Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993 43 Þriðjungurinn úr innbrotum Frá Helgíi Kristbjarnarsyni: Á undanförnum árum hefur með vaxandi þunga verið kynt undir spilaáráttu þessarar þjóðar. Nú virðist stefna í að Háskólinn, Rauði krossinn og fleiri ætli að sameinast um enn eina nýjungina í íslensku menningarlífí sem er rekstur svo- kallaðra vítisvéla. Vítisvélarnar gera út á spilafíkn og spennusækni fólks og eru sér- hannaðar af sálfræðingum og at- ferlisfræðingum til að gefa af sér hámarkshagnað fyrir eigandann. Reynslan erlendis af svona tækjum er að fólk með vímuefnafíkn laðast öðrum meira að þessum tækjum enda verða þau staðsett á vínveit- ingastöðum og í sérstökum spilasöl- um. Til að afla fjár til þessarar spilamennsku neytir fólk ýmissa bragða, stundum ólöglegra. Þótt þeir sem afbrot stunda séu aðeins lítill hluti þeirra sem spila eru þeir oftast þeir djarftækustu, og ekki mun Ijarri lagi að um þriðjungur þess sem aflast úr þessum vítisvél- um komi af tekjum úr innbrotum og annarri ólöglegri starfsemi. Vegna þessa hafa þessar vélar ekki verið leyfðar í neinu öðru Evrópu- landi. Það er sorglegur misskilningur að það að fimmtíu króna mynt sé notuð sem spilapeningar tryggi það að fólk eyði lágum upphæðum í kassana. Stærð spilapeninganna skiptir litlu máli þegar aðeins tekur nokkrar sekúndur að eyða hveijum peningi. Ólíklegt er að margir muni gera sér ferð í spilasalina til þess eins að eyða einum peningi. Nú hefur verið upplýst að ís- lensku rekstraraðilarnir eigi ekki að fá allar tekjurnar af þessum kössum, þriðjungur hagnaðarins á að fara beint úr landi til hinna er- lendu eigenda kassanna, en ekki hefur verið upplýst hveijir hinir raunverulegu eigendur vítisvélafyr- irtækisins eru. Af þeim hluta sem eftir verður í landi fer verulegur hluti í auglýsingar og umsýslu. Það er því ljóst að hlutur Háskólans verður ekki nema sem svarar þeim þriðjungi sem spilasjúkir ógæfu- menn munu leggja stofunni til með afbrotum sínum. Enginn efast um að Háskólinn þarf auknar tekjur en vítisvélarnar eru ekki endilega besta lausnin. Til að spara þjóðinni nokkuð hundruð milljónir á ári í gjaldeyri legg ég til að dómsmálaráðherra veiti Há- skólanum leyfi til að auglýsa eftir íslenskum ógæfumönnum til að bijótast inn til fólks og stela milli- liðalaust þessum milljónum sem vantar, en hætt verði við áform um vítisvélarnar. HELGI KRISTBJARNARSON, Miklubraut 48, Reykjavík. Pennavinir Sautján ára hálfíslensk stúlka í Bandaríkjunum, hefur aldrei til ís- lands komið en vill skrifast á við jafnaldra sína, á ensku. Hefur áhuga á frönsku og leiklist, einnig umhverfisvernd og baráttu Am- nesty International fyrir mannrétt- indum: Kristin Réne Fortier, 4201 West Iowa Avenue, Tampa, 33616 Florida, U.S.A. Átján ára japönsk stúlka með margvíslega áhugamál: Yukari Hori, 723 Hiroshima-ken, Mihara-shi Wada-cho, 6592 Japan. Nítján ára Perúpiltur með marg- vísleg áhugamál: Gonzalo Portilla, Castilla 1480, Lima 21, Peru. Frá Ghana skrifar 22 ára stúlka með áhuga á íþróttum o.fl.: Rosemond Quarshie, P.O. Box 1124, Oguaa City, Cape District, Ghana. Frá Þýskalanda skrifar einstæð 45 ára kona sem á 13 ára son. Vill skrifast á við 45-60 ára karl- menn. Með áhuga á lestri, sundi og garðvinnu: Gudrun Grohmann, Obernaundorferstrasse 18, 8218 Oelsa, Deutschland. Sextán ára japönsk stúlka mefi áhuga á menningu og lífsháttum þjóða, kvikmyndum og frímerkjum: Mayumi Takaki, 242 Odani, Tamayu, Yatukagun, Shimane, 699-02 Japan. Frönsk 27 ára kona, háskóla- nemi, með áhuga á hestum, ferða- lögum, tónlist, íþróttum og kvik- myndum: Cecile Coutte, 5 rue Saint Roch, F-80000 Amiens, France. Athugasemd við skrif Frá Asmundi U. Guðmundssyni: Sveinn Ólafsson, Furugrund 70, Kópavogi, sver af sér símaupp- hringinguna, sem ég vitna til í síð- asta pistli mínum 23. september sl. Hveijum má trúa þegar sagt er til nafns, með heimilisfangi við upphaf kynningar, eins og gerðist í um- ræddu tilviki? Það er líka táknrænt að engum spurningum er svarað, sem ég hef varpað fram í skrifum mínum. Held- ur sveimað á svig, líkt og hundar og refír gera, er þeir finna óþægi- lega lykt, og vilja komast í vind- stöðu af henni, láta sig svo hverfa í buskann óséðir. Slík hafa skrifin verið við að réttlæta ökuljósanotk- unina, samhliða því að gera skoðan- ir annarra torkennilegar í alla staði. ÁSMUNDUR U. GUÐMUNDSSON, Suðurgötu 124, Reykjavík. VELVAKANDI VILLANDI