs.
ir Severiano Ballesteros frá Spáni
og sigurvegarinn mætir manni
númer 4 á listanum, Ian Woosnam
frá Bretlandi. Pavin og Baker beij-
ast um að fá að leika við Nick Price
frá Zimbawe, sem er númer þijú á
umræddum lista og Colin Montgo-
merie frá Bretlandi og Yoshinori
Mizumaki frá Japan leika um að
fá að mæta manni númer 2 á listan-
um, Bemhard Langer frá Þýska-
landi.
Allir leikirnir verða tveir hringir,
36 holur, ef með þarf og heildar-
verðlaunin nema 63 milljónum
króna.
STARFSLOK
Fræðslufundur haldinn á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18,
laugardaginn 23. október, 1993, kl. 13:00 - 17:00.
kl. 13:00 Inngangur / Kynning á dagskrá.
kl. 13:15 Bætur frá Tryggingastofnun ríkisins.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, deildarstjóri.
kl. 14:00 Húsnæðismál aldraðra.
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri.
kl. 14:30 Peningamál aldraðra.
Margrét Sveinsdóttir, rekstrarhagfræðingur.
KafFiveitingar.
kl. 15:30 Ábyrgð á eigin heilsu, matur og næring, íþróttir og útivera.
Svanhildur Þengilsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
kl. 16:10 Reynsla mín við starfslok.
Þorgeir Ibsen, fyrrverandi skólastjóri.
kl. 16:30 Hvað get ég gert fyrir sjálfa(n) mig og aðra?
Hólmfríður Gísladóttir, deildarstjóri RKÍ.
Umræður.
kl. 17.00 Fundarlok.
Þátttökugjald er 1.000 kr., kaffi innifalið.
Skráning þátttakenda er í síma 91-626722.
FRÆÐSLUMIÐSTOÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími 91-626722
FELAGSLlF
Aðalfundur Hauka
Aðalfundur knattspyrnudeildar Hauka f
Hafnarfirði verður haldinn f Haukahúsinu
við Flatahraun mánudaginn 25. október kl.
20.00.
Ikvöld
Körfuknattieikur
Úrvalsdeild:
Borgarnes: Skallagr. -Valur....kl. 20
I. deild karla:
Kennarahásk.: ÍS-Léttir...kl. 20
1. deild kvenna:
Keflavík: ÍBK-UMFG........kl. 20
Handknattleikur
2. deild karla:
Austurberg: Fylkir - Ármann ...kl. 20
Seltj’nes: Grótta-ÍH......ki. 20
Tífbod fyrir hópa:
2.000 kr. afsláttur
á mann ef í hópnum
eru 15 manns eöa
fleiri. 40.000 kr.
spamaöur fyrir
20 rnanna hóp.
36.980
í Baltimore bjóöum viö
gistingu á eftirtöldum
gæöahótelum:
Holiday Inn Inner Harbor,
Sheraton Towson,
Hyatt Regency,
Days Inn Inner Harbor
og The Latham.
kr,
Vdtlur cr 5% staAf’mdsInafsIállur*
á mannirm í tvíbýli í
3 nœtur og 4 daga á
Hotel Sheraton Towson. *
Gildtr frd 1. nóv. til 3. des.
á nuuininn m.v. tvtbýli tnmfalið l vertti:flng, flivtinq
lánæturá Shcraton Tou’Mn, flugvaHarákattar,
Ltlenik fararttjám, .tkoáutiarferJtil Waobiiujton D.C.
og akotur til og fráftugvelli.
Brottfarir á miöviku-,
fimmtu- og
föstudögum.
Heimflug á sunnu-,
mánu- og
miövikudögum.
Frábært tækifæri til þess aö gera hagstæö innkaup; m.a. stærsta verslunar-
miðstöð á austurströnd Bandaríkjanna, Towson Town Center. Heillandi
miðbær með aragrúa veitingastaða, verslana, leikhúsa og skemmtistaða.
Einstök söfn. Örstutt til höfiiðborgar Bandaríkjanna, Washington D.C.
M.v. að greitt sé með minnst 14 daga fyrrirvara. Innifalið er flug og gisting og
flugvallarskattar. Börn, 2ja - 11 ára, fö 15.500 kr. í afslátt. Börn að 2ja ára aldri greiða
3.500 kr. Enginn bókunarfýrirvari.
Ilafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar ftí kl. 8 -18.)
FLUGLEIDIR
Traustur tslenskur ferðafélagi