AUGLÝSINGAR UM RJÚPNAVEIÐI BÓNDI hringdi og vildi benda ijúpnaveiðimönnum á það að í raun og veru þyrftu bændur ekki að taka fram að ijúpnaveiði væri bönnuð í landi þeirra því það væri bannað með lögum að skjóta á annars manns landi. Hann sagði að þessar auglýsingar frá bændum gætu verið villandi vegna þess að veiðimenn teldu að þeir mættu skjóta hvar sem væri, svo framlega að bændurnir hefðu ekki bannað það sérstak- lega. HVERJIR BORGA í SPILAKASSANA? ÉG HEF mig ekki í að hringja í Þjóðarsálina svo ég nota Velvak- anda til að tjá mig um spilakassa- málin. Ég var að velta því fyrir mér hveqir yrðu aðalstyrkjendur Háskóla ísland og halda myndu uppi húsbyggingum hjá þeirri stofnun ef þessir spilakassar komast í gagnið. Ég gæti trúað að það yrðu fyrst og fremst lág- launafólk sem væntir fljóttekins vinnings. Eins og við höfum heyrt eru það öryrkjar og börn sem sækja í kassana. Hvaða vit er í því að ætla að stilla upp kössun- um á búllum þar sem fólk er að drekka úr sér vitið? Ætla ráð- herrar að stilla sér upp við þessa kassa og styrkja háskólann eða er verið að sækjast eftir aurum öryrkjans eða annarra sem eru með spilafíkn? Hvað segir Þor- steinn Pálsson um þetta? Pálína Magnúsdóttir. ÞAKKIRTILFM ÁNÆGÐUR útvarpshlustandi hringdi í Velvakanda til að koma á framfæri þökkum til FM fyrir þá rólegu tónlist sem spiluð er á kvöldin milli kl. 22.00-1.00. GÆLUDÝR með bláa hálsól með „gimstein- um“. Hafí einhver orðið hennar var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 38576. Lotta er týnd LOTTA týndist frá Sólheimum 18 fyrir tveimur vikum. Hún var Týndur köttur KÓTTUR þessi hjópst á brott af heimili slnu á Álfhólsvegi í Kópa- vogi. Einkennandi er sár á ann- arri framloppunni. Hafí einhver orðið hans var er hann vinsam- lega beðinn að hafa samband við eiganda svo fljótt sem auðið er í síma 642045. TAPAÐ/FUNDIÐ Ágæti Velvakandi, Ég hefi nýlega tapað samsonite- skjalatösku, hún er grá að lit, frekar stór, me.rkt bláu plast- merkispjaldi. Á liðnum árum hefi ég einnig tapað: a) Parker-51, gullhúðaður blek- penni, árgerð 1951, merktur. b) Silfurbúin svipa frá Halldóri Sigurðssyni, merkt. c) Leðurskjalataska (oksehud) dönsk, frá 1951, merkt. Gott væri að fá þessa fjóra hluti aftur, helst alla. Leifur Sveinsson, Tjarnargötu 36, Reykjavík. Eyrnalokkur tapaðist GULLEYRNALOKKUR með hvítri perlu tapaðist annaðhvort í Mjódd eða við Gullfoss. Upplýs- ingar í síma 71794. Fundarlaun. Reiðhjól fannst DÖKKBLÁTT fjallahjól frá Ern- inum fannst í Arbæjarhverfi um mánaðamótin sept./okt. Eigand- inn getur vitjað þess í síma 79870. Hjól í óskilum Á KLEPPSVEGI 98 er í óskilum blátt drengjahjól. Upplýsingar í síma 33845. Hjól í óskilum APPELSÍNUGULT kvenreiðhjól með barnastól aftan á var skilið eftir í vesturbænum um helgina. Upplýsingar í síma 10329. Bætið sambandið Námskeió í tjáskiptum fyrir hjóna- og sambúðar- fólk. Þjálfun í tjáningu, hlustun og lausn ágrein- ings. 4x2 tímar. Leiðbeinandi: Benedikt Jóhanns- son, sérfræðingur í klínískri sálfræði. Skráning í síma 791 39 frá kl. 19.30-21.00. Þú ræður engu um greind þína, en... þú ræður öllu öðru um getu þína til náms. Margfaldaðu lestr- arhraða þinn og bættu námstæknina og árangur þinn í námi mun batna verulega... með minni fyrirhöfn en áður! Ánægja af lestri góðra bóka vex einnig með auknum lestrarhraða. Viljir þú vera með á síðasta hraðlestrarnámskeiði ársins, sem hefst fimmtudaginn 28. október, skaltu skrá þig strax í síma 641091. HRAÐLESTRARSKOLINN ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! 35 1978- 1993 ðkeypis lögfræðiaðstoð á hver ju fimmtudagskvöldi milli kl. 19.30 og 22.00 ísíma 11012. ORATOR, félag laganema. HEIÐAR JÓNSSON snyrtir og INGRID HALLDÓRSSON snyrtifræðingur leiðbeina um val á m m ine SWITZERLAND I dag 21. október kl. 12-17 í H Y G E A tnyrtivðruvcrilun Austurstræti Tómstundaskólinn Gríptu tækifærið!! Laust er í eftirtalin námskeið íTómstundaskólanum Vídéótaka á eigin vélar Útskurður í tré Smíði smáhluta úr kopar og blikki Glerskurður Trölladeig Skrautmyndagerð Slæðuhnýtingar Silkimálun Skógrækt Innanhússkipulagning - litir og lýsing Þú hefur orðið - ræðumennska Að ná árangri á fundum Kökuskreytingar og konfektgerö Hlífðargassuða Hattagerö Sjálfsnudd Fatahönnun Handmáluð kort og litlar myndir Bongo- og kongastrommur Haföu samband strax!!! TÓM5TUNDA SKOLINN Grensásvegi 16a Sími 67 72 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.